Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 6
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon forseti Al-
þingis mun sitja Heimsráðstefnu
þingforseta sem fram fer í Vínar-
borg dagana 7. til 8. september
næstkomandi. Daginn eftir situr
hann þingmannaráðstefnu á vegum
IPU, heimssamtaka þjóðþinga, í
sömu borg.
Þetta verður eitt af síðustu emb-
ættisverkum Steingríms, sem lætur
af þingmennsku á kjördag hinn 25.
september nk.
En nú er það spurning hver muni
taka við keflinu af Steingrími og
gegna embættinu þar til nýtt þing
hefur verið kallað saman og nýr for-
seti kosinn. Ekki getur gengið að
hafa engan þingforseta starfandi
enda er hann einn að þremur hand-
höfum forsetavalds í fjarveru forseti
Íslands. Hinir eru forsætisráðherra
og forseti Hæstaréttar. Líklegast
má telja að Brynjar Níelsson þing-
maður Sjálfstæðisflokksins verði sá
útvaldi.
Í sjöttu grein þingskaparlaga seg-
ir að fráfarandi forseti og varafor-
setar skuli gegna störfum frá kjör-
degi og fram til þingsetningar
nýkjörins Alþingis hafi þeir verið
endurkjörnir alþingismenn. Sé for-
seti ekki endurkjörinn gegnir störf-
um hans sá varaforseti sem næst
honum gengur í röð endurkjörinna
varaforseta, ella aldursforseti, sbr.
1. gr., sé enginn þeirra þingmaður
lengur.
Í forsætisnefnd Alþingis sitja auk
Steingríms Guðjón S. Brjánsson, 1.
varaforseti, Brynjar Níelsson, 2.
varaforseti, Þorsteinn Sæmundsson,
3. varaforseti, Willum Þór Þórsson,
4. varaforseti, Björn Leví Gunn-
arsson, 5. varaforseti og Bryndís
Haraldsdóttir, 6. varaforseti.
Guðjón S. Brjánsson og Þorsteinn
Sæmundsson láta nú af þing-
mennsku líkt og Steingrímur og
koma því ekki til greina. Brynjar,
Willum, Björn Leví og Bryndís eru
öll í framboði. Samkvæmt nýjustu
skoðanakönnunum eru þrjú þau síð-
astnefndu í næsta öruggum sætum
en Brynjar tæpastur, nú í Reykja-
víkurkjördæmi norður. Ef Brynjar
nær ekki kjöri er Willum því næstur
til að taka við keflinu.
Tekur Brynjar við af
Steingrími sem forseti?
- Nýr forseti Alþingis mun taka við að kosningum loknum
Steingrímur J.
Sigfússon
Brynjar
Níelsson
Morgunblaðið/Eggert
6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021
Skipholti 29b • S. 551 4422
NÝTT
LEÐUR-
JAKKAR
Verð 42.900,-
3 litir
TRAUST
Í 80 ÁR
LAXDAL ER I LEIÐINNI – SKOÐIÐ LAXDAL.IS
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Alþingismenn geta ekki farið sínu
fram við skattlagningu borgaranna,
þeir eru bundnir af stjórnarskrá í
slíkri löggjöf sem
annarri. Sérfræð-
ingur í skattarétti
telur að fram-
komnar tillögur
um stóreigna-
skatt séu ómark-
vissar og hæpið
að ná þeim fram.
Dómur Hæsta-
réttar um lög-
mæti auðlegðar-
skatts skjóti ekki
stoðum undir þær, öðru nær.
Teitur Björn Einarsson, fram-
bjóðandi Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi, vakti athygli á
því í samtali við Morgunblaðið í gær,
að tillaga Samfylkingarinnar um
stóreignaskatt stæðist tæplega
stjórnarskrá. Jóhann Páll Jóhanns-
son, frambjóðandi Samfylkingarinn-
ar, vísaði því á bug í gær með orðum
um að „löggjafanum [hefði] verið ját-
að mjög ríkt svigrúm til að ákveða
hvernig skattheimtu er háttað“.
Stjórnarskráin er sú sama
Morgunblaðið spurði Jón Elvar
Guðmundsson, lögmann hjá Logos
og sérfræðing í skattarétti, um þessa
deilu og forsendur stóreignaskatts.
„Það væri gengið mjög greitt um
gleðinnar dyr löggjafans að túlka
dóma Hæstaréttar svo, að það sé nóg
að pólitíkusa langi til að ráðstafa fé
til þess að líta megi fram hjá stjórn-
arskránni.“ En dygði að setja tíma-
mörk á slíkan stóreignaskatt, t.d.
eitt kjörtímabil? „Já, mögulega, en
þó því aðeins að tiltekin séu sérstök
rök fyrir fjárþörfinni.“
Jón Elvar segir að Jóhann Páll vísi
til algengs en almenns orðalags
Hæstaréttar um hið pólitíska skatt-
lagningarvald. „Um sértækan eign-
arskatt dugir það varla, því Hæsti-
réttur lagði sérstakt mat á
auðlegðarskattinn 2013 og var nokk-
uð skýr um skilyrði hans. Þar var
ríkið að leita leiða til að fjármagna
grunnþjónustu, ekki einhver gælu-
verkefni eða jafna stöðu manna. Ef
það þurfti sérstaka réttlætingu fyrir
því þá, þá á það engu síður við nú.
Stjórnarskráin er sú sama.“
Hann segir um grátt svæði að
ræða og erfitt að finna meðalhófið.
„Ef menn ætla að finna afmarkaðan
hóp til þess að skattleggja, þá þarf að
finna mjög veigamikla réttlætingu
fyrir því að velja tiltekinn hóp sam-
félagsins, sem beita á þyngri álögum
en aðra. Ég fæ ekki séð að þær
óvenjulegu aðstæður séu fyrir hendi
nú,“ segir Jón Elvar. „Vissulega má
benda á mikil útgjöld vegna heims-
faraldursins, en miðað við fjármála-
áætlun þá er ekki komið í nein þau
óefni að grípa megi til slíkra óyndis-
úrræða,“ segir hann.
„Löggjafanum er ekki heimilað
frjálst pólitískt mat til þess að mis-
muna fólki og velja úr hóp, sem á að
fara verr með en aðra. Það verður að
fara að stjórnarskránni um það.“
Um framkvæmdina treystir Jón
Elvar sér ekki að fullyrða, en minnir
á að þeir auðugustu í þessum hópi
séu jafnframt þeir sem hafa mestan
hvata og eiga auðveldast með að
flytja sig um set.
Lítið svigrúm
fyrir álagningu
stóreignaskatts
- Sérfræðingur í skattarétti segir
Alþingi settar skorður í stjórnarskrá
Jón Elvar
Guðmundsson
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er eitt af 60 prufueintökum
sem til eru í heiminum og virkilega
ánægjulegt að fá afnot af bílnum,“
segir Bjarni Ingi-
mar Júlíusson,
sölustjóri hjá
Stillingu.
Nú standa yfir
tökur á kvikmynd
um Thule-vörur
og vörumerkið í
nánu samstarfi
við alþjóðlega
talsmenn og
áhrifavalda vöru-
merkisins. Tök-
urnar fara meðal annars fram á
Hvolsvelli og verður áhersla lögð á
sýna íþróttafólkið og áhrifavaldana í
sínu rétta umhverfi.
Eitt af þeim farartækjum sem not-
ast verður við í tökum fyrir markaðs-
efni ferðavörufyrirtækisins Thule er
Ineos Grenadier sem er hugarfóstur
breska auðmannsins Jim Ratcliffe
sem á fjölda jarða á Norðausturlandi
og hefur gefið sig að verndun villta
laxastofnsins þar. Að sögn Bjarna
var umræddur bíll þegar á landinu
og hafði verið í prófunum fyrir aust-
an. Mun Ratcliffe persónulega hafa
lánað Grenadier-jeppann til Thule til
að nota við tökurnar.
„Þetta er spennandi, alvörujeppi
og ég hugsa að hann eigi eftir að selj-
ast vel hérna. Við ætlum að reyna að
sýna hann í Reykjavík við tækifæri,“
segir Bjarni.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í sumar var Grenadier frum-
sýndur á bílahátíð í júní og ráðgert
er að hann komi á markað á næsta
ári. Jeppanum hefur verið lýst sem
„andlegum arftaka“ Land Rover
Defender.
„Er ljóst að fólkið sem hannaði
Grenadier var ekki með endurskoð-
endur á bakinu í hönnunarferlinu og
jeppinn smíðaður með þarfir notand-
ans í huga frekar en að reyna að há-
marka tekjur og lágmarka útgjöld
Ineos,“ sagði í umfjöllun í bílablaði
Morgunblaðsins.
Ratcliffe lánaði nýja jeppann
sinn í tökur Thule á Hvolsvelli
- Umfangsmiklar
tökur á markaðs-
efni fyrir Thule
Nýsköpun Grenadier-jeppi auðmannsins Jim Ratcliffe hefur vakið athygli.
Bjarni Ingimar
Júlíusson