Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Bí 110 Tr Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g fékk hugmyndina að því að yfirfæra svona keppni á Ísland þegar ég fór út til Mongólíu árið 2014 og keppti þar í þolkappreið sem voru þúsund kílómetrar á tíu dögum á villihestum. Mér fannst rakið að bjóða upp á þolkappreið á Íslandi og aðlaga hana íslensku landslagi og íslenska hestinum. Við erum með allt sem til þess þarf, sterkt hesta- kyn og þvílíkt flott og fjölbreytt landslag. Svona þolkappreiðar eiga að vera óútreiknanlegar og mikið ævintýri. Þetta á ekki bara að vera þolkappreið heldur líka upplifun,“ segir Aníta Aradóttir, knapi og tamningakona, en hún skipulagði, í samstarfi við Landssamband hesta- mannafélaga, þolkappreið yfir há- lendi Íslands sem var prufukeyrð nú í lok ágúst. Þolkappreið er íþrótt sem snýst um að ríða hesti ákveðna vegalengd á tíma og að hesturinn sé í góðu líkamlegu ástandi á endastöð. Fjögur lið kepptu og lögðu af stað frá Lýtingsstöðum í Skagafirði það- an sem riðið var yfir Kjöl. Komu keppendur í mark á Skógarhólum á Þingvöllum eftir um 240 kílómetra reið um hálendi Íslands á fjórum dögum. Þrír voru saman í liði, einn knapi, tveir aðstoðarmenn og þrír hestar. Tveir hestar voru notaðir hvern dag og einn hvíldur. Hverjum hesti var riðið um 25-35 km leið í senn og aðrir hestar keyrðir á milli áfangastaða. Helgi Sigurðsson dýralæknir var með í för og fylgdist vel með ástandi hesta allan tímann. Á hverjum áfangastað var mæld öndun, púls og líkamlegt ástand hestanna metið og refsistig gefin fyrir of háan púls og fyrir áverka ef einhverjir voru. „Engin meiðsl eða áverkar urðu á hestum eða mönnum og eng- inn hestur missti skeifu á leiðinni,“ segir Aníta og bætir við að tveir knapar hafi verið íslenskir og tveir erlendir. „Ung kona frá Bandaríkj- unum og ungur maður frá Svíðþjóð, sem hafa bæði keppt í þolreiðum víða um heim á hestum sem eru af öðru hestakyni.“ Iðunn er frábær fyrirmynd Guðni Halldórsson, formaður Landssambands hestamannafélaga, segir að þolkappreið sé hluti af nýj- um áherslum hjá landssambandinu, að reyna að setja meiri fókus á fleira en keppni á hringvelli og inni á lokuðum brautum. „Við höfum viljað setja meiri fókus á útreiðar, ferðalög og al- menna hestamennsku, sem lang flestir eru að stunda. Ég sá strax tækifæri í því að með þolkappreið gætum við náð inn á annan mark- hóp, fólk bæði hér heima og erlend- is sem er ekki endilega spennt fyrir því að keppa inni á hringvöllum en hefði hugsanlega áhuga á að þjálfa hross og sjálft sig fyrir þolkappreið. Hún Iðunn sem sigraði í þolkapp- reiðinni, er frábær knapi og fyrir- mynd, hún er ótrúlega flott íþrótta- manneskja sem fékk þarna að njóta sín, af því að boðið var upp á þetta keppnisform.“ Guðni segir að ákveðið hafi ver- ið að taka lítil skref í byrjun og hafa keppnina sem prufu. „Við vildum athuga hvort þetta væri hægt og hvort hestarnir myndu þola þetta vel, sem kom í ljós að þeir gerðu. Markmiðið er að koma keppninni upp í miklu stærri viðburð, hugsanlega með beinum útsendingum og öðru, og við þannig náð til breiðs hóps áhorfenda bæði í sjónvarpi og á vefnum. Þetta er tækifæri til að komast inn um þenn- an alþjóðlega glugga hestaáhuga- fólks, sem er ekki endilega gang- hestaáhugafólk.“ Sterkir og þolnir hestar Þegar þau Aníta og Guðni eru spurð að því hvaða eiginleikum hestur þurfi að búa yfir í þolkapp- reið, segja þau að hestarnir sem tóku þátt núna hafi allir verið hest- ar sem hafa undanfarin ár verið í hestaferðum allt sumarið. „Þeir eru því rosalega sterkir og þolnir. Þeir voru í toppformi, púlsinn hjá þeim var kominn í 44 slög á mínútu, hálftíma eftir stopp, þegar þeir höfðu farið 30 kílómetra leið. Það er mjög gott, því þeir verða að vera með undir 56 slög á mínútu til að knapi fái ekki refsi- stig,“ segir Aníta og Guðni bætir við að flestir hestarnir hafi verið 15 til 17 vetra, sem er nokkuð eldra en í öðrum keppnum. „Keppendur treystu þessum hestum og þekktu þá vel. Hryssa sem Hermann var með í keppninni er 17 vetra, hún hefur verið sýnd í kynbótadómi með fyrstu verðlaun og hefur átt fjögur folöld. Þetta voru því alls konar hross, þjálfaðir góðir hestar, stórir og sterkir. Kúnstin er að leyfa hestinum að vera á þeim gangi sem honum finnst þægilegast, að knapinn finni hvar hesturinn damlar á sínum þægilegasta hraða og gangi. Þetta er gríðarlega tæknileg grein, því um leið og knapinn fer of hratt, þá er hætta á að hann sprengi hestinn, og ef hann fer of hægt þá nær hann ekki nógu góðum tíma. Það þarf líka að meta landslagið og aðstæður, hvernig hraði hentar hverju sinni og undirlaginu, hvenær er rétt að slaka hestinum niður og hvenær rétt að gefa í. Þetta er mikil íþrótt og ef knapi fær ítrekað refsistig, þá er viðkomandi rekinn úr keppninni og ef meiðsl verða á hesti þá fer sá hestur úr keppni.“ Uppeldi hests skiptir máli Þau segja að margir hafi eðli- lega verið með áhyggjur af því að gengið yrði of nærri hestunum í þol- kappreiðinni, en það stóð að sjálf- sögðu aldrei til og þess vegna var Helgi Sigurðsson dýralæknir með í för. „Hann hefur kynnt sér þol- kappreiðar í þaula í öðrum löndum. Hann stóð fast á því að vegalengdir væru vel innan marka, og það kom á daginn. Hann skoðaði hvern hest hátt og lágt á hverjum einasta stoppistað, þuklaði bak, hvern ein- asta fót, tók púls og mældi öndun. Það voru engin meiðsli, nuddsár, bólgur eða neitt slíkt. Þetta er ánægjulegt og sýnir hvað íslenski hesturinn þolir. Það kom okkur á óvart hversu þessi tegund af álagi, þolkappreið, hentar íslenska hest- inum vel. Hann er orðinn stærri og sterkari en hann var fyrir fímmtíu árum, af hverju eigum við á sama tíma að gera ráð fyrir að hann þoli minna en hann hefur gert í gegnum tíðina? Hestar sýna til dæmis mikið úthald í smalamennskum og löngum hestaferðum. Íslenski hesturinn elst sem betur fer enn þá upp í einhvers konar hjörðum og þar lærir hann að fara um fjölbreytt landslag, á með- an hestar sem alast upp í sléttum hólfum öðlast ekki þennan félags- þroska, fótafærni og kjark. Við þurfum að hampa þessu frjálsræði og öðru sem íslenski hesturinn hef- ur umfram marga aðra.“ Að kunna að lesa í hestinn Þegar Aníta er spurð að því hvað knapi þurfi að hafa til að bera í þolkappreið, segir hún að hann þurfi fyrst og fremst að kunna að lesa í hestinn hverju sinni. „Það er mikil fegurð í þessari grein. Ég er búin að vera í hesta- mennsku allt mitt líf, verið að temja og þjálfa og mikið í hestferðum. Fyrir vikið er þetta á einhvern hátt komið í vöðvaminnið hjá mér. Það er orðið mér eðlislægt að vera lengi í einu á hestbaki, dögum saman. Þetta er innprentað í mig, að lesa í hestinn.“ Þau Aníta og Guðni segja að klárlega verði haldin önnur þol- kappreið á næsta ári. Hann þolir meira en við höldum Þolkappreið er þekkt keppnisgrein um veröld víða og nýtur vinsælda. Í ágúst fór þolkappreið fram hér á landi þar sem riðið var yfir há- lendi Íslands. Vonir standa til að í framtíðinni veki hún athygli og áhuga á íslenska hestinum, ferðalögum á honum og Íslandi almennt. Ljósmynd/Landssamband hestamannafélaga Blíða Iðunn Bjarnadóttir vann keppnina, kemur hér í mark við Bugaskála ásamt Hermanni eftir fyrsta legg. Ljósmynd/Landssamband hestamannafélaga Leikslok Knapar í sigurröð: Iðunn fyrir lið Riding Iceland Saltvík, Annie Whelan frá Bandaríkjunum fyrir lið Íslandshesta, Hermann Árnason fyrir lið Hermanns hestaferða og Musse Hasselvall frá Svíþjóð fyrir lið Eldhesta. Aníta Aradóttir Guðni Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.