Morgunblaðið - 04.09.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 04.09.2021, Síða 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Ennþá meira úrval af listavörum Listverslun.is Um síðustu helgi var í Safnahúsinu á Húsavík opnuð sýning Péturs Jónssonar ljósmyndara þar í bæ, sem var valinn Listamaður Norð- urþings 2020. Pétur hefur myndað stærstu stundir margra kynslóða Norðlendinga og búið til skóla- spjöld og fleira. Pétur er fæddur á Suðureyri við Súgandafjörð árið 1941. Hann fór sautján ára til náms í Reykjavík en að því loknu, árið 1962, stofnaði hann ljósmyndastofu á Húsavík; og hefur rekið hana síðan. Á þeim tíma tæpu sextíu árum hafa orðið miklar breytingar í ljósmyndum. Framan af voru myndirnar svarthvítar og handlitaðar. Síðar varð Pétur ann- ar tveggja ljósmyndara sem fyrstir framkölluðu ljósmyndir í lit á Ís- landi. Síðar kom stafræna ljós- myndatæknin, sem öllu hefur breytt. Þá tækni tileinkaði Pétur sér snemma. „Ég hef kynnst öllu í ljósmyndatækni. Myndað á gler- plötu og síma og allt þar á milli,“ segir Pétur við Morgunblaðið. Aðdragandinn að sýningu Péturs er langur sbr. að hann var listamað- ur heimabyggðar sinnar á síðasta ári. Samkomutakmarkanir vegna veirunnar lokuðu á sýningarhaldið, en loks var lag. Á sýningunni eru alls 45 myndir. „Mér finnst sýningin koma vel út og mannlífið sem ég hef myndað í áratugi nýtur sín vel,“ segir Pétur. Sýninguna settu upp dóttir Péturs, Sigríður, kvikmyndafræðingur og útvarpsmaður, og tengdadóttirin, Patra Tawatpol. Þá er við Gamla Bauk, veit- ingastað við Húsavíkurhöfn, uppi önnur sýning með gömlum mynd- um sem Pétur hefur unnið í tölvu. Yfirskriftin þar er Frá fátækt til fengsældar og sýnir brot úr útgerð- arsögu Þórs og Stefáns Péturssona, sem voru útgerðarmenn og kunnir borgarar á Húsavík. Upplýsingar um myndirnar má nálgast á sýning- arstað með símaappi. sbs@mbl.is Pétur með sýningu Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Fjölskylda Pétur hér með börn- unum sínum, Sigríði og Helga. - Ljósmyndari á Húsavík Listamaður Norðurþings - Mannlífið nýtur sín Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Slysavarnaskóli sjómanna í Sæ- björgu mun á næstunni flytja frá Austurhöfn að Bótarbryggju í Gömlu höfninni í Reykjavík. Bótar- bryggja liggur úti af Grandagarði, milli Slysavarnahússins og Bakka- skemmu, húss Sjávarklasans. Það mun ekki taka nema nokkrar mín- útur að færa Sæbjörgu milli staða og óhætt að fullyrða að þetta er sá skóli á Íslandi sem tekur skemmstan tíma að flytja. Sæbjörgin hefur legið í Austur- höfninni síðustu 14 árin. Miklar breytingar hafa orðið á þessu svæði undanfarin ár. Fyrst reis tónlistar- húsið Harpa, því næst stór fjölbýlis- hús og á næstunni verður tekið þar í notkun nýtt lúxushótel, Reykjavík Edition-hótelið. „Skólinn er að flytja vegna breyttra aðstæðna, ekki síst vegna þeirrar uppbyggingar sem hefur orðið við Austurbakkann, þ.m.t. hót- elið,“ segir Magnús Þór Ásmunds- son, hafnarstjóri Faxaflóahafna. „Sæbjörginni hefur verið fundinn góður staður við Bótarbryggju. Þar er góð aðstaða fyrir æfingar en einn- ig er þar t.d. góður aðgangur að veit- ingastöðum, almenningssamgöngum og ágætur aðgangur að bílastæðum, allt sem hentar skólanum vel,“ bætir Magnús við. Undirbúningur er hafinn Nú er unnið að undirbúningi fyrir flutninginn en það þarf að tengja Sæbjörgina við rafmagn, vatn, frá- rennsli og ljósleiðara. Einnig verða settar upp aðgangsstýringar fyrir akandi umferð að bryggjunni. „Það verður áfram viðlega fyrir skip við Austurbakka og Faxaflóa- hafnir munu alfarið stýra nýtingu bakkans,“ segir Magnús. Ekki er komin dagsetning á flutn- inginn, að sögn Hilmars Snorrason- ar skólastjóra Slysvarnaskólans, enda sé eftir að koma fyrir aðstöðu fyrir skipið. Hilmar tekur undir með Magnúsi að hin nýja staðsetning sé að mörgu leyti heppileg fyrir Slysavarnaskól- ann. Til að mynda muni nemendur skólans hafa úr fleiri veitingastöðum að velja en hingað til. „Það verður sannarlega glatt á hjalla hjá þeim í Mathöllinni að það sé kominn skóli við hliðina á þeim,“ segir Hilmar. Slysavarnaskóli sjómanna er í eigu Slysavarnafélagsins Lands- bjargar en hann var stofnaður árið 1985 til að sinna öryggisfræðslu fyr- ir sjómenn. Árið 1998 gaf ríkisstjórn Íslands félaginu ferjuna Akraborg til nota fyrir starfsemi skólans en skipið var þá að hætta siglingum vegna tilkomu Hvalfjarðargang- anna. Þeir eru margir sem eiga góð- ar minningar frá ferðum með „Boggunni“ milli Reykjavíkur og Akranes. Sæbjörgin er smíðuð 1974 og er nýkomin úr slipp. Hún liggur nú ný- máluð og glæsileg í Austurhöfninni. „Þetta er fallegt og vinalegt skip í alla staði,“ segir Hilmar. Á árum áður sigldi Sæbjörgin á valda staði á landsbyggðinni á sumr- in, þar sem námskeið voru haldin fyrir sjómenn. Þessi starfsemi lagðst af eftir 2015, þegar skipið var ekki lengur haffært. Ástæðan var sú að kjölfesturtankar voru orðnir lélegir. Skrokkur skipsins er í góðu lagi og nýleg þykktarmæling kom vel út, en hún var framkvæmd þegar skipið var í slipp fyrir skömmu. Starfsemi Slysavarnaskólans er komin á fullt eftir sumarleyfi og verður kennt óslitið fram í júlí á næsta ári. Aðsóknin er mikil og oft- ast fullbókað í námskeiðin. Boðið er upp á 30 mismunandi námskeið fyrir sjómenn. Það standa allt frá hálfum degi upp í fimm daga mest. Milli 2.500 og 3.000 sjómenn hafa sótt skólann árlega. Í heimsfaraldri Covid var byrjað að bjóða uppá námskeið í fjarnámi í bóklegu og síðan koma nemendur til Reykjavíkur til að taka verklega hlutann. Þetta hefur reynst sér- staklega gott fyrirkomulag fyrir sjó- menn á landsbygðinni og því verður þetta það áfram í boði að sögn Hilm- ars. Við skólann starfa 10 manns og þar af koma átta beint eða óbeint að kennslu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Austurhöfnin Sæbjörgin nýmáluð og flott eftir slipptöku nýlega. Skólinn flytur innan Gömlu hafnarinnar vegna mikillar uppbyggingar við Austurhöfn. Skóli fluttur á nokkrum mínútum - Slysavarnaskóli sjómanna í Sæbjörgu færður að Bótarbryggju - Mikil uppbygging í Austurhöfn Morgunblaðið/sisi Bótarbryggja Sæbjörgin mun framvegis liggja við bryggjuna að norðan- verðu. Í nágrenni Bakkaskemmu, sem í dag nefnist Hús sjávarklasans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.