Morgunblaðið - 04.09.2021, Síða 41

Morgunblaðið - 04.09.2021, Síða 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 KNATTSPYRNA Undankeppni HM karla: Laugardalsv.: Ísland – N-Makedónía ... S16 Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: HS Orkuvöllur: Keflavík – Valur .......... L14 Würth-völlur: Fylkir – Þór/KA ............. L14 Jáverkvöllur: Selfoss – Tindastóll......... L14 Eimskipsvöllur: Þróttur R. – ÍBV ........ L14 Samsungv.: Stjarnan – Breiðablik ........ S12 1. deild karla, Lengjudeildin: Domusnovav.: Kórdrengir – Fjölnir..... L14 Grindavík: Grindavík – Fram................ L14 Olísvöllur: Vestri – Þór .......................... L14 Eimskipsv.: Þróttur R. – Víkingur Ó .... S13 2. deild karla: Hertz-völlur: ÍR – Haukar..................... L14 KR-völlur: KV – Leiknir F .................... L14 Eskjuvöllur: Fjarðabyggð – KF ........... L16 Grenivíkurv.: Magni – Völsungur ......... L17 3. deild karla: Hásteinsvöllur: KFS – Ægir ................. L14 Vopnafjörður: Einherji – Sindri............ L16 Nesfiskvöllur: Víðir – Tindastóll ........... L16 Vilhjálmsv.: Höttur/Hug – Dalv/Rey.... L16 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Norðurálsvöllur: ÍA – Afturelding........ L14 Kaplakriki: FH – Víkingur R ................ L14 Meistaravellir: KR – Haukar ................ L14 Kópavogsv.: Augnablik – Grótta........... L17 Seinni leikir um sæti í 1. deild kvenna: Fjarðab.höll: FHL – Fram .................... L13 Húsavík: Völsungur – Fjölnir................ L14 HANDKNATTLEIKUR Meistarakeppni kvenna: KA-heimilið: KA/Þór – Fram............ S14.15 KÖRFUKNATTLEIKUR Bikarkeppni karla, 1. umferð: Ásvellir: Haukar – Þór Ak................. S17.30 Bikarkeppni kvenna, 16-liða úrslit: Ásvellir: Haukar – Hamar/Þór .............. S20 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Laugardalur: SR – SA .......................L17.45 UM HELGINA! Evrópudeild karla 1. umferð, fyrri leikur: Porec – Valur ........................................ 18:22 _ Liðin mætast aftur í Króatíu í dag. Danmörk Kolding – Lemvig................................ 32:30 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 12 skot í marki Kolding. Viborg – Skanderborg........................ 34:24 - Steinunn Hansdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Skanderborg. Svíþjóð Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Eslöv – Lugi ......................................... 28:33 - Ásdís Þóra Ágústsdóttir lék ekki með Lugi vegna meiðsla. E(;R&:=/D Gísli Þorgeir Kristjánsson sneri aftur á handknattleiksvöllinn á fimmtudag- inn þegar lið hans Magdeburg vann 34:22-sigri gegn Erlangen í æfingaleik í Magdeburg. Þetta var fyrsti leikur ís- lenska landsliðsmannsins síðan í mars þegar hann fór úr axlarlið í leik Magde- burgar og Füchse Berlín í þýsku 1. deildinni. Þýska deildin hefst á nýjan leik eftir sumarfrí á fimmtudaginn kemur en Magdeburg mætir Stuttgart í 1. umferð deildarinnar. _ Körfuknattleiksmaðurinn Finnur Atli Magnússon mun ganga í raðir Hauka á ný en hann lék með liðinu á árunum 2015-2018. Það var vefmiðill- inn Karfan.is sem greindi frá þessu en Finnur hefur leikið með Val á Hlíðar- enda undanfarin tímabil. _ Ágúst Þór Gylfason hættir störfum sem þjálfari karlaliðs Gróttu í knatt- spyrnu eftir keppnistímabilið en Ágúst er að ljúka sínu öðru ári með liðið. Eitt ogannað HM 2022 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu mætir Norður-Makedóníu í J-riðli undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli á morgun. Ísland er með bakið upp við vegg eftir 0:2-tap gegn Rúmeníu á Laug- ardalsvelli á fimmtudaginn síðasta í undankeppni en íslenska liðið er með 3 stig í fimmta og næstneðsta sæti J- riðils. Armenía er með 10 stig í efsta sætinu, Þýskaland kemur þar á eftir með 9 stig og Norður-Makedónía er í þriðja sætinu með 7 stig. Rúmenía er í fjórða sætinu með 6 stig og Liech- tenstein rekur lestina án stiga í sjötta sætinu. Þrátt fyrir að vera með 7 stig í undankeppninni hefur Norður- Makedónía ekki riðið feitum hesti frá undanförnum leikjum sínum. Liðið tók þátt í lokakeppni Evrópumótsins í sumar í fyrsta sinn síðan árið 1992 þegar mótið fór fram í Svíþjóð. Norður-Makedónía lék í C-riðli Evrópumótsins ásamt Austurríki, Úkraínu og Hollandi en riðillinn var leikinn í Búkarest í Rúmeníu og Amsterdam í Hollandi. Norður-Makedónar töpuðu 1:3 gegn Austurríki í Búkarest, 1:2 gegn Úkraínu í Búkarest og loks 0:3 gegn Hollandi í Amsterdam. Liðið er því án sigurs í síðustu fjór- um leikjum sínum en Norður- Makedónía gerði markalaust jafntefli gegn Armeníu í Skopje í und- ankeppni HM á fimmtudaginn. Þrátt fyrir slæmt gengi í síðustu leikjum hefur Norður-Makedónía spilað vel í undankeppninni en liðið vann meðal annars 2:1-sigur gegn Þýskalandi í Duisburg í mars þar sem þeir Goran Pandev og Eljif El- mas skoruðu mörk liðsins. Liðið hefur leikið fjóra leiki í und- ankeppninni, unnið tvo þeirra, gert eitt jafntefli og tapað einum leik. Þá hefur Norður-Makedónía skorað níu mörk í undankeppninni en Aleks- andar Trajkovski er markahæstur með 3 mörk og Eljif Elmas kemur þar á eftir með tvö mörk. Heilinn í sóknarleiknum Norður-Makedónía er sem stendur í 72. sæti styrkleikalista FIFA á með- an Ísland er í 53. sæti en Norður- Makedónar hafa fallið um tíu sæti síðan riðlakeppni Evrópumótsins fór fram í júní. Norður-Makedóninn Blagoja Mi- levski er þjálfari liðsins en hann lék sinn fyrsta og eina landsleik fyrir lið- ið árið 1998 í vináttulandsleik gegn Eyptalandi. Hann vann sín stærstu afrek á þjálfaraferlinum þegar hann stýrði liði Vardar í heimalandinu og gerði liðið að meisturum árið 2013. Sama ár var hann valinn þjálfari ársins í Norð- ur-Makedónía. Hann stýrði U21-árs landsliði Norður-Makedóníu frá 2014 til ársins 2018 og aftur frá 2019 til ársins 2021 þegar hann lét af störfum til þess að taka við A-landsliðinu í byrjun sept- ember af Igor Angelovski eftir loka- keppni Evrópumótsins. Hinn 38 ára gamli Goran Pandev, markahæsti leikmaður í sögu Norð- ur-Makedónía með 38 mörk, lagði landsliðsskóna á hilluna eftir Evr- ópumótið í sumar og verður því ekki með á Laugardalsvelli. Aleksander Trajkovski, leikmaður Aalborg í Dan- mörku, er hættulegasti sóknarmaður Norður-Makedóna en hann hefur skorað 18 mörk í 69 landsleikjum. Þá má leiða að því líkur að Adis Jahovic, leikmaður Göztepe í Tyrklandi, verði í fremstu víglínu, líkt og gegn Arme- níu á fimmtudaginn. Sóknarleikur liðsins fer svo mikið í gegnum miðju- manninn Elif Elmas, leikmann Na- poli. Ísland og Norður-Makedónía hafa mæst fjórum sinnum frá árinu 1996, alltaf í undankeppni HM, en Ísland hefur einu sinni fagnað sigri, einu sinni hafa liðin gert jafntefli og tví- vegis hefur Norður-Makedónía fagn- að sigri. Eini sigur íslenska liðsins kom á Laugardalsvelli hinn 15. október 2008 í undankeppni HM 2010 þar sem Veigar Páll Gunnarsson skoraði sig- urmark leiksins á 15. mínútu í 1:0- sigri íslenska liðsins. Birkir Már Sævarsson er eini leikmaðurinn í nú- verandi hóp Íslands sem tók þátt í þeim leik og þá var Eiður Smári Guð- johnsen, nú aðstoðarþjálfari Íslands, einnig í byrjunarliðinu í október 2008. Hætturnar leynast víða - Ísland mætir sterku liði Norður- Makedóníu í Laugardalnum á morgun AFP Lykill Eljif Elmas, til hægri, er samningsbundinn Napoli á Ítalíu. Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur boðað til aukaþings laug- ardaginn 2. október. Þetta kom fram á heimasíðu sambandsins í gær. Þingið verður sett klukkan 11 og má gera ráð fyrir að því ljúki síðar sama dag að því er fram kem- ur í tilkynningu sambandsins. Stjórn KSÍ sagði af sér á síðasta mánudag eftir að Knattspyrnu- sambandið hafði verið gagnrýnt fyrir þöggun og meðvirkni með meintum gerendum innan sam- bandsins en á aukaþinginu verður ný stjórn kjörin. KSÍ boðar til aukaþings Morgunblaðið/Eggert KSÍ Til stendur að kjósa nýja stjórn innan Knattspyrnusambandsins. Kolbeinn Sigþórsson hefur verið settur í ótímabundið leyfi hjá sænska knattspyrnufélaginu Gautaborg og fær ekki að æfa eða spila með liðinu á meðan mál hans er rannsakað. Ekki liggur fyrir hvenær ákvörðun um framtíð leik- mannsins verður tekin að sögn Håkans Mild, yfirmanns knatt- spyrnumála hjá félaginu. Nokkrir af stuðningsmannahópum félagsins hafa krafist þess að Kolbeinn verði rekinn frá félaginu vegna ásakana um meint ofbeldi sem fjallað hefði verið um á Íslandi. Kolbeinn settur í ótímabundið leyfi Morgunblaðið/Hari Rannsókn Mál Kolbeins eru til skoðunar hjá Gautaborg í Svíþjóð. Víðir Sigurðsson í Tókýó vs@mbl.is Sundmaðurinn Már Gunnarsson ætlar að skoða vel og vandlega á næstu dögum og vikum hvort hann haldi áfram keppni í fremstu röð. Hann sagði við Morgunblaðið eftir að hafa synt í sinni síðustu grein á Ólympíumótinu í Tókýó í gærmorg- un að svo gæti alveg farið að þetta hefði verið hans fyrsta og eina Ól- ympíumót. Már varð fimmti í sinni aðalgrein, 100 metra baksundi blindra, átt- undi í 200 metra fjórsundi, þrett- ándi í 50 metra skriðsundi og loks ellefti í 100 metra flugsundinu í gær þar sem hann var þremur sek- úndum frá Íslandsmetinu. „Núna þarf ég að hvíla mig vel og hugsa minn gang. Ég er einn af bestu blindu baksundsmönnum í heimi, við erum þarna nokkrir á sömu sekúndunni, og það er bara eitthvað útfærsluatriði hjá mér sem myndi koma mér ofar en þeir á list- anum. Ég á því gríðarlega góða mögu- leika fyrir París 2024 en síðan er líka gríðarlega mikill músíkant í mér sem þarf að fá útrás og þarf að sinna, þannig að ég ætla bara að fara heim, taka mér frí, og hugsa hvert ég vil fara með mitt líf og hvað ég vil gera. Hvernig ég vil skipuleggja mig,“ sagði Már en við- talið við hann er í heild sinni á Ól- ympíuvef mbl.is. Hann keppti þar með síðastur Ís- lendinga á Ólympíumótinu í Tókýó. Már verður líka einn þeirra eftir í Japan um helgina og verður fána- beri Íslands á lokaathöfn mótsins á morgun. Már skoðar sín mál á næstu vikum Ljósmynd/Gunnar Már Tókýó Már Gunnarsson eftir loka- grein sína á Ólympíumótinu. Tumi Steinn Rúnarsson átti mjög góðan leik fyrir Val þegar liðið vann fjögurra marka sigur gegn Porec í fyrri leik liðanna í 1. um- ferð Evrópudeildar karla í hand- knattleik í Zatika-höllinni í Porec í Króatíu í gær. Leiknum lauk með 22:18-sigri Valsmanna en Tumi Steinn var markahæstur í liði Vals með fimm mörk. Valsmenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 15:7. Porec byrjaði seinni hálfleikinn vel og tókst að minnka forskot Valsmanna í 3 mörk, 13:16. Vals- menn leiddu 20:18 þegar tíu mín- útur voru til leiksloka og þeir juku forskot sitt enn frekar á lokamín- útunum. Benedikt Gunnar Óskarsson og Magnús Óli Magnússon átti góðan leik fyrir Valsmenn og skoruðu þrjú mörk hvor og þá var Björgvin Páll Gústafsson með 39% mark- vörslu eða 9 skot varin. Valsmenn leiða því með fjórum mörkum í einvíginu en liðin mætast á nýjan leik í Porec á morgun. Sam- anlögð úrslit tveggja leikja gilda og því mega Valsmenn tapa með mest þremur mörkum til þess að vinna sér inn sæti í 2. umferð keppninnar. Morgunblaðið/Eggert Fimm Tumi Steinn Rúnarsson var markahæstur Valsmanna í Króatíu. Valur í vænlegri stöðu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.