Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 1

Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 1
L A U G A R D A G U R 9. O K T Ó B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 237. tölublað . 109. árgangur . CRAIG KVEÐUR JAMES BOND MEÐ STÆL SÁ YNGSTI TIL AÐ SKORA FYRIR LIÐIÐ ÍSLAND-ARMENÍA 45NO TIME TO DIE 47 HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.hekla.is/audisalur Rafmagnaður fjölskyldubíll drifinn krafti íslenskrar orku Q4 e-tron Verð frá 5.790.000 kr. Andrés Magnússon andres@mbl.is Birgir Þórarinsson hefur sagt skilið við Miðflokkinn og gengið til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Það gerðist í gærkvöld, en áður hafði hann greint Sigmundi Davíð Gunn- laugssyni, formanni Miðflokksins, frá ætlan sinni. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn því 17 þingmenn á Alþingi, en Mið- flokkurinn aðeins tvo. Stjórnar- meirihlutinn hefur því 38 þingmenn. Birgir segir í samtali við Morgun- blaðið að hann hafi ráðfært sig við trúnaðarmenn Miðflokksins í Suður- kjördæmi áður en hann lét af því verða að ganga til liðs við sjálfstæð- ismenn. Þar á meðal við Ernu Bjarnadóttur, 2. mann á lista Mið- flokksins í Suður- kjördæmi og varamann sinn á þingi, sem einnig færi sig um set, taki hún sæti á þingi. Klausturmálið var kveikjan Vistaskipti Birgis eiga sér nokk- urn aðdraganda, þótt atburðarásin hafi verið hröð í þessari viku. Að sögn Birgis má rekja þau allt aftur til uppákomunnar á Klaustri um árið, en hann fordæmdi hana. Hann kveðst hafa vonað að um heilt hefði gróið síðan, en annað hafi komið í ljós. Hann hafi því að vandlega yfir- veguðu ráði ákveðið að hann gæti ekki átt samleið með hinum þing- mönnum Miðflokksins lengur. Birgir Ármannsson, þingflokks- formaður Sjálfstæðisflokksins, stað- festi inngöngu nafna síns í þingflokk- inn í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Þingflokkurinn sam- þykkti beiðni Birgis Þórarinssonar um inngöngu samhljóða. Við fögnum því að sjálfsögðu að fá nýjan liðs- mann, sem við þekkjum vel og þetta styrkir okkur í þeim störfum, sem fram undan eru,“ sagði Birgir. Þá voru eftir tveir Samkvæmt þingsköpum virðast þeir tveir þingmenn, sem eftir eru í Miðflokki, geta myndað þingflokk, þótt almenna reglan sé að þeir þurfi að vera þrír, enda geri þeir það „þeg- ar að loknum kosningum“. Birgir ritar grein í Morgunblaðið í dag um vistaskiptin, en jafnframt má lesa viðtal við hann um tildrögin. Birgir skilur við Miðflokkinn - Gengur til liðs við sjálfstæðismenn á þingi - Varaþingmaður hans fer sömuleiðis - Greri aldrei um heilt frá Klaustri - Þingmenn Sjálfstæðisflokks eru nú 17 talsins MGat ekki haldið áfram … »10, 27 Birgir Þórarinsson _ Verði tillögur um virkjanakosti í 3. áfanga Rammaáætlunar sam- þykktar verða um 1.421 MW komin í nýtingarflokk úr 2. og 3. áfanga áætlunarinnar. Virkjanakostir úr 3. áfanga hafa þrisvar verið lagðir fyrir Alþingi af þremur ráðherrum en ekki enn verið samþykktir. Þingið samþykkti þingsályktun- artillögu árið 2015 um að vatnsafls- virkjunin Hvammsvirkjun í Þjórsá skyldi færð í orkunýtingarflokk. Engir nýir virkjanakostir hafa ver- ið samþykktir eftir það. Núgildandi Rammaáætlun, það er 2. áfangi, var samþykkt árið 2013. Í henni voru tvær vatnsafls- virkjanir og 14 jarðvarmavirkjanir. Í 3. áfanga, sem bíður samþykktar, er lagt til að átta virkjanakostir færist í orkunýtingarflokk. Verk- efnisstjórn 5. áfanga (2021-2025) er tekin til starfa. »4 Margir virkjanakost- ir bíða samþykkis Að minnsta kosti 55 manns létust og um 150 særðust þegar sjálfvígs- sprengjumaður lét til skarar skríða við mosku sjía-múslima í borginni Kunduz í Afganistan. Er þetta mann- skæðasta hryðjuverkið í landinu frá því Bandaríkjaher yfirgaf það í lok ágúst. Ríki íslams í Afganistan lýsti ódæð- inu á hendur sér, en samtökin hafa lengi beint spjótum sínum að sjíum, sem eru minnihlutahópur í landinu. Fjölmenni var við föstudagsbænir þegar árásin var gerð, og er óttast að enn muni fjölga í hópi látinna, þar sem margir hinna særðu voru í alvar- legu ástandi þegar þeir voru fluttir á sjúkrahús. Þá var óttast að fleiri árás- ir yrðu gerðar í kjölfarið. AFP Hryðjuverk Nærstaddir bera hér lík út í sjúkrabíl eftir árásina í Kunduz. Skæð sjálfs- vígsárás í Kunduz Þrátt fyrir að sumarið sé mörgum enn ferskt í minni styttist í veturinn og jólin. Hafist var handa í vikunni við uppsetningu á jólaskrauti sem prýða mun miðborgina yfir hátíðartímann. Þessir tveir iðnaðarmenn virtust ágætlega ánægðir með verkefni dagsins þegar ljósmynd- ari Morgunblaðsins náði þeim á filmu um hádeg- isbil í gær. 76 dagar eru til aðfangadags jóla sem verður á föstudegi í ár. Morgunblaðið/Eggert Hafist handa við undirbúning jóla í miðborginni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.