Morgunblaðið - 09.10.2021, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Töluvert dró úr atvinnuleysi á landinu í seinasta mánuði.
Skráð atvinnuleysi var 5% í september og lækkaði það úr
5,5% í ágúst. Atvinnuleysi er nú jafn mikið og það var í
febrúar 2020 sem var seinasti mánuðinum áður en heims-
faraldur kórónuveirunnar reið yfir og bendir Vinnumála-
stofnun á í nýútkominni skýrslu um atvinnuástandið að
segja megi að toppur atvinnuleysis vegna faraldursins sé
liðinn hjá. „Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um
1.167 sem nemur rúmlega 10% fækkun atvinnulausra frá
ágústmánuði,“ segir í skýrslunni.
Fram kemur að af þeim 1.071 atvinnulausum sem
fækkaði á atvinnuleysisskrá í september fóru um 450 á
ráðningarstyrk, hins vegar bættust um 1.600 nýir at-
vinnuleitendur við í september.
Atvinnuleysi var sem fyrr mest á Suðurnesjum eða
9,1% en þar minnkaði það úr 9,7% í ágúst. Næstmest var
atvinnuleysið 5,4% á höfuðborgarsvæðinu. Þar var 6,1%
atvinnuleysi í ágúst. Spáir Vinnumálastofnun því að at-
vinnuleysi muni lítið breytast í október og verða á bilinu
5,0% til 5,3%.
Mikill fjöldi atvinnulausra hefur verið án atvinnu leng-
ur en í heilt ár en þeir voru alls 4.598 í lok september og
fækkaði milli mánaða um 485 manns.
„Atvinnulausum fækkaði í öllum atvinnugreinum í
september 2021 frá mánuðinum á undan, meðal stærstu
atvinnugreina fækkaði mest í ferðatengdri starfsemi
(ferðaþjónustu ýmiss konar, gistiþjónustu og veitinga-
þjónustu) eða á bilinu 12% til 14% og í menningartengdri
starfsemi um 15% milli mánaða. Í flestum öðrum at-
vinnugreinum var fækkun atvinnulausra á bilinu 4% til
8%,“ segir í skýrslu VMST.
Enn mælist 11,8% atvinnuleysi meðal erlendra rík-
isborgara.
Toppur atvinnuleysis í
kórónukreppu liðinn hjá
- Skráð atvinnuleysi minnkaði úr 5,5% í 5% í september
5,0%
9,2%
17,8%
13,0%
9,6%
8,8%
9,4% 9,8%
11,1%
12,0% 12,1%
12,8% 12,5% 12,1%
11,5%
10,0%
7,4%
6,1%
5,5% 5,0%
5,0
3,5
5,7
10,3
7,5
5,6
7,4
2,1
7,5 7,9 8,5 9,0 9,9
1,4
10,6
1,4
10,7
1,2
11,6 11,4 11,0 10,4
9,1
7,4
6,1 5,5 5,0
Þróun atvinnuleysis frá feb. 2020 til sept. 2021
20%
15%
10%
5%
0
2020 2021
feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept.
Almennt atvinnuleysi
Vegna skerts starfshlutfalls
Heimild: Vinnumálastofnun
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Viðgerðir Atvinnulausum fækkaði í öllum atvinnugrein-
um í september, og um 12-14% í ferðatengdri starfsemi.
Búið er að grafa fyrir nýjum göngu- og hjólastíg
í gegnum Garðahraun í Garðabæ. Hann á að
tengja svokallaðan Bæjargarð við upplandið.
„Við getum sagt að með þessum aðgerðum sé
hægt að ganga og hjóla frá fjöru til fjalls. Þetta
er liður í því. Stígurinn verður malbikaður og
lýstur svo þarna verður mjög góð samgönguleið
bæði fyrir hjólandi og gangandi,“ segir Gunnar
Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ.
„Þetta er gert með samþykki Umhverfisstofn-
unar og samráði við friðlýsingarskilmála. Frið-
lýsing þýðir ekki að það megi ekki fara um svæð-
ið. Þvert á móti viljum við að fólk upplifi
friðlýsinguna.“ Ekki hafi borið á athugasemdum
eða kvörtunum vegna þessara framkvæmda.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Grafið fyrir nýjum göngu-
stíg í gegnum Garðahraun
Landsréttur hefur staðfest úrskurð
héraðsdóms þar sem ekki var fallist á
að stjórnvöld hefðu farið út fyrir
valdmörk sín með því að vista ein-
stakling í sóttkví, sem var til varnar í
málinu.
Fór sóttvarnalæknir fram á að ein-
staklingurinn, sem ekki hafði verið
bólusettur gegn Covid-19, skyldi
sæta fimm daga sóttkví frá 2. október
og þar til niðurstaða úr seinni PCR-
sýnatöku lægi fyrir, sem honum væri
skylt að undirgangast og framkvæma
skyldi 7. október, eða í gær.
Vildi varnaraðili þá meðal annars
meina að ákvæði reglugerðarinnar
mismuni óbólusettum einstaklingum
með ómálefnalegum og ólögmætum
hætti.
Reglugerð hefði lagastoð
Komust dómstólar að því að reglu-
gerðin hefði lagastoð í sótt-
varnalögum og hún væri reist á til-
lögu sóttvarnalæknis til ráðherra um
nauðsynlegar takmarkanir vegna
sóttvarna.
Þegar litið sé til þeirra skyldna
sem hvíla á löggjafarvaldinu og
stjórnvöldum til að vernda líf og
heilsu landsmanna þegar farsóttir
geisa verði að játa þeim nokkurt svig-
rúm við mat á því hvað teljist nauð-
synlegar aðgerðir á hverjum tíma.
Því væru ekki efni til að líta svo á,
að ákvæðin féllu utan þess svigrúms
sem stjórnvöldum væri játað við mat
á nauðsyn aðgerða hverju sinni.
Sóttkví ekki
út fyrir mörk
- Óbólusettur í mál
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik
máfinnaávefokkar
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
449.400kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Afar einfalt er að reisa húsin okkar.
Uppsetning tekur aðeins einn dag
TILBOÐÁGARÐHÚSUM!