Morgunblaðið - 09.10.2021, Page 6

Morgunblaðið - 09.10.2021, Page 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ákveðið hefur verið að þriðji fjar- skiptasæstrengurinn ÍRIS, sem liggja mun milli Íslands og Írlands, komi á land í Þorlákshöfn. „Lending- arstaður strengsins var færður frá Grindavík til Þorlákshafnar í sumar,“ segir Þorvarður Sveinsson fram- kvæmdastjóri Farice ehf., í svari til blaðsins. Ýmsir valkostir hafa verið skoðaðir. Var frétt um endanlegan lendingarstað birt á vefsíðu Farice 1. september. Hafin er skipulagsvinna í Þorláks- höfn vegna sæstrengsins og auglýst breyting á deiliskipulagi hafnarsvæð- is vegna lóðar og tengihúss fyrir strenginn. Bæjaryfirvöldum í Grinda- vík var hins vegar í gær ekki kunnugt um að hætt hefði verið við að taka strenginn á land í Hraunsvík austan Grindavíkur og er vinna við breyting- ar á aðalskipulagi vegna þess á loka- metrunum. Hjörtur Jónsson hafnarstjóri í Þor- lákshöfn segir að strengurinn eigi að koma á land norðaustan við bæinn og vinna standi yfir við skipulagsmálin í kringum það vegna tengivirkis sem reist verði á lóð sem úthluta á. Á hann von á að vinna við það fari í gang í haust og vetur. „Þeir ætluðu að fara með strenginn í land austan við Grindavík en hættu við það að ég held út af þessum óróa á Reykjanesinu. Þeir sögðu mér að það væri ástæðan fyrir því að hætt væri við það og þess vegna komu þeir til okkar,“ segir Hjörtur. Ekki er um umfangsmiklar framkvæmdir að ræða en reisa þarf 60-100 fermetra hús undir tengivirki. Hafa haldið sínu striki Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík sagðist í gær ekki vita bet- ur en að enn væri til skoðunar að strengurinn kæmi á land við Grinda- vík. „Við höfum bara haldið okkar striki varðandi skipulagsmál og ann- að sem að okkur lýtur, þannig að það hefur ekkert verið slegið af hvað það varðar,“ segir Fannar. Hann segir að upphaflega hafi staðið til að taka strenginn á land vestast á Reykjanes- inu en að ráðleggingum jarðfræðinga hafi verið ákveðið að setja hann frek- ar á land í Hraunsvíkinni við Grinda- vík. „En í ljósi jarðhræringa og eld- gossins þá fóru þeir að skoða Þorlákshöfn, sem ekki var inni í myndinni upphaflega vegna nálægðar við næsta streng sem er í Landeyjum. Ég held að það hafi síðan bara verið opnað á það líka að skoða þetta sam- hliða.“ Í tillögu að breytingu á aðalskipu- lagi Grindvíkur er m.a. gert ráð fyrir mannvirkjabelti fyrir lagnir í jörðu á landi í Hraunsvík og meðfram Suður- strandarvegi. Fannar segir að búið hafi verið að ná samkomulagi við landeigendur um aðstöðuhús og fara yfir málin með fyrirtækjum í sjávar- útvegi vegna fiskimiða undan landi o.fl. „Þetta er langt komið í gegnum aðalskipulag og er bara á lokametr- unum þannig að það verður allt tilbúið af okkar hálfu, svo á bara eftir að koma í ljós hver niðurstaðan verður hjá þeim,“ sagði hann. Tilbúinn fyrir árslok 2022 Þorvarður segir að verkefnið sé á áætlun. „Framleiðsla strengsins er langt komin og lagning hefst frá Ís- landi næsta vor. Kerfið verður, ef allt gengur samkvæmt áætlun, tilbúið til notkunar fyrir árslok 2022.“ Strengurinn kemur á land við Þorlákshöfn - Skipulagsvinna í tveimur sveitarfélögum vegna sæstrengs Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ríkið stóð alls ekki nægjanlega vel með sveitarfélögunum í viðbrögðum og aðgerðum sem grípa þurfti til vegna þess vanda sem heimsfarald- urinn skapaði, ólíkt þeim stuðn- ingsaðgerðum sem gripið hefur verið til annars staðar á Norður- löndunum og víð- ar í Evrópu. Það skorti skilning á mikilvægi þess að sveitarfélög gætu ráðist í fjárfest- ingar til að ná sér á strik og það voru hagstjórnar- mistök ríkisstjórnarinnar að standa ekki almennilega með sveitarfélög- unum bæði á tekjuhliðinni og á gjaldahlið svo þau gætu haldið dampi og farið fram með fjárfestingar í inn- viðum um land allt. Þetta kom fram í máli Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem flutti ræðu undir yfirskriftinn Fjár- mál í heimsfaraldri: hvað getum við lært? á fjármálaráðstefnu sveitar- félaga, sem lauk í gær. Áhrif afleiðinga faraldursins á sveitarfélögin voru gríðarleg að sögn Dags, sem fór yfir viðbrögð borgar- innar við efnahagslega áfallinu og hvaða skref hefðu verið tekin m.a. með sóknaráætluninni Græna plan- inu sem felur í sér fjárfestingar upp á 175 milljarða á þremur árum. Dagur minnti á að OECD hefði sl. sumar varað sterklega við því að van- meta hlutverk fjárfestinga sveitarfé- laga til að ná efnahagslífinu aftur upp. Vissulega hafi allir þurft að glíma við sömu óvissu og ef litið sé yf- ir allt tímabilið verði ekki nema með sanngirni sagt að margt hafi gengið býsna vel og aðgerðir skilað sér til fyrirtækja og atvinnulífs. „En það var viðvarandi hik gagnvart sveitar- félögunum. Ég held að það hafi verið blindi bletturinn í aðgerðum ríkisins hér á landi, sérstaklega þegar við berum það saman við önnur lönd, Norðurlöndin ásamt fjölda Evrópu- landa, og þetta sjáum við m.a. í sam- antekt OECD sem kom strax þarna um sumarið, að fjárhagslegur stuðn- ingur við borgir og sveitarfélög var þar miklu massívari, miklu almenn- ari og skýrt gefinn til kynna alveg í upphafi,“ sagði hann. Ekki verði því annað séð en að ríkissjóðir t.a.m. á Norðurlöndum styðji myndarlega við sveitarfélögin og þá almennu þjón- ustu sem þau veita íbúum sínum. Hér á landi hafi menn hins vegar ekki verið samstiga. Dagur sagði sveitar- félögin í mjög erfiðri stöðu og mun erfiðari en ef haldið hefði verið eins á spilunum og gert var annars staðar á Norðurlöndunum. Landlægt vanmat væri á mikilvægi sveitarfélaga í hag- kerfinu og landlægur skortur á skiln- ingi á muninum á ríki og sveitarfélög- um og ólíkum tekjustofnum þeirra. Dagur sagði að fyrir áfallið vegna co- vid hefðu menn vitað að það væri krónísk vanfjárfesting í fjölmörgum sveitarfélögum á viðhaldi og innvið- um og sú yrði áfram raunin nema eitthvað yrði að gert. Morgunblaðið/Eggert Ræða stöðuna Tveggja daga fjármálaráðstefnu sveitarfélaga lauk í gær. Umræður fóru fram í tveimur málstofum. Viðvarandi hik gagn- vart sveitarfélögum - Gagnrýndi lítinn stuðning ríkis við sveitarfélög í faraldrinum Dagur B. Eggertsson Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Garðabær og Arnarland ehf. undir- rituðu í gær samning um uppbygg- ingu heilsubyggðar á Arnarnes- hálsi. Þar verður lögð áhersla á lífsgæði, lýðheilsu, náttúru og heilsueflandi þjónustu. Verkefnið hefur hlotið nafnið Arnarland. Umrætt svæði, sem er um 10 hektarar að stærð, er á norðan- verðum Arnarneshálsi og afmark- ast af Hafnarfjarðarvegi, Arn- arnesvegi og Fífuhvammsvegi, við bæjarmörk Garðabæjar og Kópa- vogs. Byggð þessi er sérstaklega hugs- uð fyrir 50 ára og eldri. Áform eru um að byggðin samanstandi af rúm- góðum hágæðaíbúðum sem bjóða upp á möguleika á hátæknivæðingu. Hugmyndin er að þar sé stutt í alla þjónustu auk þess sem góðir mögu- leikar séu á hreyfingu og útivist. „Íbúðin þróast með aldri íbú- anna. Ég get nefnt sem dæmi að það verða þarna fallskynjarar, fjar- stýring á gluggatjöldum, það verð- ur lyfjaskömmtun og fleiri atriði sem henta fólki þegar það eldist,“ útskýrir Gunnar Einarsson bæj- arstjóri Garðabæjar. „Við erum samt alls ekki að tala um að fólk um fimmtugt sé komið á grafarbakkann heldur gerir það ákveðnar kröfur um sitt nær- umhverfi, aðkomu að líkamsrækt, jóga, sjúkraþjálfun, heilsugæslu og hinu og þessu.“ Svo geti aðstæður þeirra sem þarna búa breyst og þá eru íbúðirnar hannaðar með þess- um snjalllausnum sem mæta þörf- um þeirra. Heilsuklasi nýsköpunar Í hverfinu verður einnig miðstöð fyrirtækja sem sérhæfa sig í heil- brigðisþjónustu, þróun og nýsköpun í heilsueflandi starfsemi. Félagið Ósar, móðurfélag fyrirtækjanna Icepharma og Parlogis, mun reisa framtíðarhöfuðstöðvar sínar á svæðinu og vera í fararbroddi í uppbyggingu á atvinnuhluta byggð- arinnar. „Það verður þarna sam- ansafn af fyrirtækjum sem eru í heilsugeiranum og þarna verður byggður upp heilsuklasi þar sem nýsköpun verður og hugmyndir fæðast,“ segir bæjarstjórinn. Gunnar segist þess fullviss að markaður sé fyrir íbúðir í byggð sem þessari. „Hér er fólk farið að horfa til þess hvernig það á að eyða seinni hálfleiknum á sem bestan hátt án þess að vera að basla í hinu og þessu. Þetta er hugsunin.“ Svipuð hverfi hafi verið byggð er- lendis, til dæmis annars staðar á Norðurlöndunum og á Bretlandi. Þar sé að finna „heildstæða hugsun fyrir fimmtíu ára og eldri, fólk sem er í fullu fjöri en vill hafa ákveðna þjónustu nærri sér og gerir ákveðnar kröfur“. Fram undan er skipulagsvinna á svæðinu sem felur í sér breytingar á aðalskipulagi sem og gerð deili- skipulags. Gunnar segir að það muni síðan taka þrjú til fimm ár að byggja upp hverfið. „Við erum mjög spennt fyrir þessu. Þetta smellpassar inn í okk- ar markmið með heilsueflandi sam- félag í Garðabæ.“ Þá verði þetta að- koman að bænum og því sé mikilvægt að vandað sé til verka og hverfið verði fallegt. Hátæknivætt og heilsueflandi - Ný heilsubyggð á Arnarneshálsi Arnarland í Garðabæ Grunnkort/Loftmyndir ehf. KÓPAVOGUR GARÐABÆR Arnarnes Smárar Fífan Arnarland Ha fn ar fja rða rve gu r Arnarnesvegur Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Það eru alltaf tækifæri til staðar Investis ehf hefur á undanförnum árum komið að og leitt um 180 verkefni sem varða kaup og sölu, fjármögnun og sameiningu fyrirtækja. Við búum yfir mikilli reynslu við gerð verðmats og fjárfestakynninga, útfærslu samninga og leiðum til að ná sem bestum árangri fyrir viðskiptavini okkar. Áhugasamir geta skráð sig á heimasíðu okkar investis.is og fengið forgangspóst þegar ný tækifæri koma upp. Hefur þú hug á að selja fyrirtæki? Hafðu samband við höfum áhuga á að heyra frá þér. Í-MAT ehf.JG ehf. Hér eru dæmi um verkefni þar sem Investis hefur annast ráðgjöf við sölu, sameiningar eða aðkomu fjárfesta á undanförnum árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.