Morgunblaðið - 09.10.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 09.10.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Hægindastóll model 7227 Leður – Stærðir XS-XL Verð frá 389.000,- NJÓTTU ÞESS AÐ SLAKA Á Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Evrópa glímir við orkuvanda um þessar mundir sem virðist að verulegu eða öllu leyti heima- tilbúinn. Telegraph segir frá því að forystumenn í at- vinnulífinu telji ákvörðun bresku ríkisstjórnarinnar að skipta yfir í „grænna“ bensín, þ.e. bensín með hærra etanól- innihaldi, hafa haft mikið um bensín- vandann þar að segja. Bensín- skortur gerði breskum bílstjórum gramt í geði og verðið rauk upp. - - - Telegraph segir einnig að um- deilt sé hvort þetta hækkaða etanól-hlutfall sé betra fyrir um- hverfið, en etanólið er framleitt úr korni, og ekki eru allir á eitt sáttir um að nýta land til etanól- framleiðslu fyrir bíla í stað mat- vælaframleiðslu. - - - Hér á landi er einnig notað líf- eldsneyti á borð við etanól og lífdísil og Sigríður Á. Andersen spurði fjármálaráðherra út í það á þingi í sumar og fékk svar í liðnum mánuði. Sigríður fjallaði um svarið á vef sínum og sagði: „Ríkið hefur ekki hugmynd um hve mikið (eða hvort) losun CO² minnkar vegna margra milljarða króna sem það veitir árlega í skattaívilnanir til líf- eldsneytis og rafbíla.“ - - - Hún benti á að skattaíviln- anirnar hefðu verið til staðar í áratug en samt vissi enginn hverju þær skiluðu. Milljarðar streymdu úr landi vegna þessa. - - - Við erum sem betur fer ekki í jafn slæmri stöðu og Bretar, en er verjandi að halda áfram að ýta undir notkun á óhagkvæmu eldsneyti ef árangurinn af aðgerð- unum liggur ekki fyrir? Sigríður Á. Andersen Heimagerður orkuvandi STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Vegagerðin hefur lagt mat á mögu- leikana varðandi ferjusiglingar á Breiðafirði næstu misseri. Niður- staðan er sú að hagkvæmast er að uppfylla núverandi samning og nota gildistíma hans til hönnunar og út- boðs á hafnarmannvirkjum á Brjánslæk og í Stykkishólmi. Ný hafnarmannvirki eru forsenda fyrir áframhaldandi ferjurekstri á Breiða- firði. Frá þessu er greint á heima- síðu Vegagerðarinnar. Þrátt fyrir að Baldur uppfylli ekki nútímakröfur um aðgengi og útlit þá uppfyllir skipið þær öryggiskröfur sem eru í gildi, skipið er í notkun og flutningsgeta viðunandi, segir í fréttinni. Baldur er kominn til ára sinna, smíðaður 1979. Núverandi samningur við Sæferðir um ferju- siglingar gildir til 31. maí 2022 með möguleika á framlengingu til 31. maí 2023. Sæferðir eru dótturfyrirtæki Eimskips. Fram kemur að ítarleg leit hefur farið fram hjá Vegagerðinni að skipi sem gæti leyst núverandi skip af á meðan verið væri að huga að fram- tíðarfyrirkomulagi ferjusiglinga. Ekkert skip fannst sem uppfyllti þær kröfur sem settar voru. Að auki verði ekki hjá því litið að ferjumann- virki, bæði á Brjánslæk og í Stykk- ishólmi, séu „sérsniðin“ að gamla Baldri sem var óvenju mjótt skip og þau síðan aðlöguð að núverandi Baldri. „Ljóst er að huga þarf að endurnýjun þessara mannvirkja svo þau geti annað þeirri flutningsgetu sem fyrirsjáanleg er miðað við aukna framleiðslu afurða á Vestfjörðum,“ segir Vegagerðin. sisi@mbl.is Ný hafnarmannvirki verða hönnuð Ljósmynd/Vegagerðin Baldur Breiðafjarðarferjan mun að óbreyttu sigla áfram á næstunni. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverja- hrepps skorar á Vegagerðina að bæta slæmt ástand malarvega í sveitarfélaginu. „Margir vegkaflar eru nánast ókeyrandi. Sumir þurfa ofaníburð en í einhverjum tilfellum dygði að hefla vegina,“ segir í fund- argerð sveitarstjórnarinnar. „Ástandið hefur verið þannig í rigningunum undanfarið að við höf- um ekki getað heflað þá kafla sem við höfum viljað hefla. Það er til- gangslaust að hefla blautan veg. Það þarf að láta vegina þorna áður en vit er í að hefla,“ segir G. Pétur Matt- híasson upplýsingafulltrúi Vega- gerðarinnar. Hann segir að unnið hafi verið að heflun á svæðinu. Fyrst var of þurrt og svo of blautt en veg- irnir verði heflaðir. Hann segir ástand malarvega geta versnað hratt þegar koma miklar rigningar. „Það var dregið úr viðhaldi malar- veganna eftir hrun og við höfum ekki náð að vinna það upp aftur. En við höfum í hyggju að leggja aftur meiri áherslu á malarvegina,“ segir G. Pétur og bætti við að víðar sé kvartað yfir slæmu ástandi malar- vega en sunnan heiða. Þannig fór t.d. Vatnsnesvegur mjög illa í rign- ingum að undanförnu. G. Pétur kvaðst geta ímyndað sér að malar- vegir hefðu víða látið undan vegna þess hvað mikil læti hafa verið í veðrinu. Einnig skiptir umferðar- þunginn máli en umferðin er fljót að gera holur í vegina þegar mikið rign- ir. Hann segir oft reynt að hefla mal- arvegina seint á haustin eða í byrjun vetrar til að búa þá undir veturinn. Þá er von um að þeir verði í sem bestu ástandi þegar aftur vorar. gudni@mbl.is Malarvegir hafa víða látið á sjá - Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúp- verjahrepps kvartar Morgunblaðið/Júlíus Drullupollar Rigning og umferð- arþungi skemma malarvegi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.