Morgunblaðið - 09.10.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 09.10.2021, Qupperneq 10
VIÐTAL Andrés Magnússon andres@mbl.is Birgir Þórarinsson þingmaður Suð- urkjördæmis hefur ákveðið að segja skilið við Miðflokkinn, sem hann var nýlega endurkjörinn fyrir, og gekk í gærkvöld í þingflokk sjálfstæðis- manna. Morgunblaðið ræddi við Birgi og spurði hann fyrst um hvað lægi að baki ákvörðuninni. „Þetta er ekki léttvæg ákvörðun, ég held að það sjái allir, og ég tek hana að mjög vel ígrunduðu máli. En eftir allt það sem á undan er gengið og þá forsögu, sem ég lýsi í grein minni [í Morgunblaðinu í dag], þá ríkir ekki lengur traust milli mín og forystu flokksins. Í ljósi þess væri ekki heiðarlegt hjá mér, hvorki gagnvart sjálfum mér né kjósendum, að halda áfram innan hóps þar sem skortir gagnkvæmt traust. Ég er bara sannfærður um það að í breiðum og öflugum hópi, þar sem gagnkvæmt traust og virðing ríkir, náist besti árangurinn. Allt í senn gagnvart eigin samvisku, kjósendum og þjóðinni allri.“ Þetta gerist ekki upp úr þurru? „Þetta mál á sér talsverðan að- draganda, allt aftur til gagnrýni minnar á Klausturmálið og viðbrögð flokksins við því. Ég hef aldrei notið fulls trausts innan hópsins eftir það. Ég var hins vegar fullur vilja til þess að láta hlutina ganga og að við mynd- um ganga sameinuð til þessarar kosningabaráttu. En sú varð ekki raunin. Það var beinlínis ráðist í skipulega aðför gegn mér í prófkjörsbaráttu og allt gert til þess að ég yrði ekki oddviti.“ En þú hafðir sigur. „Ég hafði sigur, það er rétt. En þetta hélt síðan áfram fram í kosn- ingarnar. Þá tók steininn úr, þegar fimm dögum fyrir kosningar kom skeyti frá lykilmönnum í flokknum um að listinn væri ótrúverðugur. Þetta fékk mann til þess að endur- hugsa þetta allt saman. Þetta voru gríðarleg vonbrigði og kaldar kveðj- ur í baráttunni. Það er mjög sárt að finna að menn vilji bara losna við mann.“ Þú ákveður samt ekki að fara fyrr en eftir kosningar. „Auðvitað veltir maður fyrir sér hvernig er að vinna með fólki sem treystir manni ekki og vill mann á burt. Ég var ekki tilbúinn til þess að gera það næstu fjögur árin. Ég stend fyrir mörg góð málefni, hugsjónir og gildi, sem ég vil koma áfram fyrir þá kjósendur, sem hafa stutt mig. Það er ekki hægt undir þessum kringumstæðum.“ Þú segir lykilmenn, var formað- urinn þar á meðal? „Ég hefði kosið að hann hefði stig- ið inn í þetta, en hann gerði það ekki. Hvort sem hann hélt sig frá þessu eða vissi af þessu, því get ég ekki svarað.“ Breyttu þessi vandræði í Norð- vesturkjördæmi einhverju um þetta? „Nei, þessi ákvörðun er þeim óvið- komandi. Ég er kjördæmakjörinn þingmaður í Suðurkjördæmi og mál- ið hefur engin áhrif á mína stöðu í þinginu. Ég vona bara svo sannar- lega að þetta mál í Norðvesturkjör- dæmi leysist farsællega.“ Komu aðrar lausnir til greina? Hvað með kjósendur, sem héldu að þeir væru að kjósa Miðflokkinn, en vakna nú upp við að hafa sent sjálf- stæðismann á þing? „Það hefði verið rangt af mér að draga mig út úr baráttunni nokkrum dögum fyrir kosningar. Ég bauð mig fram með það loforð gagnvart kjós- endum, að vinna að framgangi mik- ilvægra mála, og ég veit að margir kusu mig persónulega; ég ætla að standa við þau fyrirheit. En það eru þessir dagar, við val á framboðslista og svo í kosningabar- áttunni, þá er alveg ljóst að and- rúmsloftið gagnvart mér er ekki að breytast til hins betra og möguleikar mínir til þess að ná raunverulegum árangri afar takmarkaðir á þeim vettvangi. Þess vegna tel ég heið- arlegast að sækja fram þar sem mestar líkur eru á að baráttumál, sem ég hef sett á oddinn, nái fram að ganga.“ Ertu einn í þessu? „Ég hef rætt við mitt trúnaðarfólk í flokknum, sem styður mig í þessari ákvörðun. Málið á sér aðdraganda og ekki skyndiákvörðun að því leyti. Þetta fólk stendur heilshugar með mér.“ En varamaðurinn? „Það er öflugur varamaður, sem ég er með og hún [Erla Bjarnadóttir] styður mig í þessari ákvörðun.“ Þér hefur ekki dottið í hug að fara aftur í Framsóknarflokkinn? „Nei, ég tel mig eiga betri mál- efnalegan samhljóm með Sjálfstæð- isflokknum í þeim málum, sem ég hef lagt ríkasta áherslu á. Það má nefna ábyrga stjórn ríkisfjármála, sem hefur verið grundvallarmál í mínum störfum í þinginu og ég mun halda áfram að tala fyrir henni af krafti innan raða Sjálfstæðisflokksins.“ Hvernig gekk þetta til, báru sjálf- stæðismenn í þig víurnar? „Nei, frumkvæðið er mitt. Það er nú einu sinni þannig, að manni þarf að líða vel í vinnunni, en þegar það er hópur áhrifafólks, sem gerði allt til þess að koma mér í burtu, þá hugsar maður sinn gang. Það er ekki heilla- vænlegt, hvorki fyrir mig né þau, að vera að standa í vegi fyrir því.“ Hvernig tóku sjálfstæðismenn þér? „Þeir tóku mér bara mjög vel. Ég hef náttúrulega haldið uppi málefna- legri gagnrýni á ýmis mál Sjálfstæð- isflokks og annarra flokka. Ég mun hvergi hvika frá mínum skoðunum, en Sjálfstæðisflokkurinn er breið- fylking þar sem margar skoðanir komast fyrir.“ Hvernig líst þér svo á stjórnar- myndunarviðræðurnar? „Mér skilst að þetta gangi ágæt- lega og vona að menn nái að setja saman góðan stjórnarsáttmála, þannig að öll álitamál verði frágeng- in. Þá ætti þetta að ganga vel.“ Gat ekki haldið áfram án trausts - Birgir Þórarinsson í viðtali um viðskilnaðinn við Miðflokkinn - Skipuleg aðför í kosningabaráttu - Hefði kosið að Sigmundur Davíð tæki í taumana - Vill ná fram fyrirheitum við kjósendur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vistaskipti Birgir Þórarinsson er genginn til liðs við sjálfstæðismenn. 10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Ýmsar gerðir af heyrnartækjum í mörgum verðflokkum, stærðum og litum. Allar helstu rekstrarvörur og aukahlutir fyrir heyrnartæki fást í vefverslun vefverslun.heyrn.is HEYRNARÞJÓNUSTA 2007 HLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600 • HEYRN@HEYRN.IS • HEYRN.IS Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.