Morgunblaðið - 09.10.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 09.10.2021, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g er svo lánsöm að starfið mitt er ástríða mín. Það hefur átt hug minn allan undanfarin ár að finna leið fyrir fötluð börn til að tjá sig,“ segir Hanna Rún Eiríks- dóttir, sérkennari við Klettaskóla, en hún er ein þeirra sem tilnefnd eru til Íslensku menntaverðlaunanna. Hún er tilnefnd fyrir framúrskar- andi kennslu nemenda með fötlun, meðal annars fyrir að þróa nýjar leiðir til tjáskipta. „Þessar leiðir til tjáskipta eru ofboðslega mikilvægar í lífi þessara barna, nemendur mínir eru ein- staklingar sem sumir tala ekki neitt, en aðrir geta tjáð sig að einhverju leyti, jafnvel notað tákn og hafa ein- hver orð, en þurfa stuðning til að tala. Sumir hafa lært að tala en velja að tala ekki, þau tala frekar eða tjá sig með tækjunum en með röddinni sinni. Eitt af því merkilega sem við sjáum gerast er að sum þeirra fara að tjá sig meira þegar þau fá tækin í hendurnar, náttúruleg máltjáning þeirra eykst sem sagt í kjölfarið.“ Þetta forrit er heilt tungumál Hanna Rún segir að nemendur hennar séu staddir á mismunandi stað í því að tileinka sér tæknina og taka þetta inn. „Við sjáum samt ótrúlegan ár- angur hjá þeim, það er stórkostlegt að sjá börn sem ekki hafa getað tjáð sig, ná tökum á því að geta sagt hvernig þeim líður og hvað þau vilja. Að geta sagt sinn vilja skiptir svo miklu máli. Eitthvað sem okkur finnst kannski ómerkilegt er stór- kostlegt í þeirra lífi, til dæmis að þau vilji grænar baunir frekar en sultu með matnum, eða hvað annað sem er, að þau hafi val og geti sagt frá. Það er ótrúlega dýrmætt.“ Þegar Hanna Rún er spurð að því hverslags tól og tæki hún sé að nota við tjáskiptakennsluna, þá segir hún búnaðinn vera rafrænan, til dæmis augnstýribúnaður, en þá nota nemendur augu til að stjórna tölvu- mús en aðallega eru notaðar Wind- ows-spjaldtölvur. „Mest notum við forrit sem heitir TD Snap, en ég fékk það í hendurnar fyrir nokkrum árum. Í góðu samstarfi við Öryggismiðstöð- ina sem sér um að útvega tjáskipta- tæki, tölvur og annað fyrir fatlað fólk, komst ég í samband við þá aðila sem hanna þetta boðskiptaforrit. Þeir voru að leita að einhverjum til að staðfæra búnaðinn og vildu aðila sem þekkti þarfir notenda og vissi hvað hentaði þeim best. Við hér á litla Íslandi fengum að vera hluti af því að forritið var þýtt yfir á mörg tungumál. Ég náði góðu samstarfi við skrifstofu þeirra í Bandaríkjun- um og þau sendu mér skjöl sem ég fór yfir, þýddi og staðfærði. Fyrir vikið eigum við þetta forrit, TD Snap, með íslenskum kennsluleið- beiningum og íslenskri notenda handbók. Nú er þetta mjög aðgengi- legt fyrir alla sem á þurfa að halda, og að fá svona forrit á íslensku sem er heilt tungumál, það er algjörlega stórkostlegt,“ Margir geta notið góðs af Hanna Rún segir að auðvelt sé að einstaklingsmiða forritið. „Hægt er að einfalda það fyrir þá sem þurfa mjög einföld frumboð- skipti, en það er líka hægt að hafa það flóknara og allan orðaforða sýni- legan. Einnig er hægt að taka tákn- myndir út fyrir þá sem eru læsir, til dæmis fyrir þá sem eru að missa færni, en þá er ég að hugsa um fólk sem er utan okkar nemendahóps hér í Klettaskóla, til dæmis þá sem eru með taugasjúkdóma og geta ekki notað röddina sína. Þetta getur kom- ið sér mjög vel fyrir slíka aðila. Ekki síður getur þetta komið sér vel fyrir erlenda innflytjendur, nemendur sem eru að læra íslensku. Rosalega margir geta notið notið góðs af þessu, þótt ég hafi í upphafi verið í minni búbblu að reyna að finna tungumál fyrir einn af mínum nem- endum, af því hún gat sagt mér á mjög frumstæðan hátt svo miklu meira en ég gerði nokkurn tíma ráð fyrir að hún gæti. Mér fannst ég verða að gera allt sem ég gat í lífinu svo þessi stúlka fengi tungumál. Þegar ég kynntist þessu forriti þá áttaði ég mig á hvað þetta gæti gert mikið fyrir öll börnin í Klettaskóla og öll önnur fötluð börn á landinu sem eiga erfitt með að nota röddina sína og þurfa þennan stuðning til að geta tjáð sig. Þetta er svo ótrúlega mikilvægt,“ segir Hanna Rún sem hefur leiðbeint starfsfólki skóla víða um land í að skipuleggja óhefðbund- in tjáskipti nemenda og haldið fyrir- lestra og námskeið um efnið. Ljósið við enda ganganna Hanna Rún segir að þýðingar- vinnan og staðfærslan hafi verið miklu meiri vinna en hún hafði gert sér grein fyrir þegar hún lagði af stað í það verkefni. „Ég er með mjög góða yfir- menn sem treystu mér og ég gat dregið úr kennslu og unnið í þessu meðfram, en þetta var miklu meira en vinnudagur frá átta til fjögur. Þetta var á tímabili mjög mikið, ég tók heilt sumar í þetta, en ég hugs- aði ekkert um það meðan á þessu stóð, ég hugsaði bara um ljósið við enda ganganna. Að koma þessu í gagnið skiptir svo miklu máli. Við notum líka forrit sem heitir Comm- unicator sem aldrei hefur verið þýtt á íslensku, og gagnaðist okkur vel fram að því að við fengum nýja for- ritið. Við notum það enn til að prenta út myndir, hafa sjónrænt skipulag og kjarna orð fyrir þá sem eru að byrja í tjáskiptum, en þar er ekki heildstætt tungumál.“ Sum fljótari en við að læra Hanna Rún segir að nemendur hennar séu komin mislangt í að nota forritið og séu misfljótir að tileinka sér þessa aðferð. „Við erum öll enn að læra á þetta, nemendur, kennararnir hér í Klettaskóla og í raun allt starfsfólk, því það er ekki nema eitt ár frá því þetta komst almennilega í gagnið hjá okkur. Þeir nemendur sem eru komnir með þetta eru öll að taka miklum framförum í tjáskiptum, sum hægum framförum en önnur hraðar, því það er tölvuvert mál að læra á þetta. Sum þeirra eru fljótari en við kennararnir að tileinka sér og finna leiðirnar. Í einum bekk þar sem þrír eru komnir með sín eigin tæki, þá eru þeir farnir að tala sín á milli með tækjunum, það er eitthvað sem þeir gátu ekki áður. Þetta dreg- ur úr félagslegri einangrun og krakkarnir verða sjálfstæðari. Nú geta þeir tjáð sig og sagt hvað veld- ur þeim til dæmis óöryggi eða því að þeir verða reiðir og pirraðir. Þegar þeir geta sagt frá hvað er að angra þá, þá er hægt að tala um það við þá og útskýra. Þetta dregur úr óæski- legri hegðun.“ Hanna Rún segir að það sé afar gefandi að sjá þessa jákvæðu breyt- ingu á nemendum. „Hér innanhúss er ótrúlega flott fagfólk sem er tilbúið til að vera með mér í þessu, því allt umhverfi nemenda verður að taka þátt í þessu ef þetta á að nýtast til fulls, líka heimili barnanna og frístundin. Það er ekki nóg að koma í einn tíma í tjá- skipti, allt heila samfélagið þeirra verður að taka þátt svo þau nái ár- angri og læri,“ segir Hanna Rún og bætir við að hægt sé að sækja um tjáskiptatæki til Sjúkratrygginga Íslands og ef sýnt er fram á að nem- endur geti nýtt sér tækið fái þeir það, sér að kostnaðarlausu. „Enda er þetta jafn nauðsynlegt tæki fyrir þá sem ekki geta talað og hjólastóll er fyrir þá sem ekki geta gengið.“ Mikilvægt að geta tjáð sinn vilja Hanna Rún Eiríksdóttir, sérkennari við Klettaskóla, er ein þeirra fimm kennara sem tilnefndir eru til Íslensku menntaverðlaunanna. Hanna Rún fær sína tilnefningu fyrir framúrskarandi kennslu nemenda með fötlun, m.a. fyrir að þróa nýjar leiðir til tjáskipta. Tjáskipta- forritið TD Snap nýtist ekki aðeins fötluðum nemendum, heldur einnig öðru fólki, t.d. þeim sem eru með taugasjúkdóma og tapa smám saman færni til að nota sína rödd. Erlendir innflytjendur geta einnig nýtt sér forritið þegar þeir eru að byrja að tileinka sér íslenskuna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Metnaður Hanna Rún er ástríðufull í starfi sínu í Klettaskóla, hér með Gabríel Nóa Stefánssyni, nemanda sínum. ALVÖRU VERKFÆRI 190 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Íslensku menntaverðlaunin eru viðurkenning fyrir framúrskar- andi skólastarf, mennta- umbætur og þróunarverkefni. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verð- launin eru veitt í þremur aðal- flokkum: - Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. - Framúrskarandi kennari. - Framúrskarandi þróunar- verkefni. Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að mennta- umbótum er þykja skara fram úr. Þrír flokkar viðurkenninga ÍSLENSKU MENNTA- VERÐLAUNIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.