Morgunblaðið - 09.10.2021, Page 14

Morgunblaðið - 09.10.2021, Page 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Styrkja þarf varnir gagnvart veikleik- um í gagnaflutningum og netárásum, svo mikilvægir eru stafrænir innviðir Íslands orðnir. Nýleg atvik hafa sýnt fram á veikleika þar sem rof í þjón- ustu, sem nálgast má á netinu, nánast slekkur á gangverki samfélagsins, með öllu því raski sem því fylgir. Gagnagíslataka eins og nokkur ís- lensk fyrirtæki hafa lent í kalla sömu- leiðis á árvekni og aðgerðir. Allt mun þetta því setja öryggismál í tölvu- tækni ofar á blað en var til skamms tíma. Streymi fram þegar skrúfað er frá krananum „Eðlilega er fólk illa viðbúið því að netið sé í ólagi eða virki ekki,“ segir Daníel Kristinn Gunnarsson, deildar- stjóri netrekstrar hjá Advania. „Dag- legt líf nú á árinu 2021 byggist í dag orðið að miklu leyti á lausnum og þjónustu sem er tölvutengd á ein- hvern hátt, stundum hreinlega án þess að við gerum okkur grein fyrir því. Í raun er þetta eins og með vatnið; ef skrúfað er frá krananum á allt að streyma fram. Eðlilega. En stundum klikkar eitthvað, þó síður ef fyrir- byggjandi ráðstafanir eru gerðar eins og vitundarvakning er nú um.“ Í júlí síðastliðnum kom hökt í net- samband milli Íslands og Bandaríkj- anna, með truflun í tengingum í sæ- strengjunum tveimur sem tengja Ísland við Skotland og Danmörku. Því fylgdi meðal annars að netsamband við stóru fréttaveiturnar vestanhafs datt út í nokkra klukkutíma. Mörgum var brugðið. Í byrjun september sl. gerðu tölvuþrjótar árás á greiðslu- miðlunarkerfi íslensku bankanna, svo allt var stopp í á aðra klukkustund. Sérstaklega var tiltekið í fréttum þá að vandamál hefðu af þeim sökum skapast á veitingastöðum og hjá leigu- bílstjórum, eðlilega – enda var þetta á laugardagskvöldi. Síðastliðið mánudagskvöld varð tæknimönnum í stjórnstöð Facebook svo á í messunni, mistök við stilling- aratriði og villa í hugbúnaði réðu því að miðillinn bókstaflega hvarf úr net- heimum í sex klukkustundir, rétt eins og tveir milljarðar notenda um allan heim urðu varir við. Veröldin stopp- aði! „Hjá stórum netveitum, eins og Facebook, sem keyrðar eru áfram í gegnum marga netþjóna sem eru hver á sínum stað víða um veröldina, á svona tæplega að geta gerst. Eitt gagnaver á alltaf að grípa hið næsta,“ segir Daníel. „Hve langan tíma tók í vikunni að koma kerfinu aftur í gang réðst hins vegar að hluta til af því, segja heimildir, að þegar fésbókin öll var úti lokuðust aðgangskóðar tækni- manna til dæmis í tölvuverin þar sem stjórnbúnaður er staðsettur. Þetta kann að hafa átt þátt í því að viðgerðir töfðust.“ Lykilorð í vítahring Hér minnir Daníel á að algengt sé að fólk noti lykilorð sitt á Facebook og aðganginn þar til að komast inn á fleiri netveitur. Að því leyti geti myndast eins konar vítahringur, sem blessun- arlega hafi tekist að brjóta upp. „Sífellt er verið að þróa öryggis- lausnir og álagsvarnir. Þær verða samt aldrei fullkomnar. Við þurfum líka að hafa í huga að netið er í eðli sínu landamæralaust og samskiptin byggjast alltaf á tengingum milli A og B. Hér hjá Advania sinnum við þjón- ustu við opinberar stofnanir og mörg af stærstu fyrirtækjum landsins – sem eru með tölvukerfi sem tala hvert við annað. Bregðist eitthvað þarna getur slíkt haft keðjuverkandi áhrif, enda þótt kerfin séu mjög vel varin til dæmis fyrir öllum skemmtarverk- um,“ segir Daníel. Hægt að loka á útlöndin „Reyndar höfum við á Íslandi búið við þau forréttindi að búandi á eyju væri í ýtrustu neyð hægt að loka á út- lönd yrðu tölvuárásir á landið gerðar þaðan. Reyndar er mjög fjarlægt að nokkuð svona yrði gert né væri mögu- legt, því íslensk gögn eru í sífellt rík- ari mæli vistuð í skýjalausnum og í gagnaverum erlendis. Eigi að síður er mikilvægt að hafa alla þessa mögu- leika á hreinu og hugsa fyrir öllu, eins og vissulega er gert, með sérstakri netöryggissveit á vegum stjórnvalda. Gagnatengingar við útlönd eru þó al- mennt talað, legu landsins vegna, afar mikilvægar, og ekki úr vegi að líkja þeim við Golfstrauminn; hinn hlýja hafstraum sem gerir Ísland byggi- legt.“ Nú í október stendur Advania fyrir opnum fræðslufundi um algengar árásir á tölvukerfi, þar sem fjallað verður um yfirtöku á gögnum þar sem krafist er lausnargjalds fyrir- tækis. Þarna verður fólki ráðlagt hvernig búa megi um hnútana svo fyrirtæki séu síður útsett fyrir hætt- um sem þessu fylgja. Þar hafa rétt viðbrögð mikið að segja, en ekki síður góður tæknibúnaður sem þarf sífelld- ar uppfærslur. Uppþvottavélin og perurnar eru nettengdar „Við þurfum annars að vera vel á verði í okkar tæknivædda heimi. Netið getur klikkað og alls konar vandamálið komið upp. Í gegnum netið geta tölvu- þrjótar, til dæmis í Kína, Rússlandi eða Bandaríkjunum, brotist inn í heimilistölvurnar okkar og sett þar inn óværur. Og ekki bara tölvuna; ísskáp- urinn, uppþvottavélin, ljósaperurnar og bíllinn okkar – þetta er allt meira og minna tölvutengt og því mikilvægt að vera vel á verði,“ segir Daníel Kristinn Gunnarsson að síðustu. Styrkja verður stafræna innviði - Netöryggi í skoðun - Rofið stöðvar samfélag - Meira er vistað í skýjunum - Gagnaflutningar eru Golfstraumur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tækni Daglegt líf byggist að miklu á lausnum og þjónustu sem er tölvutengd, segir Daníel Kristinn hjá Advania. AFP Facebook Sex klukkustunda rof á þjónustu þessa risastóra félagsmiðils fór varla fram hjá nokkrum manni, því notendurnir skipta milljörðum. Þorri Íslendinga, eða um 90% þjóðarinnar, notar Facebook og því fór bilunin í kerfi netmiðilsins ekki fram hjá mörgum. Einnig rösk- uðust Instagram og WhatsApp svo segja má að allt hafi verið á tjá og tundri. Mikilvæg þjónusta var ekki í boði í langan tíma. Íslendingar, eins og fólk víða um veröld, þurfti að verja tíma sínum með öðru móti. Þannig jókst áhorf á Sjónvarp Símans um 43% frá hefðbundnu mánudagskvöldi. Stóð á pari við sunnudagskvöld sem eru alla jafna besti sjónvarps- tími vikunnar. „Áhorfið dreifðist jafnt á þessar helstu stöðvar og annað efni. Okkur fannst aðallega merkilegt hvað áhorfið jókst mikið við þessa einu bilun hjá Facebook, það hefði eflaust orðið enn meira ef til dæmis YouTube hefði legið niðri í þetta langan tíma,“ sagði Bryndís Þóra Þórðardóttir, vöru- stjóri Sjónvarps Símans, við mbl.is í vikunni. Í kjölfar þess að Facebook hrundi bárust tæknifólki fyrir- tækisins um 10,6 milljónir bilana- tilkynninga. Málið snerti þó mun fleiri því notendur Facebook og tengdra miðla eru í heiminum öll- um um 3,5 milljarðar. Margir lentu í því að missa samband við fjöl- skyldu og vini þegar Facebook fór úr sambandi. Þá kom þetta sér líka illa hjá fyrirtækjum sem nota sam- félagsmiðla til að halda sambandi og kynna sig gagnvart viðskipta- vinum. Þá er talið, segir á vef BBC, að sex stunda lokun Facebook hafi kostað stofnandann Mark Zucker- berg hundraða milljarða dollara tap, svo rækilega hrapaði hluta- bréfaverð í fyrirtæki hans vegna hremminga þessara, sem höfðu áhrif á veraldarvísu. Heimur á tjá og tundri og hlutabréfaverðið hrundi VÍÐTÆK ÁHRIF ÞEGAR FACEBOOK OG FLEIRA FRAUS AFP Samskipti Miðlar eins og Instagram og Facebook tengjast oft innbyrðis. • • • • 4 gangar af dekkjum. • 2 gangar af álfelgum. • Dráttarbeisli sett undir 6/2021. • Frábært viðhald. Mi bi hi 0 Jeppi í glæsilegu standi. Undir bílnum eru General Grabber dekk og Visin Wheel álfelgur. Bílnum fylgja orginal MMC álfelgur og nýleg Continental nagladekk á þeim. Einnig fylgja gangar aukalega af glæný- jum nagla- og sumardekkjum. Dráttarbeisli var sett undir sumarið 2021. Bíllinn hefur fengið fullkomið viðhald hjá núverandi eiganda. Bíllinn er til sýnis hjá Diesel bílasölu. Upplýsingar í síma 615 8080. Nýskr. 5/2017. Ekinn 102 þ.km. Pallhús. tsu s L20 Verð 4.995.000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.