Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Sími 4 80 80 80
25 ára reynsla
INNFLUTNINGUR AF NÝJUM
OG NOTUÐUM BÍLUM
VERKSTÆÐI
VARAHLUTIR
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg áformar að koma
upp upphituðum battavelli og leik-
svæði á austurhluta Landakotstúns.
Íbúaráð Vesturbæjar og skólastjóri
Landakotsskóla hafa kallað eftir
bættri leikaðstöðu á svæðinu og
biskup kaþólskra hefur veitt leyfi
sitt en kirkjan er eigandi Landa-
kotstúns. Frumkostnaðaráætlun
verksins er 88 milljónir króna.
Á síðasta fundi skipulags- og sam-
gönguráðs var lögð fram umsögn
umhverfis- og skipulagssviðs, dag-
sett 18. mars 2021, um erindi íbúa-
ráðs Vesturbæjar þar sem hvatt var
til þess að hannaður yrði boltavöllur
(battavöllur) á Landakotstúni. Einn-
ig var lagt fram bréf Ingibjargar Jó-
hannsdóttur, skólastjóra Landa-
kotsskóla, og Davíðs B. Tencer
Reykjavíkurbiskups til borgar-
stjóra, dags. 16. desember 2017.
Skipulags- og samgönguráð vísaði
málinu til frekari undirbúnings og til
gerðar fjárfestingaráætlunar.
Samkomulag kirkju og borgar
Í umsögn skrifstofu framkvæmda-
og viðhalds kemur fram að sam-
kvæmt samkomulagi kaþólsku kirkj-
unnar og Reykjavíkurborgar dags.
21. mars 1978 fékk Reykjavíkurborg
afnot af austurhluta Landakotstúns
frá línu samsíða Kristskirkju og í 32
metra fjarlægð frá miðlínu kirkj-
unnar. Afnotin voru takmörkuð við
að koma upp almenningsskrúðgarði
með aðstöðu til leikja. Skipulagning
garðsins skyldi gerð í samráði við
biskup eða hans fulltrúa. Samkomu-
lagið fól í sér ótímabundna ráðstöfun
á landi í eigu kaþólsku kirkjunnar til
Reykjavíkurborgar.
Hinn 16. desember 2017 barst er-
indi frá skólastjóra Landakotsskóla
og biskupi kaþólskra um byggingu
upphitaðs battavallar á Landakots-
túni. Í kjölfarið óskaði skrifstofa
eigna og atvinnuþróunar eftir að
deild frumathugana og mann-
virkjagerðar og skrifstofa fram-
kvæmda og viðhalds létu landslags-
hönnuð vinna forhönnun og
þrívíddarteikningu að gervigrasvelli
tengdum núverandi opnu leiksvæði
og gangstígum á Landakotstúni.
Deiliskipulag Landakotsreits var
samþykkt í skipulagsráði dags. 14.3.
2007 og gerir ráð fyrir útivistar-
svæði og leiksvæði á svæði því sem
tillagan tekur til.
Spila fótbolta á grasbala
Fram kemur í bréfi skólastjórans
og Reykjavíkurbiskups að aðstaða
til íþróttaiðkunar nemenda Landa-
kotsskóla sé bágborin, enda ekkert
íþróttahús við skólann. Núna spili
nemendur fótbolta á grasbala ná-
lægt inngangi Kristskirkju. Á haust-
in breytist grasbalinn fljótt í moldar-
svað sem nýtist illa og verði fljótt
lýti á umhverfinu. Einnig fari illa
saman að börn séu að leik svo ná-
lægt kirkjunni þegar athafnir standi
yfir.
Með upphituðum battavelli sé
ljóst að íþróttakennsla Landakots-
skóla muni eflast til muna og með
bættri lýsingu verði Landakotstún
öruggara svæði, en það er núna illa
upplýst. Óárennilegt sé að ganga
yfir túnið þegar rökkva tekur. Íbúar
hverfisins geti svo nýtt sér battavöll-
inn utan skólatíma.
Landakotstún er sögufrægt tún í
Reykjavík enda í nágrenni við fyrstu
byggð þar. Áður fyrr stóð kotið
Landakot á Landakotstúni, og dreg-
ur það nafn sitt af því. Umhverfis
túnið voru túngarðar, sem Garða-
stræti heitir eftir, en þá náði túnið
þangað austur.
Tölvumynd/Landmótun
Landakotstún Tillaga Landmótunar að upphituðum gervigrasvelli tengdum
opnu leiksvæði og göngustígum á túninu. Trjágróður mun umlykja svæðið.
Battavöllur komi
á Landakotstúnið
- Biskup kaþólskra hefur veitt Reykjavíkurborg leyfi sitt
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Félagsstofnun stúdenta áformar
frekari uppbyggingu í Skuggahverfi í
Reykjavík. Til stendur að færa til hús
og rífa og byggja ný hús með 122 ein-
staklingsíbúðum og herbergjum.
Samtímis verður bílastæðum fækkað
og benda borgarráðsfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins á það í bókun að
minna en eitt bílastæði verði á hverj-
ar fimm nýjar íbúðir.
Félagsstofnun stúdenta rekur nú
þegar 102 stúdentaíbúðir á reitnum
undir heitinu Skuggagarðar. Fyrsta
húsið var tekið í notkun árið 2006.
Þetta eru stúdíóíbúðir ætlaðar ein-
staklingum.
Á fundi skipulags- og samgöngu-
ráðs borgarinnar 29. september sl.
var lögð fram umsókn Félagsstofn-
unar stúdenta dags 1. júní 2021, varð-
andi breytingu á deiliskipulagi reits
vegna lóðanna nr. 42, 44 og 46 við
Lindargötu og lóða nr. 10 og 12 við
Vatnsstíg. Í breytingunni felst að
heimilt verði að fjarlægja hús á lóð
nr. 10 við Vatnsstíg og 44 við Lind-
argötu, breyta lóðamörkum lóðanna
nr. 12 og 12A við Vatnsstíg, sameina
lóðina nr. 44 við Lindargötu við lóð-
irnar nr. 40, 42 og 46 við Lindargötu.
Ennfremur að byggja nýtt þriggja
hæða hús á lóð nr. 44 við Lindargötu,
reisa tveggja hæða hús ásamt risi á
lóðunum nr. 12 og 12A við Vatnsstíg,
fækka bílastæðum á lóð og gera sam-
eiginlegt útisvæði fyrir stúdenta
vestan við jarðhæð lóðar nr. 44 við
Lindargötu. Loks að flytja núverandi
byggingu frá lóð nr. 12 við Vatnsstíg
á nýja lóð nr. 10 við Vatnsstíg, sam-
kvæmt uppdrætti Arkþing/Nordic.
Samþykkt var að auglýsa fram-
lagða tillögu með fjórum atkvæðum
fulltrúa Viðreisnar, Samfylkingar-
innar og Pírata. Fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins sátu hjá við afgreiðslu
málsins. Borgarráð hefur staðfest
þess afgreiðslu. Þar bókuðu fulltrúar
meirihlutaflokkanna að skipulagið sé
unnið í samráði við Minjastofnun.
Uppbyggingin verði hjá lykilás borg-
arlínu og bjóði upp á grænar teng-
ingar við háskólasvæðið í Vatnsmýri.
Fram kemur í greinargerð arki-
tektastofunnar Arkþing Nordic um
deiliskipulagsabreytinguna að vegna
lóðabreytinga við Vatnsstíg og sam-
einingar við lóðina Lindargötu 44
stækki lóðin úr 2.989 fermetrum í
3.292 fermetra.
Breyttar kröfur um bílastæði
„Vegna breyttra samgöngumark-
miða borgarinnar og breyttra krafna
um bílastæði við stúdentagarða
fækkar stæðum á lóðinni og í staðinn
kemur sameiginlegt útisvæði fyrir
íbúa stútdentagarðanna á baklóð
Lindargötu þar sem áður voru bíla-
stæði,“ segir í greinargerðinni.
Á fundi skipulags- og samgöngu-
ráðs bókuðu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins að bílastæðum verði fækk-
að úr 37 í 23. Þetta sé fækkun um 14
bílastæði. Á sama tíma sé verið að
fjölga íbúðum verulega sem muni
auka álag á bílastæði í nálægum göt-
um. Bílastæði á íbúð verða innan við
0,2 miðað við að 122 íbúðaeiningar.
Það þýðir minna en eitt bílastæði á
hverjar fimm íbúðir.
„Þá fækkar enn hefðbundnum
eldri húsum í miðborginni og hætta
er á að ný uppbygging verði einsleit,“
bókuðu sjálfstæðismenn.
Íbúðum fjölgi en bílastæðum fækki
- Félagsstofnun stúdenta áformar ný hús með 122 einstaklingsíbúðum og herbergjum í Skuggahverfi
- Sjálfstæðismenn í borgarstjórn gagnrýna að tæplega eitt bílastæði verði á hverjar fimm íbúðir
Morgunblaðið/sisi
Skuggahverfið Húsið Vatnsstígur 10 verður rifið enda talið ónýtt. Á lóðinni munu rísa nýjar stúdentaíbúðir.