Morgunblaðið - 09.10.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 09.10.2021, Qupperneq 18
VIÐTAL Ari Páll Karlsson ari@mbl.is „Það má ekki gleyma því að það sem er gott fyrir gestina okkar, ferða- menn og ævintýrafólk sem vill koma hingað til lands, er líka gott fyrir heimamanninn. Því þar sem er gott að ferðast er oftast nær líka gott að búa og öfugt,“ segir Ásta Kristín Sig- urjónsdóttir, framkvæmdastjóri Ís- lenska ferðaklasans, sem saman- stendur af fyrirtækjum og stofnunum úr breiðri virðiskeðju ferðaþjónustunnar. Ásta var létt í viðmóti þegar Morgunblaðið bar að garði í nýsköpunarsetrinu Grósku, þar sem klasinn er til húsa, en þau vinna nú hörðum höndum að undir- búningi ráðstefnunnar What Works sem fer fram 14. október í Hljóma- höllinni í Reykjanesbæ. Ráðstefnan er nú haldin í fimmta sinn og er á vegum Social Progress Imperative-stofnunarinnar og Cognitio, fulltrúa hennar hér á landi. Í ár er sjónum beint að einni at- vinnugrein: Ferðaþjónustunni. Tímabundnir íbúar landsins Ásta segir að aðallega verði rædd félagsleg áhrif ferðaþjónustunnar um heim allan, sem og sjálfbærni greinarinnar í nýrri heimsmynd. „Ef þú ert ferðamaður þá ertu í rauninni tímabundinn íbúi á Íslandi meðan þú ert hérna,“ segir Ásta. „Hvað fáum við út í samfélagið? Við höfum ótal dæmi um staði úti um allt land þar sem aukin ferðaþjón- usta hefur haft í för með sér aukið þjónustu- og atvinnustig með til- heyrandi lífskjaraaukningu fyrir íbúa. „Tökum sem dæmi að þegar opn- aður er veitingastaður, þá þarf stað- urinn húsnæði, kaupir hráefni, borg- ar fólki laun sem rennir frekari stoðum undir nærsamfélag staðar- ins. Virðiskeðja ferðaþjónustunnar er mjög löng og í kringum hvern og einn ferðamann er hringrás mjög fjölbeyttrar þjónustu sem innt er af hendi af fjölbreyttum hópi fyrir- tækja. Því sé ótvírætt um félagsleg áhrif greinarinnar. „Ferðaþjónustan er, eins og við segjum alltaf, framkvæmd af fólki fyrir fólk og þó svo að við séum alltaf að hugsa um nýjar og snertilausar lausnir þá, í lok dags, snýst þetta allt- af um fólk að veita þjónustu og ein- staka upplifun.“ Þá hafi heimsfaraldurinn tíma- bundið gert rekstrarumhverfi grein- arinnar nánast óbærilegt. „Við erum að sjá það að það er ekki einungis fjárhagslegur vandi sem stjórnendur í ferðaþjónustu standa frammi fyrir heldur er líka erfitt fyr- ir mörg ferðaþjónustufyrirtæki að fá starfsmenn aftur inn í greinina. Það er bæði ótti um að svona geti gerst aftur og starfsöryggi sé ekki tryggt,“ segir hún. Þar að auki sé verið að biðja þá starfsmenn um að vera „framar í víglínunni“ með því að vera innan um fólk sem er nýlega komið hingað til lands. Heimsfaraldurinn er þó ekki eina áskorunin sem ferðaþjónustan hefur staðið frammi fyrir, enda er ljóst að loftslagsváin mun hafa enn meiri áhrif á greinina en hún hefur hingað til. Ásta segir Íslenska ferðaklasann mikið rætt lausnir og á ráðstefnunni verði sérstakt erindi tileinkað fram- tíðinni. Sjálfbærni ekki lengur val „Í dag er sjálfbærni ekki lengur val eða aðgreining heldur verða allir þátttakendur í hverju samfélagi, hvort heldur sem þeir tilheyra ferða- þjónustu eða öðrum atvinnugreinum, að tileinka sér sjálfbærni með því að byggja upp jafnvægi á milli fé- lagslegra og efnahagslegra þátta án þess að gengið sé á auðlindir um- hverfisins,“ segir Ásta og heldur áfram: „Ísland er eyja sem þýðir að ferða- maðurinn þarf, eðli málsins sam- kvæmt, að menga til þess að komast hingað. Hann þarf að koma með flug- vél eða skipi. Við þurfum að hugsa svolítið lengra fram í tímann, meira en bara að hann geti komið og kolefn- isjafnað sig með því að gróðursetja tré eða eitthvað sambærilegt, hann eigi í rauninni að geta farið héðan kolefnisjákvæður.“ Stjórnvöld þurfi að kynna sína aðgerðaráætlun sem fyrst í loftslagsmálum svo atvinnu- greinar, og þar sér í lagi ferðaþjón- ustan, geti hafið sitt aðlögunartíma- bil sem fyrst. „Ísland er búið að setja sér metn- aðarfullt markmið að verða leiðandi í sjálfbærni árið 2030. Til að ná þeim árangri þarf að halda vel á spöðun- um. Til þess að við getum orðið leið- andi í sjálfbærni þá þurfa fyrirtækin að verða það. Það þurfa allir að fara að vinna með þeim hætti í dag,“ segir Ásta, enda styttist óðfluga í árið 2030. „Ferðaþjónustan sem grein fer svo víða og þess vegna er svo mik- ilvægt að hún sé unnin í sátt og sam- lyndi við umhverfi og samfélag. Hvernig höldum við þessu jafnvægi í efnahagslegum viðmiðum og þeim umhverfislegu? Það er öllum til hagsbóta að greinin vinni af ábyrgð og taki langtímasjónarmið í nafni sjálfbærni og ábyrgðar alltaf fram yfir skemmri tíma sjónarmið. Það er arðsamast fyrir ferðaþjónustuna og samfélagið allt til lengri tíma litið að sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð séu alltaf fremst í viðskiptaplaninu,“ segir Ásta og bætir við að hún trúi því að fyrirtæki sem ekki setja þessi málefni fremst í forgang verði ekki heldur með burðugan rekstur til framtíðar. „Viðskiptavinurinn mun mótmæla þessu með fótunum.“ Allar framtíðargreiningar segi okkur það að ungt fólk, sem eru framtíðarviðskiptavinir fyrirtækja, geri skýra kröfu um að þau sem þau versla við sé umhugsað um loftslagið. Ferðalangar framtíðarinnar Ásta segir lokaerindi ráðstefnunn- ar snúa að framtíðinni og því sem blasir við. Það sé ekki ósvipað verk- efni klasans að nafni „Our future“, eða „Okkar framtíð“ þar sem þau héldu vinnustofur um heim allan, með fjarfundabúnaðinum Zoom, til að ræða framtíð ferðaþjónustu. „Við erum búin að ferðast með þessa hug- myndafræði og kalla til okkar sam- félagið og fá frá þeim hverjar þeirra áskoranir eru þegar þau horfa til framtíðarinnar.“ Að mati Ástu mun ferðaþjónusta leika lykilhlutverk í því að græða þau djúpu sár og gjá sem myndast hefur milli þjóða, mismunandi menningar og stöðu fólks um allan heim eftir að heimsfaraldri lýkur. Í framtíðinni verði áhersla lögð á að leggja eitt- hvað af mörkum til samfélagsins þar sem förinni sé heitið. „Get ég gert eitthvað sem hjálpar þessu samfélagi að verða betra?“ sé spurning sem ferðalangar framtíðarinnar muni spyrja sig. Ferðaþjónusta í nýrri heimsmynd - Ráðstefna í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ í næstu viku - Félagsleg áhrif ferðaþjónustu leynast víða - Sjálfbærni í rekstri verður forsenda í framtíðinni - Stjórnvöld þurfa að kynna sína aðgerðaáætlun Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framkvæmdastjóri Ásta Kristín hjá Íslenska ferðaklasanum segir að sjálfbærni verði skilyrði eftir örfá ár. 18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. DLUX 4000 Sterkasta D-vítamín sem völ er á frá Better You 4000 AE í hverjum úða • Sykurlaus munnúði • Sama góða piparmyntubragðið • 3ja mánaða skammtur • Óhætt að nota ámeðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur Vítamín í munnúðaformi skila hámarksupptöku í gegnum slímhúð í munni sem gerir þau afar hentug í notkun. „Miðborgin þarf margbreytileika og messurnar okkar falla vel að því,“ segir sr. Bjarni Karlsson, prestur og siðfræðingur. Nú í byrjun hausts tók hann við kefli og annast guðsþjón- ustur í Kolaportinu, sem þar verða annan sunnudag hvers mánaðar í allan vetur. Messa verður nk. sunnudag, 10. október, og hefst hún kl. 14. Helgi- hald þetta á sér 20 ára sögu en nú er bláasið til nýrrar sóknar, að sögn sr. Bjarna. Hann hefur Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur söngkonu sér til halds og trausts í þessu starfi, auk sjálfboðaliða. Messurnar í Kolaportinu við Tryggvagötu eru á veitingastaðnum Hafnarkaffi. „Í síðustu messu mættu um 50 manns og verða væntanlega fleiri nú um helgina. Breiddin í hópi gesta er mikil; þverskurður af sam- félaginu og mikil gleði. Borgar- samfélag hefur jafnan mörg ein- kenni; svo sem verslun, listir, skemmtanalíf og fleira. Í þessari deiglu er dýrmætt að trúin fylgi með,“ segir sr. Bjarni, sem sinnti Kolaportsmessum – ásamt fleiri prestum – fyrr á árum en hefur nú tekið við umsjón. Við guðsþjónustur í Kolaportinu er boðið upp á óskalög í salnum áður en messan hefst og allan tímann er gleðin og vináttan við völd, eins og sr. Bjarni kemst að orði. „Að fá Guðrúnu Árnýju, sem er jafnvíg í söng og spilamennsku, er frábært. Hún er ótrúlega músíkölsk og virðist geta pikkað öll lög upp og flutt, leikandi létt; ástarljóð, dægurlög og trúar- söngva. Stemningin í guðsþjónust- unum er því stundum sem blanda af íslenskri sveitaskemmtun og guðs- þjónustu,“ segir Bjarni, sem annast helgihald og prédikar við athafnir – sem standa hjarta margra nærri. sbs@mbl.is Þverskurður sam- félags í messunum - Sr. Bjarni verður í Kolaportinu í vetur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Miðborg Tollhúsið með Kolaportið á jarðhæð, þar sem gleðin ræður. Bjarni Karlsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.