Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 24

Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 24
SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Skortur á jarðgasi hefur keyrt upp raforkuverð í Evrópu, Suður-Amer- íku og Asíu og stefnir í alvarlega orkukreppu í vetur þar sem núver- andi framboð mun ekki ná að anna eftirspurn fyrir heimili og iðnað. Gæti sú kreppa haft í för með sér aukna verðbólgu víða um heim, þar sem hækkandi raforkuverð muni jafnframt þrýsta verðinu upp í öðr- um geirum, eins og matvælafram- leiðslu. Á miðvikudaginn hækkaði verðið á gasorku upp í methæðir í ríkjum Evrópusambandsins og í Bretlandi, en lækkaði svo aftur síðar um dag- inn. Hækkunin kom til vegna fregna um að ekki væru nægar birgðir af jarðgasi í Evrópu, og þá sérstaklega Þýskalandi, miðað við venjulegt ár- ferði, en þær eru nú um það bil 70% af geymslugetu Evrópusambands- ríkjanna, en venjulega hefur verið safnað upp í um 95% af geymslu- getunni til að undirbúa veturinn. Þessi birgðastaða þýðir að þegar vetur gengur í garð munu birgðirnar hverfa skjótt, jafnvel þótt hitastigið haldist í meðalhita fyrir meginland Evrópu. Verði veturinn kaldari en gengur og gerist er óttast að birgð- irnar gætu hreinlega orðið uppurn- ar. Þá óttast sérfræðingar í orkumál- um Evrópu að þegar sé orðið um seinan að auka þær í tæka tíð fyrir veturinn, þar sem framleiðslu- og flutningsgeta helstu framleiðsluríkja sé nú þegar komin að þolmörkum. Hlýindasumar ekki til bóta Skortinn má rekja til nokkurra þátta, en þar á meðal er sú staðreynd að heimsfaraldurinn setti eldsneytis- markaðinn úr skorðum, þar sem sóttvarnaaðgerðir og lokanir í fyrra drógu úr eftirspurn og framleiðslu, sem hefur ekki náð sér á strik aftur á sama tíma og nýopnuð hagkerfi kalla aftur á meiri orku. Veðurfarið í sumar hjálpaði ekki til, en miklir þurrkar urðu til að draga úr uppistöðulónum vatnsorku- vera, á sama tíma og hlýindin leiddu til þess að fólk notaði meiri orku í loftkælingu. Þá hreyfði vart vind í Evrópu sem þýddi að vindorkuver þeirra framleiddu minna Verðhækkunin á miðvikudaginn gekk að miklu leyti til baka eftir að Vladimír Pútín Rússlandsforseti ró- aði markaðinn með því að skipa rúss- neska ríkisorkufyrirtækinu Gaz- prom að mæta aukinni eftirspurn í Evrópu með sendingum í gegnum Úkraínu. Sagði Pútín jafnframt að ríki Evr- ópu bæru meginábyrgðina á hækk- uninni þar sem þau hefðu gert mis- tök, meðal annars með því að segja upp nokkrum langtímasamningum við birgja á borð við Gazprom. Ummælum Pútíns var einkum ætlað að svara ásökunum, sem heyrðust þegar orkuverðið hækkaði, um að Rússar hefðu viljandi dregið úr sendingum sínum á jarðgasi til Evrópu, m.a. til þess að þrýsta á um að Nord Stream 2 gas-línan á milli Rússlands og Þýskalands fengi fullt rekstrarleyfi sem fyrst. Rússar segja hins vegar að þeir hafi mætt öllum sínum samnings- skyldum í orkusölu sinni til Evrópu, á sama tíma og orkusalar í álfunni telja að Gazprom hafi dregið lapp- irnar við að auka framleiðsluna. Þá hafa Rússar viljað halda stærri hluta eigin framleiðslu heima við til að bregðast við aukinni eftirspurn á heimamarkaði. Vaxtarverkir orkuskiptanna Lagning Nord Stream 2 hefur ver- ið umdeild, ekki síst meðal vest- rænna bandamanna Þýskalands, sem óttast að landið sé að verða Rússum háð um of varðandi raforku- framleiðslu, en rússneskt jarðgas er einn höfuðþátturinn í markmiðum þýskra stjórnvalda um að loka öllum kjarnorkuverum sínum, sem er hluti af orkuskiptum þeirra yfir í um- hverfisvænni orku. Er það einungis eitt dæmið um það hvernig aðildarríki Evrópusam- bandsins hafa verið í fararbroddi orkuskiptanna, en þau hafa verið iðin við að loka kjarnorku- og kolaverum sínum undanfarin ár, en í greiningu Martins Sandbu fyrir Financial Tim- es í síðustu viku er bent á að leið- togahlutverk Evrópusambandsins þar þýði einnig að þau verði fyrst til að finna fyrir vaxtarverkjum orku- skiptanna, sem munu m.a. fela í sér hærra verð á jarðefnaeldsneyti. Á sama tíma og innflutningur frá Rússlandi hefur aukist vegna orku- skiptanna hafa önnur ríki Evrópu, til dæmis Hollendingar, dregið hratt úr sinni eigin framleiðslu, en jarðgas- framleiðsla þeirra í Groningen, sem stendur til að loka á næsta ári, gat á sínum tíma framleitt nægt jarðgas til þess að knýja allt Þýskaland. Hörð samkeppni um gasið Vandinn er þó ekki bundinn við Evrópu. Jarðgas, sem er aðallega selt í fljótandi formi, er einn eftir- sóttasti orkugjafi heims um þessar mundir þar sem við brennslu þess losnar úr læðingi einungis um helm- ingur þess magns gróðurhúsaloft- tegunda sem samsvarandi magn af olíu myndi losa. Jarðgasið þykir því álitlegur „millibilskostur“ næsta áratuginn fyrir ríki sem eru að reyna að ná loftslagsmarkmiðum sínum. Á sama tíma og ríki Evrópu leita nú allra leiða til að tryggja birgðir sínar eru ríki Suður-Ameríku og Asíu, þá eink- um Kína, í sömu sporum. Þessi harða samkeppni um allan heim hefur knúið upp orkuverð í öðr- um ríkjum, jafnvel Bandaríkjunum, sem er stærsti framleiðandi jarðgass í heimi og eru flutningafélög að beina flutningaskipum sínum af leið til þess að selja til hæstbjóðanda á markaði. Kínverjar leita í kolin Orkuskortsins hefur orðið áþreif- anlega vart í Kína, en þar hafa stór svæði þurft að glíma við rafmagns- leysi undanfarnar vikur. Leita kín- versk stjórnvöld nú allra leiða til þess að bregðast við orkuskortinum, og hafa m.a. fyrirskipað kolanámum sínum að stórauka framleiðsluna til þess að mæta orkuþörf Kínverja. Á sama tíma og Kínverjar hafa sett sér markmið um kolefnishlut- leysi fyrir árið 2060 er staðan enn sú að um 60% af raforku þeirra eru framleidd með kolaverum. Jarðgasskortur ofan á skort á kol- um gæti því þýtt að kínverskar verk- smiðjur þyrftu að sætta sig við skömmtun á rafmagni, sem aftur gæti ýtt undir hækkanir á útflutn- ingsvörum þeirra, auk þess sem heimsmarkaðsverð á stáli og áli gæti einnig tekið kipp upp á við. Áhrifa orkukreppunnar mun því líklega gæta víða um heim í vetur, jafnvel í ríkjum sem treysta ekki á jarðgas í orkuframleiðslu sinni. Kaldur orkuvetur fram undan - Skortur á jarðgasi keyrir upp raforkuverð í Evrópu og Asíu - Birgðastaðan í Evrópu ekki næg fyrir komandi vetur - Jarðgas einn eftirsóttasti orkugjafinn vegna orkuskipta - Kolaframleiðsla aukin í Kína AFP Jarðgas Verð á jarðgasi hækkaði mjög í vikunni í ríkjum Evrópu, og stefnir í alvarlega stöðu fyrir veturinn. 24 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Norska nóbelsnefndin tilkynnti í gær að blaðamennirnir Maria Ressa frá Filippseyjum og Dmitri Muratov frá Rússlandi myndu hljóta frið- arverðlaun Nóbels í ár. Sagði í til- kynningu nefndarinnar að verð- launin væru veitt fyrir baráttu þeirra til að verja málfrelsið, sem væri frumskilyrði lýðræðis og friðar. „Þau eru fulltrúar allra blaða- manna sem verja þessa hugsjón í heimi þar sem lýðræðið og prent- frelsið standa sífellt hallari fæti,“ sagði Berit Reiss-Andersen, formað- ur norsku nóbelsnefndarinnar. Ressa sagði að verðlaunin myndu veita sér og kollegum sínum „gríð- arlega orku til að halda baráttunni áfram“. Ressa stofnaði árið 2012 stafrænu fjölmiðlaveituna Rappler, sem einbeitir sér að rannsóknar- blaðamennsku. Sagði Reiss-Andersen að Rappler hefði beint mikilvægri athygli að umdeildri baráttu ríkisstjórnar Dut- ertes gegn fíkniefnum á Filipps- eyjum, þar sem mannfallið væri svo mikið að ætla mætti að baráttan væri stríð ríkisins gegn eigin þegn- um. Ressa kom til Íslands í nóvember 2019, en hún bíður nú niðurstöðu áfrýjunar fyrir dóm sem hún fékk á síðasta ári fyrir fréttaflutning sinn. Muratov stofnaði á sínum tíma dagblaðið Novaya Gazeta og hefur hann verið ritstjóri þess frá 1995. Á þeim tíma hafa sex af blaðamönnum þess týnt lífi. Þar á meðal var Anna Politkovskaya, sem var myrt eftir að hún skrifaði greinar um stríðið í Tétsníu. Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns Rússlandsforseta, óskaði Muratov til hamingju með verðlaunin í gær. „Hann er hæfileikaríkur, hann er hugaður,“ sagði Peskov. Verðlaunin verða afhent 10. des- ember, en þau fela í sér skírteini, gullmedalíu og ávísun á 10 milljónir norskra króna, eða sem nemur tæp- um 150 milljónum íslenskra. AFP Nóbel Berit-Reiss Andersen kynnti friðarverðlaunahafana í gær. Ressa og Muratov fá friðarverðlaunin - Barátta fyrir prentfrelsi heiðruð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.