Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 29

Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Á Íslandsmóti skákfélaga, keppnistímabilið 2021- 2022, sem hófst í Egils- höll um síðustu helgi, hélt innreið sína ný deildaskipting sem kveður á um sex liða úrvals- deild en jafnframt að hefðbundin keppni fari fram í öðrum deildum. Íslandsmót skákfélaga dregur til sín nokkur hundruð skákmenn á ári hverju en var slegið af við upphaf Covid-19-faraldursins á síðasta ári og því var mikil til- hlökkun hjá skákmönnum að hefja leikinn aftur og nýr vettvangur féll vel í kramið. Teflt var í einum stórum íþróttasal en svæðið hólfað niður eins og sóttvarnareglur gera ráð fyrir. Í úrvalsdeildinni tefla sex lið tvöfalda umferð. Nú eru gefin tvö stig fyrir sigur og eitt fyrir jafn- tefli. Staðan eftir fyrri umferðina: 1. Taflfélag Garðabæjar 9 stig 2. TR 7 stig 3. Fjölnir 6 stig. 4. Skák- deild Breiðabliks 4 stig 5. Víkinga- klúbburinn 3 stig 6. SA 1 stig. Í 1. deild er TV með forystu, í 2. deild er -sveit skákdeildar Breiða- biks efst, í 3. deild c-sveit Skák- félags Akureyrar og í 4. deild hafði Skákfélag Sauðárkróks for- ystu. Seinni umferð Íslandsmóts skákfélaga er á dagskrá í byrjun mars nk. Vignir Vatnar vann Tiger Hillarp Strax eftir fyrri hluta Íslands- móts skákfélaga hófst fjögurra skáka einvígi Vignis Vatnars Stef- ánssonar við sænska stórmeist- arann Tiger Hillarp Persson í Kjarvalsstofu við Austurvöll. SÍ stóð fyrir einvíginu í samvinnu við aðila á borð við Skákskóla Íslands, skákdeild Breiðabliks, Skákfélag Akureyrar og Vinnustofu Kjar- vals. Gott framtak og sigur Vignis Vatnars, 2½:1½, sérlega ánægju- legur og í raun sanngjarn því varla er hægt að segja að hann hafi komist í taphættu gegn mun stiga- hærri andstæðingi. Hann vann aðra skák einvígisins en hinum lauk með jafntefli: 2. einvígisskák: Vignir Vatnar Stefánsson – Tiger Hillarp Persson Enskur leikur 1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3 e6 4. g3 b6 5. Bg2 Bb7 6. 0-0 a6 7. He1 d6 8. e4 Dc7 9. b3 Be7 10. Bb2 0-0 11. d4 cxd4 12. Rxd4 He8 13. Hc1 Rbd7 14. f4 Hac8? Í „broddgaltar-afbrigðinu“ er aldrei of varlega farið. Þessi leikur er ónákvæmur eins og Vignir sýnir strax fram á. - Sjá stöðumynd 1 - 15. e5! dxe5 16. fxe5 Rxe5 17. Bxb7 Hcd8 Sennilega hefur Tiger reiknað með að þessi leikur bjargaði mál- um. Svartur hótar 18. … Hxd4 19. Dxd4 Bc5 o.s.frv. 18. Ra4! Bc5 19. Bg2? Slakur leikur sem skilar miklum ávinningi strax til baka og gott betur. Eftir 19. De2! stendur hvít- ur til vinnings. 19. …Rg6 20. b4 Bxb4 21. Db3? Bxe1 22. Hxe1 e5 23. Rf5 23. … He6? Það er hér sem Tiger missir af besta tækifæri sínu. Hann átti 23 … b5! og hefur þá betra tafl því að 24. cxb5 axb5 25. Dxb5? strand- ar á 25. … Hb8 og svartur stendur til vinnings. 24. Re3! h5? 25. Rd5! Rxd5 26. cxd5 Hf6 27. Hc1 Db8 28. Rc3 b5 29. Re4 Hb6 30. d6 Hbxd6 31. Rxd6 Dxd6 32. Hf1 Hd7 33. h4 Rf8 34. De3 f6 35. Bf3 Dd3 36. Df2 Dg6 37. Kh2 Re6 38. De2 Dd3 39. Hd1 Dxd1 40. Dxd1 Hxd1 41. Bxd1 Eftir miklar sviptingar er komið upp endatafl þar sem svartur hefur þrjú peð fyrir manninn. En biskup- arnir eru allsráðandi. 41. … g6 42. Bb3 Kf7 43. Kg2 b4 44. Kf3 Ke7 45. Bc2 Rf8 46. Ke4 Kd6 47. Kd3 Kc5 48. Bc1 Re6 49. Be3+ Kb5 50. Bb3 Rg7 51. Bc4+ Ka5 52. Bf7 Rf5 53. Bxg6 – og svartur gafst upp. Glæsilegur sigur Vignis Vatnars í einvíg- inu við Tiger Hillarp Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/SÍ. Kampakátir í Kjarvalsstofu Tiger Hillarp Persson, skákdómarinn Kristján Örn Elíasson og Vignir Vatnar Stefánsson. SÖFNUNARÁTAK Á RAFTÆKJUM í október Í tilefni af alþjóðlegu átaki í söfnun raftækja 14. október Við hvetjum landsmenn til að skila inn raftækjum, ljósaperum og rafhlöðum til endurvinnslu á næsta gámasvæði. Lestu meira um átakið á: www.gamafelagid.is Gunnar Guðmundsson fædd- ist 9. október 1921 í Hrólfs- skála á Seltjarnarnesi. For- eldrar hans voru hjónin Guðmundur Pétursson, f. 1881, d. 1958, bóndi þar, og Elísabet Stefánsdóttir, f. 1891, d. 1975. Kennaraprófi lauk Gunnar 1942 og smíðakennaraprófi frá Handíðaskólanum 1949. Þá sótti hann kennaranámskeið í Askov 1951. Gunnar starfaði sem kennari í Norðfjarðarskólahverfi 1943- 44, við barnaskólann í Stykkis- hólmi 1944-46 og í Kópavogi frá 1946. Hann var skipaður skóla- stjóri við Kársnesskóla 1957 og gegndi því starfi til dauðadags. Gunnar var einn af þeim sem höfðu forystu um uppbyggingu skólamála í Kópavogi. Gunnar var einn af stofn- endum Skólastjórafélags Ís- lands, 1960, og sat í stjórn þess árum saman og gegndi gjald- kerastöðunni. Hann var einnig gjaldkeri og varaformaður Norræna félagsins. Hann var félagi í Lionshreyfingunni. Eiginkona Gunnars er Rann- veig Sigríður Sigurðardóttir, f. 26.6. 1920, handavinnukennari. Hún er búsett í Kópavogi. Dætur Gunnars og Rannveigar eru tvær. Gunnar lést 24.11. 1980. Merkir Íslendingar Gunnar Guð- mundsson „Ef þeir gallar eru á framboði eða kosningu þingmanns sem ætla má að hafi haft áhrif á úrslit kosningarinnar úr- skurðar Alþingi kosn- ingu hans ógilda og einnig án þess ef þing- maðurinn sjálfur, um- boðsmenn hans eða meðmælendur hafa vís- vitandi átt sök á misfell- unum, enda séu þær verulegar. Fer um alla þingmenn, kosna af list- anum, eins og annars um einstakan þingmann misfellurnarar varða listann í heild.“ Talning atkvæða er hluti af kosningu þingmanns. Svo sem fram hefur komið kann að vera að ákvæðum kosningalaga um talningu hafi ekki verið fylgt í Norðvesturkjördæmi. Kosningabaráttan mun verða sérstæð Ef ekki koma fram beinar sannanir um að útilokað sé að ágallar á fram- kvæmd talningar hafi haft áhrif á úr- slitin er óhjákvæmilegt að boða til uppkosningar í kjördæminu sem allra fyrst. Bein sönnun væri t.d. myndefni úr eftirlitsmyndavélum. Kosninga- baráttan mun verða sér- stæð. Þarna mun fram- bjóðanda pírata gefast kostur á, sjöttu kosning- arnar í röð, að sannfæra kjósendur um brýna nauðsyn „nýju stjórnar- skrárinnar“. Frambjóð- andi Viðreisnar getur skýrt hvernig kjósendur í kjördæminu eiga allt undir innlimun ESB á íslenskum fiskimiðum og upptöku evru. Svo sem er kunnugt er, öðr- um en Viðreisn, eru út- flutningstekjur í kjör- dæminu að mestu bundnar við banda- ríkjadal. Píratar, Viðreisn og Samfylking fá nýtt tækifæri Píratar, Viðreisn og Samfylking geta svo út- skýrt að brýna nauðsyn beri til að hafa opin landamæri á Íslandi. Og hvers vegna Ísland þurfi að hafa aðrar reglur en önnur lönd á Norðurlöndunum og annars staðar í Evrópu. Árlegur kostnaður nemur milljörðum, en þeirra má afla með því að bæta í heimsmet Íslands í skattheimtu. Já, þessi kosningabarátta verður sannarlega skemmtileg. Uppkosning í Norð- vesturkjördæmi Eftir Einar S. Hálfdánarson »Kostur gefst á, sjöttu kosningarnar í röð, að sannfæra kjósendur um brýna nauðsyn „nýju stjórnar- skrárinnar.“ Einar S. Hálfdánarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Andvirði sjávarauðlindar sem þjóðin á mætti leigja út á markaðsvirði, ca. 80-100 milljarðar á ári, þ.e. 250.000 tonn af þorski á markaðsvirði 200-220 kr./kíló eða um 50 millj- arðar og svo allur annar kvóti á 40-50 milljarða eða samtals 80-100 milljarðar, en kvóta-„eigendur“ þurfa einungis að greiða fyrir 5-8 milljarða og er því sjávarútvegurinn studd- ur af þjóðinni um ca. 80 milljarða á ári og þeir sem „eiga“ t.d. í kringum 10% fá 8 milljarða meðgjöf á ári frá þjóðinni og þeir, sem hafa nýtt sér þetta í t.d. 30 ár hafa fengið ca. 240 milljarða í meðgjöf frá þjóðinni. 1920 var ein dönsk = ein íslensk, en nú er ein dönsk = 2.000 íslenskar og þetta hefur verið gert til að aðstoða útflutninginn. Ragna Garðarsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Auðlindarenta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.