Morgunblaðið - 09.10.2021, Page 30

Morgunblaðið - 09.10.2021, Page 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Bætt hreinlæti í nýjum heimi Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is Sem útlendingur búandi á Íslandi geri ég mér far um að blanda mér ekki í dægurmál eða stjórn- málaumræðu, enda býður almenn kurteisi að ég sýni gestrisni Íslendinga þá virð- ingu. Í þetta sinn get ég hins vegar ekki orða bundist í ljósi frétta sem ég hef lesið nýverið. Ung kona af kúrdískum uppruna virtist um tíma hafa náð þingsæti á Alþingi. Hennar fyrstu orð af því tilefni voru að hún vilji beita sér í málefnum útlendinga og innflytj- enda. Ég er orðlaus gagnvart svo ótrú- legum og vanhugsuðum skorti á smekkvísi. Að manneskja sem er svo lánsöm að hafa fæðst á Íslandi með innflytjendur fyrir foreldra skuli láta sínu fyrstu hugsun sem tilvonandi þingmaður ekki snúast um velferð samborgara sinna, held- ur velferð útlendinga. Hvaðan sprettur slíkt vanþakk- læti upp? Er hollusta hennar fyrst og fremst við Ísland, eða við einhverja aðra? Þetta er þjóðin sem tók við foreldrum hennar, sem hingað komu í leit að betra lífi. Þau nutu góðs af rausn Íslendinga sem lögðu til stuðning af almannafé við inn- flytjendur og hælisleitendur. Þegar henni gefst tækifæri til að gefa til baka til íslensks samfélags hugsar hún fyrst og fremst um útlendinga. Ísland er eitt af mannúðlegustu og umburðarlyndustu samfélögum á hnettinum, þar sem grundvallar- mannréttindi sérhvers íbúa eru virt óháð uppruna þeirra, ólíkt þeim löndum sem flestir innflytjendur og hælisleitendur koma frá. Þrátt fyrir þetta kýs þessi unga kona að beita uppruna sínum til að setja með óbeinum hætti ofan í við Íslendinga. Hvers vegna les hún ekki heldur ættjörð foreldra sinna pistilinn? Hún gæti hæglega fullnægt góð- gerðarþörf sinni með því að að leggja því lið að bæta skilyrði í Kúrdistan, en þar eru til staðar vandamál sem láta meintan skort á „málsvörum innflytjenda“ á Íslandi blikna: Konur dæmdar til annars flokks lífs, ofsóknir gegn samkyn- hneigðu fólki, áreitni í garð kaffir (trúleysingja), svo nokkuð sé nefnt. En að sjálfsögðu er þægilegra að vera boðberi dyggðar, gagnrýna og fárast í frjálsu, umburðarlyndu þjóðfélagi þar sem fólki er ekki stungið í fangelsi – eða þaðan af verra – fyrir að tjá skoðanir sínar. Sjálfur er ég asískur innflytjandi sem er nú bandarískur ríkisborg- ari, og er sem slíkur afar þakklátur því landi fyrir að hafa tek- ið mig í sínar raðir. Þegar ég ritaði sjálf- viljugur undir eið sem ríkisborgari, sór ég hinu nýja föðurlandi mínu hollustu. Aldrei fannst mér ég eiga sjálfvirkt tilkall til eins eða neins. Innflytjandinn ætti alltaf að vera sá sem aðlagast sínu nýja landi, en ekki öfugt. Ef siðir og venjur íbú- anna hugnast þér ekki, er þér alltaf frjálst að fara og leita að öðrum og betri stað. Nú á dögum er alsiða að innflytj- endur heimti „réttindi“ jafnóðum og þeir hafa stigið á land, réttindi sem þeir myndu ekki dirfast að fara fram á í sínum heimalöndum. Þeir nýta sér núverandi andrúmsloft á Vesturlöndum og eru fljótir að ásaka vestræna gestgjafa sína um rasisma og fordóma ef ekki er orðið við kröfum þeirra. Síðast en ekki síst bera sumir þeirra með sér nýtt eitur undir yfir- skini baráttu fyrir félagslegu rétt- læti: Veiru sjálfsmyndar- og órétt- arpólitíkur (identity and grievance politics). Þetta er eitthvað sem Ís- land þarf alls ekki á að halda, hvorki nú né nokkurn tímann, og hvers kyns tilburðum til að bera þessa meinsemd í blóðrás sam- félagsins verður umsvifalaust að vísa á bug. Íslendingar hafa sem fullvalda þjóð fullan rétt á að móta sína inn- flytjendastefnu og þurfa ekki að vera sakbitnir eða þola að lesið sé yfir þeim þess vegna – allra síst af fólki sem rekur ættir sínar til sam- félaga þar sem kúgun ríkir. Styrkur og seigla íslensku þjóðarinnar er einsleitum uppruna að þakka, ekki fjölmenningarorðavaðli. Látið eng- an mann segja ykkur annað. Vanþakklæti Eftir Rajan Parrikar » Þegar henni gefst tækifæri til að gefa til baka til íslensks samfélags hugsar hún fyrst og fremst um útlendinga. Rajan Parrikar Höfundur er upphaflega frá Goa á Indlandi. Hann var menntaður sem rafmagnsverkfræðingur en stundar nú ljósmyndun af Íslandi og Goa. www.parrikar.com Tungan þarf að vera nothæf í stafrænum heimi. Með gríðarlegum breytingum á tölvu- notkun, máltækni með gervigreindartækni og talgervlum eiga smá málsamfélög í vök að verjast. Varðstaða móð- urmálsins ákvarðar hvernig þeim reiðir af. Einungis framþróun þar sem ís- lenskan er felld inn í tölvutækni og stafræna þjónustu verður hún raun- verulegur valkostur í öllu viðmóti og upplýsingavinnslu. Fylgi íslensk- an ekki tækni situr hún eftir og tæki nýta önnur tungumál. Samkeppnishæfni samfélags og tungu Tungumál eru æ meira nýtt í samskiptum og tæki verða sífellt meira notuð til að vinna með tungu- mál. Ný gervigreindartækni gerir okkur kleift að hagnýta stór texta-, mál- og upplýsingasöfn með áður óframkvæmanlegum hætti. Dæmi um það eru sjálfvirk fyrirspurna- og samtalskerfi sem eru hagkvæm og bæta þjónustu fyrirtækja og stofn- ana. Þýðingarvélar auka framleiðni þýðenda og gera aukið efni aðgengi- legt á ólíkum tungum. Áheyrilegir talgervlar létta aðgengi að efni á hljóðbókaformi jafnvel á tungum fá- mennra þjóða. Mikilvægt fyrir blinda, sjónskerta og lesblinda Hugbúnaður sem gerir fólki kleift að tala og skrifa, sem annars væri ókleift sakir fötlunar eða sjúkdóma, getur gjörbreytt lífsgæðum. Engum blöðum er um það að fletta að ný máltækni gagnast blindum, sjón- skertum og lesblindum sérstaklega vel ásamt því að leika lykilhlutverk í aðgengi upplýsinga fyrir alla í samfélaginu. Þúsundir félagsmanna Blindrafélags Íslands og Félag les- blindra á Íslandi hafa miklar vænt- ingar til framþróunar íslensku í stafrænum heimi. Þessi tækniþróun er fyrirheit um aukin lífsgæði og samkeppnishæfni atvinnulífs, samfélags og tungu- máls. Til að svo sé verður að tryggja fólki, fyrirtækjum og stofn- unum að geta nýtt máltækni án þess að flókin og þung tækni- og innviðaþróun standi fyrir þrifum. Síðasta ríkisstjórn stóð að fram- kvæmd máltækniáætlunar sem mið- aði að gjaldgengi íslenskrar tungu í stafrænum heimi. Verkefnið var samvinna rannsóknastofnana, há- skóla, fyrirtækja og frjálsra félaga- samtaka. Margvíslegum tal- og textagögnum var safnað og for- skriftir að talgreiningarvélum, tal- gervlum, ritvinnslustoð og vél- rænum þýðingarvélum gefnar út. Nýjar „raddir“ hafa verið felldar inn í Android-stýrikerfið sem er auðvelt að viðhalda og bæta með innlendri þekkingu. Enn er þó langt í land. Máltækni í nýjan stjórnarsáttmála Fyrstu máltækniáætluninni lýkur senn og því skorum við á stjórnvöld að hefja undirbúning og fram- kvæmd nýrrar máltækniáætlunar. Finna leiðir til að koma afurðum fyrstu áætlunarinnar í hendur tækninotendum. Tækninni fleygir fram og Ísland verður að halda í við þróun stærri málsvæða. Máltækni er mikið jafnréttis- og mannréttindamál fyrir blinda, sjón- skerta og lesblinda. Hún skiptir einnig miklu máli í allri nýsköpun og tækniþróun og er grundvöllur aukinnar skilvirkni í fyrirtækja- rekstri sem og hjá hinu opinbera. Við hvetjum forystumenn ís- lenskra stjórnmála til að tryggja áfram gott skipulag og samstillt átak um sterka stöðu íslensku. Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkis- stjórnar þarf skýra yfirlýsingu um nýja máltækniáætlun sem varðturn íslenskrar tungu í ólgusjó tækni- framfara. Varðstöðu um það sem sameinar okkur sem þjóð. Íslenskan verði nothæf í stafrænum heimi Eftir Guðmund Skúla Johnsen og Sigþór U. Hallfreðsson » Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar þarf skýra yfirlýsingu um nýja máltækniáætl- un sem varðturn ís- lenskrar tungu í ólgusjó tækniframfara. Sigþór U. Hallfreðsson Guðmundur Skúli Johnsen Guðmundur Skúli er formaður Félags lesblindra. Sigþór er formaður Blindrafélagsins. gsj@habilis.is; suh@blind.is Suma daga kemurðu heim með líkamann úr vinnunni en skilur haus- inn eftir. Suma daga stendurðu á miðju stofu- gólfinu skimandi í allar áttir. Suma daga er eins og þú eigir ekki heima þar sem þú býrð. Suma daga ertu of svangur til að elda, of þreyttur til að sofna, of duglegur til að dreyma. Suma daga slekkurðu á sjálfum þér til að kveikja á sjónvarpinu. Suma daga er ekkert að frétta. Suma daga er ekkert næst á dags- skrá. Suma daga er eins og lífið sé ekki lengur í beinni útsendingu. Suma daga breytist fjölskyldan í stöðumæli og vinirnir í lygamæli og skyndilega skiptir máli hvað barninu sem þú varst myndi finnast um mann- inn sem þú ert orðinn. Suma daga líturðu í spegil og ferð mannavillt. Suma daga manstu ekki lengur eftir framtíðinni. Suma daga slokknar á ímynd- unaraflinu og þyngdarafl raunveruleikans verður einfaldlega of sterkt. Suma daga sofna and- litsdrættirnir á vakt þótt það sé sprengjuárás í hjarta þínu. Suma daga fara viðbrögðin í verkfall og samskipti sem eiga að vera eðlileg verða útreiknuð og ómöguleg. Suma daga er lífið köflótt keppni; taflborðið kort af heiminum. Suma daga nærðu ekki að sækja fram því þú ert of upptekinn við að lesa aðra einn leik fram í tímann. Suma daga manstu ekki hvað þú vilt eða hvað þú þarft eða muninn á þessu tvennu. Þú getur lifað þrjár mínútur án súrefnis, þrjá daga án vatns, þrjár vikur án matar, þrjá mánuði án skjóls – en þegar þráin yfirgefur þig er engin leið að vita. Suma daga er eins og sumir dagar séu flestir dagar, jafnvel allir dagar, en þá er gott að minna sig á að þessir dagar eru ekki persónuleg pattstaða heldur nauðsynlegt millibilsástand sem skilur upplifanir okkar að. Von- leysið er tilfinningalegur vaxtar- verkur, og til að uppskera þroskann sem í því felst verður að mæta því í eigin persónu. Það dvelur eitthvað innra með þér og einn daginn mun það springa út eins og rós. Tilfinningalegir vaxtarverkir Eftir Ernu Mist » Það dvelur eitthvað innra með þér og einn daginn mun það springa út eins og rós. Erna Mist Höfundur er listmálari. ernamist@ernamist.net

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.