Morgunblaðið - 09.10.2021, Síða 42

Morgunblaðið - 09.10.2021, Síða 42
42 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 Faglegar heildarlausnir – allt á einum stað. Samkeppnishæf verð. Sem hvetur okkur að halda áfram að hugsa vel um starfsmenn og viðskiptavini okkar. Hvað er betra en heilbrigð starfsemi í hraustum rekstri? 9 ÁR Í RÖÐ Í HÓPI FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKJA Dalshraun 6 | 220 Hafnarfjörður | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú kannt að standa frammi fyrir vandamáli sem þér finnst þú ekki reiðubúin/n til þess að glíma við. Leitaðu hjálpar, það er ekkert að því. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú og makinn ættuð að setjast nið- ur og gera fjárhagsáætlun. Ekki er gott að setja öll eggin í sömu körfuna. Boð og bönn duga stundum ekki. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú ert á réttri leið en þarft þó að vera ákveðin/n til að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig. Gaumgæfðu alla mála- vexti og hugsaðu þig svo vel um áður en þú kveður upp dóm. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Lokaðu þig ekki af frá umheim- inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Þú færð frábærar fréttir sem tengjast fjölgun í fjölskyldunni. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Hertu upp hugann, því endalaus undanlátssemi skilar þér bara örðug- leikum. Vinir þínir slá um þig skjaldborg ef þú verður fyrir aðkasti. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú átt eftir að koma samstarfs- mönnum þínum á óvart. Ekki láta vinnuna ganga fyrir öllu, það er líf utan hennar. 23. sept. - 22. okt. k Vog Breytingar sem þú gerir verða fljótt að vana. Næstu mánuðir verða einhverjir þeir bestu í þínu lífi til þessa. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Eina stundina hrúgast yfir þig hugmyndir og þá næstu ertu þurr- ausin/n. Skrifaðu niður fimm kosti sem þú hefur. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Flýttu þér ekki um of í um- ferðinni í dag. Vinur þinn er í vanda og leitar til þín. Gefðu honum tíma. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú stendur á einhvers konar tímamótum og þarft að íhuga vandlega þín næstu skref. Hafðu gætur á eyðsl- unni. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þetta er þinn dagur svo þú skalt njóta hans eins og þú getur en mundu bara að hóf er best. Yfirmaðurinn er opinn fyrir nýjungum. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Það er nauðsynlegt að fá útrás fyrir tilfinningarnar og gott ráð að hrópa þær frá sér, þar sem aðstæður leyfa. Farðu yfir stöðu ástamálanna. svo framkvæmdastjóri rekstrarstýr- ingar, og um leið fyrsta konan sem varð framkvæmdastjóri hjá Flug- leiðum. Loks forstjóri Flugleiða/FL group og varð þá ein af fyrstu kon- um á Íslandi til þess að verða for- stjóri í skráðu félagi á hlutabréfa- markaði. Næst varð hún forstjóri Promens, sem var alþjóðlegt plast- framleiðslufélag með 60 verksmiðjur í 20 löndum og 5.000 starfsmenn. lækningar við Yale og hjartaskurð- lækningar á University of Pennsyl- vania. Starfsferill tvíburanna Eftir að Ragnhildur kom heim úr námi vann hún í eitt ár í Fjárfesting- arbanka atvinnulífisins og fór þaðan til Flugleiða/Icelandair. Hjá Flug- leiðum starfaði hún upphaflega sem verkefnastjóri í stefnumótun, varð A rnar Geirsson og Ragn- hildur Geirsdóttir fæddust 9. október 1971 í Providence á Rhode Island í Banda- ríkjunum, þar sem faðir þeirra stundaði doktorsnám í vélaverk- fræði. Þau fluttu til Íslands tveggja ára og bjuggu stærstan hluta upp- eldisáranna í Hlíðunum. Þau voru í Hlíðaskóla og Menntaskólanum við Hamrahlíð. „Á þessum árum vorum við mjög mikið saman og eignuðumst marga góða vini sem enn eru meðal okkar bestu vina. Þessi hópur gekk undir nafninu Trivial Pursuit-hópurinn enda spiluðum við það spil mikið ásamt því að rökræða hin ýmsu heimsins mál. Við höfum alltaf haft gaman af úti- vist og ferðamennsku en sem börn ferðuðumst við fjölskyldan talsvert. Uppáhaldsstaðurinn okkar á þeim árum var Þórsmörk en þangað fór- um við fjölskyldan gjarnan í eina eða tvær vikur á sumrin. Í grunnskóla vorum við í gönguhópi og fórum við fyrst á Hvannadalshnjúk þegar við vorum 15 ára. Hluti af vinahópnum okkar fór saman í Hjálparsveit skáta í Kópavogi, en reynslan þar lagði grunn að lífsstíl okkar beggja, sem byggist á hreyfingu og útivist. Bæði höfum við sérstaklega gaman af hlaupum og hjólreiðum. Skíða- mennskan er líka ofarlega á lista hjá báðum fjölskyldum,“ en Ragnhildur kenndi m.a. á skíði í Kerlingar- fjöllum og æfa börnin hennar skíði með Ármanni. Arnar hefur stundað hjólreiðar og þríþraut og hefur m.a. farið heilan járnkarl. „Bæði höfum við alltaf haft gaman af námi og lá fyrir snemma að við ætluðum í háskóla. Eftir mennta- skóla má segja að leiðir hafi skilið að einhverju leyti.“ Ragnhildur fór í véla- og iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands og svo í framhaldsnám til Bandaríkjanna. Þaðan lauk hún MS- gráðu í iðnaðarverkfræði og við- skiptafræði frá University of Wis- consin-Madison. Arnar fór í lækn- isfræði í Háskóla Íslands og svo í framhaldsnám til Bandaríkjanna þar sem hann nam almennar skurð- Eftir það var hún framkvæmdastjóri rekstrar og upplýsingatækni hjá Landsbankanum og svo aðstoðar- forstjóri WOW air. Í dag starfar Ragnhildur sem forstjóri Reikni- stofu bankanna. Eftir nám vann Arnar í fimm ár sem hjartaskurðlæknir í Yale- háskóla í Connecticut í Bandaríkj- unum, bæði sem klínískur skurð- læknir og við grunnrannsóknir tengdar hjartalokusjúkdómum. Hann flutti síðan heim til Íslands með fjölskyldu sinni og vann í fjögur á sem sérfræðingur á Landspít- alanum áður en þau fluttu aftur út til Yale þar sem hann tók við yfir- læknisstöðu sem forstöðulæknir fyr- ir hjartaskurðdeildinni á Yale- háskólaspítalanum. Yale er með stærstu spítölum í Bandaríkjunum með 1.470 sjúkra- rúm, og fer Arnar fyrir 16 skurð- læknum sem gera um 1.900 hjarta- skurðaðgerðir á ári. Hann sérhæfir sig í skurðaðgerðum á hjartalokum, sem gerðar eru með aðgerðar- þjarka, og leiðir míturloku- skurðprógramm sem er með því stærsta á því sviði í Bandaríkjunum. Hann er mjög virkur í rannsóknum, bæði klínískum og grunnrann- sóknum, og höfundur yfir 200 fræði- greina. Hann fékk framgang sem prófessor í skurðlækningum við Yale árið 2020. Fjölskylda Ragnhildar Eiginmaður Ragnhildar er Ágúst Þ. Þorbjörnsson, f. 2.11. 1965, hag- Arnar Geirsson, yfirlæknir og prófessor, og Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri – 50 ára Börnin Geir Þór og Kristín Steinunn, börn Ragnhildar; Benedikt, Arnar Helgi og Kristján, synir Arnars, ásamt systursyni, Arnari Geir. Metnaðarfullir tvíburar Systkinin Fyrir framan sjúkrahúsið í Providence, þar sem þau fæddust. Á fjallaskíðum Arnar og Ragnhild- ur ásamt mökum á Snæfellsjökli. Vinkonurnar Matthildur Mínerva Bjarkadóttir, Rún Ingvarsdóttir og Vigdís Hrefna Magnúsdóttir máluðu myndir og seldu við Olís í Norðlingaholti: Þær söfnuðu 14.500 krónum og afhentu Rauða krossinum á Íslandi. Hlutavelta Akureyri Hektor Pétur Reimus Loga- son fæddist 9. október 2020 á Sjúkra- húsinu á Akureyri og á því eins árs af- mæli í dag. Hann var 52 cm langur og vó 4.338 g við fæðingu. Foreldrar hans eru Kinga Reimus og Logi Helgason. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.