Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
„EF ÞÚ VILT VERÐA AFI ÞARFTU AÐ FÆRA
EINHVERJAR SMÁFÓRNIR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að vita að einhver
hugsar til þín.
OST, OST,
OST, OST…
OST, OST,
OST, OST
TAKK FYRIR AÐ HJÁLPA MÉR
MEÐ INNKAUPALISTANN
OGOST
ÉG TÝNDI
SVERÐINU
MÍNU…
ÉG TÝNDI
SKILDINUM
MÍNUM…
ÉG TAPAÐI
ORUSTU
DAGSINS!
ÉG ÞORI AÐ VEÐJA AÐ ÞÚ ERT EKKI
BÚINN AÐ TAPA MATARLYSTINNI!
EKKI
SÉNS!
„LEGGÐU FRÁ ÞÉR TANNBURSTANN MINN
OG KOMDU AÐ SOFA. FYRIRGEFÐU AÐ
ÉG SKYLDI MINNAST Á ANDFÝLUNA.“
SKELL
verkfræðingur og sjálfstætt starf-
andi rekstrarráðgjafi. „Við búum
uppi við Elliðavatnið. Okkur finnst
frábært að búa þar og hafa Heið-
mörkina í bakgarðinum. Það býður
upp á endalausa möguleika til að
hlaupa, hjóla og fara í göngutúra
með hundinn okkar Eld.“ Foreldrar
Ágústs: Hrefna Steinunn Kristjáns-
dóttir, f. 8.2. 1934, d. 29.8. 2017, mat-
ráðskona, og Þorbjörn Eiríksson, f.
7.6. 1932, húsasmíðameistari, býr í
Mosfellsbæ. Þau skildu.
Börn Ragnhildar og Ágústs eru
Geir Þór, f. 16.3. 2009, nemi í Vatns-
endaskóla; Kristín Steinunn, f. 1.12.
2011, nemi í Vatnsendaskóla. Stjúp-
synir Ragnhildar: Ívar Hrafn, f.
14.12. 1991, rafmagnsverkfræðingur
og starfar hjá Veitum. Sambýlis-
kona: Birgitta Arngrímsdóttir, f.
16.7. 1988, lögfræðingur og mann-
auðsstóri hjá Ríkisendurskoðun;
Axel Dagur, f. 6.4. 1995, d. 7.3. 2015.
Fjölskylda Arnars
Eiginkona Arnars er Sigríður
Benediktsdóttir, f. 26.4. 1972, hag-
fræðingur og kennari við Yale-
háskóla og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fjármálastöðugleika
Seðlabanka Íslands. „Við búum í
New Haven í Connecticut, í hverfi
rétt hjá Yale-háskólanum. Við
stundum mikið útiveru m.a. hlaup,
hjól og skíði. Við eigum tvo hunda.“
Foreldrar Sigríðar: Hjónin Edda
Hermannsdóttir, f. 12.7. 1943, hag-
fræðingur, býr í Reykjavík, og
Benedikt Einar Guðbjartsson, f.
16.6. 1941, d. 12.10. 2019, lögfræð-
ingur.
Synir Arnars og Sigríðar eru
Benedikt Jens, f. 19.4. 2000, nemi í
Boston University; Kristján Geir, f.
7.4. 2002, nemi í Yale; Arnar Helgi, f.
27.1. 2005, nemi í Hopkins-skóla.
Systir Arnars og Ragnhildar er
Heiður Rós Geirsdóttir, f. 8.8. 1975,
kennari, býr í Reykjavík.
Foreldrar Arnars og Ragnhildar
eru Geir A. Gunnlaugsson, f. 30.7.
1943, verkfræðingur og fyrrverandi
forstjóri Marel, og Kristín R. Ragn-
arsdóttir, f. 27.12. 1944, lífeinda-
fræðingur. Þau búa í Reykjavík.
Arnar Geirsson og
Ragnhildur Geirsdóttir
ElísabetGuðmundsdóttir
húsfreyja á Melum
Guðmundur Guðmundsson
bóndi á Melum í Trékyllisvík
Gunnlaugur Guðmundsson
tollgæslumaður í Hafnarfirði
Sigurrós Olgeirsdóttir
póstafgreiðslukona í
Hafnarfirði og á Reyðarfirði
Geir A. Gunnlaugsson
verkfræðingur og fv.
forstjóri í Reykjavík
Guðrún Árnadóttir
húsfreyja í Ási
Oddgeir Þorkelsson
bóndi í Ási í Hafnarfirði
Ólafur Ólafsson
hreppstjóri og bóndi í Lindarbæ
Margrét Þórðardóttir
húsfreyja í Lindarbæ á Hellu
Ragnar Ólafsson
lögfræðingur í Reykjavík
Kristín S. Ólafsson
húsfreyja í Reykjavík
Hinrik Jónsson
bóndi í Ebor
Oddný Ásgeirsdóttir
húsfreyja í Ebor í Kanada
Ætt Arnars Geirssonar og Ragnhildar Geirsdóttur
Kristín R. Ragnarsdóttir
lífeindafræðingur í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Góður þykir gripur sá.
Gjarnan hérað nefna má.
Tengjast karl og kona þá.
Kynjum jafnan finnast á.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Eg sé þarna eina smugu
og nú þykist slyng.
Upp í hugann óðar flugu
ýmiskonar þing.
Guðrún B. svarar:
Skófla er mikið þarfaþing.
Í þingi Rangár torfið sting.
Í þingum varstu þinn við maka.
Þing kynfæri. Búin staka.
„Þá er það lausn vikunnar,“ segir
Helgi R. Einarsson:
Metið þarfaþing er hér.
Um Þingey stundum fer.
Þingið fundur ástar er.
Við þingum skörtum ber.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Mesta þarfaþing er sá.
Þing svo hérað kalla má.
Í þingum Njáll við Nönnu er.
Nefnast þing kynfæri hér.
Þá er limra:
Hann Þrándur úr Þingvallahreppi,
sem þrásinnis kvaðst vera jeppi,
var álitinn valla
með öllum mjalla,
hann var yfirlæknir á Kleppi.
Þá er ný gáta eftir Guðmund:
Hellirigning úti er,
inni best að halda sér.
Nú er andinn yfir mér,
er hér gáta handa þér:
Harðgiftur er seggur sá.
Sjötti kominn Jóni frá.
Mér að skapi mjög hann er.
Mikill þykir fyrir sér.
Þorsteinn Erlingsson kvað:
Þar sem enginn þekkir mann
þar er gott að vera,
Jón Þorkelsson botnaði:
Því að allan andskotann
er þar hægt að gera.
Einar Sæmundsson orti:
Enginn maður á mér sér
inn þá blæða sárin,
hefi lært að harka af mér
og hlæja í gegnum tárin.
Ísleifur Gíslason á Sauðárkróki
orti um Eirík nokkurn, er fyrstur
kvað hafa hafið „landa“-bruggun í
Skagafirði:
Sykurgrautinn sýður hann,
sigur hlaut í landi.
Allar þrautir yfirvann
Eiríkur brautryðjandi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Oft er þras á þingum