Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 45

Morgunblaðið - 09.10.2021, Side 45
ÍÞRÓTTIR 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2021 armennirnir öflugu, Sverrir Ingi Ingason og Hörður Björgvin Magn- ússon, sem hafa fengið gríðarlega reynslu á því að vera ýmist innan eða utan vallar með „gullaldarliðinu“ á undanförnum árum, skuli vegna al- varlegra meiðsla missa af því að vera með í þeirri uppbyggingu sem nú er komin af stað. Morgunblaðið/Unnur Karen Færi Albert Guðmundsson í besta færi Íslands í fyrri hálfleik þegar hann renndi boltanum úr þröngri stöðu hægra megin rétt fram hjá stönginni fjær. Í framhaldi af því er Arnar Þór Viðarsson skiljanlega í dálitlu brasi með miðvarðastöðurnar og hann notaði fjóra leikmenn í þær tvær stöður í leiknum í gærkvöld. En ljósasti punktur leiksins end- urspeglaðist í jöfnunarmarki Íslands sem hinn tæplega 37 ára gamli Birk- ir Már Sævarsson lagði upp fyrir hinn 18 ára gamla Ísak Bergmann Jóhannesson. Sennilega hafa aldrei verið jafnmörg ár eða leikir á milli tveggja leikmanna sem hafa staðið saman að íslensku marki í landsleik. Þessir tveir geta einmitt gengið hnarreistastir frá leiknum. Birkir Már er hreint ódrepandi og virðist bara verða betri með hverju árinu. Það er ekkert grín að vera varamað- ur fyrir stöðu hægri bakvarðar um þessar mundir. Ísak var ekki í byrjunarliðinu en spilaði seinni hálfleikinn og sýndi mjög góð tilþrif á miðjunni. Hann var tvisvar nálægt því að skora áður en hann jafnaði metin eftir frábæran undirbúning Birkis Más og var sá leikmaður Íslands sem kom sér í bestu færi leiksins eftir hlé Nú verða einmitt bæði Birkir Már og Ísak, ásamt Ara Frey Skúlasyni, sem líka átti góðan dag sem vinstri bakvörður, í leikbanni gegn Liech- tenstein á mánudagskvöld. Verðum við ekki að segja, með allri virðingu fyrir Liechtenstein, að það hafi verið heppilegast að taka út leikbönnin þar en ekki gegn Rúmeníu eða Norður-Makedóníu í nóvember? Nýr markvörður, Elías Rafn Ólafsson, lofar nokkuð góðu en það reyndi þó ekki mikið á hann þrátt fyrir nokkurn sóknarþunga Armena á köflum. Hann steig í það minnsta engin feilspor í þessari frumraun sinni. Sá elsti og sá yngsti - Birkir Már lagði upp jöfnunarmark Íslands fyrir Ísak Bergmann - Ásættanleg úrslit gegn Armeníu? - Þrír komnir í leikbann fyrir leikinn við Liechtenstein Þjóðverjar unnu nauman sigur á Rúmenum í Hamborg í gærkvöld, 2:1, í riðli Íslands í undankeppni heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Ianis Hagi kom Rúmenum yfir snemma leiks en Serge Gnabry og Thomas Müller tryggðu Þjóðverjum sigur með mörkum í síðari hálfleik, og um leið enn öruggari stöðu á toppi riðilsins. Þeir eru nær öruggir um HM-sætið þótt þrjár umferðir séu eftir. Liechtenstein, sem mætir Íslandi á mánudag, steinlá heima, 0:4, gegn Norður-Makedóníu sem komst í annað sætið. Þýskaland á beinni braut AFP Mark Þjóðverjar fagna sigurmarki Thomasar Müller gegn Rúmeníu. Ísak Bergmann Jóhannesson varð í gærkvöld yngsti markaskorari A- landsliðs karla í knattspyrnu þegar hann skoraði jöfnunarmarkið gegn Armeníu á Laugardalsvelli. Ísak var í gær 18 ára, sex mánaða og fimmtán daga gamall, sex dögum yngri en Lárus Guðmundsson var þegar hann skoraði í vináttulands- leik gegn Grænlandi árið 1980. Bjarni Guðjónsson, föðurbróðir Ís- aks, var áður yngsti markaskorari í mótsleik, 18 ára, sjö mánaða og 15 daga gamall, þegar hann skoraði gegn Liechtenstein árið 1997. Ísak er yngsti markaskorarinn Morgunblaðið/Eggert Átján Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði markið í gærkvöld. ÍSLAND – ARMENÍA 1:1 0:1 Kamo Hovhannisyan 35. 1:1 Ísak B. Jóhannesson 77. MM Birkir Már Sævarsson M Ari Freyr Skúlason Guðlaugur Victor Pálsson Jón Dagur Þorsteinsson Albert Guðmundsson Ísak B. Jóhannesson Ísland: (4-3-3) Mark: Elías Rafn Ólafs- son. Vörn: Birkir Már Sævarsson, Hjörtur Hermannsson (Sveinn Aron Guðjohnsen 68), Brynjar Ingi Bjarna- son (Daníel Leó Grétarsson 46), Ari Freyr Skúlason. Miðja: Birkir Bjarna- son, Guðlaugur Victor Pálsson, Þórir Jóhann Helgason (Mikael Egill Ellerts- son 90). Sókn: Jón Dagur Þorsteinsson (Mikael Anderson 80), Viðar Örn Kjart- ansson (Ísak Bergmann Jóhannesson 46), Albert Guðmundsson. Gul spjöld: Birkir Már, Ari, Ísak, Spert- sjan. Dómari: Nikola Dabanovic, Svartfjalla- landi. Áhorfendur: 1.697. _ Elías Rafn Ólafsson markvörður lék sinn fyrsta A-landsleik og sömuleiðis Mikael Egill Ellertsson sem kom inn á sem varamaður undir lokin. _ Daníel Leó Grétarsson, leikmaður Blackpool á Englandi, kom inn á í sínum öðrum landsleik og fyrsta mótsleiknum með A-landsliðinu. _ Birkir Bjarnason og Birkir Már Sæv- arsson léku báðir sinn 102. landsleik. Birkir Bjarnason getur enn slegið leikjamet Rúnars Kristinssonar í næsta mánuði (104 leikir) en Birkir Már Sæv- arsson verður í banni gegn Liechten- stein og getur því aðeins jafnað það. _ Auk Birkis Más verða Ari Freyr og Ísak báðir í leik banni gegn Liechten- stein vegna gulra spjalda. Í LAUGARDAL Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þetta eru breyttir tímar. Ég held að flestir af þeim fáu áhorfendum sem mættu á Laugardalsvöllinn í gær- kvöld til að horfa á viðureign Íslands og Armeníu í undankeppni heims- meistaramótsins hafi verið til- tölulega sáttir við að leikurinn skyldi enda með jafntefli, 1:1. Til mjög skamms tíma hefði jafn- tefli á borð við þetta á heimavelli, gegn ekki sterkari andstæðingi, beinlínis verið flokkað sem áfall. Að Armenar skuli virkilega vera í fínni stöðu í baráttunni um sæti á HM segir sitt um þá möguleika sem hefðu átt að vera til staðar í þessum undanriðli. En þar sem Armenar voru sterk- ari aðilinn á löngum köflum og voru hættulega nálægt því að hirða öll þrjú stigin þá flokkast þessi úrslit sem nokkuð ásættanleg. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um öll þau umskipti sem hafa orðið á landsliðinu í haust, utan vall- ar og síðan innan. Það er hægt að telja upp allan þann fjölda leik- manna sem ekki er með í þessum leikjum af hinum ýmsu ástæðum. En þetta er staðan í dag. Nýtt lið er í mótun og það þarf sinn tíma. Núna er kannski blóðugast að varn- Um hádegisbilið í gær var búið að selja rúmlega tvö þúsund miða á leik Íslands og Armeníu í undankeppni HM. Í leikslok í gærkvöld tilkynnti Palli vallarþulur að áhorfendur á leiknum væru 1.697. Nokkur hundruð virðast því hafa hætt við áður en flautað var til leiks. Eða kannski voru þetta bara ýkt- ar tölur sem bárust okkur um miðasöluna? Þetta eru næstum því helm- ingi færri áhorfendur en komu til að sjá vináttuleik gegn Liechten- stein fyrir ellefu árum. Og það var áður en „gullöldin“ hófst. Eflaust hafa margir sem vanalega mæta á völlinn látið sér nægja að horfa á leikinn heima í stofu að þessu sinni. Þetta er sú staða sem nýkjör- in bráðabirgðastjórn KSÍ þarf að glíma við. Það þarf að byggja upp frá grunni, ekki bara innan vallar heldur utan vallar líka. Það væri hægt að reyta hár sitt og skegg yfir svona dapurri aðsókn og skammast út í þá sem sátu heima. En til hvers? „Gullaldarliðið“ troðfyllti Laugardalsvöllinn leik eftir leik vegna þess að það náði árangri. Vegna þess að það var líklegt til afreka. En um leið er það umræðan um það lið og sá stimpill sem leikmenn úr því hafa nú fengið á sig sem hefur áhrif á takmark- aðan áhuga fyrir því liði sem nú er reynt að byggja upp í staðinn. Þetta er ekki auðvelt. Á mánudagskvöld er leikið við Liechtenstein. Síðasti heima- leikur ársins hjá körlunum. Veðr- ið á í það minnsta að vera gott. Miðað við árstíma. Vonandi mæta fleiri en 1.697. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Grill 66 deild karla Hörður – Selfoss U............................... 37:32 Haukar U – Vængir Júpíters .............. 30:24 Berserkir – Afturelding U................... 22:25 Staðan: Hörður 2 2 0 0 79:52 4 Afturelding U 2 2 0 0 55:48 4 Þór 1 1 0 0 27:25 2 ÍR 1 1 0 0 34:27 2 Selfoss U 2 1 0 1 61:60 2 Haukar U 2 1 0 1 55:51 2 Berserkir 1 0 0 1 22:25 0 Kórdrengir 1 0 0 1 26:30 0 Valur U 1 0 0 1 23:29 0 Fjölnir 1 0 0 1 27:34 0 Vængir Júpíters 2 0 0 2 44:72 0 Frakkland Istres – Aix ........................................... 28:30 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir Aix. B-deild: Nice – Besancon................................... 27:27 - Grétar Ari Guðjónsson varði 5 skot í marki Nice. Pólland Chobry Glogów – Kielce..................... 29:45 - Haukur Þrastarson skoraði 9 mörk fyrir Kielce og Sigvaldi Björn Guðjónsson 3. %$.62)0-# Kvennalandsliðið í íshokkí steinlá gegn Suður-Kóreu, 10:0, í und- ankeppni fyrir Vetrarólympíuleik- ana í Nottingham á Englandi í gær. Íslenska liðið hefur tapað báðum sínum leikjum í riðlinum og mætir Slóveníu í síðasta leiknum á morg- un. Stórt tap gegn Suður-Kóreu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.