Morgunblaðið - 09.10.2021, Page 52
Kringlukasti
af völdum vörum
25%
afsláttur
Sýning á nýjum málverkum og teikningum eftir Hall-
grím Helgason, myndlistarmann og rithöfund, verður
opnuð í Safnaðarheimili Neskirkju á morgun, sunnu-
dag, að lokinni messu sem hefst klukkan 11.00. Séra
Skúli S. Ólafsson þjónar þar fyrir altari.
Á sýningu Hallgríms, sem ber titilinn „Það þarf að
kenna fólki að deyja“, getur að líta málverk og teikn-
ingar sem kviknuðu út frá andláti föður listamannsins.
Hallgrímur málar bæði krabbamein og dánarstundir
auk tilgátuportretta af Dauðanum sjálfum.
Verk af dánarstundum og
Dauðanum á sýningu Hallgríms
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 282. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Ég er ótrúlega stolt og ánægð að hafa náð þessum
áfanga. Ég vissi ekki að það væru svona fáar konur sem
hefðu náð þessu,“ segir Rut Jónsdóttir sem á fimmtu-
daginn varð aðeins tíunda íslenska handboltakonan til
að spila 100 landsleiki. Hún býr sig nú undir leik gegn
Serbum í undankeppni EM en liðin mætast á Ásvöllum í
Hafnarfirði á morgun. »44
Vissi ekki að svona fáar konur
hefðu náð þessum áfanga
ÍÞRÓTTIR MENNING
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Ungur maður að nafni Hlynur Gísla-
son náði þeim árangri í febrúar síð-
astliðnum að vera yngsti próftaki
sem náð hefur sveinsprófi í rafvirkj-
un. Hann var aðeins átján ára þegar
hann lauk prófinu. „Jú jú, það getur
passað,“ segir hann hógvær þegar
blaðamaður slær á þráðinn til hans.
Hlynur mun af þessu tilefni hljóta
viðurkenningu frá Samtökum raf-
verktaka og Félagi íslenskra raf-
virkja í samstarfi við Johan Rönn-
ing. Spurður hvernig honum þyki að
eiga að taka á móti slíkri viðurkenn-
ingu segir hann kíminn: „Allt í lagi
svona, maður lætur sig hafa það að
taka á móti henni.“
Hlynur fæddist 2002. „Ég tók 9.
og 10. bekk saman svo ég vann mér
þannig inn smá tíma,“ segir Hlynur
en rafvirkjanámið sjálft, sem í fullu
námi tekur almennt þrjú og hálft ár,
segist hann tekið á venjulegum
hraða.
Í desember síðastliðnum braut-
skráðist Hlynur af rafvirkjabraut og
sem stúdent frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti. Þá hlaut hann við-
urkenningu fyrir bestan árangur á
rafvirkjabraut auk þess sem hann
fékk viðurkenningu fyrir árangur
sinn í dönsku og spænsku. Hann
lauk síðan sveinsprófinu í febrúar
síðastliðnum, þá á nemasamningi hjá
Veitum.
Hagnýtt nám og praktískt
Skynsemin virðist hafa ráðið för
þegar Hlynur valdi sér nám. Þegar
hann er spurður hvers vegna hann
hafi valið rafvirkjanámið segir hann:
„Þetta er hagnýtt nám og praktískt
sem maður getur notað alls staðar.
Það er hagnýt menntun og mjög
nýtanleg.“
Sem stendur er Hlynur milli verk-
efna. „Ég er atvinnulaus einmitt
núna. Það er kannski ekki beint
fréttnæmt,“ segir Hlynur og hlær.
Svo vanti menn vaskan rafvirkja
með framtíðina fyrir sér þá er lík-
lega ekkert því til fyrirstöðu að hafa
samband við þennan unga mann.
„Samningurinn var búinn hjá fyrir-
tækinu sem ég var hjá og ég var
bara að koma úr fríi.“
Förinni var heitið til Grikklands,
Svíþjóðar og Danmerkur og segist
Hlynur hafa verið að heimsækja fjöl-
skyldu og vini. „Ég var bara að
koma heim í vikunni þannig að mað-
ur er bara að sækja um vinnu í
rólegheitunum.“
Spurður um framtíðaráform segir
Hlynur: „Það er rosalega erfitt að
segja, maður veit ekkert hvað fram-
tíðin ber í skauti sér en manni eru
allir vegir svo að segja, bæði á Ís-
landi og erlendis.“
Morgunblaðið/Eggert
Galvaskur „Maður veit ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir Hlynur, sem lauk sveinsprófi átján ára.
Allir vegir færir
hérlendis og erlendis
- Sá yngsti sem staðist hefur sveinspróf í rafvirkjun