Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 Sími 555 2992 / 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Við sem stömum þurfum tíma til að tala. Fyrst og fremst biðjum við samt um skilning samfélagsins og þeirra sem á mál okkar hlusta. Slíkt er afar mikilvægt,“ segir Sig- ríður Fossberg Thorlacius, for- maður Málbjargar – félags um stam á Íslandi. „Sjálf hef ég náð að yfirvinna stamið að talsverðu leyti. Fyrr á árum var þetta vanda- mál í mínu lífi því ég hélt mig tals- vert til hlés vegna óöryggis. Nú hef ég náð vopnum mínum en allt- af er ákveðin hætta á að félagsleg einangrun leiði af þessari hömlun. Því viljum við breyta.“ Málið er höktandi og orð endurtekin Málbjörg er 30 ára um þessar mundir og af því tilefni vekur fé- lagið athygli á sér og sínu. Talið er að 4-5% barna á Íslandi stami, sem þó eldist af mörgum þeirra. Meðal fullorðinna er hlutfall þetta um 1%. Hvað stami veldur er ekki með öllu ljóst, en rof milli tal- og mál- stöðva er talið ein skýringin. Birt- ingarmynd þessa er sú að fólk get- ur ekki talað áreynslulaust. Málið er höktandi, orð eða orðhlutar endurteknir, oft með mikilli spennu í talfærum. „Viðkomandi getur ekki sagt það sem hann ætl- ar að segja þó að hann viti ná- kvæmlega hvað það er,“ segir í grein eftir Jóhönnu Einarsdóttur talmeinafræðing á Vísindavef Há- skóla Íslands. Stam segir Jóhanna í grein sinni vera breytilegt eftir að- stæðum og mikill dagamunur geti verið á fólki. Stundum gangi ágæt- lega að tala en aðra daga verr. Stam eykst við spennu og erfiðar aðstæður, en persónuleiki fólks sem stamar er ekkert frábrugðinn þeirra sem stama ekki. Feimni hefur til dæmis ekki áhrif hér. „Mjög oft hætta börn á leik- skólaaldri að stama jafn- skyndilega og þau byrjuðu. Fjöl- margar rannsóknir hafa sýnt að slíkt gerist hjá 65-85% barna og frekar hjá stúlkum en drengjum. Langflestir hætta innan þriggja mánaða frá því að stamið byrj- aði. … Ef stamið hefur verið við- varandi í meira en 12 mánuði eru miklar líkur á að það verði krón- ískt eða þrálátt, segir enn fremur í grein Jóhönnu. Sigríður Fossberg hefur stamað frá fyrstu tíð, en hefur í seinni tíð náð ágætum tökum á helti þessari. „Ég fékk góð ráð hjá talmeinafræðingum, svo sem að í tali getur verið ágætt að lengja sérhljóða og slaka á þegar stamið kemur. En svo þarf ég heldur ekkert endilega að ná full- komnu tali, heldur bara leyfi ég staminu að flæða fram. Hnökra- laust mál þarf ekki að vera mark- mið, heldur að láta rödd sína heyr- ast og taka þátt í lífinu til jafns við aðra. Satt að segja truflar stamið mig sífellt minna eftir því sem ég eldist. Ég hef samþykkt þetta sem hluta af sjálfri mér,“ segir Sigríð- ur. Stamið er hluti af fjölbreytileika Frá menntaskólaárum sínum minnist Sigríður þess að stamið olli því að hún tók minni þátt í fé- lagsstarfi en vera skyldi. „Ég er afar félagslynd og finnst gaman að vera með fólki, en stamið réð því að ég dró mig til dæmis út úr leiklistarstarfi í skól- anum. Um skeið var ég nánast eins og skugginn af sjálfri mér vegna þessa, en það er breytt. Svo er galdurinn líka bara að velja sér að- stæður við hæfi; mér finnst til dæmis erfitt að tala í hávaða, skvaldri eða þar sem er líf og læti. Viðbrögð fólks við staminu ráða líka miklu um hvernig mál þróast – og því er skilningur á þessari hömlun mikilvægur. Stam sé þeg- ar allt kemur til alls hluti af fjöl- breytileika mannlífsins. Um þrjú hundruð manns eru í Málbjörg, sem heldur úti fjöl- breyttu starfi og sinnir ýmsum verkefnum. Nýlega lét félagið þýða úr ensku barnabókina Þegar Ólíver talar sem fjallar um stam. Til stendur að gefa bókina út og dreifa í skóla landsins í því skyni að auka skilning kennara og ann- arra á stöðu barna sem stama. Málbjörg hefur einnig styrkt fé- laga sem sækja sjálfstyrkingar- námskeið, en slík aðstoð segir Sig- ríður að sé mörgum afar nauðsyn- leg. Löng bið eftir talmeinafræðingum „Við erum með í vinnslu sketsa – innslög í léttum dúr sem fjalla um stam. Þannig viljum við vekja athygli á reynsluheimi okk- ur og setja alvarleg mál í kómískt samhengi. Af beinum hagsmuna- málum vil ég nefna að áhyggjuefni er hve langar biðlistar eru eftir þjónustu hjá talmeinafræðingum. Börn og unglingar sem stama þurfa oft að bíða mjög lengi eftir hjálp, sérstaklega þau sem búa úti á landi. Úr því þarf að bæta, svo mikilvægt er þetta fyrir öll lífs- gæði,“ segir Sigríður að síðustu. Málbjörg – félag um stam á Íslandi er 30 ára um þessar mundir Orð Hnökralaust mál ekki markmið, heldur að láta rödd sína heyrast, segir Sigríður Fossberg Thorlacius. Skilningur þeirra sem á mál okkar hlusta er mikilvægur - Sigríður Fossberg Thorlac- ius fæddist 1987 og er Reyk- víkingur í húð og hár. Hún er meistaranemi í náms- og kennslufræði fullorðinna við Háskóla Íslands. Hún gegnir formennsku í Málbjörg, félagi um stam, situr í stjórn alþjóð- legra stamsamtaka og hefur tekið þátt í samevrópskum stamverkefnum. - Sigríður brennur fyrir mann- réttindamálum og vill stuðla að vitundarvakningu um fjöl- breytileika mannlífsins. Í frí- tíma sínum elskar hún að syngja, dansa og prófa nýjan mat og uppskriftir í eldhúsinu. Hver er hún? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í tilefni af alþjóðlegum degi vetnis, sem haldinn var hátíðlegur sl. föstu- dag, ákvað Orka náttúrunnar (ON) að gefa vetnisstöð sinni á Hellisheiði nafn. Leitað var til starfsfólks og fylgjenda ON á samfélagsmiðlum og bárust fjölmargar hugmyndir, að því er fram kemur í tilkynningu. Fyrir valinu varð nafnið Von sem sagt er lýsa því mjög vel hvernig ON horfir á vetnið, efnið gefi okkur von í baráttunni við loftslagsvána. „Við hjá ON og OR-samstæðunni höfum leitt orkuskiptin í mörg ár með því að byggja upp innviði fyrir rafbíla sem við teljum vera vel á veg komið. Því erum við ánægð að vera með þessa vetnisstöð og vera eini fram- leiðandi vetnis á landinu,“ segir Kristján Már Atlason, forstöðumaður fyrirtækjamarkaðar hjá ON, í til- kynningu fyrirtækisins. Vetnisstöðin er sögð sú eina sinnar tegundar í heiminum sem framleiðir grænt vetni úr jarðvarma en tilraunir hafi verið gerðar með vetnið á stræt- isvagna og alls konar þungavinnu- vélar. „Líkt og við vitum hefur rafmagnið marga kosti en er takmarkandi þegar þyngd tækisins fer yfir ákveðin mörk. Við trúum því að vetnið muni leika þar lykilhlutverk og hjálpa okkur enn frekar í orkuskiptunum,“ er einnig haft eftir Kristjáni Má. Vetnisstöð ON fékk nafnið Von - Gjört á alþjóð- legum degi vetnis Ljósmynd/ON Hellisheiði Vetnisstöðin fékk nafnið Von, í tilefni vetnisdagsins. Aðalmeðferð í máli héraðs- saksóknara gegn Jóni Baldvini Hannibalssyni fyrrverandi utan- ríkisráðherra hefst í dag í Héraðs- dómi Reykjavíkur. Þetta staðfestir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verj- andi Jóns Baldvins, í samtali við Morgunblaðið. Málið hefur verið sent fram og til baka úr héraði í Landsrétt og er þetta í þriðja skiptið sem hér- aðsdómur tekur það fyrir. Jón Baldvin fer fyrir héraðsdóm í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.