Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 32
Strokkvartettinn Siggi kemur fram á Tíbrártónleikum í Salnum í Kópavogi annað kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 19.30. Yfirskrift tónleikanna er „Three Degrees of Free- dom“ og er efnisskráin sögð bæði fjölbreytt og gull- falleg. Flutt verða verk eftir Sofiu Gubaidulinu, Mozart, J.S. Bach, Caroline Shaw og Huga Guðmundsson. Strok- kvartettinn Siggi var stofnaður árið 2012. Hann skipa fiðluleikararnir Una Sveinbjarnardóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir, víóluleikarinn Þórunn Ósk Marínósdóttir og sellóleikarinn Sigurður Bjarki Gunnarsson. Strokkvartettinn Siggi flytur fjöl- breytileg verk á Tíbrártónleikum MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 284. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Þrír leikir fóru fram í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, um helgina. ÍBV vann sinn þriðja sigur í jafnmörgum leikjum þegar liðið bar sigurorð af KA í Vestmannaeyjum í gær og er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. Afturelding vann þá sinn fyrsta sigur í deildinni á tímabilinu þegar það gerði góða ferð til Selfoss og reyndist hlutskarpara gegn heimamönnum. Íslandsmeistarar Vals unnu þá afar auðveldan úti- sigur gegn nýliðum Víkings úr Reykjavík á laugardag. ÍBV með fullt hús stiga á toppi úrvalsdeildar karla í handbolta ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Störf í verslun eru fyrst og síðast þjónusta við fólk og mikilvægt að sinna öllum verkefnum með opinn huga. Mér finnst þetta alltaf jafn skemmtilegt og er sífellt að læra eitthvað nýtt,“ segir Fanney Kim Du, verslunarkona í Krónunni. Þar á bæ var því haldið til haga sl. fimmtu- dag, 7. október, að slétt 35 ár voru liðin frá því Fanney, sem er frá Víet- nam, hóf störf í matvöruversluninni í JL-húsinu við Hringbraut í Reykja- vík. Segja má að þar og þá hafi ten- ingunum verið kastað því síðan hefur Fanney sinnt verslunarstörfum. Hún er mörgum kunn og á marga trygga viðskiptavini, eins og jafnan er með góða kaupmenn. Frá Víetnam með stórum systkinahópi Fanney starfaði lengi í Nóatúns- búðunum – sem eru nú hluti af Krón- unni. Þar starfar Fanney nú í höfuð- stöðvum fyrirtækisins og hefur umsjón með ávöxtum og grænmeti. Hún sér um meðhöndlun varanna og gæðaeftirlit, framstillingu, merk- ingu og fræðslu; um vínber frá Kali- forníu, appelsínur frá Spáni og tóm- ata austan úr Hrunamannahreppi. Þessa dagana koma graskerin sterk inn, en þau tilheyra hinni bandarísku hrekkjavöku í lok mánaðarins sem sífellt fleiri Íslendingar nota til að gera sér dagamun. Það var árið 1983 sem Fanney fluttist hingað til lands frá Víetnam með foreldrum sínum og níu systk- inum. Fjögur systkini hennar voru áður komin til Íslands; voru í stórum hópi flóttafólks sem hingað kom árið 1979 fyrir tilstilli Rauða krossins. „Fjölskyldan festi rætur á Íslandi og framtíð okkar varð hér,“ segir Fanney. „Eftir skyldunámið langaði mig í iðnskóla en var of sein að skila inn umsókn. Varð því að fara á vinnumarkaðinn og fór til Gunnars Bjartmarz, verslunarstjóra í JL- húsinu, sem réð mig á staðnum. Fyrstu verkefnin voru að raða vörum í hillur. Fékk svo að sjá um mjólkurkælinn. Þetta gekk vel, verkefnum fjölgaði og eftir hálft ár var ég gerð að innkaupastjóra, þótt ég kynni ekkert í íslensku. En ég fékk tækifæri og boltinn fór að rúlla.“ Í um áratug var Fanney versl- unarstjóri Nóatúns við Hringbraut. Seinna tók hún við búðinni í Aust- urveri við Háaleitisbraut í Reykjavík og var þar lengi. „Ég hef sinnt öllum þeim störfum í matvöruverslun sem unnin eru; verið á kassa og í kjöt- borði, séð um að velja inn nýjar vörur, ráða inn og stýra fólki og fleira. Þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími sem ég er þakk- lát fyrir, “ segir Fanney. Kaupmaður af lífi og sál Alls starfa um 1.000 manns í versl- unum Krónunnar, sem eru 24 talsins – auk snjallverslunar. Um fjórð- ungur starfsfólksins er af erlendum uppruna. „Við lifum í fjölbreyttu samfélagi sem endurspeglast í starfsmannahópi okkar. Mikilvægt er að hlúa vel að nýjum Íslendingum og að þeim séu gefin tækifæri til að ná árangri í íslensku atvinnulífi. Við höfum frábæra reynslu af starfsfólki sem hefur fjölbreyttan bakgrunn,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted, fram- kvæmdastjóri Krónunnar. Hún róm- ar störf Fanneyjar, vöruþekkingu og tengsl við starfsfólk og viðskiptavini. Eftir langt starf sem verslunarstjóri hafi hún öðrum betri tilfinningu fyrir því hverjar þarfir viðskiptavinanna séu. Hún sé á ferðinni alla daga milli verslana til að tryggja þekkingu, gæði og framboð af ferskustu vörum sem í boði eru hverju sinni. Hún sé kaupmaður af lífi og sál. Þá sé Fann- ey ómetanleg fyrirmynd því unga fólki sem byrjar starfsferil sinn í Krónunni – en sá hópur er afar stór. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Verslunarkona Þjónusta við fólk og mikilvægt að sinna öllu með opnum huga, segir Fanney – hér með grasker í grænu deildinni í Austurveri. Appelsínur og tómatar - 35 ára ferill Fanneyjar Kim Du - Ávextir og grænmeti - Starfsmenn Krónunnar endurspegla fjölbreytt samfélag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.