Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 ✝ Bragi fæddist á Arnarstöðum í Presthólahreppi, núverandi Öxar- fjarðarhreppi, í Norður- Þingeyjarsýslu 16. águst 1931. Hann lést 1. október 2021. Foreldrar hans voru Stefán Tóm- asson og Oktavía Stefanía Ólafsdóttir. Bragi var yngstur í 11 systkina hópi. Eru þau öll látin. Bragi missti móður sína á öðru ári og fór í fóstur hjá Þorbjörgu Jóhannesdóttur á og Braga Þór Bragason, fæddan 1976. Sigrún á þrjú börn: Braga Höskuldsson, fæddan 1978, Fríðu Grace Howard, fædda 1990, og Maríu Rose Barba, fædda 1998. Bragi lætur einnig eftir sig barnabarnabörn. Bragi lauk sveinsprófi í bif- vélavirkjun árið 1954.Var hann sendur til New York á vegum SÍS til náms. Árið 1959 stofnaði hann fyrirtækið Bifreiðastill- ingu og starfaði þar til ársins 2004. Útför Braga fer fram frá Ár- bæjarkirkju í dag, 11. október 2021, klukkan 13. Streymt verður frá útförinni: https;/youtu.be/46kV-uS7EgQ Einnig má nálgast virkan hlekk á: https://www.mbl.is/andlat Brekku í sömu sveit. Árið 1958 giftist Bragi Ólöfu Ósk Sigurðardóttur, d. 2013, og eignuðust þau tvö börn: Sig- rúnu Björgu Braga- dóttur, fædda 1960, og Garðar Braga- son, fæddan 1964. Þau skildu árið 1968. Þann 14. ágúst 1971 kvæntist Bragi seinni eiginkonu sinni Guð- mundu Þórarinsdóttur, d. 2010. Þau eignuðust tvö börn: Hólm- fríði Bragadóttur, fædda 1972, Elsku pabbi minn, nú ertu bú- inn að kveðja þennan heim. Og það er mikið tómlegt án þín. Ég á eftir að sakna þín óendanlega mikið, ég trúi varla að þú sért farinn. Ég var alin upp stóran part af æsku minni á verkstæð- inu þínu, þannig að ég var ekki venjuleg stelpa. Þú varst svo duglegur alltaf að vinna, meira segja í fríum þínum gerðir þú við bíla í leiðinni. Við fórum í mörg ferðalög, mikið norður að hitta systkini þín sem bjuggu þar. Þá var alltaf svo gaman. Þú áttir 11 systkini svo þetta var stór fjöl- skylda og þú varst yngstur. Nú eruð þið öll fallin frá, blessuð sé minning ykkar allra. Lífið var nú ekkert dans á rósum hjá þér oft en alltaf redd- aðir þú þér. Þú kenndir mér að biðja bænir og að veiða, við fór- um í ansi margar veiðiferðir saman og þá var kátt á hjalla hjá okkur og mikið hlegið. Í einni ferð okkar norður með mömmu vorum við að nálgast Borgarnes þegar viftureimin í fína Chevy Impala-bílnum þínum gaf sig. Nú voru góð ráð dýr. Þú vippar þér yfir til mömmu og spyrð hana: Munda mín, áttu nælon- sokkabuxur? Já, sagði mamma og hélt að þú værir orðinn gal- inn. Má ég fá þær? Já, sagði mamma. Þú gerðir við bílinn og reddaðir þessu eins og þér var einum lagið. Við héldum okkar ferð áfram alla leið í Kelduhverfi á nælonsokkabuxum mömmu. Þú varst alltaf svo hjartahlýr og traustur, hjálpsamur og með góðan húmor. Betri manni hef ég ekki kynnst, enda ertu uppá- haldið mitt. Yndislegur faðir, afi, langafi. Ávallt boðinn og búinn að hjálpa öllum. Þrjóskur varstu líka en með mikla réttlætis- kennd. Við lærðum systkinin mikið af þér hvernig við ættum að vera í vinnu og heiðarleg og traust. Þú varst mikið í Kiwanis og einn af stofnendum Jörfa- klúbbsins. Þar eignuðust þið mamma marga góða og trausta vini. Það voru ófá skiptin sem ég var að keyra ykkur og félaga ykkar fram og til baka út af Kiwanis. Það var alltaf svo gam- an hjá ykkur. Þið voruð með betra félagslíf heldur en við krakkarnir áttum. Við höfum alltaf verið einstaklega náin og þú hefur alltaf staðið við bakið á mér, systkinum mínum og börn- um mínum. Fyrir það er ég svo þakklát. Að við öll vorum svo heppin að hafa svona frábæra fyrirmynd eins og þig. Ég veit að þú ert kominn til mömmu svo mér líður betur að vita af ykkur saman aftur. Ég ætla ekki að kveðja þig, elsku pabbi minn, heldur segja þangað til við hitt- umst næst. Þú veist að ég þoli ekki kveðjustundir. Ég elska þig, pabbi minn, og takk fyrir allt saman. Þín dóttir, Sigrún Björg. Elsku pabbi, nú ertu loks kominn til systkina þinna for- eldra og síðast en ekki síst elsku mömmu. Get rétt ímyndað mér fagnaðarfundina í paradísinni. Ég datt í lukkupottinn með þig og mömmu, betri foreldra hefði ég ekki getað fengið. Og bý ég að því í dag, þú varst ákveðinn og harður en samt svo ljúfur og alltaf tilbúinn að hjálpa. Minningarnar eru óteljandi, allar sundferðirnar, ferðalögin og á síðustu árunum söngurinn sem var svolítið okkar, enda restin af litlu fjölskyldunni lag- laus að eigin sögn. Þú kenndir mér ótal margt, m.a. bænirnar og að vinna, já það þýddi enga leti hjá þér, enda þurftirðu að hafa fyrir hlutunum frá unga aldri þar sem móðir þín lést þegar þú varst aðeins eins árs og ykkur systkinunum var komið fyrir á mismunandi bæj- um. Þú sagðir mér einmitt frá fóstru þinni, hvað þú varst hepp- inn því hún var einstök. Fátækt- in var talsverð, en fóstra þín passaði alltaf upp á hann Braga sinn, Ég gleymi aldrei sögunni um það þegar þú týndist og sveitungarnir voru farnir að ókyrrast mjög en fóstra þín var hin rólegasta og sagði: Hann Bragi minn kemur er kirkju- klukkurnar hringja, og það stóðst, svo sterk var tengingin ykkar. Og aðeins 16 ára komstu í borgina, eftir andlát fóstru þinn- ar og þurftir þá að sjá um sjálf- an þig og stóðst þig ótrúlega, stofnaðir fyrirtæki sem er enn starfandi. Þú varst mjög félagslyndur, enda varstu og ertu hátt skrif- aður hjá Kiwanis þar sem þú lagðir svo sannarlega þitt af mörkum, og við krakkarnir nut- um góðs af, því ótal voru ferða- lögin. Elsku pabbi, skilaðu kærri kveðju til mömmu, þangað til næst. Þín Hólmfríður (Fríða). Elsku pabbi minn, nú ertu loksins kominn til mömmu. Þín verður sárt saknað. Þótt sam- band okkar hafi ekki alltaf verið upp á 10, sérstaklega á yngri ár- um mínum, þá stóðstu alltaf upp ef á mig var hallað. Nema þegar ég gerði eitthvað af mér, sem var nokkuð oft, þá léstu mig heyra það, sem ég átti líklega skilið. Svo snerist þetta pínu við allra seinustu árin og var það þá ég sem þurfti að hnýta í þig gamli minn. Þú varst með mikla réttlætiskennd, eins og þegar ég skemmdi hurðina á bílnum ykk- ar þá hreinlega þurfti ég bara að borga. Heiðarleiki var þér í blóð bor- inn og þið mamma þolduð ekki lygi og við krakkarnir lærðum það fljótt. Þú varst hjálpsamur með eindæmum og skipti ekki máli hvort þú þekktir til eða ekki. Þú varst harður í horn að taka, ákveðinn og með sterkar skoðanir á hlutunum, og vildir hafa allt á hreinu. Ferðalögin voru ótalmörg, við fórum t.d. til Kýpur, Egypta- lands og Ísraels, í Ísrael máttir þú ekki vera í stuttbuxum í moskunum og því þurftirðu að vera í bleikum buxum, og eigum við þessa flottu mynd af því. Við spiluðum mikið trivial á yngri árum en í seinni tíð var það ólsen-ólsen. Svo á Tene var það minigolf og pool. Já, minningarnar eru ótelj- andi elsku pabbi og ég sakna þín sárt en hugga mig við að loks ertu kominn til mömmu og svo margra sem fallnir eru frá. Já, nú hlýtur að vera nokkurra daga partí þarna uppi! Ég elska þig að eilífu pabbi minn og þótt ég telji ekki upp margar minningar hér munu þær ávallt vera í hjarta mínu. Þinn sonur, Bragi Þór. Ég á marga fjölskyldumeð- limi, sem ég hef hitt í gegnum tíðina, en sá sem ég sá mest af í lífi mínu var hann afi minn, Bragi Stefánsson. Á hverju sumri síðan ég var lítið barn heimsótti ég Ísland með mömmu minni til að hitta fjölskyldu mína þar og ég kaus alltaf að vera hjá afa mínum. Ég á margar góðar minningar um að spila ólsen-ólsen með afa og frænda og þó að ég ynni heið- arlega var ég sökuð um að svindla! Við hlógum mikið að því. Einu man ég vel eftir: þegar ein- hver átti að draga spil var afi vanur að segja með skringileg- um og fyndnum hreim: „DRAW“ sem lét okkur skellihlæja. Ég er mjög þakklát fyrir minningarnar sem ég á með og um afa minn. Frá því að veiða í ám og vötnum á Íslandi með honum og ferðast með honum að heimsækja ættingja okkar. Ég hef lifað ríku lífi með afa mínum, hann var alltaf til staðar fyrir mig. Ef mér leið illa þá sat hann og hélt í höndina á mér og talaði við mig þangað til mér leið bet- ur. Þannig var maður var hann afi minn. Þegar afi var kominn á efri árin lét hann ekkert stoppa sig, eins og að klifra upp á tröppu til að skipta um perur í loftinu og hengja upp jólaskraut. Hann var svo þrjóskur. Maður gat ekki annað en dáðst af honum. Ég á aldrei eftir að gleyma hlátri hans þegar ég var að hjálpa honum í stígvélin áður en við fórum að veiða, og hvernig hann hélt í hönd mína þegar við vorum að labba saman. Já nær- vera hans var yndisleg. Afi var alltaf snyrtilega klæddur, í litríkum skyrtum sem við mamma völdum á hann. Hann leyfði mér líka að leika við englahárið hans þannig að það stóð í allar áttir! Við hlógum að því saman. Ég er mjög þakklát fyrir að afi varð langlífur og umvafinn fjölskyldu og ást og að þegar hann kvaddi var hann umvafinn fólkinu sem elskaði hann mest. Þótt ég hafi ekki getað verið hjá honum og haldið í hönd hans þegar hann kvaddi er ég mjög þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að segja honum hve mikið ég elska hann áður en hann fór. Ég er líka svo þakklát og heppin að kalla Braga Stef- ánsson afa minn. Hans verður sárt saknað og ávallt elskaður. Elsku afi minn. Þín Maria Rose. Til afa míns. Til mannsins sem var alltaf til staðar, þakka þér fyrir. Takk fyrir að elska fjölskylduna þína eins og aðeins þú gast gert. Þú hefur kennt okkur öllum hvað erfiðisvinna, traust, samviskusemi, heiðar- leiki og ást er. Þú settir ekki fyrirmynd fyrir fólk heldur varstu sjálfur fyrirmyndin. Ein- stök fyrirmynd. Þú komst fram við fólk eins og það eitt skipti máli og gafst því alla þína at- hygli þegar þú ræddir við það. Virðingarvottur sem er sjald- gæfur nú til dags. Þú valdir allt- af réttu vegina í lífinu þótt sum- ir væru erfiðir og jafnvel hættulegir og komst alltaf í gegn sterkari en áður. Þessir vegir leiddu þig alltaf heim til þinnar einu sönnu ástar, Guð- mundu Þórarinsdóttur, og fjöl- skyldu þinnar. Sumar af mínum uppáhaldsminningum eru um ykkur ömmu. Eins og þegar ég var lítil og beið í glugganum eft- ir að sjá bílinn þinn koma heim á meðan amma var að elda. Um leið og þú komst fyrir hornið hljóp ég af stað eins hratt og ég gat beint í faðm þinn. Þú hentir alltaf skjalatöskunni þinni frá þér eins og hún hefði bitið þig. Þú tókst mig í fangið og lyftir mér yfir höfuð þér og snerist í hringi með mig af einstakri ánægju og fórst að skellihlæja hlátri sem fyllti loftið í kringum okkur. Þessi augnablik voru þau bestu sem ég hef átt. Nú þegar ég er vaxin úr grasi og sjálf búin að eignast dætur get ég stolt kennt þeim allt það sem þú kenndir mér, jafnvel þótt stundum hafi virst sem ég tæki ekki eftir. Þú kenndir mér garðyrkju og hvernig ætti að veiða fisk og gera að honum full- komlega og að synda eins og meistari á morgnana í sundlaug- inni með þér og ömmu og svo margt fleira. Dætur mínar, Scarlett og Sienna, munu alltaf vita hver langafi þeirra er í gegnum sögur mínar og lexíur sem þú kenndir mér sem ég mun kenna þeim. Takk fyrir að sýna mér leiðina. Bragi Stefáns- son, þú átt sérstakan sess í hjörtum okkar allra. Þótt þú hafir kvatt þennan heim mun minning þín lifa áfram í hjörtum okkar. Kysstu ömmu frá okkur. Ég elska þig ávallt. Þin Fríða Grace. Bragi föðurbróðir okkar elskulegur er látinn. Sá yngsti af 11 börnum þeirra Oktavíu Stefaníu Ólafsdóttur og Stefáns Tómassonar frá Arnarstöðum í Öxarfirði og sá síðasti af al- systkinunum að kveðja okkur rétt 90 ára. Eftirlifandi er hálf- systir, Oktavía Stefánsdóttir í Reykjavík. Hann fór í fóstur tveggja ára þegar móðir hans fór á Kristnes vegna berkla og lést þar 43 ára gömul. Varð því Brekka fyrir ut- an Kópasker hans heimili og fjölskyldan þar fólkið hans. Það er mikið áfall fyrir börn að missa móður sína unga en heim- ilið var í kjölfarið leyst upp. Áfallið af móðurmissinum virð- ist hafa styrkt systkinin frá Arnarstöðum. Það var sterkt samband og kærleikur á milli þeirra alla tíð og gleði, spil og söngur í hávegum þegar þau komu saman. Bragi fór sem ungur maður til Reykjavíkur í Iðnskólann og lærði bifvéla- virkjun. Fyrst í stað leigði hann sér herbergi og var í fæði hjá foreldrum okkar, bróður sínum Halldóri Gunnari, Halla, og eig- inkonu hans Guðrúnu Emelíu, Emmu. Þegar foreldrar okkar flytja að Kvisthaga 9 flytur hann með þeim og býr þar þar til hann fer til Ameríku að læra að gera við sjálfskiptingar. Líklega verið sá eini á þeim tíma eða einn af fáum með þá menntun. Hann vann meðan á námi í Iðn- skólanum stóð og kannski einnig eftir að heim var komið á bif- reiðaverkstæði Sambandsins. Síðar stofnaði hann Bifreiðastill- ingu, þar sem hann starfaði æ síðan. Bragi var giftur Guð- mundu Þórarinsdóttur, Mundu, og átti með henni börnin Hólm- fríði og Braga Þór, áður átti hann Sigrúnu Björgu og Garðar með fyrri konu sinni Ólöfu Ó. Sigurðardóttur. Munda hans lést eftir skammvinn veikindi 18. september 2010. Þegar foreldrar okkar voru komin á efri ár var ómetanlegur stuðningur og gleði að heim- sóknum Braga og Mundu. Bragi var einn af stofnendum Kiwanisfélagsins Jörfa, annar forseti þess og umdæmisstjóri á árunum 1988-1989. Var starf hans innan félagsins og hreyf- ingarinnar mikið og gott. Römm var taugin sem tengdi hann norður í heimasveit og fyr- ir atbeina hans og þrautseigju er heiðarbýlið Hrauntangi nú í eigu afkomenda hans og systk- ina hans og afkomenda Jóns Tómassonar, föðurbróður hans. Við viljum þakka Braga sam- fylgdina í lífinu og allar þær góðu minningar sem við eigum með honum, eins og silungsveiði í heiðavötnum, við kríueggjat- ínslu og síðast en ekki síst sviða- veislur sem hann bauð til. Við nutum þess að heimsækja hann síðasta afmælisdaginn, höfðingi heim að sækja eins og alltaf, prúðbúinn bauð hann að sjálf- sögðu upp á veitingar. Bragi lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 1. október sl., skömmu fyrir andlátið kom fram í samtali hvað væri hans uppáhaldslag. Stemningin er áþreifanleg í textanum og vel við hæfi að hafa annað erindið lokaorð í þessari kveðju um leið og við þökkum okkar kæra frænda samfylgdina í lífinu. Eg vil dansa við þig, meðan dunar þetta draumblíða lag, sem eg ann. Meðan fjörið í æðunum funar af fögnuði hjartans, er brann. Að dansa dátt, það er gaman, uns dagur í austrinu rís. Þá leiðumst við syngjandi saman út í sumarsins paradís. (Magnús Gíslason á Vöglum) Sigrún, Guðrún, Bryndís og fjölskyldur. Mig langar að minnast fáum orðum hans Braga „pabba“. Já, innan gæsalappa því hann var auðvitað ekki blóðskyldur mér heldur faðir æskuvinkonu minn- ar, Sigrúnar Bjargar. Ég missti minn pabba 15 ára og um það leyti vorum við Sigrún að treysta vinskapinn meira. Þær voru ófáar ferðirnar upp á verk- stæði, Bifreiðastillinguna, til að betla pening og þar kom pabbi undan einhverri bilaðri bifreið- inni með tvist og smurolíu- hendur, opnaði hreint og vel með farið seðlaveskið og dró upp nokkra græna slétta með stóískri ró. Í þá daga þurftum við að hafa fyrir betlinu, koma okkur suður í Kópavog og sem leið lá aftur niður á Halló (Hall- ærisplanið) eða í Tónabæ með aurinn. Bragi alltaf í góðu skapi, sá hann aldrei segja styggð- aryrði þrátt fyrir að við Sigrún, á gelgjunni, legðum undir okkur húsið þegar við vorum að mála okkur, æfa dans og skiptast á fötum til að fara á djammið. Donna Summer í botni og klóið upptekið meira og minna. Bragi sat þá inni í stofu með vindil og hafði bara gaman af ásamt Mundu sinni, en þau höfðu sömu skapgerð. Ekkert hróflaði við þeim, þess vegna var svo nota- legt að vera heimagangur í Hraunbænum. Eitt sinn sá ég í Mogganum auglýsingu frá Út- sýn um ferð til Costa del sol og bar þá undir Sigrúnu hvort ekki væri nú gaman að prufa djamm- ið á Spáni aðeins. Þá vorum við 19 ára diskódrottningar, eftir danskeppnir í Klúbbnum. Við áttum auðvitað ekki kapítal fyrir svona ferð að fullu og því síður að kaupa ferðatékka, sem þá voru skammtaðir. Við fórum of- urvarlega til pabba og med det samme skrifaði Bragi undir víxil með loforði um fullt uppgjör af okkar hálfu. „Ekkert mál, þið bara borgið til baka þegar þið getið stelpur mínar og þið standið við eitt loforð: Enga hel- vítis vitleysu!“ Það stóðst … svona nokkurn veginn. Okkur tókst að klára ferðatékkana á þriðja degi. Þarna komumst við sko í feitt, alls konar fatabúðir og fleira spennandi. Enginn vissi af peningaleysinu, og alls ekki Bragi! Við enduðum á að vinna við að dansa gógódans á New Pipers-diskótekinu til að komast lífs af úr Spánarferðinni! Við skiluðum okkur heilar heim eftir mikið ævintýri. Bragi sótti okkur út á flugvöll og bara: „Djö lítið þið vel út! Brúnar og flott dress!“ Íþróttaskór með fylltum hælum. Ég man að ég fór einhvern tímann ríðandi á hestinum mín- um frá Neðri-Fák og upp í Hraunbæ 93, ætlaði að koma Sigrúnu á óvart. Hún var ekki heima, nema Bragi og Munda komu til dyra og buðu okkur hestinum inn í garð og spurðu hvort þau mættu ekki grilla handa okkur. Svona var Bragi. Alltaf brosandi og með jafnaðar- geð og ekkert kom honum á óvart. Treysti manni. Ég kynnt- ist orðinu Kiwanis á þessu ágæta heimili enda Bragi mjög virtur Kiwanis-félagi. Ég sé mikið eftir Braga „pabba“, hlýj- unni, brosinu og gestrisninni á hans heimili, en þar voru allir velkomnir, sendiherrar sem og hestar. Endalaus þolinmæði fyr- ir öllu. Hvíl þú í friði elsku Bragi minn, Munda tekur nú við með útbreiddan faðminn aftur. Harpa Karlsdóttir. Hinsta kveðja frá Einherjum Fallinn er frá félagi okkar Bragi Stefánsson. Bragi var félagi í Kiwanis- klúbbnum Jörfa og einn af stofnfélögum hans. Bragi gegndi öllum helstu embættum innan klúbbsins, en hann var annar forseti Jörfa starfsárið 1976-1977 Bragi var öflugur Kiwanis- félagi og mikill leiðtogi og hvatti félaga til góðra verka innan klúbbs sem utan, sótti fundi í klúbbnum sínum sem og hjá okkur fyrrverandi umdæmis- stjórum á meðan heilsan leyfði, mikill og öflugur Kiwanisfélagi var þarna á ferð. Bragi var svæðisstóri Þórs- svæðis 1981-1982, umdæmisféh- irðir 1985-1986 og umdæmis- stjóri starfsárið 1988-1989. Bragi var léttur og stutt í glettni hjá okkar manni. Einherjar, félagsskapur fyrr- verandi umdæmistjóra Kiwanis, kveðja góðan félaga. Skarð er fyrir skildi en eftir lifir minning um góðan félaga og mikinn Kiw- anismann. Einherjar færa ættingjum Braga og félögum hans í Kiw- anisklúbbnum Jörfa hugheilar og innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðs fé- laga og vinar. Fyrir hönd Einherja, Dröfn Sveinsdóttir goði. Vinur okkar og mikilli leiðtogi hann Bragi Stefánsson lést 1. október. Fljótlega eftir að við Björk fluttum í Hraunbæinn ár- ið 1997 kom maðurinn í næsta húsi til mín og sagðist vera Kiw- anismaður í Kiwanisklúbbnum Jörfa. Hann kvaðst hafa þekkt föður minn vel og sömuleiðis bróður minn. Það leið því ekki á löngu að ég var kominn í klúbb- inn og er óhætt að segja að það hafi verið eitt af gæfusporum í lífi mínu. Bragi var Kiwanismaður af Bragi Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.