Morgunblaðið - 11.10.2021, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021
✝
Bragi fæddist
á Arnarstöðum
í Presthólahreppi,
núverandi Öxar-
fjarðarhreppi, í
Norður-
Þingeyjarsýslu 16.
águst 1931. Hann
lést 1. október
2021.
Foreldrar hans
voru Stefán Tóm-
asson og Oktavía
Stefanía Ólafsdóttir. Bragi var
yngstur í 11 systkina hópi. Eru
þau öll látin. Bragi missti móður
sína á öðru ári og fór í fóstur hjá
Þorbjörgu Jóhannesdóttur á
og Braga Þór Bragason, fæddan
1976. Sigrún á þrjú börn: Braga
Höskuldsson, fæddan 1978,
Fríðu Grace Howard, fædda
1990, og Maríu Rose Barba,
fædda 1998. Bragi lætur einnig
eftir sig barnabarnabörn.
Bragi lauk sveinsprófi í bif-
vélavirkjun árið 1954.Var hann
sendur til New York á vegum
SÍS til náms. Árið 1959 stofnaði
hann fyrirtækið Bifreiðastill-
ingu og starfaði þar til ársins
2004.
Útför Braga fer fram frá Ár-
bæjarkirkju í dag, 11. október
2021, klukkan 13.
Streymt verður frá útförinni:
https;/youtu.be/46kV-uS7EgQ
Einnig má nálgast virkan
hlekk á:
https://www.mbl.is/andlat
Brekku í sömu
sveit.
Árið 1958 giftist
Bragi Ólöfu Ósk
Sigurðardóttur, d.
2013, og eignuðust
þau tvö börn: Sig-
rúnu Björgu Braga-
dóttur, fædda 1960,
og Garðar Braga-
son, fæddan 1964.
Þau skildu árið
1968. Þann 14.
ágúst 1971 kvæntist Bragi
seinni eiginkonu sinni Guð-
mundu Þórarinsdóttur, d. 2010.
Þau eignuðust tvö börn: Hólm-
fríði Bragadóttur, fædda 1972,
Elsku pabbi minn, nú ertu bú-
inn að kveðja þennan heim. Og
það er mikið tómlegt án þín. Ég
á eftir að sakna þín óendanlega
mikið, ég trúi varla að þú sért
farinn. Ég var alin upp stóran
part af æsku minni á verkstæð-
inu þínu, þannig að ég var ekki
venjuleg stelpa. Þú varst svo
duglegur alltaf að vinna, meira
segja í fríum þínum gerðir þú við
bíla í leiðinni. Við fórum í mörg
ferðalög, mikið norður að hitta
systkini þín sem bjuggu þar. Þá
var alltaf svo gaman. Þú áttir 11
systkini svo þetta var stór fjöl-
skylda og þú varst yngstur. Nú
eruð þið öll fallin frá, blessuð sé
minning ykkar allra.
Lífið var nú ekkert dans á
rósum hjá þér oft en alltaf redd-
aðir þú þér. Þú kenndir mér að
biðja bænir og að veiða, við fór-
um í ansi margar veiðiferðir
saman og þá var kátt á hjalla hjá
okkur og mikið hlegið. Í einni
ferð okkar norður með mömmu
vorum við að nálgast Borgarnes
þegar viftureimin í fína Chevy
Impala-bílnum þínum gaf sig.
Nú voru góð ráð dýr. Þú vippar
þér yfir til mömmu og spyrð
hana: Munda mín, áttu nælon-
sokkabuxur? Já, sagði mamma
og hélt að þú værir orðinn gal-
inn. Má ég fá þær? Já, sagði
mamma. Þú gerðir við bílinn og
reddaðir þessu eins og þér var
einum lagið. Við héldum okkar
ferð áfram alla leið í Kelduhverfi
á nælonsokkabuxum mömmu.
Þú varst alltaf svo hjartahlýr
og traustur, hjálpsamur og með
góðan húmor. Betri manni hef
ég ekki kynnst, enda ertu uppá-
haldið mitt. Yndislegur faðir, afi,
langafi. Ávallt boðinn og búinn
að hjálpa öllum. Þrjóskur varstu
líka en með mikla réttlætis-
kennd. Við lærðum systkinin
mikið af þér hvernig við ættum
að vera í vinnu og heiðarleg og
traust. Þú varst mikið í Kiwanis
og einn af stofnendum Jörfa-
klúbbsins. Þar eignuðust þið
mamma marga góða og trausta
vini. Það voru ófá skiptin sem ég
var að keyra ykkur og félaga
ykkar fram og til baka út af
Kiwanis. Það var alltaf svo gam-
an hjá ykkur. Þið voruð með
betra félagslíf heldur en við
krakkarnir áttum. Við höfum
alltaf verið einstaklega náin og
þú hefur alltaf staðið við bakið á
mér, systkinum mínum og börn-
um mínum. Fyrir það er ég svo
þakklát. Að við öll vorum svo
heppin að hafa svona frábæra
fyrirmynd eins og þig. Ég veit
að þú ert kominn til mömmu svo
mér líður betur að vita af ykkur
saman aftur. Ég ætla ekki að
kveðja þig, elsku pabbi minn,
heldur segja þangað til við hitt-
umst næst. Þú veist að ég þoli
ekki kveðjustundir. Ég elska
þig, pabbi minn, og takk fyrir
allt saman.
Þín dóttir,
Sigrún Björg.
Elsku pabbi, nú ertu loks
kominn til systkina þinna for-
eldra og síðast en ekki síst elsku
mömmu. Get rétt ímyndað mér
fagnaðarfundina í paradísinni.
Ég datt í lukkupottinn með
þig og mömmu, betri foreldra
hefði ég ekki getað fengið.
Og bý ég að því í dag, þú varst
ákveðinn og harður en samt svo
ljúfur og alltaf tilbúinn að
hjálpa.
Minningarnar eru óteljandi,
allar sundferðirnar, ferðalögin
og á síðustu árunum söngurinn
sem var svolítið okkar, enda
restin af litlu fjölskyldunni lag-
laus að eigin sögn.
Þú kenndir mér ótal margt,
m.a. bænirnar og að vinna, já
það þýddi enga leti hjá þér, enda
þurftirðu að hafa fyrir hlutunum
frá unga aldri þar sem móðir þín
lést þegar þú varst aðeins eins
árs og ykkur systkinunum var
komið fyrir á mismunandi bæj-
um. Þú sagðir mér einmitt frá
fóstru þinni, hvað þú varst hepp-
inn því hún var einstök. Fátækt-
in var talsverð, en fóstra þín
passaði alltaf upp á hann Braga
sinn, Ég gleymi aldrei sögunni
um það þegar þú týndist og
sveitungarnir voru farnir að
ókyrrast mjög en fóstra þín var
hin rólegasta og sagði: Hann
Bragi minn kemur er kirkju-
klukkurnar hringja, og það
stóðst, svo sterk var tengingin
ykkar. Og aðeins 16 ára komstu í
borgina, eftir andlát fóstru þinn-
ar og þurftir þá að sjá um sjálf-
an þig og stóðst þig ótrúlega,
stofnaðir fyrirtæki sem er enn
starfandi.
Þú varst mjög félagslyndur,
enda varstu og ertu hátt skrif-
aður hjá Kiwanis þar sem þú
lagðir svo sannarlega þitt af
mörkum, og við krakkarnir nut-
um góðs af, því ótal voru ferða-
lögin. Elsku pabbi, skilaðu kærri
kveðju til mömmu, þangað til
næst.
Þín
Hólmfríður (Fríða).
Elsku pabbi minn, nú ertu
loksins kominn til mömmu. Þín
verður sárt saknað. Þótt sam-
band okkar hafi ekki alltaf verið
upp á 10, sérstaklega á yngri ár-
um mínum, þá stóðstu alltaf upp
ef á mig var hallað. Nema þegar
ég gerði eitthvað af mér, sem
var nokkuð oft, þá léstu mig
heyra það, sem ég átti líklega
skilið. Svo snerist þetta pínu við
allra seinustu árin og var það þá
ég sem þurfti að hnýta í þig
gamli minn. Þú varst með mikla
réttlætiskennd, eins og þegar ég
skemmdi hurðina á bílnum ykk-
ar þá hreinlega þurfti ég bara að
borga.
Heiðarleiki var þér í blóð bor-
inn og þið mamma þolduð ekki
lygi og við krakkarnir lærðum
það fljótt. Þú varst hjálpsamur
með eindæmum og skipti ekki
máli hvort þú þekktir til eða
ekki. Þú varst harður í horn að
taka, ákveðinn og með sterkar
skoðanir á hlutunum, og vildir
hafa allt á hreinu.
Ferðalögin voru ótalmörg, við
fórum t.d. til Kýpur, Egypta-
lands og Ísraels, í Ísrael máttir
þú ekki vera í stuttbuxum í
moskunum og því þurftirðu að
vera í bleikum buxum, og eigum
við þessa flottu mynd af því. Við
spiluðum mikið trivial á yngri
árum en í seinni tíð var það
ólsen-ólsen. Svo á Tene var það
minigolf og pool.
Já, minningarnar eru ótelj-
andi elsku pabbi og ég sakna þín
sárt en hugga mig við að loks
ertu kominn til mömmu og svo
margra sem fallnir eru frá. Já,
nú hlýtur að vera nokkurra daga
partí þarna uppi! Ég elska þig
að eilífu pabbi minn og þótt ég
telji ekki upp margar minningar
hér munu þær ávallt vera í
hjarta mínu.
Þinn sonur,
Bragi Þór.
Ég á marga fjölskyldumeð-
limi, sem ég hef hitt í gegnum
tíðina, en sá sem ég sá mest af í
lífi mínu var hann afi minn,
Bragi Stefánsson. Á hverju
sumri síðan ég var lítið barn
heimsótti ég Ísland með mömmu
minni til að hitta fjölskyldu mína
þar og ég kaus alltaf að vera hjá
afa mínum.
Ég á margar góðar minningar
um að spila ólsen-ólsen með afa
og frænda og þó að ég ynni heið-
arlega var ég sökuð um að
svindla! Við hlógum mikið að því.
Einu man ég vel eftir: þegar ein-
hver átti að draga spil var afi
vanur að segja með skringileg-
um og fyndnum hreim: „DRAW“
sem lét okkur skellihlæja.
Ég er mjög þakklát fyrir
minningarnar sem ég á með og
um afa minn. Frá því að veiða í
ám og vötnum á Íslandi með
honum og ferðast með honum að
heimsækja ættingja okkar. Ég
hef lifað ríku lífi með afa mínum,
hann var alltaf til staðar fyrir
mig. Ef mér leið illa þá sat hann
og hélt í höndina á mér og talaði
við mig þangað til mér leið bet-
ur. Þannig var maður var hann
afi minn.
Þegar afi var kominn á efri
árin lét hann ekkert stoppa sig,
eins og að klifra upp á tröppu til
að skipta um perur í loftinu og
hengja upp jólaskraut. Hann var
svo þrjóskur. Maður gat ekki
annað en dáðst af honum.
Ég á aldrei eftir að gleyma
hlátri hans þegar ég var að
hjálpa honum í stígvélin áður en
við fórum að veiða, og hvernig
hann hélt í hönd mína þegar við
vorum að labba saman. Já nær-
vera hans var yndisleg.
Afi var alltaf snyrtilega
klæddur, í litríkum skyrtum sem
við mamma völdum á hann.
Hann leyfði mér líka að leika við
englahárið hans þannig að það
stóð í allar áttir! Við hlógum að
því saman.
Ég er mjög þakklát fyrir að
afi varð langlífur og umvafinn
fjölskyldu og ást og að þegar
hann kvaddi var hann umvafinn
fólkinu sem elskaði hann mest.
Þótt ég hafi ekki getað verið hjá
honum og haldið í hönd hans
þegar hann kvaddi er ég mjög
þakklát fyrir að hafa fengið
tækifæri til að segja honum hve
mikið ég elska hann áður en
hann fór. Ég er líka svo þakklát
og heppin að kalla Braga Stef-
ánsson afa minn. Hans verður
sárt saknað og ávallt elskaður.
Elsku afi minn.
Þín
Maria Rose.
Til afa míns. Til mannsins
sem var alltaf til staðar, þakka
þér fyrir. Takk fyrir að elska
fjölskylduna þína eins og aðeins
þú gast gert. Þú hefur kennt
okkur öllum hvað erfiðisvinna,
traust, samviskusemi, heiðar-
leiki og ást er. Þú settir ekki
fyrirmynd fyrir fólk heldur
varstu sjálfur fyrirmyndin. Ein-
stök fyrirmynd. Þú komst fram
við fólk eins og það eitt skipti
máli og gafst því alla þína at-
hygli þegar þú ræddir við það.
Virðingarvottur sem er sjald-
gæfur nú til dags. Þú valdir allt-
af réttu vegina í lífinu þótt sum-
ir væru erfiðir og jafnvel
hættulegir og komst alltaf í
gegn sterkari en áður. Þessir
vegir leiddu þig alltaf heim til
þinnar einu sönnu ástar, Guð-
mundu Þórarinsdóttur, og fjöl-
skyldu þinnar. Sumar af mínum
uppáhaldsminningum eru um
ykkur ömmu. Eins og þegar ég
var lítil og beið í glugganum eft-
ir að sjá bílinn þinn koma heim á
meðan amma var að elda. Um
leið og þú komst fyrir hornið
hljóp ég af stað eins hratt og ég
gat beint í faðm þinn. Þú hentir
alltaf skjalatöskunni þinni frá
þér eins og hún hefði bitið þig.
Þú tókst mig í fangið og lyftir
mér yfir höfuð þér og snerist í
hringi með mig af einstakri
ánægju og fórst að skellihlæja
hlátri sem fyllti loftið í kringum
okkur. Þessi augnablik voru þau
bestu sem ég hef átt.
Nú þegar ég er vaxin úr grasi
og sjálf búin að eignast dætur
get ég stolt kennt þeim allt það
sem þú kenndir mér, jafnvel
þótt stundum hafi virst sem ég
tæki ekki eftir. Þú kenndir mér
garðyrkju og hvernig ætti að
veiða fisk og gera að honum full-
komlega og að synda eins og
meistari á morgnana í sundlaug-
inni með þér og ömmu og svo
margt fleira. Dætur mínar,
Scarlett og Sienna, munu alltaf
vita hver langafi þeirra er í
gegnum sögur mínar og lexíur
sem þú kenndir mér sem ég
mun kenna þeim. Takk fyrir að
sýna mér leiðina. Bragi Stefáns-
son, þú átt sérstakan sess í
hjörtum okkar allra. Þótt þú
hafir kvatt þennan heim mun
minning þín lifa áfram í hjörtum
okkar. Kysstu ömmu frá okkur.
Ég elska þig ávallt.
Þin
Fríða Grace.
Bragi föðurbróðir okkar
elskulegur er látinn. Sá yngsti
af 11 börnum þeirra Oktavíu
Stefaníu Ólafsdóttur og Stefáns
Tómassonar frá Arnarstöðum í
Öxarfirði og sá síðasti af al-
systkinunum að kveðja okkur
rétt 90 ára. Eftirlifandi er hálf-
systir, Oktavía Stefánsdóttir í
Reykjavík.
Hann fór í fóstur tveggja ára
þegar móðir hans fór á Kristnes
vegna berkla og lést þar 43 ára
gömul. Varð því Brekka fyrir ut-
an Kópasker hans heimili og
fjölskyldan þar fólkið hans. Það
er mikið áfall fyrir börn að
missa móður sína unga en heim-
ilið var í kjölfarið leyst upp.
Áfallið af móðurmissinum virð-
ist hafa styrkt systkinin frá
Arnarstöðum. Það var sterkt
samband og kærleikur á milli
þeirra alla tíð og gleði, spil og
söngur í hávegum þegar þau
komu saman. Bragi fór sem
ungur maður til Reykjavíkur í
Iðnskólann og lærði bifvéla-
virkjun. Fyrst í stað leigði hann
sér herbergi og var í fæði hjá
foreldrum okkar, bróður sínum
Halldóri Gunnari, Halla, og eig-
inkonu hans Guðrúnu Emelíu,
Emmu. Þegar foreldrar okkar
flytja að Kvisthaga 9 flytur hann
með þeim og býr þar þar til
hann fer til Ameríku að læra að
gera við sjálfskiptingar. Líklega
verið sá eini á þeim tíma eða
einn af fáum með þá menntun.
Hann vann meðan á námi í Iðn-
skólanum stóð og kannski einnig
eftir að heim var komið á bif-
reiðaverkstæði Sambandsins.
Síðar stofnaði hann Bifreiðastill-
ingu, þar sem hann starfaði æ
síðan. Bragi var giftur Guð-
mundu Þórarinsdóttur, Mundu,
og átti með henni börnin Hólm-
fríði og Braga Þór, áður átti
hann Sigrúnu Björgu og Garðar
með fyrri konu sinni Ólöfu Ó.
Sigurðardóttur. Munda hans
lést eftir skammvinn veikindi
18. september 2010.
Þegar foreldrar okkar voru
komin á efri ár var ómetanlegur
stuðningur og gleði að heim-
sóknum Braga og Mundu.
Bragi var einn af stofnendum
Kiwanisfélagsins Jörfa, annar
forseti þess og umdæmisstjóri á
árunum 1988-1989. Var starf
hans innan félagsins og hreyf-
ingarinnar mikið og gott.
Römm var taugin sem tengdi
hann norður í heimasveit og fyr-
ir atbeina hans og þrautseigju
er heiðarbýlið Hrauntangi nú í
eigu afkomenda hans og systk-
ina hans og afkomenda Jóns
Tómassonar, föðurbróður hans.
Við viljum þakka Braga sam-
fylgdina í lífinu og allar þær
góðu minningar sem við eigum
með honum, eins og silungsveiði
í heiðavötnum, við kríueggjat-
ínslu og síðast en ekki síst sviða-
veislur sem hann bauð til. Við
nutum þess að heimsækja hann
síðasta afmælisdaginn, höfðingi
heim að sækja eins og alltaf,
prúðbúinn bauð hann að sjálf-
sögðu upp á veitingar.
Bragi lést á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi 1. október
sl., skömmu fyrir andlátið kom
fram í samtali hvað væri hans
uppáhaldslag. Stemningin er
áþreifanleg í textanum og vel
við hæfi að hafa annað erindið
lokaorð í þessari kveðju um leið
og við þökkum okkar kæra
frænda samfylgdina í lífinu.
Eg vil dansa við þig, meðan dunar
þetta draumblíða lag, sem eg ann.
Meðan fjörið í æðunum funar
af fögnuði hjartans, er brann.
Að dansa dátt, það er gaman,
uns dagur í austrinu rís.
Þá leiðumst við syngjandi saman
út í sumarsins paradís.
(Magnús Gíslason á Vöglum)
Sigrún, Guðrún, Bryndís
og fjölskyldur.
Mig langar að minnast fáum
orðum hans Braga „pabba“. Já,
innan gæsalappa því hann var
auðvitað ekki blóðskyldur mér
heldur faðir æskuvinkonu minn-
ar, Sigrúnar Bjargar. Ég missti
minn pabba 15 ára og um það
leyti vorum við Sigrún að
treysta vinskapinn meira. Þær
voru ófáar ferðirnar upp á verk-
stæði, Bifreiðastillinguna, til að
betla pening og þar kom pabbi
undan einhverri bilaðri bifreið-
inni með tvist og smurolíu-
hendur, opnaði hreint og vel
með farið seðlaveskið og dró
upp nokkra græna slétta með
stóískri ró. Í þá daga þurftum
við að hafa fyrir betlinu, koma
okkur suður í Kópavog og sem
leið lá aftur niður á Halló (Hall-
ærisplanið) eða í Tónabæ með
aurinn. Bragi alltaf í góðu skapi,
sá hann aldrei segja styggð-
aryrði þrátt fyrir að við Sigrún,
á gelgjunni, legðum undir okkur
húsið þegar við vorum að mála
okkur, æfa dans og skiptast á
fötum til að fara á djammið.
Donna Summer í botni og klóið
upptekið meira og minna. Bragi
sat þá inni í stofu með vindil og
hafði bara gaman af ásamt
Mundu sinni, en þau höfðu sömu
skapgerð. Ekkert hróflaði við
þeim, þess vegna var svo nota-
legt að vera heimagangur í
Hraunbænum. Eitt sinn sá ég í
Mogganum auglýsingu frá Út-
sýn um ferð til Costa del sol og
bar þá undir Sigrúnu hvort ekki
væri nú gaman að prufa djamm-
ið á Spáni aðeins. Þá vorum við
19 ára diskódrottningar, eftir
danskeppnir í Klúbbnum. Við
áttum auðvitað ekki kapítal fyrir
svona ferð að fullu og því síður
að kaupa ferðatékka, sem þá
voru skammtaðir. Við fórum of-
urvarlega til pabba og med det
samme skrifaði Bragi undir víxil
með loforði um fullt uppgjör af
okkar hálfu. „Ekkert mál, þið
bara borgið til baka þegar þið
getið stelpur mínar og þið
standið við eitt loforð: Enga hel-
vítis vitleysu!“ Það stóðst …
svona nokkurn veginn. Okkur
tókst að klára ferðatékkana á
þriðja degi. Þarna komumst við
sko í feitt, alls konar fatabúðir
og fleira spennandi. Enginn
vissi af peningaleysinu, og alls
ekki Bragi! Við enduðum á að
vinna við að dansa gógódans á
New Pipers-diskótekinu til að
komast lífs af úr Spánarferðinni!
Við skiluðum okkur heilar heim
eftir mikið ævintýri. Bragi sótti
okkur út á flugvöll og bara: „Djö
lítið þið vel út! Brúnar og flott
dress!“ Íþróttaskór með fylltum
hælum.
Ég man að ég fór einhvern
tímann ríðandi á hestinum mín-
um frá Neðri-Fák og upp í
Hraunbæ 93, ætlaði að koma
Sigrúnu á óvart. Hún var ekki
heima, nema Bragi og Munda
komu til dyra og buðu okkur
hestinum inn í garð og spurðu
hvort þau mættu ekki grilla
handa okkur. Svona var Bragi.
Alltaf brosandi og með jafnaðar-
geð og ekkert kom honum á
óvart. Treysti manni. Ég kynnt-
ist orðinu Kiwanis á þessu
ágæta heimili enda Bragi mjög
virtur Kiwanis-félagi. Ég sé
mikið eftir Braga „pabba“, hlýj-
unni, brosinu og gestrisninni á
hans heimili, en þar voru allir
velkomnir, sendiherrar sem og
hestar. Endalaus þolinmæði fyr-
ir öllu.
Hvíl þú í friði elsku Bragi
minn, Munda tekur nú við með
útbreiddan faðminn aftur.
Harpa Karlsdóttir.
Hinsta kveðja
frá Einherjum
Fallinn er frá félagi okkar
Bragi Stefánsson.
Bragi var félagi í Kiwanis-
klúbbnum Jörfa og einn af
stofnfélögum hans. Bragi
gegndi öllum helstu embættum
innan klúbbsins, en hann var
annar forseti Jörfa starfsárið
1976-1977
Bragi var öflugur Kiwanis-
félagi og mikill leiðtogi og hvatti
félaga til góðra verka innan
klúbbs sem utan, sótti fundi í
klúbbnum sínum sem og hjá
okkur fyrrverandi umdæmis-
stjórum á meðan heilsan leyfði,
mikill og öflugur Kiwanisfélagi
var þarna á ferð.
Bragi var svæðisstóri Þórs-
svæðis 1981-1982, umdæmisféh-
irðir 1985-1986 og umdæmis-
stjóri starfsárið 1988-1989.
Bragi var léttur og stutt í
glettni hjá okkar manni.
Einherjar, félagsskapur fyrr-
verandi umdæmistjóra Kiwanis,
kveðja góðan félaga. Skarð er
fyrir skildi en eftir lifir minning
um góðan félaga og mikinn Kiw-
anismann.
Einherjar færa ættingjum
Braga og félögum hans í Kiw-
anisklúbbnum Jörfa hugheilar
og innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning góðs fé-
laga og vinar.
Fyrir hönd Einherja,
Dröfn Sveinsdóttir goði.
Vinur okkar og mikilli leiðtogi
hann Bragi Stefánsson lést 1.
október. Fljótlega eftir að við
Björk fluttum í Hraunbæinn ár-
ið 1997 kom maðurinn í næsta
húsi til mín og sagðist vera Kiw-
anismaður í Kiwanisklúbbnum
Jörfa. Hann kvaðst hafa þekkt
föður minn vel og sömuleiðis
bróður minn. Það leið því ekki á
löngu að ég var kominn í klúbb-
inn og er óhætt að segja að það
hafi verið eitt af gæfusporum í
lífi mínu.
Bragi var Kiwanismaður af
Bragi Stefánsson