Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 g Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 g Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 g alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA
alnabaer.is
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mikið er um óleyfilegar fullyrðingar í
markaðssetningu matvæla, sérstak-
lega fæðubótarefna. Þetta kom í ljós
þegar Matvælastofnun (MAST) og
heilbrigðiseftirlit nokkurra sveitar-
félaga skoðuðu ýmsar fullyrðingar
um næringar- og heilsubótarefni.
MAST gaf út skýrslu um verkefnið,
Notkun á heilsufullyrðingum við
markaðssetningu fæðubótarefna,
sem kom út í september sl.
Reynt var að skoða sérstaklega
vörur sem fullyrt var að styrktu
ónæmiskerfið. Einnig fullyrðingar
um efni sem áttu að koma í veg fyrir
eða draga úr líkum á sjúkdómum.
„Yfirleitt er hér um að ræða fæðu-
bótarefni sem geta innihaldið margs
konar virk efni. Þau algengustu eru
A-, C-, D-, E-, B6- og B12-vítamín og
steinefni s.s. járn, kopar og selen og
einnig astaxantín, ýmsar fitusýrur og
meltingarörverur (probiotics) auk
ýmissa annarra efna sem ekki falla í
þessa flokka,“ segir í skýrslunni.
Alls voru skoðaðar 73 vörur og/eða
auglýsingar með tilliti til heilsufull-
yrðinga. Skoðaðar voru heilsufull-
yrðingar á fæðubótarefnunum. Þá
voru skráðar 11 vörur sem ekki telj-
ast vera fæðubótarefni en samt
markaðssettar með óleyfilegum
heilsufullyrðingum. Flestar óleyfi-
legar fullyrðingar tengdust markaðs-
setningu á jurtum. Mjög algengt er
að tileinka jurtum heilufarslega
virkni.
Algengast var að óleyfilegar full-
yrðingar fylgdu vörum frá Banda-
ríkjunum, en þar gildir önnur löggjöf
um fullyrðingar við markaðssetningu
matvæla en í Evrópu. MAST segir að
fullyrðingar sem fylgdu vörum sem
skoðaðar voru hafi að miklu leyti ver-
ið í íslensku markaðsefni, t.d. auglýs-
ingabæklingum, en ekki á merk-
ingum varanna. Flestar óleyfilegar
fullyrðingar voru einnig í auglýs-
ingabæklingunum. Þær voru líka
áberandi í reynslusögum við mark-
aðssetningu í dagblöðum og auglýs-
ingabæklingum.
Heilbrigðiseftirlit fylgist með
En hvað hyggst MAST gera til að
koma í veg fyrir óleyfilegar fullyrð-
ingar í slíkri markaðssetningu?
Grímur Ólafsson, fagsviðsstjóri
neytendaverndar hjá MAST, segir að
eftirlit með matvælum á markaði,
þ.m.t. fæðubótarefnum, sé í höndum
heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga.
Heilbrigðiseftirlit þar sem framleið-
andi og/eða dreifingaraðli vöru er
staðsettur fer með eftirlitið.
„Flest fæðubótarefnanna eru flutt
inn af fyrirtækjum á höfuðborgar-
svæðinu og það eru því Heilbrigðis-
eftirlit Reykjavíkur og Heilbrigðis-
eftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogs-
svæðis sem fara með eftirlitið og
samskipti við viðkomandi fyrirtæki. Í
þeim tilvikum þar sem um innlend
fæðubótarefni er að ræða er það ým-
ist heilbrigðiseftirlit eða Matvæla-
stofnun sem fer með eftirlitið.“ Hlut-
verk MAST er einnig að vera
heilbrigðiseftirliti til aðstoðar varð-
andi reglugerð um næringar- og
heilsufullyrðingar og að sjá til þess að
eftirlit sé samræmt á milli eftirlits-
svæða.
„Matvælastofnun hefur reynt eftir
fremsta megni að aðstoða heilbrigð-
iseftirlitið við þessa vinnu og einnig
upplýst fyrirtæki um gildandi reglur.
Hluti af því eru eftirlitsverkefni eins
og það sem hér er um að ræða. Mat-
vælastofnun hefur einnig haldið nám-
skeið fyrir eftirlitsfólk, bæði heil-
brigðisfulltrúa og okkar eigin
eftirlitsfólk til að auka þekkingu og
samræma eftirlit.“
Brot geta varðað refsingum
Reglugerð um næringar- og heilsu-
fullyrðingar er sett með stoð í lögum
um matvæli (93/1995). Samkvæmt
þeim geta mjög alvarleg brot varðað
refsingum, sektum eða jafnvel fang-
elsi. Í slíkum tilvikum þyrfti MAST að
kæra til lögreglu.
MAST getur sjálf ekki beitt refsi-
viðurlögum samkvæmt lögunum en
getur hins vegar krafist úrbóta og
beitt þvingunaraðgerðum ef með þarf
til að knýja á um úrbætur. Þvingunar-
aðgerðir eru t.d. áminning, álagning
dagsekta eða stöðvun fyrirtækis tíma-
bundið. Þvingunaraðgerðir teljast
ekki vera refsing eða viðurlög heldur
notaðar til að ná fram úrbótum ef
nauðsynlegt reynist, að sögn Gríms.
„Gangurinn er þá þessi: Þegar mat-
vælafyrirtæki brjóta gegn ákvæðum
reglugerðar nr. 1924/2006 um nær-
ingar- og heilsufullyrðingar að mati
eftirlitsaðila eru þau upplýst um brot-
ið og þeim veittur tilhlýðilegur frestur
til úrbóta. Ef matvælafyrirtæki sinna
ekki úrbótum getur eftirlitsaðili grip-
ið til þvingunarúrræða, sbr. laga-
ákvæði hér að ofan. Í allra alvar-
legustu málunum er að auki hægt að
kæra brotið til lögreglu.“
Óleyfilegar fullyrðingar algengar
- MAST og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga skoðuðu markaðssetningu á fæðubótarefnum - Mikið
um óleyfilegar fullyrðingar í kynningarefni og auglýsingabæklingum - Eftirlit með starfseminni
Ljósmynd/Colourbox
Fæðubótarefni Of mikið er um óleyfilegar fullyrðingar um meinta gagnsemi fæðubótarefna. Athugun leiddi í ljós
að slíkar fullyrðingar voru helst í auglýsingabæklingum og kynningarefni, en miklu síður í merkingum varanna.
Í skýrslu MAST eru gefin nokkur tilbúin dæmi um óleyfi-
legar heilsufullyrðingar samkvæmt reglugerð ESB
(1924/2006). Þau gefa hugmynd um um hvað málið
snýst.
Fullyrðing eins og „D-vítamín er hollt og gott fyrir lík-
amann“ telst vera ósértæk heilsufullyrðing. Fullyrðingin
„þeir sem borða ekki þetta fæðubótarefni mega búast
við lakari líkamlegri heilsu“. Hún þykir gefa til kynna að
það geti haft áhrif á heilbrigði ef matvælanna er ekki
neytt. Fullyrðingin „mjólkurvörur bæta tannheilsu barna“ þykir vísa til
þroska og heilbrigðis barna. Heilsufullyrðingin „hjálpar til við að draga úr
sykurfíkn“ vísar í megrun, þyngdarstjórnun eða minni svengdartilfinningu
eða aukna tilfinningu fyrir saðningu eða skert orkuinnihald fæðunnar.
Óleyfilegar heilsufullyrðingar
MIÐAÐ VIÐ REGLUGERÐ ESB
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Mikil úrkoma og aukinn umferðar-
þungi hefur orðið til þess að mal-
arvegir í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi eru illa farnir og nánast
ókeyrandi vegna holna sem í þeim
eru.
„Við viljum helst ekki sjá svona
mikið af holum,“ segir Skafti
Bjarnason, oddviti sveitarstjórnar
Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Þær
fari illa með farartæki og gætu
hreinlega verið hættulegar. Best
væri að malbika veginn.
Gífurleg umferð alls staðar
„Það endist miklu betur,“ segir
Skafti en tekur fram að slíkt krefjist
tíma og peninga.
„Við vitum alveg að það tekur
tíma og það er ekki hægt að gera
þetta allt í einu lagi. Þetta er mis-
munandi, sumir vegir eru meira
keyrðir. Þetta eru tengivegir sem
þurfa meira viðhald en vegirnir
heim að bæjunum en þetta er orðin
svo gífurleg umferð í gangi alls stað-
ar að það er nauðsynlegt að þessum
vegum sé viðhaldið.“
Skafti segir að
eins og staðan er
núna sé malar-
vegurinn heflað-
ur tvisvar á ári,
einu sinni að
vori og einu
sinni að hausti.
Það þyki honum
of lítið, það þurfi
að bæta við einni
heflun í viðbót.
„Síðan er oft langur tími sem líður
þar sem veðrið er ekki eins og þeir
vilja hafa það. Það þarf meira til.“
Skilja að verið sé að bíða
Í Morgunblaðinu á laugardag
sagði G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar, að
veðurskilyrði hefðu ekki enn boðið
upp á heflun.
„Það er tilgangslaust að hefla
blautan veg. Það þarf að láta vegina
þorna áður en vit er í að hefla,“
sagði G. Pétur.
Skafti segir sveitarstjórnina sýna
því skilning. „Þess vegna skiljum við
að menn séu að bíða en ég held að
menn þurfi stundum að taka smá
sénsa. “
Best væri að
malbika veginn
Skafti
Bjarnason
- „Menn þurfa stundum að taka sénsa“