Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ FRESTA INNFLUTNINGSPARTÍINU.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að svindla stundum í megruninni. MUNDU AÐ HREYFA ÞIG EINN, TVEIR, EINN, TVEIR… KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK EIKI FRÆNDI, MÁ ÉG KYNNA ÞIG FYRIR HUNANGI! HÚN ER GÁFUÐ, STERKOG FÖGUR! HUNANG GERIR MIG HAMINGJUSAMAN DAG HVERN! ÉG ER STOLTUR AF ÞÉR, LÚTUR! ÞÚ ERT TÓNLISTARMAÐUROG DÁVALDUR! „NÚ SEGJA ÞEIR AÐ VIÐ SÉUM AÐ DRAGA LAPPIRNAR ÞEGAR KEMUR AÐ ENDURBÓTUM Í FANGELSISMÁLUM.“ lentum óvart í miðju grindhvala- drápi. Við vorum eitthvað með myndavél uppi og þá spurðu önugir verðir hvaðan við værum. Ég svaraði strax að við værum frá Ísafirði. Þá sögðu þeir: „Það er allt í lagi með ykkur. Það eru engir Greenpeace-menn frá Ísa- firði,“ en við tókum eftir því að velflestir Færeyingar höfðu komið til Íslands og þekktu vel til hér.“ Fjölskylda Eiginkona Björns (gift 26.12. 1995) er Anna G. Thorarensen sérkennari, f. á Akureyri 30.7. 1942. Þau hafa búið á Akureyri frá 2001. Foreldrar Önnu voru hjónin Gunnar Thorarensen, f. 1904, d. 1983, og Hólmfríður Hannesdóttir Thorarensen, f. 1918, d. 1994. Anna var áður gift Bjarna Sigbjörnssyni, f. 1938, d. 1981, þeirra sonur er Gunnar Björn, f. 1974, flugmaður, sem á tvö börn. Systkini Björns eru Ari, f. 13.3. 1943, búnaðarráðunautur og um skeið formaður Bændasamtaka Ís- lands, býr á Hrísum í Reykjadal; Sigríður, f. 6.2. 1946, kennari, býr nú í Garðabæ; Erlingur, f. 6.2. 1946 (þau tvíburar), bóndi á Brún; Helga, f. 8.8. 1947, kennari á Högnastöðum í Hrunamanna- hreppi; og Ingvar, f. 2.2. 1951, læknir á Akureyri. Foreldrar Björns voru hjónin Elín Aradóttir, f. 3.11. 1918 á Grýtubakka, d. 25.10. 2000, hús- freyja á Brún, og Teitur Björns- son, f. 14.10. 1915 á Hallbjarnar- stöðum, d. 26.10. 1998, bóndi á Brún. Björn Teitsson Sigtryggur Helgason bóndi, kennari og forsöngvari á Hallbjarnarstöðum í Reykjadal, frá Hallbjarnarstöðum Helga Jónsdóttir húsfreyja á Hallbjarnarstöðum, frá Arndísarstöðum í Bárðardal Björn Sigtryggsson bóndi og oddviti á Brún Elín Tómasdóttir húsfreyja á Brún Teitur Björnsson bóndi og oddviti í Saltvík og á Brún Tómas Sigurðsson bóndi í Stafni í Reykjadal, frá Stafni Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja í Stafni, frá Lundarbrekku í Bárðardal Bjarni Arason bóndi á Svalbarði og Grýtubakka, frá Þverá ytri í Eyjafirði Snjólaug Sigfúsdóttir húsfreyja á Svalbarði á Svalbarðsströnd og Grýtubakka, frá Varðgjá í Eyjafirði Ari Bjarnason bóndi á Grýtubakka Sigríður Árnadóttir húsfreyja á Grýtubakka í Höfðahverfi, S-Þing. Árni Davíðsson bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, frá Heiði á Langanesi Arnbjörg Jóhannesdóttir húsfreyja á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, N-Þing., f. á Víðirhóli á Hólsfjöllum Ætt Björns Teitssonar Elín Aradóttir húsfreyja í Saltvík við Skjálfandaflóa og á Brún í Reykjadal, S-Þing. Sigurlín Hermannsdóttir segir á Boðnarmiði að mild haustkvöld séu eitt af því betra. Og lætur þetta gullfallega ljóð, „Hausthúm“, fylgja: Húm finnst mér hlýlegast orða, handofin skikkja úr rökkri fagurlögð bjartsýnisborða brydduð með stjörnudýrð krökkri fyllt er hún sumarsins forða fóðruð með kælunni dökkri. Á síðkvöldum skikkja mig hjúpar úr húmi að hausti ég gleymi oft tíma og rúmi. Gunnar J. Straumland yrkir „hringhend og oddhend sléttubönd um veðurhorfur á afréttum“: Bylur gólar, frerans fól fimbul tólin hafa. Dylur sólu skuggans skjól, skaflar bólin grafa. Lesin afturábak: Grafa bólin skaflar, skjól skuggans sólu dylur. Hafa tólin fimbul fól, frerans gólar bylur. Magnús Halldórsson segist þenn- an morgun hafa lent í þrígang í kóngulóarvef eða vetrarkvíðaþráð- um á leið til vinnu: Hausinn prýðir hýjalín, hér mun fjas ei tjóa. Valda þessu verkin brýn, vænstu köngulóa. Anton Helgi Jónsson yrkir „Haustljóð í limruformi“: Það komst eitt sinn kenning á sveim um kyrran og laufgrænan heim. Af rigningum barið er reynitréð farið að ryðga í fræðunum þeim. Á fimmtudag orti Magnús Hall- dórsson og kallaði „Tímamót“: Skrölti út og skyggndi’ að vanda skýja- klasann. Veðrabrigðin létt í las hann, með löggildingu uppá vasann Hér er limra eftir Jóhann S. Hannesson: Á menningarheljarþröm hinstri gegn hverskonar erlendu mynstri við Lómagnúp stöndum með ljóðstaf í höndum og lemjum til hægri og vinstri. Gömul vísa í lokin: Þú ert að smíða, þundur skíða. Þig mjög prýða verkin slyng, en ég er að skríða vesæll víða vafinn kvíða og mótlæting Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hausthúm og oddhend sléttubönd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.