Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.10.2021, Blaðsíða 26
KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Bikarmeistarar Hauka náðu í fyrstu stigin í Subway-deild kvenna í körfu- knattleik í gærkvöldi þegar liðið fór til Keflavíkur og vann 70:63 eftir jafnan leik. Miðherjinn Lovísa Björt Henn- ingsdóttir var atkvæðamikil með 20 stig fyrir Hauka en tók einnig sex fráköst. Haukar léku án Haiden Palmer sem líklega var hvíld þar sem mikið álag hefur verið hjá Haukum. Anna Ingunn Svansdóttir var stigahæst hjá Keflavík með 19 stig en gaf einnig fjórar stoðsendingar. Nýliðar Njarðvíkur hafa unnið báða leikina til þessa og báða gegn sterkum andstæðingum. Njarðvík lagði Fjölni að velli, 71:61, í Njarðvík og áður hafði Njarðvík unnið Hauka 66:58 í fyrstu umferðinni. Fjölnir var yfir 34:29 að loknum fyrri hálfleik. Í þriðja leikhluta náði Njarðvík að snúa taflinu við og var með fimm stiga forskot 49:44 fyrir síðasta leikhlutann. Njarðvík fylgdi því eftir í síðasta leikhlutanum og vann með tíu stiga mun. Aliyah Col- lier var stigahæst hjá Njarðvík með 17 stig en tók einnig 18 fráköst. Njarðvík hefur komið mjög á óvart með því að vinna liðin sem léku til úr- slita í bikarkeppninni á dögunum. En Njarðvíkingar eru ekki einu nýlið- arnir sem hafa komið skemmtilega á óvart. Grindavík náði í sín fyrstu stig í vetur þegar liðið heimsótti Breiða- blik í Kópavoginn. Grindvíkingar gáfu strax tóninn og voru nítján stigum yfir 49:30 að lokn- um fyrri hálfleik. Grindvíkingar gengu á lagið og unnu með fjórtán stiga mun, 83:69. Robbi Ryan fór á kostum í liði Grindavíkur og skoraði 28 stig auk þess að taka sjö fráköst og gefa fimm stoðsendingar. Íslandsmeistarar Vals unnu stóran sigur gegn Skallagrími í Borgarnesi 92:70. Þar höfðu Valskonur gott for- skot allan tímann. Ameryst Alston átti magnaðan leik fyrir Val þar sem hún náði tvöfaldri tvennu er hún skoraði 36 stig og tók 11 fráköst, auk þess sem hún gaf sex stoðsendingar. Valur virðist hafa nælt í mjög öflugan leikmann í sumar þegar félagið fékk Alston til sín. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Í Smáranum Hulda Björk Ólafsdóttir hjá Grindavík og Birgit Ósk Snorra- dóttir hjá Breiðabliki takast á í leiknum í Kópavoginum í gær. Aftur unnu Njarðvíkingar - Fyrstu stig bikarmeistaranna 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 Undankeppni HM karla A-RIÐILL: Aserbaídsjan – Írland .............................. 0:3 Lúxemborg – Serbía ................................ 0:1 Staðan: Serbía 14, Portúgal 13, Lúxemborg 6, Ír- land 5, Aserbaídsjan 1. B-RIÐILL: Georgía – Grikkland................................. 0:2 Svíþjóð – Kósóvó ...................................... 3:0 Staðan: Spánn 13, Svíþjóð 12, Grikkland 9, Kósóvó 4, Georgía 1. C-RIÐILL: Litháen – Búlgaría ................................... 3:1 Sviss – Norður-Írland.............................. 2:0 Staðan: Ítalía 14, Sviss 11, Norður-Írland 5, Búlg- aría 5, Litháen 3. D-RIÐILL: Kasakstan – Bosnía.................................. 0:2 Finnland – Úkraína.................................. 1:2 Staðan: Frakkland 12, Úkraína 8, Bosnía 6, Finn- land 5, Kasakstan 3. F-RIÐILL: Skotland – Ísrael ...................................... 3:2 Færeyjar – Austurríki ............................. 0:2 Moldóva – Danmörk................................. 0:4 Staðan: Danmörk 21, Skotland 14, Ísrael 10, Aust- urríki 10, Færeyjar 4, Moldóva 1. I-RIÐILL: Andorra – England .................................. 0:5 Ungverjaland – Albanía........................... 0:1 Pólland – San Marínó............................... 5:0 Staðan: England 19, Albanía 15, Pólland 14, Ung- verjaland 10, Andorra 3, San Marinó 0. England West Ham – Birmingham ....................... 1:1 - Dagný Brynjarsdóttir lék fyrstu 80 mín- úturnar fyrir West Ham. Þýskaland Bayern München – Hoffenheim............. 3:1 - Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn fyrir Bayern München og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ónotaður varamaður. Essen – Eintracht Frankfurt ................. 0:2 - Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem varamaður á 71. mínútu hjá Frankfurt. Ítalía AC Milan – Roma ..................................... 1:1 - Guðný Árnadóttir lék allan leikinn fyrir AC Milan. Kýpur Apollon Limassol – Aris Limassol ......... 2:2 - Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir lék allan leik- inn fyrir Apollon Limassol. Skotland Hamilton – Celtic..................................... 0:6 - María Ólafsdóttir Gros kom inn á sem varamaður á 61. mínútu hjá Celtic. Danmörk Kolding – Bröndby .................................. 0:1 - Barbára Sól Gísladóttir lék allan leikinn fyrir Bröndby. Bandaríkin Orlando Pride – Gotham ........................ 2:3 - Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék fyrstu 59 mínúturnar fyrir Orlando Pride. Svíþjóð Rosengård – Linköping .......................... 2:1 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn fyr- ir Rosengård. Kristianstad – Eskilstuna ....................... 2:0 - Sif Atladóttir lék allan leikinn fyrir Kristianstad og Sveindís Jane Jónsdóttir lék fyrstu 90 mínúturnar. Elísabet Gunn- arsdóttir þjálfar liðið. Örebro – Djurgården.............................. 1:0 - Berglind Rós Ágústsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir léku báðar allan leikinn fyrir Örebro. Växjö – Piteå ............................................ 1:0 - Andrea Mist Pálsdóttir lék allan leikinn fyrir Växjö. - Hlín Eiríksdóttir kom inn á sem vara- maður á 62. mínútu hjá Piteå. Häcken – Vittsjö ...................................... 0:0 - Diljá Ýr Zomers lék fyrri hálfleikinn fyr- ir Häcken. B-deild: Kalmar – Jitex.......................................... 3:0 - Andrea Thorisson lék allan leikinn fyrir Kalmar. Noregur Lyn – Vålerenga ...................................... 0:1 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik- inn fyrir Vålerenga og Amanda Andradótt- ir var ónotaður varamaður. 50$99(/:+0$ HANDBOLTINN Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is ÍBV vann sinn þriðja sigur í röð í úr- valsdeild karla í handknattleik, Ol- ísdeildinni, þegar liðið bar sigurorð af KA, 35:31, í fjörugum leik í Vest- mannaeyjum í gær. Með sigrinum halda Eyjamenn toppsæti deild- arinnar og eru sem fyrr með fullt hús stiga. KA-menn töpuðu um leið sínum fyrsta leik á tímabilinu. „Gestirnir hófu leikinn betur og leiddu í upphafi en góður kafli Eyja- manna um miðbik fyrri hálfleiks gerði það að verkum að liðið náði forystu sem það lét ekki af hendi og staðan í hálfleik 18:13,“ skrifaði Guðmundur Tómas Sigfússon meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is í gær. Rúnar Kárason var markahæstur Eyjamanna með sjö mörk en marka- hæstur í leiknum var Færeying- urinn Pætur Mikkjalsson í liði KA með níu mörk. Markvarsla var ekki í aðal- hlutverki í leiknum enda 66 mörk skoruð en Björn Viðar Björnsson hjá ÍBV varði þó 11 af þeim 35 skot- um sem hann fékk á sig, þar af sjö í fyrri hálfleik, á meðan markverðir KA vörðu aðeins sjö skot samtals. Sterkur sigur Aftureldingar Afturelding gerði góða ferð aust- ur fyrir fjall þegar liðið vann 26:24- sigur, sinn fyrsta á tímabilinu, gegn heimamönnum í Selfossi í gær. „Afturelding spilaði vel í seinni hálfleik, þeir náðu strax tveggja marka forskoti og Selfyssingar fundu aldrei leið til þess að minnka muninn. Þegar tíu mínútur voru eft- ir var munurinn orðinn fjögur mörk en Afturelding spilaði hörkuvörn á þessum kafla og markvarslan fylgdi með,“ skrifaði Guðmundur Karl Sig- urdórsson meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is í gær. Guðmundur Bragi Ástþórsson var markahæstur Mosfellinga með sjö mörk, þar af fjögur úr vítaköstum, og Ragnar Jóhannsson skoraði sex mörk fyrir Selfoss. Maður leiksins var hins vegar Vil- ius Rasimas í marki Selfoss, sem varði 17 af 41 skoti sem hann fékk á sig og var þannig með 41,5 prósent markvörslu. Andri Sigmarsson Scheving í marki Aftureldingar varði 11 af þeim 34 skotum sem hann fékk á sig. Auðvelt hjá meisturunum Íslandsmeistarar Vals áttu ekki í vandræðum með nýliða Víkings úr Reykjavík þegar liðin mættust í Vík- inni á laugardag. Valur vann að lok- um 11 marka sigur, 30:19, þar sem markmenn beggja liða áttu stórleik. Björgvin Páll Gústavsson varði 17 af þeim 25 skotum sem hann fékk á sig, sem gerir ótrúlega 68 prósent markvörslu. Jovan Kukobat í marki Víkings varði þá 18 af 47 skotum sem hann fékk á sig og var þannig með rúmlega 38 prósent vörslu. Tumi Steinn Rúnarsson fór fyrir Valsmönnum í markaskorun er hann skoraði 10 mörk, þar af fimm úr vítaköstum. Jóhannes Berg Andrason skoraði þá sex mörk fyrir Víking. Þriðji sigur Eyjamanna - Með fullt hús stiga á toppnum Morgunblaðið/Unnur Karen Markaskorari Rúnar Kárason reynist Eyjamönnum afar drjúgur. _ Aldís Kara Bergsdóttir tryggði sér um helgina sæti á Evrópumeist- aramótinu á listskautum, fyrst ís- lenskra skautara. Aldís tryggði sér keppnisétt á mótinu með góðum árangri á Finlandia Trophy. Hún bætti eigið Íslandsmet í stuttu prógrammi er hún fékk 25,15 tæknistig og 45,45 stig í heildina. Með tæknistigunum var sæti á EM í höfn. Aldís náði lágmarks- tæknistigum fyrir Evrópumótið í frjálsu prógrammi í Þýskalandi fyrir tveimur vikum, en til að fá þátttökurétt á EM þarf að ná lágmarkinu í bæði stuttu og frjálsu pró- grammi. EM fer fram í Tallinn í Eistlandi frá 10. til 16. janúar á næsta ári. _ Martin Her- mannsson bar af þegar lið hans Valencia tapaði 79:93 gegn stórveldinu Real Madríd í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik. Martin var stigahæstur allra í leiknum með 20 stig, og gaf sex stoð- sendingar á liðsfélagana. _ Annað Padel-mót Hafna- og mjúk- boltafélags Reykjavíkur fór fram um helgina í Tennishöllinni í Kópavogi. Jonathan Wilkins sigraði með 71% sig- urhlutfall. 12. nóvember fer fram fyrsta padel-mót kvenna á Íslandi. _ Tilkynnt var í gær að Guð- laugur Victor Pálsson hefði dregið sig út úr landsliðshópi karla í knatt- spyrnu sem mætir Liechten- stein í und- ankeppni HM á Laugardalsvelli í kvöld. Guðlaugur Vic- tor var í byrjunarliðinu þegar liðið gerði jafntefli gegn Armeníu en hélt um helgina til Þýskalands þar sem hann leikur með Schalke. „Gulli dró sig út úr hópnum til að fara til síns félags. Þá er hann ekki hér. Hann taldi mikilvægara að vera þar en hér. Við vildum halda Gulla hjá okkur,“ sagði Arnar Þór Við- arsson landsliðsþjálfari á blaðamanna- fundi. _ Kvennalandsliðið í íshokkí tapaði í gær fyrir Slóveníu 6:2 í F-riðli forkeppni Vetrarólympíuleikanna í Nottingham á Englandi. Kolbrún Garðarsdóttir skor- aði bæði mörk Íslands og kom Íslandi 2:1 yfir. Slóvenía seig fram úr í síðasta leikhlutanum og tapaði Ísland öllum þremur leikjunum. S-Kórea vann rið- ilinn og komst áfram í undankeppnina. _ Berglind Björg Þorvaldsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skoraði eitt mark og lagði upp annað þegar lið Eitt ogannað KNATTSPYRNA Undankeppni HM karla: Laugardalsv.: Ísland – Liechtenstein. 18.45 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Hertz-höllin: Grótta – Fram..................... 18 Ásvellir: Haukar – Stjarnan ................ 19.40 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.