Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 8

Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021 Höfum opnað á Selfossi komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegum sýningarsal okkar GÆÐI ÞJÓNUSTA ÁBYRGÐ www.tengi.is Kópavogur – Smiðjuvegur 76 Akureyri – Baldursnes 6a Selfoss – Austurvegur 69 414 1000 414 1050 414 1040 Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, minnir á smæð íslenskra sjávarútvegsfyr- irtækja í pistli í Viðskiptablaðinu í liðinni viku. - - - Hún vísar í al- þjóðlegan samanburð sjávarútvegs- fyrirtækja og segir tvö íslensk fyrir- tæki komast inn á lista stærstu fyr- irtækjanna: „Það er Samherji í 38. sæti og sölufyr- irtækið Iceland Seafood Inter- national í 67. sæti. Hér ber að taka með í reikninginn að stór hluti af starfsemi beggja fyrirtækja er á erlendri grundu.“ - - - Heiðrún bendir líka á að tekjur stærsta sjávarútvegsfyr- irtækis heims, sem er japanskt, eru ríflega þreföld útflutnings- verðmæti Íslendinga af sjávaraf- urðum. Og ef öll íslensku fyrir- tækin væru sameinuð í eitt þá næðu þau aðeins í 11. sæti listans. - - - Íslenskur sjávarútvegur hefur staðið sig vel í alþjóðlegri sam- keppni og fyrirtæki sem sprottið hafa upp í kringum sjávarútveg- inn einnig. En það má ekki gleyma því að íslensku fyrirtækin eru að keppa við alþjóðlega risa. - - - Hér á landi er stundum talað eins og verðmætin í sjávar- útvegi verði til fyrirhafnarlaust, en staðreyndin er sú að verðmæt- in verða til með öflugu markaðs- starfi sem aftur kallar á traust út- gerðarfyrirtæki sem búa við stöðugt umhverfi og geta skipu- lagt starfsemi sína fram í tímann og boðið viðskiptavinunum það hráefni og þau gæði sem þeir sækjast eftir. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Smæð íslenska sjávarútvegsins STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Skipulagsstofnun hefur fallist á matsáætlun STEAG Power Minerals um vikurnám á Mýrdals- sandi en setur ýmis skilyrði sem fyrirtækið þarf að uppfylla við gerð umhverfismatsskýrslu. Eins og fram hefur komið stendur til að hefja vikurnám við Hafursey og getur árleg efnistaka orðið 1,43 milljónir rúmmetra á ári þegar starfsemin er komin í fullan gang. Flytja á vikurinn með vöru- bílum til Þorlákshafnar og þaðan til Evrópu og verða 30 stórir vörubílar í stöðugum flutningum. Í niðurstöðum Skipulagsstofnunar kemur m.a. fram að greina þarf áhrif mismunandi valkosta um flutningsleiðir og fyrirkomulag á flutningum milli Mýrdalssands og Þorlákshafnar. Meta þarf áhrif flutninganna á umferðarmannvirki, umferð og umferðaröryggi og gera grein fyrir sýnileika efn- istökusvæðisins og aðkomuvegar með sýnileika- myndum frá hringvegi og helstu ferðaleiðum og áfangastöðum ferðamanna, s.s. leiðum að Hafurs- ey, Hjörleifshöfða og af Höfðabrekkuheiði á leið- inni í Þakgil. Einnig þarf að meta áhrif fram- kvæmdanna á umferð ferðafólks um gamla þjóðveginn að Hafursey og Kötlujökli o.fl. Meta þarf áhrif flutninga á vikri - Fallist á matsáætlun um vikurnám við Hafursey Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Mýrdalssandur Taka á vikurinn úr Háöldu sem er austan við Hafursey. „Ég bið Freyju og áhöfn hennar Guðs blessunar um ókomna tíð og langar að afhenda þessa vægast sagt mikið notuðu og snjáðu bók þessu skipi til eignar, og fer þess á leit að hún verði varðveitt hér um borð í tilhlýðilegri hirslu. Hún er með eiginhandaráritun alþýðuhetj- unnar, fiskimannsins og kristniboð- ans sem átti hana upphaflega,“ sagði séra Sigurður Ægisson, sókn- arprestur á Siglufirði, þegar hann blessaði nýja varðskipið Freyju á laugardaginn var. Bókin sem hann gaf er lúin og snjáð og var í eigu Gústa guðs- manns, Guðmundar Ágústs Gísla- sonar, sem setti mikinn svip á bæj- arlífið á Siglufirði. Stytta af honum stendur á ráðhústorginu. Sigurður skrifaði sögu Gústa sem kom út ár- ið 2019. Þegar hann aflaði heimilda vegna bókarinnar áskotnaðist hon- um kassi úr fórum Gústa. „Í þessum kassa var þversnið af ævi Gústa,“ sagði Sigurður. „Þar var þessi Biblía, merkt honum, og afladagbókin, bréf og fleira. Í Biblí- unni er handskrifaður miði þar sem stendur: „Guð er oss hæli og styrk- ur, örugg hjálp í nauðum. Fyrir því hræðumst vér eigi.““ gudni@mbl.is Afhenti snjáða Biblíu Gústa guðsmanns Morgunblaðið/Árni Sæberg Siglufjörður Freyja mun gera út frá sömu höfn og Gústi guðsmaður gerði. Séra Sigurður Ægisson á Siglufirði blessar hér nýtt varðskip Gæslunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.