Morgunblaðið - 09.11.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 09.11.2021, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021 ✝ Guðjón Magni Einarsson fæddist 14. janúar 1961. Hann lést 7. september 2021 á krabbameinsdeild Landspítalans. Guðjón, eða Gaui eins og hann var alltaf kallaður, fæddist í Reykja- vík, nánast á KR- vellinum enda var hann eldheitur KR-ingur alla tíð. Hann var sonur Guðrúnar Árnadóttur og Einars Inga Guð- jónssonar, miðjubarn og einn sjö systkina. Hann bjó á Holtsgöt- með náminu og eftir að því lauk, allt þar til hann hóf störf sem vélstjóri hjá Hafrann- sóknastofnun, árið 1991. Það var einmitt um borð í haf- rannsóknaskipinu Bjarna Sæ- mundssyni sem hann kynntist konu sinni, Sif Guðmundsdóttur. Með þeim tókust ástir en þau gengu loks í hjónaband nú í sumar eftir 22 ára samband. Þau eignuðust tvo syni, Einar Inga, f. 7. mars 2001, og Bjart- mar Ás, f. 16. október 2005. Gaui hætti á sjó síðla árs 2005 og hóf störf hjá Vinnueftirlitinu í ársbyrjun 2007 eftir stutt stopp í einkageiranum í millitíðinni. Hann sá aldrei eftir því að hætta á sjónum og geta verið meira með fjölskyldunni. Útför hans fór fram í kyrrþey að hans ósk 14. september 2021 frá Garðakirkju og var hann jarðsettur í Garðakirkjugarði. unni en flutti í Vest- urbergið í Breið- holti með fjölskyldunni þegar hann var um það bil 12 ára gamall. Hann fór í FB og lauk verslunarprófi en fór síðan í Vél- skólann og útskrif- aðist þaðan sem vélstjóri. Hann var ekki nema 14 ára gamall þegar hann fór fyrst á sjóinn og varð þá ekki aftur snúið. Hann var á sjónum með námi upp frá því og stund- aði millilandasiglingar bæði Það var svo sérstakt þegar við Gaui kynntumst, við vissum frá byrjun að við ættum samleið. Við fórum strax að búa saman eftir mjög stutt kynni og það var eins og við hefðum þekkst árum sam- an. Ég á honum svo margt gott að þakka, en það allra stærsta eru synir okkar. Ég hafði aldrei haft áhuga á barneignum en vegna löngunar hans til að eign- ast börn varð Einar okkar til. Og auðvitað breyttist viðhorf mitt um leið og í kjölfarið eignuðumst við annan yndislegan son, Bjart- mar. Gaui var góður faðir, skemmtilegur, indæll og ákveð- inn. Hann treysti strákunum okkar og þeirra ákvörðunum í líf- inu. Hann vildi að þeir veldu sín- ar leiðir sjálfir og hafði almennt ekki áhuga á að stjórnast í fólki. Hann var stoltur af strákunum sínum og reyndist þeim vel. Líkt og ég hafði Gaui mikinn áhuga á fótbolta. Hann fylgdist sérstaklega vel með ensku deild- inni og var Manchester City- maður. En KR var samt alltaf besta liðið á Íslandi, enda sagðist hann í gríni og alvöru vera ljós- hærður Vesturbæingur og KR- ingur. Þegar stór mót stóðu yfir gengu þau fyrir flestu öðru og ekki var í boði að horfa á annað á heimilinu. Strákarnir okkar geta vitnað um það að einu skiptin sem þeir heyrðu okkur Gauja kýta var þegar City og Liverpool mættust því við héldum hvort með sínu liðinu. En eins og við sögðum bæði þá kunnum við hreinlega ekki að rífast enda höfðum við ekki ástæðu til. Gaui nýtti sinn tíma vel þótt hann hefði svo sannarlega mátt vera lengri. Ég held að hann hafi verið sáttur við það líf sem var hans og kunni að njóta þeirra stunda sem hann fékk með mér og strákunum. Hann gaf mikið af sér, var hjálpsamur, traustur, ráðagóður og lausnamiðaður. Hann var jarðbundinn og ef til vill tókst honum einmitt þess vegna að njóta líðandi stundar í stað þess að vera alltaf að bíða eftir einhverju öðru. Gaui vildi aldrei láta hafa neitt fyrir sér og setti mig og strákana alltaf í fyrsta sæti, þannig var hann bara gerður. Hann var alla tíð skipulagður, meira segja í lokin þegar við vissum hvert stefndi. Og auðvitað hugsaði hann fyrst og fremst um hag fjölskyldu sinnar og skipulagði allt þannig að það væri sem best fyrir okkur. Gaui var mikill húmoristi, tók sjálfan sig ekki of hátíðlega og það breyttist aldrei. Honum tókst oft að sjá spaugilegar hlið- ar tilverunnar og átti sína frasa, sér og öðrum til skemmtunar. Hann var alltaf fljótur að svara mér þegar ég sagðist ætla að vera enga stund að gera eitt- hvað, „engin stund er ekki til“ og það er sannarlega mikill sann- leikur í því. Allar stundir hljóta að vera til og það hlýtur að skipta máli hvernig við nýtum þessar stundir okkar. Þær koma ekki til baka þegar þær eru liðn- ar. Hann var líka vanur að segja fólki að „passa sig á bílunum“ þegar hann skildi við það og ef honum fannst einhver ætla að hreyfa sig meira en hann þurfti sagði hann „ekki eyða kaloríum í vitleysu“. Hann var skemmtilegur og lífsglaður maður sem gerði mér og strákunum okkar og öðrum í kringum sig lífið léttara. Hann var yndislegur eiginmaður, faðir, vinur, sonur, bróðir og svo margt annað. Sorg okkar er mikil, því við höfum svo sannarlega misst mikið. Við söknum hans og lífið er tómlegra en áður, en við minnumst hans með ást og kær- leika og varðveitum þær yndis- legu og góðu minningar sem við eigum um hann. Blessuð sé minning þín elskulegi eiginmað- ur minn. Meira á: www.mbl.is/andlat Sif Guðmundsdóttir, Einar Ingi Guðjónsson, Bjartmar Ás Guðjónsson. Þannig er í þessu lífi að eng- inn veit hver er næstur til að falla frá. Nú er orðið ljóst að það var Guðjón Magni vinnufélagi okkar. Guðjón sem var vélfræðingur hóf störf hjá Vinnueftirlitinu árið 2006 við almennar vinnuvéla- skoðanir og kennslu. Hans mála- flokkur var fyrst og fremst við skoðanir á fólkslyftum en hann hafði mjög góða þekkingu á þeim. Segja má að hann hafi áunnið sér traust þeirra fjöl- mörgu sem hann átti í samskipt- um við í starfi sínu. Guðjón var með reynslumestu starfsmönn- um Vinnueftirlitsins og var alltaf boðinn og búinn að gefa góð ráð þegar að fólkslyftum kom. Það var dugnaður hans, eljusemi og ósérhlífni sem einkenndu hann öðru fremur sem samstarfs- mann. Við sem störfuðum með Guð- jóni söknum ekki bara góðs sam- starfsmanns heldur félaga sem lagði gott til mála þegar á þurfti að halda og gladdist með okkur á góðri stundu. Við söknum góðs vinnufélaga. Við þökkum fyrir árin sem við störfuðum saman. Við viljum senda innilegar samúðarkveðjur til Sifjar, Einars og Bjartmars auk fjölskyldu og vina. Vertu sæll, kæri félagi. Fyrir hönd starfsmanna Vinnueftirlitsins, Steinar Helgason. Guðjón Magni Einarsson Við jarðarför Snorra þann 1. nóv- ember sl. fóru í gegn- um hugann margar ljúfar og skemmtilegar minningar um samleið mína með Snorra, fyrrum tengdaföður mínum, sem mig langar að rifja upp í fáum orð- um. Við áttum það sameiginlegt að fá það „verkefni“ að missa heils- una að hluta til og er hann ákveðin fyrirmynd, hvernig hann tókst á við það af æðruleysi. Ég umgekkst Snorra í yfir 26 ár þegar ég var kvæntur Sigríði dóttur hans og aldrei man ég eftir því að sjá hann skipta skapi. Eins og allir vita sem þekktu hann þá var hann aðili sem maður gat alltaf leitað til með nán- ast hvað sem var sem hann hafði þekkingu á og gat hjálpað manni með. Til dæmis þegar eitthvað var að bílnum þá gerði hann við hann og reddaði því fljótt. Sem ungur maður var ég þess heiðurs aðnjótandi að búa í smá tíma hjá tengdaforeldrum mínum Brynju og Snorra í Bröndukvísl. Þar var ég á hálfgerðu hóteli í góðu yfirlæti og leið fljótlega eins og heima hjá mér þó að við Sigríð- ur værum ekki með sér rými. Í Bröndukvísl var bílskúr sem var innangengt í frá íbúðinni og þar gerði Snorri oft við bíla fyrir stór- fjölskylduna en Snorri var bifvéla- virki, mjög fjölhæfur á því sviði og rak réttingaverkstæði í mörg ár. Ég man einu sinni þegar ég var í skúrnum að vinna með honum þá kom Brynja og sagði að kvöldmat- urinn væri tilbúinn og kominn á borðið. Snorri svaraði að hann kæmi ekki alveg strax, hann ætlaði að skipta um bremsuklossa á ein- Snorri Kristinn Þórðarson ✝ Snorri Kristinn Þórðarson fæddist 16. júní 1942. Hann andaðist 20. október 2021. Útför Snorra fór fram 1. nóvember 2021. um bíl en hann var ekki byrjaður á því. Ég kunni ekki að skipta um klossa, reyndar aðstoðaði ég hann við að taka dekkin af og setja þau á. Þegar við mættum í matinn var Snorri búinn að skipta um bremsu- klossa á bílnum og maturinn var enn þá heitur þegar við settumst við borð- ið. Ég hugsa að hann hafi örugg- lega verið nálagt Íslandsmetinu! Ég man líka eftir því þegar ég bjó í Bröndukvíslinni, þá fór hann með mig í Laugardalshöll á sunnu- dagsmorgnum þar sem við æfðum fluguköst. Í framhaldi tók hann mig með í Elliðaárnar þar sem ég fékk og missti maríulaxinn minn. Seinna fékk ég að kíkja í Vatnsdal- inn þegar Snorri var að veiða þar en hann var í veiðifélagi sem fór þangað árlega í einhvern tíma. Snorri hafði góða frásagnagáfu og var gaman að hlusta á hann þegar hann kom af karlakórsæf- ingu og endursagði brandarana sem þar voru sagðir. Ég á einnig óskaplega ljúfar minningar frá ferðum sem börn Snorra og Brynju, makar og barnabörn fóru á hverju sumri í kringum afmælið hans (16. júní). Þá var leigður bú- staður hjá Hagkaup í Húsafelli en Brynja starfaði þar. Þar var oft ótrúlega gaman og mikið hlegið og fíflast. Bústaðurinn var ekki stór á þann mælikvarða sem miðað er við í dag en hann var að mig minn- ir um 44 fermetrar og gistum við þar um 15 manns en ég hugsa að það hafi einmitt myndast skemmtileg stemning og nánd við að vera svona margir í litlu rými. Þetta voru ferðir sem maður hlakkaði alltaf mikið til að fara í. Ég vil votta Brynju og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveður en frábærar minningar lifa. Gylfi Guðmundsson. ✝ Anna Ragn- arsdóttir fædd- ist í Stykkishólmi 30. september 1930. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 3. nóv- ember 2021. For- eldrar hennar voru Ragnar Hinrik Ein- arsson, f. 15.8. 1901 í Stykk- ishólmi, d. 29.9. 1948, og kona hans Sólveig Þorsteina Ingvarsdóttir, f. 10.6. 1901 á Búðum á Snæfellsnesi, d. 7.6. 1972. Systkini Önnu eru Ingvar, f. 3.9. 1924, d. 25.5. 1996, Hulda, f. 13.11. 1925, Ólöf, f. 1.12. 1926. d. 6.11. 2019, Gústaf, f. 28.2. 1929, d. 1.1. 1930, Einar, f. 4.2. 1932, d. 29.7. 2013, Ottó, f. 8.10. 1933, Steinar, f. 21.9. 1935, Bára, f. 8.7. 1940, Baldur, f. 19.9. 1941, og Ragnar, f. 22.9. 1947. með fyrrverandi sambýlis- manni, Antoni Guðmundssyni. Anna bjó á æskuárum í Pét- urshúsi í Stykkishólmi ásamt foreldrum og systkinum. Hún flutti um tvítugt til Eyja og vann þar ýmis þjónustustörf. Í Vestmannaeyjum kynntist Anna manni sínum Sigurbergi og giftu þau sig 1954 og eign- uðust fimm börn. Þau byggðu húsið á Skólavegi 6 og bjó fjöl- skyldan þar en flutti til Reykja- víkur eftir gosið í Vest- mannaeyjum 1973. Þau bjuggu á Tungubakka 28 í Reykjavík, en síðustu æviárin áttu þau heima í Fensölum í Kópavogi. Sigurbergur lést árið 2015. Anna keypti vefnaðarverslun í Breiðholti sem hún rak í nokkur ár. Þá vann hún til fjölda ára sem verslunarstjóri í vefnaðarversluninni Vogue. Eftir að hún fór á eftirlaun vann hún sjálfboðavinnu í sölu- búðum kvennadeildar Rauða krossins á Landspítalanum. Síð- ustu æviár sín dvaldi hún á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 9. nóvember 2021, kl. 15. Anna giftist Sig- urbergi Hávarðs- syni frá Vest- mannaeyjum, f. 12.11. 1927, d. 30.8. 2015, hinn 17. apríl 1954. Börn þeirra eru: 1) Eyþór, f. 2.8. 1954, maki Tu- rid Lismoen, barn þeirra Hermann. 2) Ómar, f. 26.9. 1958, maki Sif Gunn- arsdóttir, börn frá fyrra hjóna- bandi með Dagbjörtu Guð- mundsdóttur eru Halldór, Ragnar og Anna Birgit. 3) Ívar, f. 7.7. 1963, maki Auður Ög- mundsdóttir, sonur þeirra er Birgir. 4) Edda, f. 3.8. 1965, hún á tvö börn með fyrrverandi eiginmanni, Sævari Guðmunds- syni, þau Thelmu og Andra. 5) Ester, f. 1.8. 1968, hún á þrjú börn, Bjarka, með fyrrverandi sambýlismanni, Oddsteini Björnssyni, Eyþór og Söru Rún Elsku amma. Þótt það sé alltaf erfitt að kveðja þá er gott að vita af því að þið afi séuð sameinuð í sumarlandinu. Þú orðin sama amma Anna aftur. Vonandi bakar þú fyrir afa brúnköku og býður honum upp á soðið brauð. Þið sitjið saman í eldhúsinu á Tungubakkanum og leysið krossgátu undir hljómi útvarpsins. Á svona stundu leitar hug- urinn til baka til notalegra stunda þegar ég var hjá ykkur sem barn. Swiss miss og brauð með skinku og osti í örbylgju- ofni, stóra klukkan slær í stof- unni, flugvél flýgur yfir og út- varpsauglýsingar lesnar á Rás 1. Þannig var það nefnilega alltaf hjá ykkur á Tungubakk- anum, allt eins og það átti að vera. Allt svo kunnuglegt, yfir- vegað og notalegt. Föndrað, púslað, rótað í glingri og göml- um skóm. Fuglunum gefið á efri svölunum og stolist í krem- ið þitt í silfruðu perudósinni á fallega snyrtiborðinu þínu. Sungið Siggi var úti með afa í bílnum og horft á sjónvarpið með þér og afa. Helst á Murder she wrote með Jessicu Lans- bury, mikið sem hún var alltaf góð í að leysa gátuna. Takk elsku amma fyrir að þið voruð akkerið, stoðin sem aldrei hrikti í. Þið afi voruð nægjusemin og heiðarleikinn uppmálaðar, ekkert prjál og ekkert vesen. Gott fólk inn að beini sem ól af sér gott fólk. Þið voruð stolt af því og ég er stolt af þessum grunni mínum. Þið tókuð líka mömmu að ykk- ur þegar hún þurfti á að halda sem ung stúlka, fyrir það veit að ég að hún verður ævinlega þakklát. Ég mun hugsa til þín alltaf elsku amma þegar ég baka pönnukökur á pönnukökupönn- unni frá þér, þú gafst bestu jólagjafirnar. Svo nytsamlegt allt saman. Ég mun hugsa til þín þegar ég horfi niður á vísi- fingurna á mér, sem líkjast svo mikið þínum. Mun muna sög- urnar sem þú sagðir mér og segja pjökkunum mínum sögur af þér og ykkur afa í Tungu- bakkanum. Takk fyrir allt elsku hjartans amma mín og knúsaðu afa frá okkur. Þín Anna Birgit. Anna Ragnarsdóttir Hann Vignir jafnaldri minn og fyrrum mágur er látinn langt um ald- ur fram. Þegar við vorum ungir menn var, eins og stundum fyrr og síðar, erfitt en nauðsynlegt fyrir ungt fólk að eignast eigið húsnæði. Við stóðum saman í því og fórum þá leið að kaupa sam- Vignir Einar Thoroddsen ✝ Vignir Einar Thoroddsen fæddist 18. júlí 1948. Hann lést 20. október 2021. Útför Vignis fór fram 28. október 2021. an litla kjallaraíbúð sem við leigðum út í eitt ár og seldum svo. Þá keyptum við stærri íbúð við Vífilsgötuna sem við hjónin, ég og stóra systir hans, fluttum í með elstu börnin okkar og Vignir leigði okkur sinn hluta. Einu eða tveimur árum síðar keyptum við hjónin hans hlut og hann keypti sér litla íbúð við Grettisgötuna. Þannig komumst við í eigið húsnæði, auðvitað með skuldir upp fyrir haus með víxla á bakinu sem þurfti að fram- lengja á eins til þriggja mánaða fresti. Þetta voru verðbólgu- tímar eftir miklar gengisfelling- ar vegna síldarbrests og verð- bólgnar kauphækkanir. Feður okkar ábyrgðust greiðslu skuldanna, en aldrei reyndi á það. Þegar Vignir hætti námi í Há- skólanum var hann í atvinnuleit og spurði mig, sem þá var byrj- aður að vinna í sjávarútvegs- ráðuneytinu, hvort ég vissi um laust starf hjá stofnunum ráðu- neytisins. Ég bar það undir minn ágæta yfirmann sem hafði ráð undir rifi hverju og niður- staðan varð sú að Vignir sótti um vinnu hjá Skrifstofu rann- sóknastofnana atvinnuveganna, sem þjónustaði rannsóknastofn- anir ríkisins í sjávarútvegi, land- búnaði og iðnaði. Ef ég man rétt var þetta starf sem Vignir réðst til hvorki vel launað né sérlega eftirsótt en það var þó trygg vinna. Hann gegndi starfinu í mörg ár og með trúmennsku, glöggskyggni, lipurð í samstarfi og góðri yfirsýn vann hann sig svo upp í það að verða í áratugi aðalfjármálamaður og aðstoðar- forstjóri Hafrannsóknastofnun- ar, einnar stofnunarinnar sem SRA þjónaði. Þetta er eins og góð dæmisaga úr biblíunni um það að vera trúr yfir litlu í byrj- un. Ég sendi hlýjar kveðjur til Kristínar eiginkonu Vignis, Hönnu Kristínar dóttur hans, Siggu, Freyju og Bjössa systk- ina hans og sérstaklega til Erlu móður hans sem verður 100 ára eftir eitt og hálft ár en hún vann það þrekvirki í fyrra, fyrir til- komu bóluefna og fór létt með það, að lifa það af háöldruð að veikjast af Covid-19 þegar sú pest geisaði á Landakoti, þar sem hún dvaldi í nokkrar vikur. Guðjón Smári Agnarsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.