Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 22

Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hátún 1, Keflavík, fnr. 208-8331, þingl. eig. Jakub Polkowski, gerðar- beiðendur Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðju- daginn 16. nóvember nk. kl. 09:20. Heiðargerði 27, Sveitarfélagið Vogar, fnr. 229-1103, þingl. eig. Kristján Markús Sívarsson, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, þriðjudaginn 16. nóvember nk. kl. 10:40. Heiðarholt 44, Keflavík, fnr. 208-8900, þingl. eig. Kristín Hreiðars- dóttir, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 16. nóvember nk. kl. 09:00. Urðarás 8, Njarðvík, fnr. 230-8243, þingl. eig. Guðrún Ólafsdóttir Boyd, gerðarbeiðandi Hámarksárangur ehf., þriðjudaginn 16. nóvember nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 8. nóvember 2021 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12:30, nóg pláss. Botsía kl.10. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Prjónahittingur Önnu kl. 13.30. Kaffi kl.14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomir. Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimi með Milan kl. 10.30. Handavinna kl. 12-16. Karlakór- inn Kátir karlar kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könn- unni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kirkj- unnar kl. 20. Allir velkomnir, Safnaðarfélag Áskirkju. Boðinn Ganga / stafganga kl. 10 frá anddyri Boðans. Fuglatálgun kl. 13. Brids og kanasta kl. 13. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Dalbraut 18-20 Dansleikfimi með Auði kl.12.50, félagsvist kl.13.30. Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar Kristjáns- dóttur djákna og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Súpa og brauð eftir stundina. Félagsstarf kl. 13. Erla Doris Halldórsdóttir sagnfræð- ingur flytur fróðlegt erindi um sögu smitsjúkdóma á Íslandi. Verið vel- komin í gott og gefandi samfélag. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Salatbar kl. 11.30-12.15. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Bónusrútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíllinn kl. 14.45. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Qi-gong í Sjálandi kl. 9. Stólajóga kl. 11. í Jónshúsi. Leikfimi í Ásgarði kl. 12.15. Botsía í Ásgarði kl. 12.55. Smíði kl. 9 og 13 í Smiðju Kirkjuhvoli. Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30 handavinna. Kl. 9 til 10.15 heilsu-qigong í hreyfi- og aðalsal. Kl. 13-6 opin handavinnustofa. Kl. 14-15 skapandi skrif, (annan hvern þriðjudag). Kl. 16-18 námskeið hjá Nafnlausa leikhópnum. Grafarvogskirkja Í dag, þriðjudaginn 9. nóvember, verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13-15. Margt er til gamans gert. Boðið er upp á kaffi og meðlæti að opna húsinu loknu. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12. Að henni lokinni er léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi. Allir vel- komnir! Gullsmári 13 Myndlist kl. 9. Botsía kl. 10.Tréútskurður kl. 13. Kanasta kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli kl. 9-11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Dans með Auði Hörpu kl. 10.30. Félagsvist kl. 13, þátttökugjald er 200 kr., léttar veitingar seldar í hléi. Hraunsel Billjard kl. 8 -16. Dansleikfimi kl. 9. Qi-gong kl. 10. Brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Jóga með Rakel Írisi kl. 9. Brids í handavinnustofu kl. 13. Helgistund kl. 14, prestur frá Grensáskirkju þjónar. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Listmálun í Borgum kl. 9, botsía í Borgum kl. 10 og morg- unleikfimi í Borgum kl. 9.45. Helgistund í Borgum kl. 10.30 og leik- fimishópur Korpúlfa í umsjón Margrétar í Egilshöll kl. 11. Spjallhópur Korpúlfa í Borgum kl. 13 og sundleikfimi Korpúlfa með Brynjólfi í Grafarvogssundlaug kl. 14. Allir hjartanlega velkomnir. Minnum á Korpúlfabingó á morgun 10. nóv. kl. 13 í Borgum. Gleði og gaman. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar áfram um Jón biskup Vídalín. Einnig um Hjálpræðisherinn en farið verður í heimskókn til þeirra í dag, 9. nóvember. Kaffiveitingar. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist bútasaumshópur milli kl. 9- 12. Hópþjálfun verður í setustofu 2. hæð kl. 10.30-11. Þá verður tölvu og snjalltækjaaðstoð í setustofu kl. 11-11.30. Bókband í smiðju 1. hæðar kl. 13-16.30. Kl. 13-14 er skák á 2. hæð. Kl. 13.30-14.30 hlustum við saman á hlaðvarp í handavinnustofu. Við leggjum af stað í göngu úr móttöku með viðkomu í verslun kl. 15. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Helgistund á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Örnámskeið / roð og leður kl. 15.30 á neðri hæð félagsheimilis. Minni á bingóið í golfskálanum nk. fimmtudag kl. 14. Smá- og raðauglýsingar ✝ Elín Jóhanna Ágústsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 12. júní 1925. Hún and- aðist á Hrafnistu, Laugarási, 13. október 2021. Elín, eða Ellý frá Að- albóli eins og hún var oft kölluð, var dóttir hjónanna Ágústar Þórð- arsonar frá Ámundakoti í Fljóts- hlíð, f. 1893, d. 1977, og Viktoríu Guðmundsdóttur frá Baugs- stöðum í Stokkseyrarhreppi, f. 1897, d. 1995. Hún var fjórða í röðinni af sex systkinum, en þau voru Betsý Gíslína, Guðmundur Siggeir, Magnús Þórður, Ester og Viktoría Ágústa. Þau eru nú öll látin. Ellý giftist árið 1949 Sighvati Bjarnasyni, fæddur 1919, látinn 1998. Þeim varð 6 barna auðið: 1) Bjarni, f. 1949, maki Aur- óra Guðrún Friðriksdóttir, f. látin sama dag.6) Elín, f. 1961. Fyrir átti Sighvatur dótturina Kristínu, f. 1942, d. 2012. Maki hennar Charles Lynch, f. 1938. Synir þeirra eru: Michael, f. 1961, John, f. 1964 og Steven, f. 1966 búsettir í Bandaríkjunum. Barnabörn Ellýjar eru 11 og barnabarnabörnin 9. Ellý fór ung að vinna og afla til heimilisins enda kreppan í al- gleymingi. Hugurinn stóð til náms í hárgreiðslu sem ekki gat orðið en hún sinnti því sem áhugamáli heima og nutu ætt- ingjar og vinir þess. Hún fór til náms á Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði á stríðsárunum og eftir það vann hún á símstöðinni í Eyjum þar til hún giftist. Vend- ingar urðu í lífi þeirra hjóna er þau ásamt fjölskyldu þurftu að flýja gosið í Eyjum. Þau settust að í Reykjavík og þar fór hún aftur út á vinnumarkaðinn. Hún vann lengi í blómabúðinni Alaska í Breiðholti og síðar í dauðhreinsunardeild ríkisspít- alanna. Hún var virkur félagi í Oddfellowreglunni og einnig fé- lagi í kvenfélaginu Heimaey. Útför Ellýjar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 9. nóv- ember 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. 1953. Þau eign- uðust tvo syni: a) Sighvat, f. 1975, b) Ágúst, f. 1978, d. 2006. 2) Gísli, f. 1950, d. 1987. Maki Ólöf Helga Þór, f. 1956. Sonur hennar og fóstursonur Gísla er Gunnar Sveinn Magnússon, f. 1978. Maki hans er Inga Hrönn Kristjánsdóttir, f. 1976. 3) Viktor Ágúst, f. 1952. Maki Viktors er Jóna Margrét Jóns- dóttir, f. 1958. Dætur þeirra eru: a) Ester, f. 1988. Sambýlismaður Steinn Einar Jónsson, f. 1987, b) Brynja, f. 1992. Fyrir átti Viktor Kristínu, f. 1979, með fyrri konu sinni, Margréti Ísdal. Maki Kristínar er Guðmundur Jó- hannsson, f. 1980. 4) Ásgeir, f. 1955, maki Hilda Torres, f. 1961. Þeirra synir eru: a) Andrés Gísli, f. 1994, b) Elías Andri, f. 1996. 5) Stúlka, fædd 30. janúar 1960, Þá hefur elsku amma loksins fengið hvíldina sína. Til Ellýjar ömmu var ég alltaf velkomin og þar var alltaf notalegt og hlýtt. Amma lagði mikið upp úr því að vera snyrtileg og vel tilhöfð. Hárið var rauðleitt og varaliturinn brúnappelsínugulur. Eyrnalokk- ar, hringar, armbönd og hálsmen. Amma var alltaf svo fín. Ég á bara góðar minningar um ömmu. Margar tengdar mat. Fresca á náttborðinu, Prins Póló í eldhússkápnum í Keilufellinu, kótelettur í raspi, ísblóm með sultu og heimabakaðar skonsur. Kaffi, kökur og konfekt. Maður fór aldrei svangur frá ömmu. Amma var ekki langskólageng- in en hún var eldklár. Hún fylgdist vel með, las blöðin og hlustaði á fréttir og var ávallt tilbúin að ræða málefni líðandi stundar. Hún hafði einlægan áhuga á afkomendum sínum og vildi alltaf vita hvernig lífið gengi hjá mér og mínum. Hún var stolt af sínu fólki. Ömmu fannst gaman að segja sögur og hafði frá mörgu að segja. Hún upplifði kreppuna miklu og flúði eldgosið í Vestmannaeyjum. Hún tók ung ábyrgð og byrjaði snemma að vinna. Passaði litla tví- bura þegar hún var bara barn sjálf. Sögurnar frá því þegar amma vann á símstöðinni í Eyjum með hinum skvísunum voru skemmtilegar og augljóst að það var góður tími í hennar lífi. Þegar ég sjálf var orðin mamma fannst mér áhugavert að heyra sögurnar frá því þegar amma var ung móð- ir. Fjórir strákar (hræðilegir prakkarar) og ein stelpa og svo allir vinirnir sem fylgdu með. Til ömmu voru allir velkomnir. Á þessum tíma var allt heimagert og heimalagað. Amma var einstaklega góður mannþekkjari og hún var ekki mikið fyrir að dæma. Hún tók fólki eins og það var og talaði frek- ar um kosti hvers og eins. Hún horfði ekki á félagsstöðu og gat einhvern veginn mætt öllum, sama hver aldur eða þroski þeirra var. Börnum þótti gott að leita til hennar og hún tók vel á móti þeim enda talaði hún við börnin en ekki til þeirra. Ég er þakklát fyrir að dætur mínar náðu að kynnast henni og skapa sínar minningar með henni. Amma átti líka sínar sorgir eins og allir aðrir þrátt fyrir að tala ekki mikið um þær. Hún missti börn og barnabarn og mér þykir einstaklega vænt um að nokkrum mánuðum áður en hún lést sagði hún mér alla sólarsöguna um litlu telpuna sína sem hún eignaðist og missti á sama deginum. Ég vissi alltaf af þessari telpu en þarna sagði amma mér hins vegar frá sinni upplifun og sinni líðan og það þykir mér svo dýrmætt. Nú get ég ekki lengur kíkt í kaffi til ömmu. En ég geymi hana í öllum góðu minningunum og þangað get ég alltaf leitað, hitað mér kaffi og sest niður með henni í sögustund þegar ég vil. Fyrir það er ég þakklát. Kristín. Elín Jóhanna Ágústsdóttir Elsku hjartans afi minn. Núna ertu far- inn, og hélt ég nú einmitt að þú kæmir heim aftur til ömmu, mér fannst mjög skrítið að ná í föt- in þín sem við amma vorum ný- búnar að fara með upp á spítala. Miklar tilfinningar koma upp þegar ég sest niður og byrja að skrifa, sem veita mér hlýju í hjart- að. Ég á svo ótrúlega margar og fal- legar minningar um okkar tíma því ég eyddi jú miklum tíma með þér, sérstaklega þegar ég var yngri. Þegar mamma og pabbi fóru til út- landa, í öllum mínum skólafríum og skólaverkföllum var mér skutlað upp í Keiló til ykkar ömmu, þú tókst alltaf svo vel á móti mér, og alveg tilbúinn í daginn með mér. Þú tókst mig oft í einkakennslu, þá aðallega í ensku, sem kom sér einkar vel þegar verkföllunum lauk. Þú varst nú sterkastur í henni, enda ekki margir afar sem höfðu gefið út orðabók á ensku eða bókaseríur, auðvitað um flug, þú elskaðir allt tengt því. Það eru svo ótrúlega margar minningar sem ég á um þig, og get ég auðvitað ekki talið þær allar upp hérna, en mig langar að þakka þér fyrir að sýna mér og taka mig með þér á alla þessa staði og hitta allt þetta fólk þegar ég var yngri, þá er ég aðallega að tala um alla þessa vini og frændfólk þitt sem þú áttir úr 101 Reykjavík. Ég er líka alveg ofsalega þakk- lát fyrir allt sem þú kenndir mér, þótt það væri ekkert endilega allt- af gaman hvernig maður var „gripinn við verkið“ í miðjum klíð- um og leiðréttur á núll-einni (en ég skrifa nú þetta með bros á vör). Arngrímur Sigurðsson ✝ Arngrímur Sigurðsson fæddist 11. febrúar 1933. Hann lést 7. október 2021. Útför hans fór fram í kyrrþey. Þú varst auðvitað að kenna mér og sýndir mér alveg ótrúlegustu hluti sem enginn annar var kannski að kenna ungu barni. Ég er svo þakklát samt í dag hvernig þú ráðlagðir mér að spara og fara vel með peninga mjög snemma og þá tækni sem þú hafðir. Þú kenndir mér einnig að fara vel með marga hluti sem við notum dags daglega, en ég held að ég hafi verið frekar sér- vitur í augum margra annarra sem pæla ekkert í svona hlutum, eins og að skrúfa fyrir rennandi vatn, það var sérstök aðferð sem þú notaðir. Einnig hvernig maður ætti að bíta í kex eða prinspóló svo að öll mylsnan færi ekki niður og hvernig þú kláraðir allt úr skálinni þegar þú fékkst þér súrmjólk. Þér fannst margt líka vera óþarfi, en aldrei varstu nískur, stundum fannst þér óþarfi að opna einhverja glugga en það er annað mál. Við fórum oft saman í bæinn, ég var löngu hætt að telja hversu oft, ég elskaði það alveg. Við kíkt- um í bankann, þar kenndir þú mér að fá mér sykur í kaffið, við fórum til hans Guðbrands gullsmiðs þar sem ég þurfti að sitja alveg kjurr og ekki koma við neitt, það var erf- itt sem barn. Ég er alveg ofsalega þakklát fyrir tímann sem við átt- um saman núna í lokin, og í sumar þegar við fórum í bíltúr í bæinn og þú sagðir mér frá öllu frændfólk- inu okkar, hvar það bjó og bak- aríinu/sjoppunni sem mamma þín rak og þess háttar. Mér hlýnaði einnig alveg í hjartanu þegar við amma komum úr FK og þá sagðir þú alltaf þegar ég spurði þig: „Hvað segirðu gott, afi?“ „Já ég segi nú bara allt ljóm- andi gott þegar ég sé þig!“ Ég elska þig elsku afi minn. Knús! Þín Ellen og Lísa. Pabbi var yngst- ur sjö systkina en hann var tólf ára þegar faðir hans féll frá. Fjölskyldan bjó við þröng kjör en með sam- heldni tókst henni að koma ár sinni fyrir borð. Á Bergþórugötu 12 var oft glatt á hjalla en til er mynd af pabba sjö ára gömlum þar sem hann stendur á tunnu og syngur fullum hálsi fyrir her- menn „Its a long way to Tipper- ary“. Pabbi hafði alla tíð mikinn áhuga á tónlist en hann söng um árabil með kórum. Pabbi stund- aði söngnám og sótti meðal ann- ars kennslu til Guðrúnar Á. Sím- onardóttur en hún vildi að hann færi til náms erlendis en af því varð ekki. Söngurinn var honum alltaf kær og tók hann oft lagið fram eftir aldri. Mér er minn- isstætt þegar hann söng á ströndinni í Tyrklandi fyrir rétt- um tveimur árum við góðan orðstír. Pabbi var mikill fagur- keri og lagði metnað sinn í að hafa snyrtilegt í kringum sig. Snyrtilegur og fallegur klæðn- aður var honum hugleikinn og hann gat endalaust glaðst yfir fallegri flík þó ekki væri annað en ný skyrta. Pabbi ætlaði sér alltaf að verða klæðskeri en á iðnskólaárum sínum var honum snúið frá því vegna augnáverka en hann missti sjónina á öðru auga á unga aldri. Þess í stað sneri hann sér að smíðum þar sem klæðskerinn kom svo vel fram í allri hans listasmíð með timbur en pabbi varð húsa- smíðameistari að mennt. Pabbi missti fyrri konu sína á unga aldri en þau hjón höfðu þá eign- ast Holberg sem var aðeins tveggja ára þegar hún féll frá. Aðstæður urðu svo þær að tengdaforeldrar pabba tóku Hol- Már Bjarnason ✝ Már Bjarnason fæddist 12. september 1933. Hann lést 26. októ- ber 2021. Útför Más fór fram í kyrrþey. berg í fóstur og ólu hann upp. Vegir móður minnar og pabba lágu saman þegar mamma stundaði nám í Ljósmæðraskólan- um í Reykjavík eft- ir dansleik sem þau hittust á í Alþýðu- húskjallaranum. Pabbi bað þessa fallegu stúlku að gefa sér upp númerið en honum tókst ekki betur til en svo að hann skráði niður rangt númer. Það var svo vinkona mömmu sem vann í mjólkurbúðinni sem gat miðlað málum. Mamma og pabbi eiga sama afmælisdag og eiga sama fæðingarár. Mamma hefur þó sagt að þar sem hún fæddist örlítið fyrr á fæðingar- daginn teljist hún eldri og vitr- ari. Við fjölskyldan eignuðumst okkar fyrsta eigið heimili í Álftamýrinni. Mamma og pabbi ferðuðust víða um heim á yngri árum. Fjölskyldan öll bjó um árabil í Noregi en dæturnar þrjár hafa ílengst þar og búa þar enn þann dag í dag. Síðar á ævinni fluttist öll fjölskyldan í Hlíðargerði 8 þar sem til varð fallegt og hlýlegt heimili. Í æv- intýrum foreldra minna tók pabbi meðal annars að sér hús- vörslu í einni af byggingum Noregskonungs í Ósló. Seinustu tólf árin hafa mamma og pabbi búið í Hveragerði. Pabbi var kominn yfir á Öldrunarheimilið Ás og kunni vel við sig þar. Við systurnar og mamma áttum svo síðustu stundirnar með pabba þegar hann kvaddi þennan heim sæll og glaður í faðmi okkar systra. Við kveðjum nú þennan ástríka og glaðlynda föður sem alltaf var hrókur alls fagnaðar. Hann var alltaf litríkur persónu- leiki sem gustaði af. Við syst- urnar vorum stoltar af honum. Við sjáumst síðar pabbi í sum- arlandinu og góða ferð. Brynhildur Pálína, Guðrún S. og Anna Jónína Másdætur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.