Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 32

Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 32
Alda Ingibergsdóttir sópran kemur ásamt Antoníu Hevesi píanó- leikara fram á hádeg- istónleikum í Hafnar- borg í dag kl. 12. Yfirskrift tónleikanna er Hún er sæt en ákveðin og á efnis- skránni eru aríur eftir Puccini. Alda er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún lauk ein- söngvaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og fór síð- an í framhaldsnám við Trinity College of Music í Lond- on. Meðal hlutverka Öldu eru Pamina og Nætur- drottningin í Töfraflautunni, Dísa í Galdra-Lofti Jóns Ásgeirssonar, Arzena í Sígaunabaróni Strauss og káta ekkjan í samnefndri óperettu Lehárs. Þá hefur Alda haldið tónleika víða og komið fram sem einsöngvari ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og Tufts Symphony Orchestra í Boston.Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og er aðgangur ókeypis. Alda og Antonía í Hafnarborg Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir eða Lay Low hefur fundið fyrir takmörk- unum í heimsfaraldrinum, en hún átti meðal annars að vera á tónlistarhátíð- inni Heima-Skaga, sem var aflýst um helgina. „Þessi óvissa fer illa með mann og veldur öryggisleysi og óþæg- indum,“ segir listakonan. Hún hitar upp fyrir Of Monsters and Men á tón- leikum í Gamla bíói í kvöld og reiknar með að spila og syngja í Danmörku um helgina. Lovísa byrjaði sem barn að læra á blokkflautu. Fljótlega sneri hún sér að píanói og síðan varð gítar fyrir valinu. „Bassinn var svo mitt helsta hljóðfæri frá því ég var unglingur og þar til ég fór að semja lög um tvítugt,“ rifjar hún upp. Þá spilaði hún á hljómborð og gít- ar og söng í rokkbandinu Benny Cres- po’s Gang. Í byrjun árs 2006 varð Lay Low til. „Ég var í svonefndum „country“ saumaklúbbi, við dýrkuðum Dolly Par- ton og ákváðum að stofna band, en ég var sú eina sem spilaði á hljóðfæri. Við ætluðum að fá söngkonu, ég lét undan áskorunum um að syngja og svo fór sem fór.“ Söngur hennar vakti athygli hjá Senu, hún samdi lög á eina plötu á nokkrum mánuðum, tók upp lista- mannsnafnið Lay Low og boltinn rúll- aði hratt. Lay Low býr í sveit fjarri skarkala landsins og segist fyrst og fremst hugsa um ung börn sín, en vinni auk þess við að skapa tónlist og taka upp í hljóðveri sínu. Fyrsta plata hennar, Please Don’t Hate Me, kom út haustið 2006 og von er á nýjum plötum frá henni innan skamms. Kvartar ekki „Þótt ég hafi ekki verið nógu dugleg við að gefa út efni að undanförnu man fólk eftir mér,“ segir hún. „Ég hef spil- að og sungið á tónleikum, þegar færi hefur gefist, og er að vinna í tveimur plötum, annarri á íslensku og hinni á ensku, í þeirri von að gefa út nýtt lag á næsta ári.“ Áður en faraldurinn skall á skemmti Lay Low oft í útlöndum, meðal annars í Kanada og þá gjarnan á eða í tengslum við menningarhátíðina núna (now), sem varð til við eldhúsborðið hjá Atla Ásmundssyni, þáverandi aðalræðismanni í Winnipeg, og Þrúði Helgadóttur, eiginkonu hans, fyrir rúmum áratug. „Ég hef spilað bæði í Winnipeg og á Gimli og það var mjög skemmtilegt en til stendur að fara í hina áttina í vikulok, vera með tónleika skammt fyrir utan Kaupmannahöfn á laugardag. Ég hlakka mikið til enda langt síðan ég spilaði erlendis.“ Þrátt fyrir áföll kvartar Lay Low ekki en viðurkennir að staðan sé frek- ar þreytandi. „Ástandið hefur eflaust verið erfitt fyrir marga og hætt hefur verið við mörg fyrirhuguð verkefni mín, en ég hef líka verið heppin.“ Í því sambandi nefnir hún verkefni sem hún fékk í tengslum við tvær kvikmyndir, Leyndarmálið og Láttu þá sjá. „Þar kom stúdíó mitt í góðar þarfir því ég gat unnið við gerð tónlistarinnar hérna heima. Sú vinna var skemmtileg.“ Hún hefur líka samið og leikið tónlist fyrir leikrit og þá spilað sem hljóðfæraleik- ari sem tengist ekki listamannsnafninu Lay Low. „Það gengur upp sem geng- ur upp og vonandi fer þessari óvissu að ljúka.“ Morgunblaðið/Eggert Heimakær Lay Low semur og tekur upp tónlist heima og nýtur þess að spila í heimahúsum. Jákvæð en óörugg - Lay Low vill ekki taka áhættu í heimsfaraldrinum Efni í þætti kvöldsins: Halldór S.Guðmundsson er sérfræðingur í öldrunarmálum og skilað ítarlegri skýrslu í sumar til heilbrigðisráðherra um stöðu þessarar mála og tillögur til framtíðar. Hvar er þessi skýrsla stödd um þessar mundir og hvað verður um tillögurnar? Íslensk Bridgesveit hélt til Japan á heimsmeistara- keppni árið 1991 og sigraði mjög óvænt. Sveitin kom heim með Bermudaskálina í farteskinu og glæsileg mótttaka var í Leifsstöð. 30 ár eru liðin frá þessum atburði og fyrr í haust fagnaði Bridg- esambandið þessum tímamótum með veglegri Bridgehátið í höfuðstöðvum sínum. Rætt er við þá Björn Eysteinsson og Jón Baldursson. Árni Jörgensen starfaði um áratugaskeið á Morgunblaðinu og síðast sem ritstjóri. Hann segir á skemmtilegan hátt frá blómatíma á ritstjórninni þegar þetta langstærsta dagblað landsins var á hátindi íslenskrar blaðaútgáfu og hlutirnir gerðust með öðrum hætti en nú tíðkast. Hann stofnaði Helgarpóstinn en ekkert varð úr starfi hans þar. Umsjónarmaður er Sigurður K.Kolbeinsson Dagskráin á Hringbraut í kvöld Fréttir, fólk og menning á Hringbraut og hringbraut.is Lífið er lag kl. 21.30 á Hringbraut í kvöld Árni Jörgensen Björn Eysteinsson ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 313. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Ég var ekkert lengi að hugsa málið þannig lagað. En nýtti þó tímann vel sem ég þó hafði til að fara yfir stöð- una. Ég fann fyrir einhverri spennu. Mér þykir vænt um þessa stöðu: þjálfarann, þótt einhverjir kunni að segja að það sé einhver froða,“ segir Friðrik Ingi Rúnarsson, körfuboltaþjálfarinn reyndi, sem í gær tók við þjálfun karlaliðs ÍR-inga. »27 Var ekki lengi að hugsa málið ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.