Morgunblaðið - 23.11.2021, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 3. N Ó V E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 275. tölublað . 109. árgangur .
ERFIÐ ÁKVÖRÐUN
AÐ YFIRGEFA
KEFLAVÍK
LYKILMAÐUR
Í ÞRÓUN
TÓNLISTAR
MIKILL VESTUR-
BÆINGUR
KÓPAVOGS
JÓN NORDAL 28 JÓHANN G. 50 ÁRA 24NATASHA TIL BREIÐABLIKS 27
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Þingsetning, með tilheyrandi formlegheitum, fer
fram í dag þótt þingsetningarfundur verði þrí-
skiptur að þessu sinni. Greinargerð undirbún-
ingsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa mun liggja
fyrir í dag. Í henni verður ekki að finna eigin-
legar tillögur heldur vísi að tillögum, sem verða
síðan ræddar og bornar upp til atkvæða á
fimmtudaginn.
Ljóst er að tillögurnar verða fleiri en ein og
líklega fleiri en tvær. Nokkrir þingmenn í und-
irbúningskjörbréfanefndinni hafa þegar gefið
upp afstöðu sína gagnvart því hvaða niðurstöðu
þeir telji rétt að horfa til þegar litið er til lög-
mætis kjörbréfa. Björn Leví Gunnarsson þing-
maður Pírata sagði í kvöldfréttum RÚV í gær-
kvöldi að hann gæti ekki fellt sig við að staðfesta
„síðari talningu“ í Norðvesturkjördæmi. Inga
Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur þegar
gefið upp afstöðu sína; að hún telji ekki ástæðu
til að víkja frá útgefnum kjörbréfum.
Heimildir Morgunblaðsins herma að Svandís
Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra og þingmaður
Vinstri-grænna, sé hörð á afstöðu sinni til upp-
kosningar í Norðvesturkjördæmi, öfugt við það
sem aðrir stjórnarþingmenn í nefndinni hallast
að.
Ólíklegt er því að atkvæði muni falla eftir lín-
um stjórnar og stjórnarandstöðu og ekkert ligg-
ur fyrir um hvernig atkvæði munu falla á milli
tillagna á fimmtudaginn.
Gera má ráð fyrir að þingmenn taki að gefa
upp afstöðu sína eftir að greinargerð undirbún-
ingskjörbréfanefndarinnar verður gerð opinber
um og eftir miðjan dag í dag.
Alþingi kemur saman
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Starfsmaður þingsins dreifði í gær miðum með nöfnum þingmanna á borðin fyrir þingsetningarfundinn sem hefst laust eftir klukkan 14 í dag.
- Líklegt að tillögur frá kjörbréfanefnd verði þrjár - Ekki eining um tillögur innan
ríkisstjórnarflokkanna - Nokkrir þingmenn þegar gefið upp afstöðu sína til talninga
M 152. löggjafarþing kemur saman »4
Götur helstu stórborga Austurríkis
voru að mestu auðar í gær eftir að
útgöngubann gekk í gildi vegna
fjórðu bylgju kórónuveirunnar,
sem nú ríður yfir Vestur-Evrópu.
Voru verslanir, veitingastaðir og
jólamarkaðir lokaðir vegna banns-
ins en íbúum landsins er nú meinað
að yfirgefa heimili sín nema til þess
að sækja vinnu, kaupa nauðsynjar
og stunda líkamsrækt. Munu stjórn-
völd endurskoða ástandið 1. desem-
ber, en hafi það ekki batnað þá mun
bannið vara til 11. desember næst-
komandi. Eru ríki Evrópu nú að
íhuga hertar sóttvarnaaðgerðir til
að stemma stigu við fjórðu bylgju
veirunnar, meðal annars að taka
upp bólusetningarskyldu, þrátt fyr-
ir hörð mótmæli um helgina. »13
AFP
Útgöngubann Jólamarkaðurinn í Vínarborg, sem er við hlið Dómkirkju
heilags Stefáns, var auður í gær, enda lokað vegna heimsfaraldursins.
Útgöngubann
gengið í gildi
- Evrópuríki íhuga að herða aðgerðir
Jarðskjálftavirkni á Reykjanes-
skaga er að færast í eðlilegt horf, að
mati Páls Einarssonar jarðeðlis-
fræðings. Undanfarið hafa fleka-
skilin sem liggja eftir skaganum
endilöngum teiknast greinilega upp
á jarðskjálftakortum.
„Venjulega eru smáskjálftar víða
á Reykjanesskaga. Það er áberandi
gat í skjálftavirkninni sem tengist
Brennisteinsfjöllum og Bláfjöllum.
Því fylgir opin viðvörun um stóran
skjálfta en það er orðið nokkuð langt
síðan þar losnaði síðast um spennu á
flekaskilunum,“ sagði Páll.
Þorvaldur Þórðarson, prófessor í
eldfjallafræði við HÍ, segir að fyrir
síðustu helgi hafi víða sést í glóð í
hrauninu og afgösun verið í gígnum
og víðar. Ýmislegt bendir til að ein-
hver kvika komi enn upp. »10
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Geldingadalir Sýnilegt hraun-
rennsli er hætt, þó sést glóð.
Smá-
skjálftar
algengir
- Enn sést glóð
_ Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir telur líklegt að boðið verði
upp á bólusetningu fyrir börn á
aldrinum fimm til ellefu ára á Ís-
landi. Áður en sú ákvörðun er tekin
þarf að liggja fyrir niðurstaða
Lyfjastofnunar Evrópu. Lyfjafyrir-
tækið Pfizer er búið að þróa sér-
stakt barnabóluefni og bólusetning
með því er hafin í Bandaríkjunum,
Ísrael og Kanada. Þó að sóttvarna-
yfirvöld séu ekki búin að taka
ákvörðun er slíkt bóluefni væntan-
legt til landsins fyrir áramót.
Ólíkt mörgum öðrum lyfjum mið-
ast bóluefnin einungis við aldur, og
hefur líkamlegur þroski því ekkert
að segja um þolmörk einstakl-
ingsins og þá hvora útgáfuna hann
á að þiggja. »2
Bólusetning barna
frá fimm ára líkleg
AFP
Barnvænt Börn eldri en fimm ára fá annað
bóluefni en þau sem hafa náð tólf ára aldri.