Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 2
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
25
ára
1996-2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Þóra Birna Ingvarsdóttir
Ef umsögn Lyfjastofnunar Evrópu
verður jákvæð er líklegt að börnum
á aldrinum fimm til ellefu ára verði
boðin bólusetning gegn Covid-19-
sjúkdómnum hér á landi, að sögn
Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalækn-
is. Hann segir þó að engin ákvörðun
hafi verið tekin enda liggur ekki
enn fyrir markaðsleyfi í Evrópu
fyrir notkun bóluefnisins fyrir þann
aldurshóp. Lyfjafyrirtækið Pfizer
er komið með slíkt leyfi í Banda-
ríkjunum, Kanada og Ísrael og hef-
ur lagt inn umsókn til Lyfjastofn-
unar Evrópu, sem fer nú yfir hana.
Þótt engin ákvörðun hafi verið
tekin er pöntun af bóluefni fyrir
börn á aldrinum fimm til ellefu ára
væntanleg til landsins í lok desem-
ber.
Koma í veg fyrir 430.000 smit
Þessi bylgja faraldursins á Ís-
landi er nú að miklu leyti drifin
áfram af smitum hjá börnum undir
ellefu ára, ólíkt fyrri bylgjum.
Covid-19-sviðsmyndaáætlunar-
miðstöðin (e. COVID-19 Scenario
Modeling Hub) er sameiginlegt
framlag fjölda bandarískra háskóla
og heilbrigðisstofnana sem einbeita
sér að því að segja fyrir um þróun
faraldursins. Að mati þeirra gæti
það að bólusetja aldurshópinn fimm
til ellefu ára komið í veg fyrir 430
þúsund smit í Bandaríkjunum, mið-
að við að delta-afbrigðið verði
áfram ríkjandi. Komi upp nýtt enn
meira smitandi afbrigði gæti bólu-
setningin komið í veg fyrir 860 þús-
und tilfelli.
Meiri aukaverkanir vegna
Covid-19 en bólusetninga
Vísindamenn eru ekki allir sam-
mála um hversu stórt hlutverk börn
hafa í raun raun farið með við út-
breiðslu faraldursins á árinu.
Félag bandarískra barnalækna
(AAP) mælir með bólusetningu fyr-
ir börn, fimm ára og eldri. Sótt-
varnastofnun Bandaríkjanna leggur
einnig áherslu á að börn, fimm ára
og eldri, þiggi bólusetningu enda
séu þau ekki síður líkleg til að
veikjast alvarlega af Covid-19 en
aðrir. Komið hafa upp tilfelli hjarta-
vöðvabólgu og gollurshúsbólgu hjá
yngra fólki eftir bólusetningu, en að
sögn Þórólfs eru þau tilfelli ekki
mörg. Mun fleiri tilfelli hafi einmitt
komið upp hjá einstaklingum eftir
Covid-19-smit.
Sérstakt barnabóluefni
Lyfja- og matvælastofnun Banda-
ríkjanna gaf út markaðsleyfi fyrir
notkun á Pfizer-bóluefni við bólu-
setningar barna á umræddum aldri
eftir að hafa vegið áhættuna og
metið en þau gögn eru aðgengileg á
vefsíðu stofnunarinnar. Með því
bættust tuttugu og átta milljónir
einstaklinga við þann hóp sem á
möguleika á að verja sig gegn
Covid-19 með því að þiggja bólu-
setningu. Börn eldri en tólf ára fá
sama bóluefni og fullorðnir en Pfiz-
er þróaði sérstakt bóluefni fyrir
yngsta aldurshópinn, sem inniheld-
ur þó sömu virku efnin en í viðeig-
andi magni.
Foreldrar jákvæðir
Kannanir sem hafa verið gerðar á
Íslandi og varða afstöðu foreldra
barna á aldrinum fimm til ellefu ára
til bólusetningar hafa sýnt fram á
jákvæð svör. Bólusetningarþátttaka
barna á aldrinum tólf til fimmtán
ára var sjötíu og fimm prósent, en
Þórólfur vonaðist eftir betri þátt-
töku hjá þeim hópi.
Bjóða 28 milljónum barnabóluefni
200
175
150
125
100
75
50
25
0 júlí ágúst september október nóvember
H
ei
m
ild
:c
ov
id
.is
kl
.1
3
.0
0
íg
æ
r
Fjöldi innanlands-
smita frá 12. júlí
174 eru í
skimunarsóttkví1.684 erumeð virkt smit
og í einangrun
2.380 einstaklingar
eru í sóttkví 24 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af þrír á gjörgæslu
355 ný innanlandssmit
greindust sl. helgi
(fös. 19. til sun. 21. nóv.)
Staðfest smit
7 daga meðaltal
- Ísland bíður eftir umsögn frá Lyfjaeftirliti Evrópu - Bandaríkin, Kanada og Ísrael byrjuð að bólu-
setja börn eldri en fimm ára - Börnin fá ekki sama skammt og fullorðnir - Sterkt tól gegn útbreiðslu
AFP
Barnabóluefni Lítill drengur í Ísrael fær hér bólusetningu með móður sinni.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Alls hefur 431 brot gegn sóttvarna-
lögum verið skráð hjá lögreglu frá 1.
mars 2020. Brotin eru skráð á 475
einstaklinga og 73 fyrirtæki en í ein-
hverjum tilvikum eru margir skráðir
fyrir sama brot. Þetta kemur fram í
svari embættis ríkislögreglustjóra
við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Brot á sóttvarnalögum taka meðal
annars til brota á lokun skemmti-
staða og brota á reglum um fjölda-
takmarkanir.
Frá 1. október síðastliðnum til og
með sunnudeginum 21. nóvember
hafa verið skráð 13 brot á sóttvarna-
lögum.
Sektargreiðslum hefur ekki verið
beitt í öllum tilvikum því í 46% brota
var ekki talin ástæða til að beita
sektum. Mál 129 aðila eru komin í
sektarmeðferð, eða fyrir 22% brot-
anna, en 32% þeirra eru annaðhvort
til rannsóknar eða komin til af-
greiðslu.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkis-
lögreglustjóra var algengasta
sektarupphæðin 50 þúsund krónur.
Næstalgengast er að fólk hafi verið
sektað um 100 þúsund eða 250 þús-
und krónur. Lægsta sektin nam 20
þúsund krónum en sú hæsta 350
þúsund krónum. Nú hafa tæpar 7,5
milljónir verið greiddar í sektir, þar
af 4,3 milljónir í ár. Rúmar níu millj-
ónir eru í vinnslu eða innheimtu-
meðferð en sektir upp á 2,7 milljónir
hafa verið felldar niður.
Hæsta sektin var 350 þúsund krónur
Morgunblaðið/Eggert
Skemmtun Lögregla hefur sektað skemmtistaði fyrir brot á sóttvarnalögum, m.a. fyrir að hafa opið of lengi.
- 431 brot gegn sóttvarnalögum - 7,5 milljónir innheimtar í sektir - Ekki sektað fyrir 46% brota
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Fjórar ljósmæður skráðu sig í bakvarðasveit heilbrigðis-
þjónustu um helgina. Þetta gerðist í kjölfar þess að Land-
spítalinn vakti sérstaklega athygli á því fyrir helgi að þar
bráðvantaði ljósmæður vegna þess að fjöldi starfsmanna
væri kominn í sóttkví. Eru nú fimm ljósmæður í bak-
varðasveitinni.
Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu eru
nú 250 manns skráðir í bakvarðasveit heilbrigðisþjónust-
unnar. Í hópi faglærðra eru sjúkraliðar fjölmennastir, 67
talsins. Nú eru 46 hjúkrunarfræðingar til taks og 18
læknar, átta lyfjafræðingar og sjö lífeindafræðingar.
Færri eru úr öðrum starfsstéttum. Nokkur fjöldi nema
hefur sömuleiðis skráð sig í bakvarðasveitina, níu lækna-
nemar, níu nemar í hjúkrunarfræði og 36 sjúkraliðanemar.
Ljósmæður brugðust
fljótt og vel við kallinu
- 250 skráðir í bakvarða-
sveitina - Fimm ljósmæður
Morgunblaðið/Eggert
Landspítali 250 bakverðir eru til taks ef starfsfólk þarf.