Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 15

Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021 Rjúpnakrækir Stutt er í að jólasveinarnir komi til byggða en fram að því stunda þeir ýmsa iðju til fjalla, m.a. að ganga til rjúpna. Ljósmyndari rakst þar á Kjötkrók, eða öllu heldur Rjúpnakræki. Ingólfur Guðmundsson Ráðstefnan COP-26 í Glasgow sem lauk um næstliðna helgi reynd- ist þrátt fyrir hrakspár og óvissu ná að skila mikilvægri samþykkt allra þátttökuríkjanna, 197 talsins. Þar var gengið frá lausum end- um í Parísarsamþykkt- inni marglofuðu frá COP-21 árið 2015. Í Glasgow var samþykkt sú stefna að takmarka meðaltals- hlýnun lofthjúpsins við 1,5 gráður í stað 2 gráða. Mikilvægar yfirlýs- ingar voru gefnar um að stöðva eyð- ingu skóga og vinna sérstaklega gegn losun metans. Jarðefnaelds- neyti var nú brennimerkt sem helsti skaðvaldurinn með kol í farar- broddi. Indland, sem keppir við Kína í kolanotkun, varð sér til minnkunar með því að krefjast á ell- eftu stundu breytinga á þeirri áherslu. Fjöldi ríkja, stórra og smárra, hafði í aðdraganda þessa fundar gefið út fyrirheit um að draga stórlega úr losun CO2 fram til ársins 2030 og ná kolefnishlutleysi fyrir eða um miðja öldina. Þar hefur Ísland sett markið við árið 2040. Loforðið um fjárhags- stuðning til þróun- arríkja var ítrekað, í reynd endurgreiðsla fyrir arðrán á liðinni tíð. Mannkyn á krossgötum Flest ríki hafa aukið mengun lofthjúpsins í kjölfar Parísarsam- þykktarinnar þannig að stefnir í hlýnun upp á 2,4 gráður og þaðan af meira. Umskiptin sem þurfa að verða á þessum áratug jafngilda byltingu í framleiðsluhátt- um, neyslu og samskiptum við móð- ur jörð. „Pláneta okkar hangir á bláþræði“ var meðal aðvörunarorða framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Antonios Guterres, við opnun ráðstefnunnar í Glasgow. Lausnin felst ekki aðeins í að hverfa frá notkun jarðefnaeldsneytis í tíð einnar kynslóðar, heldur verður að draga úr rányrkju á öllum sviðum. Temprun neyslu og lífshátta, að fólksfjölgun meðtalinni, er óhjá- kvæmileg eigi mannkynið að kom- ast yfir þær hindranir sem við blasa. Framhald á þeirri vakningu sem orðið hefur meðal æskufólks víða um lönd er mikilvægt veganesti í glímunni sem allra bíður á næst- unni. Andróður án fótfestu Þrátt fyrir augljósar staðreyndir um hvert stefnir að óbreyttu um loftslag jarðar heldur andróður gegn vísindalegum niðurstöðum áfram, knúinn af öflum sem sjá sér hag af óbreyttum orkugjöfum með jarðefnaeldsneyti. Pólitískt á hann sér sterkastar rætur meðal repú- blikana í Bandaríkjunum allt frá dögum Reagans sem forseta, til Donalds Trumps sem dró til baka aðild BNA að Parísaryfirlýsingunni. Sá málflutningur hefur m.a. verið studdur af Heartland Institute sem stofnað var til 1984 með fjárstuðn- ingi frá tóbaksframleiðendum en síðan frá olíuiðnaðinum. Í Evrópu hefur Björn Lomborg hjá Copen- hagen Research Institute lengi sáð efasemdum um áhrif loftslagsbreyt- inga af mannavöldum, síðast í riti sínu False alarm sem út kom 2020. Þótt flestum finnist þetta hjáróma raddir án nokkurrar fótfestu endur- óma þær þó enn hér og hvar, einnig hérlendis. Nú í aðdraganda COP-26 nutu slík sjónarmið þó stuðnings fárra sem vandir eru að virðingu sinni. Dæmi um einörð sjónarmið birtust í tímaritinu The Economist um síðustu mánaðamót (30. okt.) í greinasyrpu undir fyrirsögninni Stabilising the climate. Þar segir m.a. að enginn vafi sé á að breyting á magni CO2 í andrúmsloftinu sé til- komin af mannavöldum. Og syrp- unni (bls. 24) lýkur með orðunum: „Loftslagsváin skall á okkur sem hluti af nýju efnahagskerfi heimsins. Að losna undan henni með árangri getur kallað á breytt stjórnmál á heimsvísu. Takist það ekki hefði það hörmulegar afleiðingar jafnt fyrir stjórnmálin og efnahagslífið.“ Verk að vinna hérlendis Samkvæmt yfirliti Umhverf- isstofnunar nam losun hérlendis á árinu 2020 alls 4.486 þúsund tonnum (án landnotkunar og alþjóða- samgangna) og hafði þá dregist saman um 5% frá árinu 2019. Eftir sem áður er þetta næstmesta heild- arlosun á íbúa í Evrópulandi eða sem svarar 17,5 tonnum miðað við árið 2018. Aðeins Lúxemborg var þá með hærri tölu eða 20,3 tonn á mann, en í þriðja sæti kom Eistland með 15,3 tonn. Skýringin á þessu geysiháa gildi hérlendis er ekki síst stóriðjan, þar sem geirinn iðn- aðarferlar og efnanotkun er nú upp- spretta tæplega helmings af losun Íslands. Losun á CO2 og PFC frá ál- og málmblendiframleiðslu (stóriðja) fellur undir viðskiptakerfi Evrópu- sambandsins (ETS) og reiknast því ekki sem losun með beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Flækir það framsetningu og hefur eðlilega sætt gagnrýni. Umhverfisráðuneytið kynnti fyrr á þessu ári áform um samdrátt í losun á ábyrgð Íslands um a.m.k. 40% fram til ársins 2030 og að Ísland verði kolefnishlutlaust árið 2040. Jafnframt hefur verið kynnt aðgerðaáætlun í 50 liðum og að hafist hafi verið handa um röskan helming þeirra. --- Um það leyti sem þessi grein birt- ist verður væntanlega kynnt til sög- unnar endurnýjuð ríkisstjórn hér- lendis og málefnasamningur hennar. Af mörgum verður þar ekki síst horft til fyrirhugaðra aðgerða í loftslagsmálum. Eftir Hjörleif Guttormsson » Lausnin felst ekki aðeins í að hverfa frá jarðefnaeldsneyti í tíð einnar kynslóðar, heldur verður að draga úr rányrkju á öllum sviðum. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Nú reynir á gjörvalla heimsbyggðina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.