Morgunblaðið - 23.11.2021, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021
Rjúpnakrækir Stutt er í að jólasveinarnir komi til byggða en fram að því stunda þeir ýmsa iðju til fjalla, m.a. að ganga til rjúpna. Ljósmyndari rakst þar á Kjötkrók, eða öllu heldur Rjúpnakræki.
Ingólfur Guðmundsson
Ráðstefnan COP-26
í Glasgow sem lauk um
næstliðna helgi reynd-
ist þrátt fyrir hrakspár
og óvissu ná að skila
mikilvægri samþykkt
allra þátttökuríkjanna,
197 talsins. Þar var
gengið frá lausum end-
um í Parísarsamþykkt-
inni marglofuðu frá
COP-21 árið 2015. Í
Glasgow var samþykkt
sú stefna að takmarka meðaltals-
hlýnun lofthjúpsins við 1,5 gráður í
stað 2 gráða. Mikilvægar yfirlýs-
ingar voru gefnar um að stöðva eyð-
ingu skóga og vinna sérstaklega
gegn losun metans. Jarðefnaelds-
neyti var nú brennimerkt sem helsti
skaðvaldurinn með kol í farar-
broddi. Indland, sem keppir við
Kína í kolanotkun, varð sér til
minnkunar með því að krefjast á ell-
eftu stundu breytinga á þeirri
áherslu. Fjöldi ríkja, stórra og
smárra, hafði í aðdraganda þessa
fundar gefið út fyrirheit um að
draga stórlega úr losun CO2 fram til
ársins 2030 og ná kolefnishlutleysi
fyrir eða um miðja öldina. Þar hefur
Ísland sett markið við árið 2040.
Loforðið um fjárhags-
stuðning til þróun-
arríkja var ítrekað, í
reynd endurgreiðsla
fyrir arðrán á liðinni
tíð.
Mannkyn
á krossgötum
Flest ríki hafa aukið
mengun lofthjúpsins í
kjölfar Parísarsam-
þykktarinnar þannig
að stefnir í hlýnun upp
á 2,4 gráður og þaðan
af meira. Umskiptin
sem þurfa að verða á þessum áratug
jafngilda byltingu í framleiðsluhátt-
um, neyslu og samskiptum við móð-
ur jörð. „Pláneta okkar hangir á
bláþræði“ var meðal aðvörunarorða
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, Antonios Guterres, við
opnun ráðstefnunnar í Glasgow.
Lausnin felst ekki aðeins í að hverfa
frá notkun jarðefnaeldsneytis í tíð
einnar kynslóðar, heldur verður að
draga úr rányrkju á öllum sviðum.
Temprun neyslu og lífshátta, að
fólksfjölgun meðtalinni, er óhjá-
kvæmileg eigi mannkynið að kom-
ast yfir þær hindranir sem við
blasa. Framhald á þeirri vakningu
sem orðið hefur meðal æskufólks
víða um lönd er mikilvægt veganesti
í glímunni sem allra bíður á næst-
unni.
Andróður án fótfestu
Þrátt fyrir augljósar staðreyndir
um hvert stefnir að óbreyttu um
loftslag jarðar heldur andróður
gegn vísindalegum niðurstöðum
áfram, knúinn af öflum sem sjá sér
hag af óbreyttum orkugjöfum með
jarðefnaeldsneyti. Pólitískt á hann
sér sterkastar rætur meðal repú-
blikana í Bandaríkjunum allt frá
dögum Reagans sem forseta, til
Donalds Trumps sem dró til baka
aðild BNA að Parísaryfirlýsingunni.
Sá málflutningur hefur m.a. verið
studdur af Heartland Institute sem
stofnað var til 1984 með fjárstuðn-
ingi frá tóbaksframleiðendum en
síðan frá olíuiðnaðinum. Í Evrópu
hefur Björn Lomborg hjá Copen-
hagen Research Institute lengi sáð
efasemdum um áhrif loftslagsbreyt-
inga af mannavöldum, síðast í riti
sínu False alarm sem út kom 2020.
Þótt flestum finnist þetta hjáróma
raddir án nokkurrar fótfestu endur-
óma þær þó enn hér og hvar, einnig
hérlendis. Nú í aðdraganda COP-26
nutu slík sjónarmið þó stuðnings
fárra sem vandir eru að virðingu
sinni. Dæmi um einörð sjónarmið
birtust í tímaritinu The Economist
um síðustu mánaðamót (30. okt.) í
greinasyrpu undir fyrirsögninni
Stabilising the climate. Þar segir
m.a. að enginn vafi sé á að breyting
á magni CO2 í andrúmsloftinu sé til-
komin af mannavöldum. Og syrp-
unni (bls. 24) lýkur með orðunum:
„Loftslagsváin skall á okkur sem
hluti af nýju efnahagskerfi heimsins.
Að losna undan henni með árangri
getur kallað á breytt stjórnmál á
heimsvísu. Takist það ekki hefði það
hörmulegar afleiðingar jafnt fyrir
stjórnmálin og efnahagslífið.“
Verk að vinna hérlendis
Samkvæmt yfirliti Umhverf-
isstofnunar nam losun hérlendis á
árinu 2020 alls 4.486 þúsund tonnum
(án landnotkunar og alþjóða-
samgangna) og hafði þá dregist
saman um 5% frá árinu 2019. Eftir
sem áður er þetta næstmesta heild-
arlosun á íbúa í Evrópulandi eða
sem svarar 17,5 tonnum miðað við
árið 2018. Aðeins Lúxemborg var þá
með hærri tölu eða 20,3 tonn á
mann, en í þriðja sæti kom Eistland
með 15,3 tonn. Skýringin á þessu
geysiháa gildi hérlendis er ekki síst
stóriðjan, þar sem geirinn iðn-
aðarferlar og efnanotkun er nú upp-
spretta tæplega helmings af losun
Íslands. Losun á CO2 og PFC frá ál-
og málmblendiframleiðslu (stóriðja)
fellur undir viðskiptakerfi Evrópu-
sambandsins (ETS) og reiknast því
ekki sem losun með beinni ábyrgð
íslenskra stjórnvalda. Flækir það
framsetningu og hefur eðlilega sætt
gagnrýni. Umhverfisráðuneytið
kynnti fyrr á þessu ári áform um
samdrátt í losun á ábyrgð Íslands
um a.m.k. 40% fram til ársins 2030
og að Ísland verði kolefnishlutlaust
árið 2040. Jafnframt hefur verið
kynnt aðgerðaáætlun í 50 liðum og
að hafist hafi verið handa um röskan
helming þeirra.
---
Um það leyti sem þessi grein birt-
ist verður væntanlega kynnt til sög-
unnar endurnýjuð ríkisstjórn hér-
lendis og málefnasamningur hennar.
Af mörgum verður þar ekki síst
horft til fyrirhugaðra aðgerða í
loftslagsmálum.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Lausnin felst ekki
aðeins í að hverfa
frá jarðefnaeldsneyti
í tíð einnar kynslóðar,
heldur verður að draga
úr rányrkju á öllum
sviðum.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Nú reynir á gjörvalla heimsbyggðina