Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021 Í október 2019 flutti Stefán Vagn Stef- ánsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, þingsályktunartillögu um að kannað yrði vandlega hvort hag- kvæmt væri að grafa 20 km löng jarðgöng milli Hofsdals og Barkárdals sem tengja saman Hörgárdal og Hjaltadal. Þessi gangalengd undir Tröllaskaga er langt frá því að vera eini valkosturinn sem talað er um til að stytta vegalengdina milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Við- urkennt er að brýn þörf er talin á nýjum og tvíbreiðum veggöngum milli Fljóta og Fjallabyggðar, þar sem vegurinn vestan Strákaganga er stórhættulegur vegna jarðsigs, grjóthruns- og snjóflóða. Sunnan Múlaganga sem standast aldrei héðan af hertar öryggiskröfur og norðan Siglufjarðar er ástandið engu betra. Í Morgunblaðinu 28. febrúar 2020 kom fram að hugmyndin um 20 km gangalengd undir Tröllaskaga mæt- ir mikilli andstöðu hjá yfirstjórn Vegagerðarinnar, sem telur heppi- legra að skoða möguleika á helm- ingi styttri jarðgöngum undir Öxna- dalsheiði. Norðan Dalvíkur og í Almenningum eykst slysahættan alla vetrarmánuðina þegar aur- skriður, snjóflóð og grjóthrun loka vegunum sunnan Múlaganga og vestan Strákaganga milli Siglu- fjarðar og Fljóta. Til að tryggja öruggar vega- samgöngur Fjallabyggðar við Norð- vestur- og Norðausturkjördæmi er óhjákvæmilegt að flýta fyrst fram- kvæmdum við 6 km löng veggöng undir Siglufjarðarskarð, áður en talað verður um jarð- gangagerð undir Tröllaskaga eða Öxna- dalsheiði. Til að það heppnist fullkomlega skulu einbreiðu Múla- göngin auk Stráka- ganga víkja endanlega fyrir tvíbreiðum jarð- göngum norðan Dal- víkur og undir Siglu- fjarðarskarð sem tryggja öruggari hringveg um Trölla- skaga. Hugmyndin um að grafa jarðgöng und- ir Öxnadalsheiði er til í Jarðganga- áætlun Vegagerðarinnar sem Al- þingi samþykkti í febrúar árið 2000, í tíð Sturlu Böðvarssonar, þáver- andi samgönguráðherra. Allir landsbyggðarþingmenn sem sækj- ast eftir fjárfrekum samgöngu- mannvirkjum í sínum kjördæmum þurfa að horfast í augu við þá stað- reynd að ekki er sjálfgefið að ís- lenska ríkið standi undir áætluðum heildarkostnaði við öll jarðgöngin sem gert er ráð fyrir í samgöngu- áætlun án þess að stjórnvöld skrifi þennan kostnað á reikning skatt- greiðendanna í þessu fámenna landi með 373 þúsund íbúa. Vegna baráttunnar gegn út- breiðslu kórónuveirunnar, sem verður ekki ókeypis fyrir íslenska skattgreiðendur, skulu allir lands- byggðarþingmenn í samgöngunefnd Alþingis kynna sér vandlega hvort skynsamlegt sé að réttlæta áætl- aðan heildarkostnað við fjárfrekar samgöngubætur í fámennum sveit- arfélögum sem standa mjög illa. Af þessum sökum telja samgöngu- ráðherra og fjármálaráðherra óhjá- kvæmilegt að fresta tímabundið rándýrum framkvæmdum við fleiri jarðgöng í öllum landshlutum. Tímafrek barátta gegn útbreiðslu kórónuveirunnar segir ekkert um að vinnandi fjölskyldur um allt land komist auðveldlega hjá stórauknum álögum án þess að kröfuhafarnir bjóði heimilin þeirra upp, verði ráð- ist í enn fleiri jarðgöng úti á landi að loknum framkvæmdum við Dýrafjarðargöng sem búið er að opna fyrir almenna umferð. Bæj- arstjórn Akureyrar og varaþing- manni Framsóknarflokksins í Norð- vesturkjördæmi skal vera ljóst að of miklar hættur á snjóflóðum, grjóthruni og aurskriðum geta leynst í Hofsdal og Barkárdal verði vegur lagður að göngunum undir Tröllaskaga inn báða dalina, sem eru þröngir og geta verið slysa- gildrur. Um tvennt stendur valið, komi hugmyndin um jarðgöng milli Eyja- fjarðar og Skagafjarðar til álita, í fyrsta lagi eftir 15-20 ár. Þar leggur Vegagerðin til að kannað verði fyrst hvort hægt sé að komast af með helmingi styttri göng undir Öxna- dalsheiði, sem tekin yrðu á snjó- léttu svæði í 500 m hæð úr Hálfdán- artungum í Norðurárdal og kæmu út í Bakkaselsbrekkunni í 340 m hæð í Öxnadal. Milli Skagafjarðar og Öxnadals yrðu vetrarsamgöngur strax öruggari þótt vegalengdin styttist aðeins um örfáa km. Tímabært er að varaþingmaður Framsóknarflokksins svari spurn- ingunni um hvort til greina komi að skoða möguleika á jarðgöngum undir Hjaltadalsheiði, sem kæmu út í botni Hörgárdals og þaðan yrði lagður vegur að enn styttri göngum undir Háafjall og Hraunsvatn til að halda ferðamannastaðnum á Engi- mýri í Öxnadal áfram á hringveg- inum milli Reykjavíkur og Akureyr- ar. Göng undir Öxnadalsheiði Eftir Guðmund Karl Jónsson » Til að tryggja örugg- ar vegasamgöngur Fjallabyggðar við Norð- vestur- og Norðaust- urkjördæmi er óhjá- kvæmilegt að flýta fyrst framkvæmdum við 6 km löng veggöng undir Siglufjarðarskarð. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. Í fjölda áratuga hafa veðurfarsspá- menn haft uppi stór- orðar yfirlýsingar um hrakleg áhrif veð- urfarsbreytinga á ver- öldina og þá lífríkið og þá. Það er vert að skoða suma þessara spádóma, en þeir eru svo ofurmargir, að ekki er unnt að gera nema litlu broti skil í stuttri grein. Nokkur dæmi hamfaraspádóma Árið 1970 birtist í Newsweek grein, þar sem sagði, að vegna auk- ins ryks og vatnseims í andrúms- loftinu sem og meðfylgjandi skýja- myndunar myndi „… jörðin kólna, vatnseimurinn falla sem snjór og ný ísöld ganga í garð“. Um afleiðing- arnar voru ýmsir, sem taldir voru marktækir, á svipuðum nótum. Þar má nefna Paul Ehrlich, prófessor við Stanford-háskólann, sem spáði ofurfjölgun mannkyns og hung- urdauða 100-200 milljóna manna ár hvert frá um það bil 1975. Undir með honum tók höfuðskipuleggj- andi fyrsta „jarðardagsins“ árið 1970, Denis Hayes, en hann sagði það ár: „Það er þegar orðið of seint að koma í veg fyrir fjöldahung- ursneyð.“ Þetta stangast nokkuð á við tölur frá t.d. SÞ, sem greina frá því, að hungruðum hafi fækkað, mat- arframboð aukist með aukinni upp- skeru og meðallífslíkur manna á heimsvísu hafi aukist svo, að um 1900 voru þær um 33 ár, en eru nú um 70 ár. Árið 1971 spáði fyrrnefndur Paul Ehrlich því, að í kringum árið 2000 yrði Breska konungdæmið ekki annað er snauður eyjaklasi, þar sem byggju 70 milljónir sveltandi manna. Hann bætti við: „Ef ég veðj- aði myndi ég veðja því á jöfnu, að árið 2000 verði England ekki til.“ Nú, um 20 árum síðar en allt átti að vera orðið auðn og tóm á Bret- landseyjum, verður ekki annars vart en að enn búi þar fólk við góðan kost. Árið 1988 bar James Hansen vitni fyrir upplýsingaöflunarnefnd full- trúadeildar bandaríska þingsins og spáði því, að strandgatan á Man- hattan í New York myndi verða yf- irflotin sjó upp úr árinu 2000, þurrkur ríkja og drykkjarvatn yrði skammtað. Fyrrnefndur Paul Ehrlich tók undir orð hans og sagði orsökina vera gífurlega hækkun sjávarborðs, sem færa myndi í kaf ekki einungis lægstu hluta Man- hattan, heldur láglendi víða um heim. Á meðal eylenda, sem hafið myndi gleypa, voru Maldíveyjar í Kyrrahafi. Þær áttu að verða horfn- ar ekki síðar en á fyrstu áratugum 21. aldar, en miklu fyrr verða óbyggilegar vegna skorts á drykkjarvatni. Strandgatan á Manhattan er enn vel upp úr sjó, strendur Flórída og láglendi í sunnanverðum Bandríkj- unum eru það líka. Lágt liggjandi sléttur á Indlandi og í Kína eru enn ræktunarlönd og eyjar í Kyrrahafi eru enn byggðar og blómlegar. T.d. hefur íbúafjöldi á Maldíveyjum tvö- faldast frá árinu 1980. Árið 2000 sagði dr David Viner loftslagsvísindamaður við háskól- ann í East Anglia: „Innan fárra ára mun snjókoma verða fátíð og spennandi. Börn munu ekki vita hvað snjór er.“ Þessu tengj- ast spádómar frá t.d. árinu 1999 um jökla- laus Himalajafjöll inn- an 10 ára og aðrir um hvarf jökla í Ölpunum og á hæsta fjalli Afríku, Kilimanjaró. Af sama toga voru spádómar Als Gores árið 2009 um það, að árið 2014 yrði Norður- Íshafið sem næst íslaust að sum- arlagi. Undir með Al Gore tók starfsmaður IPCC, jöklafræðing- urinn David Vaughan, árið 2012, er hann sagði: „Það gæti orðið á þessu ári eða næsta, en ekki síðar en árið 2015, að Norður-Íshafið verði ís- laust yfir sumartímann.“ Þá má nefna spá vistfræðingsins Bills Frasers, sem sagði árið 2007, að skaginn á Suðurskautslandinu, sem er kjörlendi mörgæsa, væri það ekki lengur, og spáði því, að þær yrðu útdauðar „innan fimm til tíu ára“. Enn eru jöklar í Himalajafjöll- unum, í Ölpunum og á Kilimanjaró. Enn er líka ís á Norður-Íshafinu. Fyrir vikið er lítið um siglingar um norðvesturleiðina, en nokkrar um norðausturleiðina með ströndum Síberíu, en einungis fáeina mánuði á ári og þá tíðast með aðstoð ísbrjóta. Svo mikill er ísinn enn. Ekki eru heldur útdauðar mörgæsirnar á Suðurskautslandinu. Árið 1970 spáði títtnefndur Paul Ehrlich því, að innan tíu ára yrði allt líf í sjónum horfið og strand- héruð óbyggileg vegna fnyksins af dauðum fiski. Undir þetta tók dr. Sidney Dillon Ripley, í 20 ár ritari Smithsonian-stofnunarinnar. Á meðal ástæðna, sem haldið var fram, var súrnun og hitnun sjávar. Þessu tengd er spá um aldauða ís- bjarna á norðurhveli jarðar, sem verða átti vegna ísleysis á sjónum á norðurslóðum. Einnig má nefna spádóma um að vegna loftslags- breytinga myndi fjöldi dýrategunda deyja út og þá einnig ýmis smádýr, s.s. skordýr. Enn er fiskur í sjónum og dýralíf í honum virðist standa með blóma. Áætlaður fjöldi ísbjarna var talinn um 10.000 árið 1950, en nú er talið, að þeim hafi fjölgað í yfir 30.000 dýr. Hvað snertir útrýmingu skor- dýra leggur maðurinn sitt til, ekki síst með vindmyllum. Sem dæmi má nefna, að einungis í Þýskalandi, þar sem reistar hafa verið um 30.000 vindmyllur, er talið, að þær drepi um 1.200 tonn flugna á ári hverju. Hvað svo? Enn dynur á almenningi hræðslu- áróður; þessa dagana sprottinn af COP26-ráðstefnunni í Glasgow í Skotlandi. Í ljósi liðins tíma og brostinna spádóma – er ekki rétt að gjalda varhug við þeim upphróp- unum, yfirlýsingum og áróðri, sem þaðan berst? Brostnir spádómar Eftir Hauk Ágústsson Haukur Ágústsson »Enn dynur á al- menningi hræðslu- áróður; þessa dagana sprottinn af COP26. Höfundur er fyrrverandi kennari. Allt um sjávarútveg Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.