Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimi með Milan kl. 10.30. Handavinna kl. 12-16. Bridshópur kl. 12.30. Karlakórsæfing kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kirkj- unnar kl. 20. Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju. Boðinn Ganga / stafganga með leiðsögn kl. 10 frá anddyri Boðans. Fuglatálgun með Valdóri kl. 13. Brids og kanasta kl. 13. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Dalbraut 18-20 Dansleikfimi með Auði kl. 12.50, félagsvist kl. 13.30. Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar Kristjáns- dóttur djákna og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Súpa og brauð eftir stundina. Það verður jazz-stemming hjá okkur í félagsstarfinu. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson ásamt félaga sínum Sigurði kemur til okkar, spilar á saxafón og spjallar um heima og geima. Verið velkom- in í gott og gefandi samfélag. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Salatbar kl. 11.30-12.15. Mynd- listarhópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Heimaleikfimi á RUV kl. 13-13.10. Bónus-rútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Qi-gong í Sjálandi kl. 9. Stólajóga kl. 11 í Jónshúsi. Leikfimi í Ásgarði kl. 12.15. Botsía í Ásgarði kl. 13.10. Smíði kl. 9 og 13 í Smiðju Kirkjuhvoli. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 handavinna. Kl. 9-10.15 heilsu-Qi-gong í hreyfi- og aðalsal. Kl. 13-16 opin handavinnustofa. Kl. 14-15 skapandi skrif, (annan hvern þriðjudag. Kl. 16-18 námskeið hjá Nafnlausa leik- hópnum. Grafarvogskirkja Opið hús í Grafarvogskirkju fyrir eldri borgara. Opna húsið er kl. 13-15. Margt er til gamans gert. Boðið er upp á kaffi og meðlæti að opna húsinu loknu. Umsjón hefur Sigrún Eggerts- dóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12, að henni lokinni er hádegisverður gegn vægu gjaldi. Allir hjartanlega velkomnir! Gullsmári 13 Myndlist kl. 9. Botsía kl.10.Tréútskurður kl. 13. Kanasta kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli kl. 9-11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Félagsvist kl. 13, þátt- tökugjald er 200 kr. Léttar veitingar seldar í hléi. Hraunsel Billjard kl. 8-16. Dansleikfimi kl. 9. Qigong kl. 10. Brids kl.13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 830-1030. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Jóga með Rakel Írisi kl. 9. Brids í handavinnustofu kl. 13. Helgistund kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30-12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Listmálun með Pétri kl. 9 í Borgum. Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Botsía kl. 10 í Borgum og helgistund á vegum Grafar- vogskirkju kl. 10.30 í Borgum. Leikfimishópur Korpúlfa í umsjón Margrétar Eiríks. kl. 11 í Egilshöll. Spjallahópur Korpúlfa í listasmiðj- unni í Borgum kl. 13. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 14. Félagsfundur Korpúlfa sem vera átti á morgun fellur niður vegna fjöldatakmarkana. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir stund- ina. Gestur er Andrés Jónsson almannatengill sem talar um mannleg samskipti í mörgum blæbrigðum þeirra. Kaffiveitingar. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist bútasaumshópur í handa- vinnustofu kl. 9-12. Hópþjálfun verður í setustofu 2. hæðar kl. 10.30- 11.Tölvu- og snjalltækjaaðstoð í setustofu kl. 11-11.30. Bókband er í smiðju 1. hæðar kl. 13-16.30. Kl. 13.30-14.30 hlustum við saman á hlaðvarp í handavinnustofu. Þá leggjum við af stað í göngu með viðkomu í verslun kl. 15 úr móttöku. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 7.10. Kaffispjall í króknum alla morgna frá kl. 9. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Örnámskeið / roð og leður á neðri hæð félagsheimilis kl. 15.30. Ath. jólahlaðborðið í Kríunesi er nk. fimmtudag, 25. nóvember. Síðasti skráningardagur er í dag. Farið verður með rútu. Skráning og uppl. hjá Kristínu í síma 8939800. mbl.is alltaf - allstaðar intellecta.is Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Helgi var kát- asti og skemmti- legasti maður sem við höfum kynnst. Strax á æskuárum var ég heimagangur á heimili hans í Stillholtinu, oftast til að hitta og leika við Sigga yngri bróður hans og borða súkkulaði og drekka mjólk hjá Dúu Sigurðar og Sverre apótekara. Helgi var þá stundum heima, en oftar ekki. Hann var líka nokkrum árum eldri. Hann var fyrir- mynd okkar yngra liðsins í skátunum og alltaf hrókur alls fagnaðar. Við áttum síðar á ævinni eft- ir að kynnast betur og sterk vináttubönd mynduðust. Ég skrapp í kaffi til hans, Vilborg- ar og Elsí Rósar í febrúar 1981, ætlaði bara að stoppa stutt og halda svo áfram í námsbókun- um. Rétt á meðan ég stoppaði brast á með Engihjallaveðrinu og ég varð veðurtepptur. Okk- ur fannst sem rúðurnar í stofu- og svefnherbergisgluggunum myndu ætla inn á mitt gólf svo við teipuðum þær að innan, kannski til að styrkja þær, kannski til að koma í veg fyrir að þær dreifðust óþarflega mik- ið um stofuna ef þær gæfu sig. Við reyndum líka að hlaupa út á bílastæði til að halda aftur af bílunum sem voru á fleygiferð í rokinu. Sem betur fer sáum við fljótt að það var til einskis og hörfuðum aftur inn. Um nóttina lögðu mæðgurnar sig í stofunni en við Helgi lögðumst í hjóna- rúmið en í því herbergi voru lætin yfirgengileg. Í minning- unni finnst mér að við höfum sofið sæmilega, en held reynd- ar að það hafi bæði verið lítið og slitrótt. Þetta er lengsta og viðburðaríkasta kaffiheimsókn sem ég hef nokkurn tíma farið í. Vináttuböndin hafa haldist óslitin þrátt fyrir dvöl erlendis um margra ára skeið og síðustu þrjátíu árin hafa þau frekar styrkst en hitt. Þar hafa fjöl- skyldur okkar og annarra vina af Skaga líka verið mikilvægar og raunar svo að hin árlegu jól hafa ekki komið fyrr en búið er fara í grjónagraut og tvíreykt á aðfangadag hjá Helga og Vil- borgu. Lengi framan af sá Helgi um grautinn og allt sem tilheyrði en þegar heilsunni fór að hraka tóku börnin Elsí og Sverre yfir og svo með tím- anum líka tengdabörnin. Alltaf var samt gleðin og glaðværðin ríkjandi. Síðustu nokkur árin Helgi Valtýr Sverresson ✝ Helgi Valtýr Sverresson fæddist 4. febrúar 1952. Hann lést 8. nóvember 2021. Jarðarförin fór fram 22. nóvember 2021. voru þessir að- fangadagsmorgnar orðnir fjölmennir þegar vinahópur- inn mætti með börn og barnabörn og allir fengu sinn graut. Helgi naut þess örugglega alltaf í botn þótt heilsan takmark- aði meira og meira hans framlag til morgunborðsins. Nú er kallinn horfinn, farinn, laus við baráttuna við sjúk- dóma og kvilla sem örlögin út- hlutuðu honum. Eftir situr minningin um hressa strákinn sem hermt gat eftir öllum hljóðum sem heyrst hafa á jörðinni. Í fjarska ómar tromp- etinn sem hann spilaði svo listavel á, hljóðfæralaus. Gunnlaugur Björnsson og Ástríður Jóhannesdóttir (Ásta og Gulli). Kæri vinur, við viljum með þessum orðum minnast þess tíma sem við áttum með þér og þakka þér samfylgdina. Við vorum ung, við vorum hraust og lífið var söngur og gleði þegar leiðir okkar lágu saman fyrir 50 árum. Við vor- um öll skátar en í þeim hópi sem og annars staðar varst þú hrókur alls fagnaðar, áræðinn og hvatvís og kunnir að njóta líðandi stundar. Það var alltaf líf og fjör í kringum þig og þú kunnir að láta skátahrópin hljóma hæst og mest. Hún Vilborg okkar féll fyrir þér, þessum unga, fallega og skemmtilega skátastrák, rétt búin að slíta barnsskónum og hefur átt samleið með þér frá þeirri stundu. Við vinahópurinn höfum haldið saman öll þessi ár, glaðst á góðum stundum og stutt hvert annað í lífsins ólgu- sjó. Það hefur ýmislegt verið brallað i gegnum árin svo sem ferðalög, samvera í sumar- bústöðum og hin árlega jóla- samkoma svo eitthvað sé nefnt. Gott er að getað yljað sér við þessar minningar nú þegar sorgin knýr dyra. Síðustu árin hefur verulega reynt á þig kæri vinur en ætíð hefur þú komið keikur út úr hverri raun og við oft haft það á orði að þú hlytir að eiga a.m.k níu líf. Vilborg hefur verið kletturinn þinn í gegnum árin og er missir hennar mikill nú þegar komið er að kveðjustund. Við minnumst góðs og trausts vinar og þökkum fyrir þær stundir sem við áttum saman. Hvíl í friði kæri vinur. F.h. Ds. Omega og fylgifiska, Rannveig Andrésdóttir. ✝ Guðmundur Magni Gunn- arsson fæddist 4. nóvember 1942. Hann lést 31. októ- ber 2021. Móðir hans var Sigurjóna Krist- insdóttir, f. 28.10. 1905, d. 22.9. 2000, og faðir hans Gunn- ar Ferdinand Gunn- arsson, f. 12.6. 1912, d. 28.12. 1987. Systkini Guð- mundar Magna: Erla, f. 5.5. 1938. Maður hennar er Er- ling Markús And- ersen, f. 11.8. 1936; Kristinn Marínó, f. 23.8. 1934, d. 15.7. 1979; Björgvin Rós- ant, f. 3.2. 1936, d. 29.1. 1937; Björgvin Rósant, f. 26.5. 1941, d. 10.12. 1972. Útför hefur farið fram. Elsku besti Gummi okkar er nú búinn að kveðja þennan heim og eftir situr mikill söknuður. Við höfum þekkt Gumma alla okkar ævi og eigum ekkert nema góðar minningar um hann. Við viljum nýta þetta tækifæri og minnast allra þeirra góðu stunda sem við áttum með honum, sem voru margar. Þegar við hugsum til baka vitum við ekki hvar við eig- um að byrja, enda margar minn- ingar um þennan eðalmann. Eins og minningar um öll jólaböllin sem við fórum með honum í Lækjarás og ferðirnar á böll í Tónabæ, þar sem hann var upp- tekinn að tæma öskubakkana á borðunum og fara með inn í eld- hús. Gummi var alltaf vel til hafð- ur, í skyrtu með bindi eða slaufu og þá var hann ánægður. Afmæl- in voru honum dýrmæt og var hann farinn að tala um afmælið sitt mörgum mánuðum áður en að því kom. Blóm og pönnukökur voru þar í uppáhaldi. Þakklátar erum við systur fyrir þann tíma sem við áttum með Gumma síð- ustu vikuna sem hann lifði og mun minningin um hann lifa með okkur um ókomna tíð. Gummi lést heima í faðmi fjölskyldunnar. Hvíldu í friði elsku Gummi okkar. Hafdís (Dísa) og Júlíana (Úlla). Guðmundur Magni Gunnarsson Við erum öll harmi slegin, það er svo ótrúlega sárt að þurfa að kveðja þig allt of snemma. Elsku elsku yndislega fallega Erna Líf okkar, af hverju fórstu, af hverju fórstu frá okk- ur, ekkert svar er við því fyrr en Erna Líf Gunnarsdóttir ✝ Erna Líf Gunnarsdóttir fæddist 11. apríl 1991. Hún lést 31. október 2021. Útförin fór fram 11. nóvember 2021. við hittumst á ný. Í hugum okkar eru ljúfar minningar, minningar um þig, þín fallegu bláu augu, þitt fallega dökka hár, þitt undurfallega bros, þín ljúfa fallega rödd gleymist aldr- ei, við mynd af þér geymum í huga okkar og hjarta um alla tíð. Þú hjá guðs englum situr, gætir elskulegu mömmu þinnar, pabba, Hannesar afa, Bínu ömmu eins og okkar hinna sem öll söknum þín svo óskaplega sárt, grátum okkar tárum yfir hvers vegna þú fórst, hvers vegna sorgin nístir alla sárt. Þú fórst veginn, veginn sem við för- um öll, seinna munt þú taka á móti okkur. Nú tekur elsku Erna amma á móti þér hlýjum örmum og þú í fangi hennar sit- ur. Elsku Erna Líf, blessuð sé minning þín og hvíl í friði. Guð gefi elsku mömmu þinni, pabba, afa, ömmu og fjölskyldu styrk á þessum erfiðu tímum. Elskum þig alltaf, Júlía og fjölskylda. ✝ Elvar Snær Jónsson fædd- ist 11. maí 1973. Hann lést á heimili sínu Steinahlíð 1 í Hafnarfirði 15. nóvember 2021. Foreldrar hans eru Lilja Ingibjörg Jóhannsdóttir, f. 30. apríl 1943, og Jón Sævar Alf- onsson, f. 8. janúar 1944. Systkini Elvars eru: Arn- ar Freyr, f. 9.1. 1969, Guð- björg, f. 30.4. 1974, d. 30.4. 1974, og Andri Örn, f. 25.9. 1976. Elvar reyndist mjög fatlaður við fæðingu. Vegna fötlunar sinnar naut hann margvís- legrar þjónustu gegnum árin. Fyrst á Barnaspítala Hringsins, síðar reglubundinnar þjálfunar í Kjarvalshúsi á Seltjarnarnesi og hluta dags á sérdeildinni Múlaborg. Á grunnskólaaldri dvaldi hann á Lyngási hluta dags og stundaði þá nám í Safamýrarskóla. Á sumrum dvaldi hann oft hluta sumars í sumarbúðunum í Reykjadal. Hinn 18. sept- ember 1993 flutti Elvar af heimili foreldra sinna á nýtt sambýli, Steinahlíð 1 í Hafnarfirði, þar sem hann bjó til æviloka. Eftir að hann flutti í Steinahlíð var hann í þjálfun hluta dags á hæfingarstöðinni Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði. Þá sótti sótti hann einnig nokkur námskeið í tónlist og vellíðan í vatni (sundlaug) hjá Fjölmennt. Þrátt fyrir fötlun sína var Elvar að öðru leyti mjög heilsuhraustur þar til hann átti við erfið veikindi að stríða rúma tvo síðustu mánuðina sem hann lifði. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 23. nóvember 2021, klukkan 13. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Þú komst eins og lítið, blessað blóm á bjartasta lífsins vori. Fuglarnir sungu með sætum róm, við svifum svo létt í spori. Þú gafst okkur dýpstan unaðsóm á ástinni og lífsins þori. (Guðrún Halldórsdóttir frá Brautarholti) Elvar Snær fæddist á björtu vori og var fjölskyldu sinni mik- ill gleðigjafi. Ég eins og aðrir fylgdist með uppvexti hans og fékk að kynnast honum allt þar til hann komst til fullorðinsára og flutti að heiman. Elvar Snær var brosmildur og kröftugur drengur. Foreldr- ar hans og bræður stóðu um hann vörð og kröfðust þess besta fyrir hann og uppskáru sem þau sáðu. Við brottför Elv- ars Snæs kemur margt fram í hugann um tilgang lífsins og margbreytileika þess en fyrst og fremst þakklæti fyrir að hafa átt frænda sem unni lífinu og fékk það hlutskipti að ryðja brautina fyrir svo marga. Vertu sæll elsku frændi og það þykist ég vita að þú haldir áfram þínu brautryðjendastarfi á nýjum slóðum. Innilegar samúðarkveðjur til frændfólks mín í Hlíðarbyggð 6. Ingibjörg Stefánsdóttir. Elvar Snær Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.