Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 23.11.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Frábærar hugmyndir koma til þín á færibandi um þessar mundir. Nú ertu kom- inn í þá aðstöðu að þú getur valið þau verk- efni sem þú vilt vinna. 20. apríl - 20. maí + Naut Leggðu þig fram um að bæta sam- skiptin við vini og ættingja. Bjóddu gestum í heimsókn og hafðu ánægju af fjölskyldu- boðum. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Breytingar eru yfirvofandi. Þú get- ur gefið ungum einstaklingi góða gjöf með því að kenna honum þolinmæði og sjálfs- aga. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Fólk er vingjarnlegt, fullt af stuðn- ingi og því þykir gaman að hitta þig. Eitt er víst; fólk getur treyst þér og það gerir það. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Stundum getur reynst nauðsynlegt að grípa til aðgerða áður en allir hlutir eru komnir í ljós. Nú er að bretta upp ermarnar og drífa sig í að klára hlutina. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Komdu fram við aðra eins og þú kýst að aðrir komi fram við þig. Eyddu ekki meiru en þú aflar eða átt inni og varastu fljótfærni. 23. sept. - 22. okt. k Vog Mundu að lesa smáa letrið í öllum þeim skjölum sem fyrir þig eru lögð til undirrit- unar. Ekki gefa neinum færi á að gagnrýna þig, sérstaklega ekki sjálfum þér. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þeir eru margir sem bíða þess að sjá þig láta athafnir fylgja orðum. Vertu víðsýnn og gefðu skoðunum annarra gaum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú ert að öllu jöfnu varkár í pen- ingamálunum en í dag er hætt við að þú fall- ir í einhvers konar freisni. Finnist þér þú vera kominn í ógöngur skaltu leita ráða hjá öðrum. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Ýmis fjölskyldumál eru í brenni- depli núna. Ef þú ert fastur einhverra hluta vegna er dagurinn í dag sá rétti til þess að losa sig. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Láttu ekki draga þig inn í deilur manna á vinnustað þínum. Ef það er ekki hægt þá biddu vinnufélaga þína að láta þig í friði. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þrátt fyrir löngun þína til þess að ferðast þarftu á hvíld að halda. Vertu varkár og eyddu ekki of miklu fé í skemmtanir og rómantík. hann, sem er langyngstur í systkina- hópnum, tíu ár eru á milli hans og Jógu systur hans sem er næstyngst. „Ég var sparibarn, og meðhöndl- aður sem litli prinsinn, að sögn systk- ina minna. Bróðir minn stríddi mér á því að ég fengi alltaf allt. Þegar ég fékk strigaskó þá sagði hann að aldr- ei hefði hann fengið slíka skó, heldur hefði hann þurft að ganga í gúmmí- túttum. Ég grét yfir því hvað hann hafði átt bágt í samanburði við mig.“ Jóhann segir að Jóga systir hans sé örlagavaldur í lífi hans, hún sé ástæðan fyrir því að hann valdi að verða leikari. „Hún ætlaði að verða leikkona og var í leikfélagi Kópavogs á þeim ár- um sem hún var mikið að passa mig, litla bróður sinn. Ég fór með henni á allar æfingar hjá leikfélaginu og þar fékk ég í raun leiklistarbakteríuna. Jóga lenti í bílslysi í Bandaríkjunum og þurfti að láta af draumi sínum um að verða leikkona, en ég tók í raun ákvörðun um að verða leikari þegar ég var sex ára.“ J óhann G. Jóhannsson fædd- ist í Reykjavík 23.11. 1971 en hann er alinn upp í vesturbæ Kópavogs. Hann gekk í Kársnesskóla og Þinghólsskóla og lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Jóhann lauk BA-gráðu í leiklist og kvikmyndafræðum frá University of Hartford í Connecticut og er með MBA-gráðu frá University of Exeter. Hann hefur starfað sem leikari að mestum hluta en einnig framleitt kvikmyndir, sjónvarpsþætti og leik- sýningar; leikstýrt, stýrt sjónvarps- og útvarpsþáttum og rekið fyrirtæki af ýmsum toga. Jóhann hefur auk þess starfað við ýmis markaðsstörf og nýsköpun. Nýlegustu leikverk- efnin eru kvikmyndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, með Will Ferrell, His Dark Materials, Systrabönd og Fortitude með Dennis Quaid. Önnur hlutverk eru í Flag of Our Fathers, Shetland, Rig 45, Arctic Circle (Ivalo) og Djúp- inu. Jóhann fór með stór hlutverk í sjónvarsþáttunum Hrauninu, Skammerens Datter, og í þýsku sjón- varpsseríunni Islandkrimi með Frönku Potente. „Fram undan eru sjónvarpsþætt- irnir Vitjanir, sem verða frumsýndir á RÚV um páskana, en þar leik ég karlaðalhlutverkið. Ég leik líka hrotta í sænsku sjónvarpsþáttunum Hamilton, þar sem Jakob Oftebro vinur minn leikur Hamilton, en við höfum oft leikið saman. Þetta er önn- ur serían og fer í loftið um jólin. Núna er ég aðeins að kíkja á Reyni vin minn sem leikstýrir áramóta- skaupinu, svo það er alltaf eitthvað í pottinum,“ segir Jóhann, sem býr á Seltjarnarnesinu ásamt fjölskyldu sinni, en hann segir sjóleiðina þaðan mjög stutta yfir á æskuslóðirnar, Kársnesið. „Ég er mikill vesturbæingur Kópa- vogs og ég kalla Kársnesið ævinlega rojal-Kópavog. Það var dásamlegt að alast upp á Kársnesinu í kringum 1980, þar var mikið frelsi og öryggi, fjaran til að leika sér og þarna eign- aðist ég mína bestu vini. Við félag- arnir sem kynntumst í sex ára bekk höldum enn sambandi,“ segir Jó- Jóhann hefur leikið í yfir 50 kvik- myndum og sjónvarpsverkefnum ásamt miklum fjölda leikverka og einnig hefur hann leikstýrt fjölda verka. Þegar hann er spurður hvort eitthvað standi upp úr eða honum þyki vænna um en annað á leiklist- arferlinum er hann fljótur til svars. „Mér þykir vænst um fólkið sem ég hef kynnst á þessari vegferð. Ég hugsa alltaf með hlýju til Hársins, sem sett var upp 1994 og ég lék í, en það var eitt af því fyrsta sem ég tók þátt í eftir að ég útskrifaðist. Það var algerlega sérstakt og margir af mín- um bestu vinum í dag eru krakkarnir úr Hárinu, við höfum starfað heil- mikið saman síðan, Hilmir Snær, Ingvar Sig., Margrét Vilhjálms og fleiri sem voru með mér í Hárinu. Þetta var algerlega dásamlegur tími, við vorum eins og ein stór fjölskylda og allir með hjartað á réttum stað. Öll verkefni sem ég hef tekið þátt í eiga sitt pláss í hjartanu, alveg sama hvernig þau heppnast, það er alltaf eitthvað sem maður tekur inn í sitt tilfinningalíf og reynslubanka. Mér þykir líka sérstaklega vænt um kvik- myndina Nonna og Manna, sem ég lék í þegar ég var 15 ára. Mér líður eins og ég sá náskyldur frændi þeirra Garðars Cortes og Einars sem léku Nonna og Manna, og þeir eru enn sem bræður. Það myndast svo sterk bönd og við hittumst enn og höldum hópinn. Fyrstu skrefin eru alltaf eft- irminnilegust.“ Jóhann stofnaði árið 2002 fyrir- tækið Snilli, sem er viðburða- fyrirtæki og tengiliðaskrifstofa fyrir listamenn, skemmtikrafta og tónlist- arfólk. „Ég hef komið að alls konar frumkvöðlastarfi, og þetta fer allt vel saman, reynsla mín og kunnátta.“ Áhugamálin eru fjölbreytt, íþróttir eru þar ofarlega á blaði sem og veiði og hestamennska. „Þegar ég var sex ára fór pabbi aftur í hestamennsku og ég er eig- inlega alinn upp á hestbaki. Ég er verðlaunaður hestamaður frá barns- aldri, ég var á námskeiðum og í sýn- ingarflokki hjá Sigrúnu Sigurð- ardóttur ásamt ýmsum snillingum sem eru hrossaræktendur í dag. Ég fór til Þýskalands að temja og þjálfa Jóhann G. Jóhannsson leikari og framkvæmdastjóri fimmtugur Fjölskyldan Jóhann og Guðrún ásamt sonum sínum Jóhanni og Krumma og tengdadótturinni Elizabethu Tinnu Arnardóttur, kærustu Jóhanns. Tamdi og þjálfaði hesta 17 ára Ljósmynd/Jónatan Grétarsson Vinir Jóhann og hvolpurinn Bjarmi, nýjasti fjölskyldumeðlimurinn. Þær Hjördís Lóa Óttars- dóttir, Katrín Borg Jakobs- dóttir og Mist Sigurbjörns- dóttir voru með tombólu í haust til styrktar Rauða krossinum. Þessar vösku búðakonur ákváðu að reka verslun í árlegri fjölskyldu- útilegu í Þórsmörk í byrjun október, sem var haldin í skála Ferðafélags Íslands í Langadal. Þær söfnuðu 23.740 kr. sem þær ætla að færa Rauða krossi Íslands. Tombóla Reykjavík Keonna Brielle Alquino Estrada fæddist 9. nóvember 2020 á Landspít- alanum við Hringbraut. Hún vó 3.120 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Oscar Amor Estrada og Mary Jean Alquino Estrada. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.