Morgunblaðið - 23.11.2021, Blaðsíða 26
Bandaríkjamaðurinn Collin Morikawa
hefur átt góðu gengi að fagna í golf-
inu á árinu og bætti sigri á afreka-
skrána um helgina.
Morikawa sigraði á DP World
Championship-mótinu sem haldið var
í Dubai en tilheyrir Evrópumóta-
röðinni. Var raunar um lokamót
keppnistímabilsins á Evrópu-
mótaröðinni að ræða og því til mikils
að vinna.
Morikawa lauk keppni á samtals 17
höggum undir pari og lék lokahring-
inn á 66 höggum. Morikawa varð
jafnframt efstur á stigalista Evr-
ópumótaraðarinnar og er fyrsti
Bandaríkjamaðurinn til að afreka
það. Hann sigraði á The Open á Eng-
landi í sumar og taldi það drjúgt á
stigalistanum. Fyrir efsta sætið á
stigalistanum og sigurinn í loka-
mótinu fær Morikawa um 500 millj-
ónir króna í verðlaunafé. Morikawa
er 24 ára gamall og hefur tvívegis
sigrað á risamótum í íþróttinni.
kris@mbl.is
Fyrstur Bandaríkjamanna
AFP
Fyrstur Collin Morikawa
er fyrsti Bandaríkjamað-
urinn sem afrekar það að
enda í efsta sæti stigalista
Evrópumótaraðarinnar.
FRAKKLAND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Franska handknattleiksliðinu Aix,
sem Kristján Örn Kristjánsson
leikur með, hefur tekist að fylgja
eftir góðum árangri síðasta tíma-
bils í upphafi þessa tímabils. Aix
hefur unnið sjö leiki af fyrstu tíu í
efstu deild í Frakklandi, gert eitt
jafntefli en tapað tveimur leikjum.
Á föstudagskvöldið var Kristján
markahæstur með átta mörk þeg-
ar liðið vann Cesson Rennes 25:24
eftir spennandi leik.
„Byrjunin á tímabilinu hefur
verið mjög góð. Við sitjum í 3. sæti
sem er bara mjög fínt. Á síðasta
tímabili náðum við fjórða sæti sem
var besti árangur liðsins til þessa.
Við erum því í góðri stöðu um
þessar mundir,“ sagði Kristján
Örn þegar Morgunblaðið spjallaði
við hann á dögunum. Segir hann
árangur liðsins síðasta vetur hafa
komið talsvert á óvart.
„Ég myndi segja að við höfum
komið töluvert á óvart. Liðið skipti
um þjálfara og leikskipulagið
breyttist bæði vegna hans en einn-
ig vegna nýrra leikmanna. Mér er
sagt að áður en ég kom til liðsins
hafi leikstíll liðsins verið hægur.
Að því leytinu til komum við því
sannarlega á óvart á síðasta tíma-
bili. Þetta tímabilið höfum við stig-
ið fleiri skref fram á við.“
Mjög sáttur við sitt hlutverk
Kristján Örn vakti snemma at-
hygli með yngri landsliðum Ís-
lands og lék þar með öflugum leik-
mönnum sem eins og hann hafa
skilað sér upp í A-landsliðið. Má
þar nefna Ómar Inga Magnússon,
Elvar Örn Jónsson, Arnar Frey
Arnarsson og Ými Örn Gíslason
sem dæmi. Kristján Örn raðaði inn
mörkum fyrir Fjölni þegar liðið
var í efstu deild og fór þaðan til
ÍBV.
Fór hann utan í fyrra og má
segja að Kristján hafi valið vel
þegar hann hóf atvinnumannafer-
ilinn. Hann fær mikið að spila hjá
liði sem gengur vel í sterkri deild.
„Ég er mjög sáttur við mitt hlut-
verk í liðinu. Ég fæ að spila eins
mikið og ég get og hef þar af leið-
andi ekki yfir neinu að kvarta.“
Eru gerðar kröfur til Kristjáns
um skora mikið fyrir Aix og vera
áberandi í sókninni? „Það hefur
eiginlega alltaf á mínum ferli verið
mitt hlutverk að skjóta mikið á
markið. Ég á að vera skotvopn fyr-
ir liðið. Sjálfur set ég þá pressu á
mig. Ég er vanur því að skjóta á
markið fyrir utan og af hverju ekki
að halda því áfram? Aðalmálið er
samt auðvitað að liðið vinni leikina.
Við stefnum eins hátt í deildinni og
hægt er. Það væri draumur að ná
Meistaradeildarsæti,“ sagði Krist-
ján sem nefnir Meistaradeildina en
þangað komast einungis sextán lið.
Í þeirri keppni í vetur eru stórliðin
París Saint-Germain og Montpel-
lier fulltrúar Frakklands. „Félagið
stefnir þangað og við höfum það
alltaf á bak við eyrað að reyna að
ná Meistaradeildarsæti,“ sagði
Kristján.
Kynslóðaskiptunum er lokið
Samkeppnin um skyttustöðuna
hægra megin í íslenska landsliðinu
er geysilega hörð. Ómar Ingi leik-
ur frábærlega með toppliðinu í
Þýskalandi, Teitur Örn Einarsson
hefur stimplað sig hratt inn hjá
stórliði Flensburg og ólympíu-
verðlaunahafinn Alexander Pet-
ersson hefur verið með á tveimur
síðustu stórmótum.
Kristján fékk að spreyta sig á
HM í Egyptalandi í janúar og æfði
með landsliðinu hérlendis á dög-
unum. Þá undirbjó hópurinn sig
fyrir lokakeppni EM sem fram fer
í janúar í Ungverjalandi og Slóv-
akíu. „Ég er mjög spenntur fyrir
EM. Við lentum í 20. sæti á HM á
síðasta stórmóti en það var ekki
niðurstaðan sem við ætluðum okk-
ur. Við spiluðum erfiða leiki og
gekk nokkuð vel en töpuðum þeim
yfirleitt með eins eða tveggja
marka mun. Þannig er boltinn bara
en núna ætlum við að stefna
hærra,“ sagði Kristján og bendir á
að slíkt hafi komist til tals á fund-
um hjá hópnum.
„Kynslóðaskiptunum er hér með
lokið eins og Jóhann Ingi sagði við
okkur. Nú ætlum við að sýna hvað
við getum,“ sagði Kristján Örn
Kristjánsson enn fremur og á þar
við Jóhann Inga Gunnarsson sál-
fræðing sem í eina tíð var lands-
liðsþjálfari en einnig þjálfari Kiel
og Essen.
Væri draumur
að komast í
Meistaradeild
Morgunblaðið/Unnur Karen
Frakkland Gott gengi Aix og Kristjáns Arnar Kristjánssonar heldur áfram
og liðið er í toppbaráttunni eftir sjö sigra í fyrstu tíu leikjum tímabilsins.
- Lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar
á meðal þeirra bestu í Frakklandi
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021
Danmörk
SönderjyskE – AaB ................................. 1:3
- Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður hjá SönderjyskE á 63. mín-
útu.
Staðan:
Midtjylland 16 11 1 4 30:15 34
København 16 8 6 2 31:12 30
AaB 16 8 4 4 26:17 28
Randers 16 8 4 4 23:18 28
Brøndby 16 7 6 3 24:20 27
Silkeborg 16 5 9 2 25:15 24
AGF 16 5 5 6 14:18 20
Viborg 16 4 7 5 25:26 19
OB 16 3 7 6 23:24 16
Nordsjælland 16 4 4 8 20:29 16
SønderjyskE 16 2 3 11 10:32 9
Vejle 16 2 2 12 15:40 8
Svíþjóð
Norrköping – Djurgården...................... 1:1
- Ari Freyr Skúlason lék ekki með Norr-
köping vegna meiðsla. Jóhannes Kristinn
Bjarnason var ónotaður varamaður.
Staðan:
Malmö 28 16 7 5 57:30 55
Djurgården 28 16 6 6 43:27 54
AIK 28 16 5 7 37:21 53
Elfsborg 28 16 4 8 46:29 52
Hammarby 28 14 7 7 49:38 49
Kalmar 28 13 8 7 38:33 47
Norrköping 28 13 5 10 43:35 44
Häcken 28 9 9 10 46:42 36
Gautaborg 28 9 8 11 36:38 35
Mjällby 28 8 10 10 31:27 34
Varberg 28 8 10 10 32:33 34
Sirius 28 9 7 12 34:49 34
Halmstad 28 6 12 10 21:26 30
Degerfors 28 8 4 16 29:50 28
Örebro 28 4 5 19 21:55 17
Östersund 28 3 5 20 24:54 14
Holland
B-deild:
Jong Ajax – Roda..................................... 2:1
- Kristian Nökkvi Hlynsson lék fyrstu 81
mínútuna með Jong Ajax.
Bandaríkin
Úrslitakeppnin, 1. umferð:
New York City – Atlanta ........................ 2:0
- Guðmundur Þórarinsson var varamaður
hjá New York og kom ekki við sögu.
_ New York City mætir New England Re-
volution í undanúrslitum Austurdeildar 30.
nóvember.
Ítalía
Verona – Empoli....................................... 2:1
Torino – Udinese ...................................... 2:1
Staða efstu liða:
Napoli 13 10 2 1 26:7 32
AC Milan 13 10 2 1 29:15 32
Inter Mílanó 13 8 4 1 32:15 28
Atalanta 13 7 4 2 27:17 25
Roma 13 7 1 5 23:15 22
Lazio 13 6 3 4 25:21 21
Fiorentina 13 7 0 6 20:17 21
4.$--3795.$
Olísdeild karla
Valur – Afturelding .............................. 27:25
Staðan:
Haukar 10 7 2 1 301:264 16
Valur 9 6 2 1 261:228 14
FH 9 6 1 2 253:227 13
ÍBV 8 6 0 2 243:229 12
Stjarnan 8 6 0 2 240:230 12
Afturelding 9 4 2 3 263:251 10
Fram 8 4 0 4 222:224 8
Selfoss 8 3 0 5 201:207 6
KA 9 3 0 6 248:269 6
Grótta 7 2 1 4 181:187 5
HK 8 0 0 8 198:229 0
Víkingur 9 0 0 9 192:258 0
Grill 66 deild karla
Kórdrengir – Hörður ........................... 29:31
Valur U – Berserkir ............................. 37:21
Staðan:
Hörður 6 6 0 0 208:171 12
ÍR 6 5 0 1 213:179 10
Fjölnir 6 5 0 1 186:165 10
Þór 6 3 0 3 176:169 6
Selfoss U 4 3 0 1 120:113 6
Afturelding U 6 3 0 3 158:165 6
Haukar U 5 2 0 3 135:132 4
Kórdrengir 5 2 0 3 140:139 4
Valur U 5 1 0 4 140:148 2
Vængir Júpíters 7 1 0 6 162:218 2
Berserkir 6 0 0 6 152:191 0
Umspil EM U18 kvenna
Leikið í Serbíu:
Slóvenía – Ísland .................................. 21:24
Serbía – Slóvakía .................................. 30:29
_ Sigurliðið í riðlinum kemst á EM 2023.
Ísland mætir Slóvakíu í dag og Serbíu á
fimmtudag.
%$.62)0-#
NBA-deildin
LA Clippers – Dallas............................ 97:91
Detroit – LA Lakers ........................ 116:121
Chicago – New York ........................ 109:103
Phoenix – Denver ............................... 126:97
Golden State – Toronto.................... 119:104
4"5'*2)0-#
Lilja Ágústsdóttir var í aðal-
hlutverki í gær þegar U18 ára
landslið stúlkna í handbolta sigraði
Slóveníu 24:21 í fyrsta leiknum í
umspilsriðli fyrir Evrópumótið sem
fram fór í Belgrad í gær. Lilja skor-
aði átta mörk í leiknum en þær
Inga Dís Jóhannsdóttir og Tinna
Sigurrós Traustadóttir skoruðu
fjögur mörk hvor fyrir Ísland og
Embla Steindórsdóttir þrjú mörk.
Ingunn María Brynjarsdóttir varði
sjö skot í marki íslenska liðsins og
Ísabella Björnsdóttir sex skot. Ís-
land mætir Slóvakíu í dag.
Lilja með átta
gegn Slóveníu
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Öflug Lilja Ágústsdóttir og íslenska
liðið fögnuðu góðum sigri í gær.
Sigmundur Már Herbertsson er
orðinn leikjahæsti dómari frá upp-
hafi í leikjum á vegum Körfuknatt-
leikssambands Íslands. KKÍ skýrði
frá þessu í gær en þar kom fram að
Sigmundur hefði nú komið að dóm-
gæslunni í 2.054 leikjum á vegum
KKÍ. Rögnvaldur Hreiðarsson var
leikjahæstur með 2.053 leiki en
hann lét staðar numið í dómgæsl-
unni eftir síðasta keppnistímabil.
Sigmundur sætti lagi og tók fram
úr Rögnvaldi þegar Sigmundur
dæmdi leik Stjörnunnar og Tinda-
stóls á dögunum.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Dæmir Sigmundur Már Herberts-
son hefur dæmt mest allra.
Sigmundur sló
leikjametið
Kristján Örn Kristjánsson er
næstmarkahæsti leikmaður
Aix á tímabilinu í frönsku 1.
deildinni í handbolta með 50
mörk og sá fimmtándi marka-
hæsti í deildinni.
Mohammad Sanad, egypsk-
ur hornamaður Nimes, er lang-
markahæstur í deildinni með
84 mörk, Dragan Gajic, horna-
maður frá Slóveníu, er næstur
með 73 mörk fyrir Limoges og
franski línumaðurinn Valentin
Aman hefur skorað 61 mark
fyrir Créteil, eins og spænski
hornamaðurinn Valero Rivera
fyrir Nantes.
Daninn Mikkel Hansen, með
54 mörk fyrir París SG, og Sló-
veninn Jure Dolenec með 51
mark fyrir Limoges, eru meðal
þekktra leikmanna fyrir ofan
Kristján á markalistanum.
Fimmtándi
markahæstur