Morgunblaðið - 23.11.2021, Page 27

Morgunblaðið - 23.11.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2021 Íslenska karlalandsliðið í handknattleik er á leið á Evr- ópumeistaramótið 2022 sem fram fer í Ungverjalandi og Sló- vakíu dagana 13.-30. janúar. Þetta er tólfta Evrópumeist- aramótið í röð sem liðið tekur þátt í en árin 2016 og 2018 komst liðið ekki áfram í milliriðla og hafnaði í 13. sæti. Liðið komst reyndar í milliriðla í Aust- urríki, Noregi og Svíþjóð í fyrra og hafnaði þá í 11. sæti. Guðmundur Þórður Guð- mundsson er á leið á sitt þriðja stórmót með íslenska liðið frá því hann var ráðinn landsliðs- þjálfari í febrúar 2018 en hann stýrði liðinu auðvitað frá 2001 til 2004 og aftur frá 2008 til 2012. Hann er eini þjálfarinn sem hefur stýrt íslenska liðinu til verðlauna á stórmóti. Liðið hefur verið í ákveðinni uppbyggingu undanfarin ár und- ir stjórn Guðmundar en Evrópu- mótið í janúar verður frábær prófraun fyrir liðið. Það er alveg óhætt að segja að við séum með heimsklassaleikmenn í mörgum lykilstöðum í dag. Aron Pálmarsson, Haukur Þrastarson, Sigvaldi Björn Guð- jónsson, Ólafur Guðmundsson og Teitur Örn Einarsson leika all- ir í Meistaradeildinni með sínum liðum og eru í stórum hlut- verkum. Ómar Ingi Magnússon og Bjarki Már Elísson eru á með- al markahæstu leikmanna þýsku 1. deildarinnar og þá eru mjög margir leikmenn í lykilhlutverki með sínu liði í Þýskalandi, hvort sem er í vörn eða sókn. Ef horft er á mannskapinn sem landsliðsþjálfarinn getur valið úr er alveg óhætt að leyfa sér að dreyma aðeins núna. Hvort liðið muni berjast um verðlaun skal látið ósagt en það er hægt að gera kröfu á mun betri árangur núna en undan- farin ár. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is FÓTBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Knattspyrnukonan Natasha Anasi hefur átt viðburðaríkar síðustu vikur en í lok októbermánaðar gekk hún til liðs við Breiðablik frá Keflavík. Natasha, sem er þrítug, lék með Keflavík frá 2017 til ársins 2021 og var fyrirliði liðsins í fjögur ár en hún hefur verið besti leikmaður Keflvík- inga undanfarin ár. Þá var hún valin í íslenska lands- liðshópnum sem mætir Japan og Kýpur á fimmtudag og næsta þriðju- dag en þetta er í annað sinn á ferl- inum sem hún er valin í íslenska landsliðið. Mjög erfið ákvörðun „Það var mjög erfið ákvörðun að taka að yfirgefa Keflavík,“ sagði Na- tasha í samtali við Morgunblaðið. „Ég varð samningslaus í október og ég tók mér því góðan tíma í að fara yfir næstu skref á mínum ferli. Tímabilið með Keflavík var bæði langt og strembið enda tekur það á andlega að vera stöðugt í botnbar- átt. Þetta var rétti tíminn til þess að breyta til. Ég ber gríðarlega mikla virðingu fyrir Keflavík og öllu því sem félagið hefur gert fyrir mig. Ég gaf allt mitt fyrir félagið og markmiðið hjá klúbbnum var að halda sér í deild- inni eftir að hafa komið upp sem ný- liðar. Það tókst og ég er líka með ákveðin markmið sem leikmaður og mig langaði að fylgja þeim eftir,“ sagði Natasha. Breiðablik hentaði vel Varnarmaðurinn varð samnings- laus í október og voru mörg lið sem reyndu að krækja í hana. „Ég fann fyrir miklum áhuga, ég ætla ekki að neita því. Ég fann það hins vegar, eftir að hafa rætt við for- ráðamenn Breiðabliks, að Kópavog- urinn væri rétti staðurinn fyrir mig. Þeirra framtíðarsýn rímaði vel við mín persónulegu markmið og þetta er félag sem hentar mér mjög vel að öllu leyti. Keflavíkurliðið var mitt annað heimili og ég var aðeins að leita eftir því líka. Ég sá Breiðablik fyrir mér sem mitt næsta heimili ef svo má segja og það átti stóran þátt í minni ákvörðun. Ég ræddi svo auðvitað vel og lengi við fjölskylduna mína og að endingu vorum við öll sammála um ég myndi ganga til liðs við Breiða- blik.“ Stefnir á lokakeppnina Natasha lék sína fyrstu A- landsleiki gegn Norður-Írlandi og Skotlandi á Pinatar-Cup á Spáni í mars á síðasta ári en hefur ekki ver- ið valin í hópinn síðan. „Það kom mér klárlega á óvart að fá símtalið frá Þorsteini [Halldórs- syni]. Það hefur verið mín tilfinning að ég sé búin að vera nálægt því að vera valin nokkrum sinnum en það hefur kannski vantað herslumuninn upp á. Á sama tíma er samkeppnin gríðarlega mikil og það eru auðvitað margir frábærir miðverðir í landslið- inu sem eru búnir að vera mjög lengi í hópnum. Það hefur lengi verið markmið hjá mér að festa mig í sessi hjá landslið- inu og eftir að hafa verið valin í hóp- inn í fyrsta sinn á síðasta ári þá ein- hvern veginn varð það markmið sterkara. Á sama tíma hef ég líka reynt að standa mig vel með mínu félagsliði enda er valið ekki undir sjálfri mér komið. Ég hef því reynt að einblína á þá hluti sem ég get sjálf stjórnað, sem var að standa mig vel á vellinum. Ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að sýna landsliðsþjálfurunum hvað ég get og það er undir sjálfri mér komið að nýta það sem allra best. Það er ekkert leyndarmál að mig langar að vera í lokahópnum sem fer á Evrópumeistaramótið og ég tel mig hafa margt fram að færa sem gæti nýst liðinu á stórmóti.“ Gagnkvæm virðing Landsliðskonan viðurkennir að það hafi verið erfitt að kveðja Gunn- ar Magnús Jónsson, þjálfara Kefla- víkur, en þau hafa unnið náið saman undanfarin fimm ár. „Það var mjög erfitt að segja Gunnari Magnúsi [Jónssyni] að ég myndi ekki spila með Keflavík á næstu leiktíð. Samband okkar hefur verið algjörlega frábært síðan ég byrjaði að spila fyrir hann og ég hef verið fyrirliðinn hans í mjög langan tíma. Við erum líka frábærir vinir og það var því mjög erfitt að hringja í hann og segja honum að ég yrði ekki í Keflavíkurtreyjunni næsta sumar. Á sama tíma var hann mjög ánægður fyrir mína hönd en auðvit- að var hann mjög svekktur líka því hann vildi ekki missa mig. Þrátt fyr- ir að ég sé búin að skipta yfir í Breiðablik er samband okkar mjög gott og það verður það áfram enda berum við mikla virðingu hvort fyrir öðru,“ bætti Natasha við í samtali við Morgunblaðið. Símtalið kom skemmtilega á óvart - Natasha Anasi gekk til liðs við Breiðablik eftir fimm ár í Keflavík Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íslensk Natasha Anasi hefur leikið á Íslandi í átta ár með ÍBV og Keflavík og spilað tvo landsleiki. Nú er hún komin í raðir Breiðabliks. Knattspyrnukonan Dagný Brynj- arsdóttir er í liði umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir góða frammistöðu með West Ham gegn Tottenham um nýliðna helgi. Leiknum lauk með 1:0- heimasigri West Ham í Dagenham en Dagný skoraði sigurmark leiks- ins á 69. mínútu. Þetta var hennar annað mark í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu í sjö leikjum en hún hefur byrjað sex leiki í deildinni það sem af er tímabili. West Ham er í fimmta sæti deildarinnar með 12 stig eftir átta umferðir. Í liði umferðarinnar á Englandi Ljósmynd/@westhamwomen Mark Dagný fagnar marki sínu gegn Tottenham um helgina. Hornamaðurinn Þórey Rósa Stef- ánsdóttir hefur verið kölluð inn í ís- lenska landsliðið í handknattleik. Þórey Rósa tekur sæti Tinnu Sólar Björgvinsdóttur sem þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Íslenska kvennalandsliðið tekur þátt í æfingamóti í Cheb í Tékklandi dagana 25.-27. nóv- ember ásamt Tékklandi, Noregi og Sviss. Þórey Rósa, sem er 32 ára gömul og samningsbundin Fram, er á meðal reyndustu leikmanna ís- lenska liðsins en hún á að baki yfir hundrað landsleiki. Þórey kölluð í landsliðið Morgunblaðið/Eggert Reynsla Þórey Rósa er á meðal reyndustu leikmanna Íslands. Björgvin Páll Gústafsson átti stórleik í marki Vals- manna þegar liðið tók á móti Aftureldingu í úrvals- deild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í Origo- höllinni á Hlíðarenda í níundu umferð deildarinnar í gær. Leiknum lauk með tveggja marka sigri Valsmanna, 27:25, en Björgvin Páll varði 20 skot í markinu, þar af tvö vítaskot, og var með 44% markvörslu. Jafnfræði var með liðunum til að byrja með en Valsmenn sigldu hægt og rólega fram úr eftir því sem leið á leikinn. Þeir náðu mest sex marka forskoti í síðari hálfleik og þrátt fyrir hetjulega baráttu tókst Mosfellingum ekki að ógna forskotinu. Tumi Steinn Rúnarsson var markahæstur Valsmanna með sex mörk og Benedikt Gunnar Óskarsson og Finnur Ingi Stefánsson skoruðu fimm mörk hvor. Þorsteinn Leó Gunnarsson var markahæstur Mos- fellinga með átta mörk og Árni Bragi Eyjólfsson skoraði sex mörk. Andri Sigmarsson Scheving varði níu skot í marki Aftureldingar. Valsmenn eru með 14 stig í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum minna en Haukar, en Valur á leik til góða á Hauka. Afturelding er með 10 stig í sjötta sætinu. Morgunblaðið/Unnur Karen Gegnumbrot Valsarinn Tryggvi Garðar Jónsson brýtur sér leið í gegnum vörn Aftureldingar á Hlíðarenda í gær. Fór á kostum í marki Valsmanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.