Morgunblaðið - 23.11.2021, Page 32
Efni í þætti kvöldsins:
María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistuheimil-
anna ræðir við þáttastjórnandann um svokallaða
„Gylfaskýrslu„ sem samin var að beiðni ráðherra eftir
áralangar deilur ríkisins og hjúkrunaheimila um
rekstrarvanda heimilanna.
Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur og fyrrv.
ráðherra veltir fyrir sér hugmynd Helga Vilhjálms-
sonar í Góu sem gengur út á að eldri borgarar selji
fasteignir sínar á efri árum og njóta ávaxtanna og flytji
sig í leiguhúsnæði sem Helgi vill að lífeyrissjóðirnir
reisi og leigi til sjóðsfélaga.
Pálmi V. Jónsson yfirlæknir öldrunarlækninga-
deildar Landspítlans fjallar um vandamál bráða-
móttöku Landspítala og hvaða áhrif það hefur á
öldrunarþjónustu spítalans.
Bárður Guðmundarson íþróttakappi og athafna-
maður á Selfossi rifjar um gamla tímann á Selfossi
allt frá barnæsku fram á daginn í dag. Ef hlutirnir
fengust í Kaupfélaginu þurfti ekki að fara til Reykja-
víkur í þá daga.
Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson
Lífið er lag
kl. 21.30 á Hringbraut í kvöld
Fylgstu með!
Í kvöld
á Hringbraut
Bárður Guðmundarson
María Fjóla Harðardóttir
Rússneski píanistinn
Slava Poprugin leikur í
Norðurljósasal Hörpu í
kvöld kl. 20 og með hon-
um sellóleikarinn Ólöf
Sigursveinsdóttir. Munu
þau m.a. flytja Trois Piec-
es fyrir selló og píanó eft-
ir Nadiu Boulanger og
sellósónötu Richards
Strauss. Poprugin út-
skrifaðist frá rússnesku
Gnessin-akademíunni í Moskvu og vinnur með lista-
mönnum á borð við Martin Fröst, Yury Bashmet og
Alexander Kagan og er þekktur fyrir framúrskarandi og
kraftmikinn flutning. Ólöf kemur reglulega fram, síðast
í Hollandi á alþjóðlegri hátíð sellóleikara, og kynntist
Poprugin síðastliðið sumar í Hollandi. Poprugin hefur
leikið inn á fjölda hljómplatna og stjórnað fjölda hljóð-
ritana sem upptökustjóri fyrir útgáfur á borð við Gram-
ola, Live Classics og Artservice Music Publishing. Hann
rekur nú eigið hljóðver.
Poprugin og Ólöf í Norðurljósum
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 327. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Við stefnum eins hátt í deildinni og hægt er. Það væri
draumur að ná Meistaradeildarsæti,“ segir Kristján Örn
Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, sem er í
toppbaráttu með Aix í Frakklandi og í harðri baráttu um
sæti í íslenska landsliðinu fyrir Evrópumótið í janúar. »27
Dreymir um sæti í Meistaradeild
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Frímerkja- og póstkortasafnarinn
Reynir Sverrisson hefur staðið vakt-
ina í Kolaportinu síðan 1. október
1994. Hann var á frímerkjasýningu
og uppboði í Kaupmannahöfn í lið-
inni viku, þar sem hann seldi frí-
merki, kort og bréf sem tengjast
Danmörku, og keypti stór íslensk
söfn með merkjum frá 1873 til 1944.
„Það er margt skemmtilegt í þessu
góssi og ég segi gjarnan að ég komi
heim með handritin,“ segir hann.
„Ég er annars forfallinn safnari,“
heldur Reynir áfram. „Ég hef safnað
frímerkjum frá barnsaldri en er nú
fyrst og fremst á eftir tengdum hlut-
um eins og gömlum íslenskum póst-
kortum og gömlum umslögum frá
því fyrir lýðveldisstofnun.“
Þegar Reynir var sex ára fékk
hann hettusótt og lá veikur heima.
„Þá færði amma mér gamlan skó-
kassa fullan af frímerkjum og póst-
kortum, sagði mér að leysa upp
merkin og kenndi mér réttu hand-
brögðin. Áráttan er því henni að
kenna – eða þakka.“ Fjölskyldan
hafi reglulega gaukað að honum
merkjum og kortum og faðir hans
hafi verið í siglingum og keypt pakka
erlendis. „Þetta var mjög spennandi
og ég lærði strax mikið af þessu.“
Frímerkjasafnið var orðið viða-
mikið um fermingu. „Þá beindist
áhuginn fyrst og fremst að íslensk-
um frímerkjum og kortum,“ segir
safnarinn. Auðvelt hafi verið að eign-
ast flest útgefin frímerki hérlendis
og þá hafi næsta skref verið að eign-
ast frímerki á umslögum og finna
merki með gömlu póststimplunum,
sem hafi verið mismunandi um allt
land. „Póstsagan er svo heillandi, því
það er svo margt í henni, grúskið í
henni er innlit í þjóðfræðina.“
Heillandi heimur
Frá því Reynir fór út í verslunar-
rekstur hefur hann fyrst og fremst
hugsað um að útvega merki og kort
fyrir aðra en látið gott heita með eig-
ið safn. „Ég kaupi dánarbú og stórar
einingar, flokka varninginn og út-
vega söfnurum það sem þá vantar.“
Hann leggur áherslu á að þótt hann
vanti ýmislegt í einkasafnið bæti
hann ekki lengur í það. „Ég fæ alveg
nóg út úr því að útvega mönnum það
sem þá vantar, láta þá njóta þess, og
freistast ekki til að láta hluti í bók
hjá mér.“
Eldri viðskiptavinum hefur fækk-
að í Kolaportinu og segir Reynir
helstu ástæðuna vera skort á bíla-
stæðum. „Við líðum fyrir það að bíla-
stæðum hefur fækkað og gamla fólk-
ið treystir sér þess vegna ekki til að
koma í sama mæli og áður auk þess
sem því er ekki vel við bílahúsin.“
Ferðamönnum hafi hins vegar fjölg-
að eftir 2010. „Allir þurftu að eiga
mynd af Eyjafjallajökli eftir gosið og
stöðug sala er í merkjum og kortum
af Gullfossi og Geysi.“ Þar sem til-
tölulega auðvelt sé að eignast flest
íslensk frímerki snúi safnarar sér
gjarnan að annarri búgrein af sama
meiði. Margar handbækur séu til um
þessar hliðargreinar og þær auki
áhugann.
Frítími Reynis fer að mestu í
áhugamálið. „Ég er oft skammaður
fyrir að missa af afmælum um helgar
en mæti alltaf í mat á réttum tíma.
Það gengi ekki upp ef ég væri í
hestamennsku eða golfi og ég uni
mér í þessum heillandi heimi.“
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Í Kolaportinu Reynir Sverrisson stendur vaktina um helgar og missir þá gjarnan af veislum.
Heim með handritin
- Hefur höndlað með frímerki og póstkort í nær þrjá áratugi