Fréttablaðið - 14.01.2022, Síða 1

Fréttablaðið - 14.01.2022, Síða 1
9 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 4 . J A N Ú A R 2 0 2 2 Tyrfingur með nýtt leikrit Birkir í hóp með Grande og Eilish Menning ➤ 16 Lífið ➤ 20 Bændur sagðir í miklum vanda vegna verðhækkunar á áburði. Milljónakostnaður leggst á býli vegna orkuhækkunar erlendis. Bændasamtökin sjá tækifæri fyrir endurreista áburðarfram- leiðslu innanlands. bth@frettabladid.is LANDBÚNAÐUR Áburður til bænda hækkar að minnsta kosti tvöfalt í verði milli ára. Kúabóndi í Svarfað- ardal segir ástandið forkastanlegt. Hækkunin eykur að mati Bænda- samtakanna líkur á að framleiðsla á áburði verði endurreist innanlands. Meginástæða verðhækkunarinnar er hækkun orkuverðs til framleiðslu erlendis, verðhækkun hrávöru og aðfangaskortur. Trausti Þórisson og Ásdís Erla Gísladóttir eru kúabændur á Hofsá í Svarfaðardal. Þau eru með 60 kýr og róbótafjós. Trausti segir að þau muni kaupa minna af áburði í ár en í fyrra til að reyna að bregðast við verð- hækkunum. Eigi að síður muni þau greiða 2,5 milljónum króna meira fyrir áburðinn í ár en í fyrra. „Ef við myndum kaupa sama magn og áður værum við að tala um 3,3 milljónir króna fyrir utan vask,“ segir Trausti. „Þetta er forkastan- legt ástand. Algjörlega fordæmalaus hækkun.“ Í fyrra keyptu hjónin á Hofsá 48 tonn af áburði fyrir 3,35 milljónir. Sami skammtur, sömu tegundir myndu kosta 6,6 milljónir króna í ár. „Maður er með hálfgert blóðbragð í munninum eftir þessi útlát,“ segir Trausti. Hann telur einboðið að ástandið kalli á endurreisn áburðar- verksmiðju hér á landi. „Ef meðalbúið þarf að punga út tveimur til þremur milljónum auka- lega eru afskaplega fáir sem ráða við það,“ segir Trausti. Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, segir að í fjár- lögum sér 700 milljóna króna stuðn- ingur til bænda vegna áburðarkaup- anna nú. Fleira gæti komið til. „Já, ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að við þurfum að endurreisa fram- leiðslu á áburði, nýta græna orku og horfa jafnvel til útflutnings.“ Gunnar segir vel koma til greina að horft verði til fyrirhugaðrar grænnar vetnisframleiðslu á Reyðarfirði með það í huga að ný áburðarverksmiðja verði þar. Gunnar bendir á að stór áburðarframleiðandi í Noregi sé búinn að endurræsa áburðarverk- smiðju sem hafði verið lokað. Varðandi fyrri áburðarverksmiðju Íslendinga í Gufunesi, fyrstu stóriðju landsins sem nýtti mikla orku til starfsemi og framleiddi efni til 2001, segir Gunnar að þegar borgin hafi þanist út hafi staðsetning verksmiðj- unnar gert út um framtíð hennar. „Gufunes var allt í einu statt í miðbæ Reykjavíkur.“ Vegna öryggissjónarmiða segir Gunnar að ekki komi til greina að hafa áburðarverksmiðju í þéttri byggð, framleiðsla ammoníaks og f leiri efna geti valdið sprengi- hættu. n Framleiðsla verði hafin innanlands á áburði til bænda Ekkert lát er á framkvæmdunum við að reisa nýjan Landspítala við Hringbraut þrátt fyrir veður og vind. Undanfarna daga hafa nágrannar nýja spítalans fundið fyrir höggi og hávaða af sprengingum þrisvar á dag á meðan rutt er fyrir grunni hússins. Vonast er til þess að sjúkrahúsið verði tekið í notkun árið 2025. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Gunnar Þor- geirsson, for- maður Bænda- samtakanna Fjórhjóladrifinn Alrafmagnaður Audi e-tron 55 Quattro Advanced Verð 10.990.000 kr. HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/audisalur COVID -19 Búist er við að ríkis- stjórnin samþykki í dag hertar sóttvarnaaðgerðir með vísan í nýtt minnisblað sóttvarnalæknis. „Stjórnvöld verða að styðja betur við atvinnulífið og útvíkka lokunar- styrki og önnur fjárhagsleg úrræði,“ segir Halldór Benjamín Þorbergs- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. „Þegar spurt er út í okkar sjónar- mið bendum við á þetta orsakasam- hengi á milli hlutanna,“ segir Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúk- dómadeildar Landspítalans. SJÁ SÍÐU 2 Hertar sóttvarnaaðgerðir blasa nú við

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.