Fréttablaðið - 14.01.2022, Side 4
Komum einstaklinga 67 ára
og eldri á bráðamóttöku
Landspítala á milli áranna
2019 og 2020 fækkaði um
rúm sextán prósent. Ingi-
björg Sigþórsdóttir og doktor
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir
hafa rannsakað komur þessa
aldurshóps á bráðamóttöku.
birnadrofn@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Á milli áranna
2019 og 2020 fækkaði komum eldra
fólks á bráðamóttöku Landspítala
(LSH) um 2.600, úr rúmum 16 þús-
und í um 13.400. Fækkunin nemur
rúmum 16 prósentum og var mest
í tengslum við bylgjur Covid í mars
og október.
„Áratuginn þar á undan hafði
komum eldra fólks hins vegar fjölg-
að í takt við fjölgun í þessum aldurs-
hópi meðal þjóðarinnar,“ segir Ingi-
björg Sigurþórsdóttir, sérfræðingur
í bráðahjúkrun og teymisstjóri ráð-
gefandi hjúkrunarfræðinga aldr-
aðra (BÖR) á bráðamóttöku LSH.
Hún og doktor Þórdís Katrín
Þorsteinsdóttir, prófessor í bráða-
hjúkrun við Hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands og formaður Fagr-
áðs í bráðahjúkrun á LSH, munu í
dag fjalla um sameiginlega rann-
sókn þeirra á komum 67 ára og eldri
á bráðamóttöku Landspítala.
Þær Þórdís og Ingibjörg segja að
það sem helst hafi komið á óvart í
rannsókninni sé að komuástæður
hafi verið svipaðar milli áranna.
Fækkunin hafi verið hlutfallslega
jöfn milli sjúkdómsf lokka, nema
aðeins fækkun vegna slysa og áverka
og aðeins fjölgun vegna ýmissa
sjúkdómseinkenna.
„Þeir sem komu 2020 voru þó
líklegri til að þurfa innlögn á legu-
deildir en 2019, það er komuástæð-
urnar virðast hafa verið bráðari,“
segja þær.
„Í heildina voru því færri komur
til dæmis vegna alvarlegra og bráðra
veikinda eins og hjarta- og æðasjúk-
dóma, heilaáfalla og sýkinga, sem
okkur þykir áhugavert,“ segir Þórdís.
Spurðar að því hvers vegna
komum á bráðadeild hjá þessum
aldurshópi hafi fækkað segja þær
ástæðuna ekki augljósa. „Við vitum
ekki hvað varð um þá sem ekki
komu til okkar á bráðamóttökuna
þar sem við höfum ekki gögn um
þau en getum í besta fallið giskað,“
segir Þórdís.
„Voru þau að bíða af sér faraldur-
inn þó að þau væru veik heima?“
segir hún og bendir á að smitleiðir
hafi verið færri milli fólks í faraldr-
inum. ,,Fólk var líka minna á ferð-
inni sem skýrir færri sýkingar og
slys, en af hverju komu færri vegna
annarra bráðra veikinda eins og
hjarta- og æðasjúkdóma og heila-
áfalla?“ bætir Þórdís við.
„Kannski skipti einhverju máli
að á reglulegum sjónvarpsfundum
almannavarna var hvatt til heilsu-
ef lingar,“ segir Ingibjörg og bætir
við að fjar- og símaþjónusta heil-
brigðiskerfisins gæti líka hafa skipt
sköpum.
„Við erum hins vegar hræddar
um þann hóp sem einangraðist,
gat ekki sótt dagþjálfun, reglu-
bundið félagsstarf fyrir eldra fólk
eða sjúkraþjálfun vegna sinna
einkenna, að hrumleiki þeirra
hafi getað aukist á þessum tíma
sem birtist síðar í verra sjúkdóms-
ástandi,“ segir Ingibjörg.
Aðspurðar um áhrifin segja Þór-
dís og Ingibjörg Covid-göngudeild
Landspítala hafa skipt verulegu
máli fyrir þjónustu bráðamóttöku
spítalans á þessum tímum.
„En við spyrjum, var eitthvað
sem gert var í samfélaginu og heil-
brigðisþjónustu í fyrstu bylgjum
Covid árið 2020 sem draga má lær-
dóm af til að bæta og efla forvarnir
og þjónustu við aldraða? Hvernig
ætlum við svo að þjónusta þá sem
biðu lengi með sín einkenni? Þetta
þarfnast umræðu og frekari rann-
sókna,“ segir Þórdís.
Erindi Ingibjargar og Þórdísar fer
fram í beinu streymi á Fabook-síðu
Rannsóknarstofu Háskóla Íslands
og Landspítala í öldrunarfræði
klukkan 15 í dag. n
Eldri borgarar leita sjaldnar aðstoðar
á bráðamóttöku í heimsfaraldrinum
Mesta fækkunin átti sér stað í mars og októbermánuði þegar bylgjur kóróna
veirufaraldurs gengu yfir landið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ingibjörg
Sigurþórsdóttir,
sérfræðingur í
bráðahjúkrun
Doktor Þórdís
Katrín Þorsteins
dóttir, prófessor
í bráðahjúkrun
við HÍ
arib@frettabladid.is
COVID-19 Sex voru á gjörgæslu Land-
spítala í gær með Covid-19, þar af
er einn með Omíkron-af brigði
kóróna veirunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landspítala eru fjórir smitaðir af
Omíkron á Landakoti. Óvíst er
hvernig smitin bárust þangað. Allir
sjúklingarnir þar eru þríbólusettir
og ekki veikir. Þá greindust þrjú
smit á hjartadeild spítalans og er
smitrakning í fullum gangi.
Staðan á spítalanum er erfið og
er meirihluti skurðstofa lokaður
þar sem starfsfólk er að sinna sjúkl-
ingum með Covid-19, eru dæmi um
að beinbrot þurfi að bíða lengi. n
Einn á gjörgæslu
með Omíkron
Miklar sóttvarnir eru til staðar á
Landakoti. MYND/ÞORKELL ÞORKELSSON
Fyrirtæki eru betur tengd með Vodafone
Það þarf örugga
tengingu þegar
mannslíf eru í húfi
LANDHELGISGÆSLAN ER HJÁ VODAFONE
því stjórnkerfi okkar er með víðtækustu
öryggisvottun íslenskra fjarskiptafélaga.
elinhirst@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Guðmundur Árni Stef-
ánsson sendiherra gefur kost á sér
í 1. sætið í prófkjöri lista Samfylk-
ingarinnar í Hafnarfirði fyrir bæjar-
stjórnarkosningar í vor.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri
og oddviti Sjálfstæðismanna, segir
jákvætt að reynt fólk gefi kost á sér í
bæjarmálin og til að taka þátt í þeirri
uppbyggingu sem nú sé í bænum.
Guðmundur Árni á langan póli-
tískan feril að baki sem þingmaður,
ráðherra, bæjarstjóri og bæjarfull-
trúi í Hafnarfirði. Undanfarin sex-
tán ár hefur hann gegnt embætti
sendiherra.
Á Fréttavaktinni á Hringbraut í
gærkvöldi sagði Guðmundur Árni
tíma kominn til þess að breyta
stjórnarháttum í Hafnarfjarðarbæ.
Þreytumerki séu á stjórn Sjálfstæðis-
flokksins á bænum og opna þurfi
stjórnsýsluna. Stjórnkerfið hafi
lokast og fólk fái ekki úrlausn sinna
mála. Guðmundur Árni stefnir hátt
í bæjarstjórnarkosningum 14. maí
og segist ætla að tvöfalda fylgi Sam-
fylkingarinnar í Hafnarfirði. n
Bæjarstjóri fagnar framboði Guðmundar Árna
Rósa Guðbjarts
dóttir, bæjar
stjóri í Hafnar
firði
Guðmundur
Árni Stefánsson,
sendiherra
kristinnpall@frettabladid.is
ATVINNULÍF Atvinnuleysi meðal
fólks á aldrinum 20 til 64 ára dróst
saman um 1,8 prósent á þriðja árs-
fjórðungi síðasta árs á Íslandi. Var
hvergi minna atvinnuleysi í Evrópu.
Alls voru 82,7 prósent 20 til 64 ára
á Íslandi með vinnu sem er nær níu
prósentum hærra en meðaltal í Evr-
ópu. Þetta kemur fram í samantekt
Eurostat, tölfræðiveitu ESB.
Ísland er með naumt forskot
á Holland þar sem 82,6 prósent
aldurshópsins eru með vinnu en
meðaltalið í Evrópusambandsríkj-
unum er 73,5 prósent. Lægsta hlut-
fallið mældist á Ítalíu þar sem 63,1
prósent aldurshópsins var í vinnu. n
Atvinnuleysið
minnst á Íslandi
Atvinnuleysi dróst saman þegar líða
tók á síðasta ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
4 Fréttir 14. janúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ