Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.01.2022, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 14.01.2022, Qupperneq 6
Meðalhitastigið í fyrra í Bandaríkjunum var 0,84 gráðum hærra en meðaltal 20. aldar. Símaforrit fyrir rakningar á Covid-smitum hafa verið tekin upp í mörgum löndum á meðan heimsfaraldur stendur yfir. Margir hafa lýst yfir áhyggjum af smáfor- ritum sem þessum sem gætu mögulega fylgst með ferðum einstaklinga og mannamót- um fyrir hönd yfirvalda. urduryrr@frettabladid.s PERSÓNUVERND Íslensk sóttvarna- yfirvöld hafa gengið langt í því að viðhalda persónuvernd við gerð rakningarappsins Rakning C-19 og með nýjustu uppfærslum er svo til ómögulegt að safna gögnum úr forritinu og nýta í annað en smit- rakningu, að sögn Persónuverndar og Embættis landlæknis. Annað er uppi á teningnum varð- andi þýska appið Luca. Lögreglan í Mainz í Þýskalandi fékk á dögunum aðgang að gögnum úr þýska Covid- 19 rakningarappinu Luca til að finna vitni að mögulegu morði. Notendur appsins geta skráð við- veru á veitingastöðum og viðburð- um í appinu. Appið heldur utan um það hve lengi einstaklingur dvelur á hverjum stað fyrir sig. Lögreglan fann 21 mögulegt vitni með upp- lýsingum úr appinu. Framleiðandi appsins segist fá beiðnir frá lögreglu um aðgang að gögnum nánast á degi hverjum en aðeins heilbrigðisyfirvöld geta ráðið úr dulkóðuninni. Að öllum líkindum hafa heilbrigðisyfirvöld hermt eftir smiti til að fá aðgang að gögnunum í þessu tilfelli. Þessi notkun á gögnunum er harðlega gagnrýnd og er talin vatn á myllu þeirra sem aðhyllast sam- særiskenningar um faraldurinn. Hólmar Örn Finnsson, per- sónuverndar fulltrúi Embættis landlæknis, segir samkvæmt sótt- varnalögum ekki heimilt að nýta upplýsingar úr íslenska smitrakn- ingarappinu Rakning C-19 í öðrum tilgangi en við smitrakningu. Lög- reglan geti ekki og hafi ekki beðið um gögn til notkunar í öðrum til- gangi. Jafnvel þótt lögreglan fengi aðgang að gögnum forritsins væri þar engar upplýsingar að fá. Gögnin eru öll geymd í símum einstaklinga og þar eru þau takmörkuð og dul- kóðuð. „Í dag eiga ekki að vera neinar persónuupplýsingar eða staðsetn- ingarupplýsingar í forritinu, þetta eru í raun bara tilviljanakenndar talnarunur samkvæmt þeim upp- lýsingum sem við höfum fengið frá Embætti landlæknis,“ segir Vigdís Eva Líndal, sviðsstjóri erlends sam- starfs og fræðslu hjá Persónuvernd. „Hönnun smitrakningarforrits- ins er dæmi um hvernig er hægt að nýta tækni til að lágmarka vinnslu persónuupplýsinga í nútímasam- félagi þannig að friðhelgi einkalífs borgaranna sé virt,“ segir Vigdís. n Útilokað að mis nota rakningargögn hér líkt og í morðmáli í Þýska landi Lögreglan í Þýskalandi fékk að nota Covid-rakningarapp við leitina að vitnum í morðmáli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY arib@frettabladid.is VÍSINDI Alls verður úthlutað styrk úr Rannsóknasjóði til 82 verkefna í dag. Framlög til sjóðsins eru í ár tæplega 3,9 milljarðar króna. Af verkefnunum 82 eru sex svokölluð öndvegisverkefni sem fá allt að 150 milljónir króna hvert á þremur árum. „Það eru 23 prósent af þeim sem sóttu um sem fá styrk,“ segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri hjá Rannís. „Hlutfallið var komið niður fyrir 20 prósent á tímabili sem var erfitt bæði fyrir umsækjendur og okkur, þá náum við ekki styrkja allar fyrsta f lokks umsóknir. Við náðum því ekki alveg í ár heldur.“ Framlögin voru hækkuð úr 2,5 milljörðum króna í 3,7 milljarða í fyrra, um er að ræða tímabundna hækkun til þriggja ára. Ágúst segist vona að stjórnvöld geri þá hækkun varanlega. „Það yrði mjög erfitt fyrir vísindasamfélagið ef farið yrði aftur í fyrra horf.“ n Um fjórðungur umsækjenda fær styrk Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri hjá Rannís bth@frettabladid.is HÚSNÆÐISMÁL Hagfræðingur Hús- næðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) tekur undir orð formanns Félags fasteignasala um að hlut- deildarlán þurfi að hækka. Í Fréttablaðinu kom fram í vik- unni að færst hefði í vöxt að for- eldrar þurfi að hlaupa undir bagga með börnum vegna fyrstu íbúðar- kaupa ungs fólks. „Já, ég held að það sé alveg rétt ályktað hjá formanninum. Foreldr- ar eru gjarnan að aðstoða börnin sín með útborgun við fyrstu kaup. Það er líka rétt að hlutdeildarlánin fóru vel af stað í upphafi en við erum að sjá að það eru þó nokkrir komnir með lánsloforð fyrir hlutdeild- arláni en virðast ekki geta nýtt sér það á markaðnum í dag,“ segir Kar- lotta Halldórsdóttir, hagfræðingur hjá HMS. Lánaviðmið hlutdeildarlána, sem ætluð eru tekju- og eignalitlum, voru sett í lok árs 2020. „Íbúðaverð hefur vissulega hækk- að gífurlega síðan þá og því getur verið erfitt í dag að finna íbúðir sem passa inn í þau viðmið,“ segir Kar- lotta. Gert er ráð fyrir því í reglugerðinni að lánaviðmiðin séu endurskoðuð árlega og sú vinna stendur yfir nú. „Hins vegar þarf líka að taka tillit til þess að slíkar aðgerðir séu ekki til þess fallnar að auka þenslu á hús- næðismarkaði og hækki verðið enn frekar,“ segir Karlotta. n Hlutdeildarlánin halda ekki í við verðhækkanir Karlotta Hall- dórsdóttir, hagfræðingur hjá HMS Nánar á frettabladid.is Þetta eru í raun bara tilviljanakenndar talnarunur. Vigdís Eva Líndal, sviðsstjóri erlends samstarfs og fræðslu hjá Persónuvernd kristinnpall@frettabladid.is NATO Fjölmiðlafulltrúi rússnesku ríkisstjórnarinnar, Dmitry Peskov, segir að þótt friðarviðræðurnar sem hafa átt sér stað í vikunni hafi þok- ast í rétta átt sé ekki hægt að segja að þær hafi staðist væntingar. Við- ræðurnar sem áttu sér stað í Genf, Vín og Brussel hafi þokast í rétta átt en að það sé enn ósætti um ákveðin atriði. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu fundaði í Vínarborg í gær þar sem ræddar voru öryggiskröfur Rússa og ákvörðun rússnesku ríkis- stjórnarinnar um að senda fjölda hermanna og vopn að landamærum Úkraínu. Utanríkisráðherra Póllands, Zbigniew Rau, hafði orð á því að ástandið væri afar óstöðugt og sagði að hættan á stríði hefði ekki verið meiri í þrjátíu ár. n Friðarviðræður ekki borið ávöxt Alexander Lúkasjevitsj sat fundinn í Vín fyrir Rússa. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY kristinnpall@frettabladid.is BANDARÍKIN Vísindamenn banda- rísku haf- og loftslagsráðstefnunnar NOAA segja að síðasta ár hafi verið sjötta heitasta árið frá upphafi mæl- inga árið 1880. Bandaríska geimvís- indastofnunin, NASA, sagðist hafa fengið sömu niðurstöður. Fyrri mælingar sýndu fram á að síðasta sumar hefði deilt metinu yfir heitasta sumar frá upphafi með sumrinu 1936. Þá er síðasti áratug- ur sá heitasti frá upphafi mælinga. Að sögn vísindamanna NOAA má rekja hækkandi hitastig og auknar sviptingar í veðurfari til hnatt- rænnar hlýnunar. n Sjötta heitasta ár frá fyrstu mælingu Foreldrar eru gjarnan að aðstoða börnin sín með útborgun við fyrstu kaup. 6 Fréttir 14. janúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.