Fréttablaðið - 14.01.2022, Page 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Við kynntumst á skemmti-
staðnum Broadway í desember
1982 þegar Elísabet heilsaði mér.
Ég hafði aldrei séð hana áður og
hafði ekki hugmynd um að hún
væri Ungfrú Ísland 1980, Ungfrú
Reykjavík og Ungfrú Útsýn, en
taldi mig heppinn að vera ávarp-
aður af þessari fallegu konu,“ segir
Sigurður Matthíasson, eigandi
Svefns og heilsu, um sín fyrstu
kynni við eiginkonuna, Elísabetu
Traustadóttur.
„Mér fannst hann eitthvað
kunnuglegur svo ég sagði bara
„hæ!“,“ útskýrir Elísabet sem leist
vel á pilt og sendi honum í kjöl-
farið jólakort, en hún var iðin við
jólakortaskrif í þá daga.
„Ég hugsaði með mér að ef hann
væri almennilegur þá hefði hann
samband og þakkaði fyrir jóla-
kortið, en ég sendi honum kortið
því mig langaði að hann hefði sam-
band, sem og hann gerði,“ greinir
Elísabet frá.
„Ég var glaður að fá jólakortið,
mjög glaður. Það varð til þess að
kveikja í mér. Það þarf ekki nema
eitt jólakort til,“ segir Siggi Matt
og hlær. „Ég hringdi strax á milli
jóla og nýárs og svo hittumst við
um áramótin. Ég bjó á Dalvík og
kom suður til að hitta Elísabetu en
varð veðurtepptur vegna mikillar
snjókomu og fékk að gista heima
hjá henni. Eftir það var ekki aftur
snúið,“ segir Siggi Matt.
„Kannski átti þetta að gerast og
varð upphaf að fallegu ævintýri
sem stendur enn og heldur áfram,“
segir Elísabet.
Þau gengu í heilagt hjónaband
1985.
„Elísabet er ákveðin og fylgin
sér. Hún tók fyrsta skrefið þegar
við kynntumst og ég náði ekki að
biðja hennar, því hún varð fyrri
til,“ segir Siggi Matt og brosir sæll
að minningunni.
Lenti óvart í rúmbransanum
Ástarsaga Elísabetar og Sigga fór á
flug. Þau fluttu til Bandaríkjanna
þar sem íþróttakennarinn Siggi
hóf nám í íþróttafræðum og fram-
tíðarfræðum og Elísabet í fjöl-
miðlafræðum og grafískri hönnun
við Alabama-háskóla. Þar bjuggu
þau í sex ár og á þeim tíma var
Sigurður á íþróttastyrk og keppti í
spjótkasti á vegum skólans.
„Þegar við ákváðum að flytja
heim til Íslands voru amerískar
dýnur mjög vinsælar á Íslandi og
ég var beðinn um að kippa með
mér nokkrum slíkum fyrir vini og
kunningja. Ég fór að skoða hvaða
dýnur kæmu helst til greina og
sá í neytendablaðinu Consumer
Report að Chiropractic-dýnurnar
voru að fá bestu dómana. Ég hafði
því samband við verksmiðjuna og
bað um að fá að skoða dýnurnar,
bæði fyrir sjálfan mig og aðra,“
greinir Siggi frá, en þarna hófst
innflutningurinn með einum
gámi af dýnum rétt fyrir jólin
1991.
„Eftir að heim kom byrjaði ég á
að þjálfa frjálsar íþróttir hjá FH og
KR, en seldi með það sama gám af
dýnum og var strax beðinn um að
flytja inn meira. Því var ég óvænt
lentur í rúmbransanum, nokkuð
sem ég ætlaði mér aldrei út í,“ segir
Siggi um upphaf þess að þau
hjónin stofnuðu Svefn og
heilsu.
„Ég þakka velgengnina
miklum áhuga okkar
hjóna og einstöku starfs-
fólki sem flest hefur verið
hjá okkur í mjög langan
tíma. Við höfum aldrei sætt
okkur við neitt annað en að
vera með bestu vörurnar, að
okkar mati. Það er ekki að
ástæðulausu að okkur hefur tekist
svona vel til og að viðskiptavinir
séu ánægðir eftir þrjátíu ár.“
Þau Elísabet
og Siggi segja
algengan mis-
skilning að
Svefn og heilsa
sé dýr verslun.
Þar fáist rúm í
öllum verð-
flokkum og
við allra hæfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Þessi auglýsing hitti þjóðina í hjartastað á sínum tíma, þegar Elísabet og Siggi
ákváðu að flatmaga í hjónarúminu með börnum sínum fjórum og labrador.
Í Svefni og heilsu fæst allt sem til þarf í svefnherbergið en líka æðislegir hæg-
indastólar eins og þessi belgíski frá Modulax sem selst upp jafnóðum.
Hannar dýnur fyrir heiminn
Eftir því sem árin liðu fór Siggi að
hanna dýnur fyrir Svefn og heilsu
og undanfarin fimmtán ár hefur
hann einnig hannað dýnur fyrir
erlend fyrirtæki.
„Í dag hef ég mikla reynslu í
því hvernig dýnur eiga að vera
uppbyggðar, þannig að þær henti
sem flestum. Þá veljum við aldrei
dýnur fyrir fólk í Svefni og heilsu,
því fólk verðu að máta og velja þær
sjálft. Allar dýnur í Svefni og heilsu
eiga sameiginlegt að vera hann-
aðar eftir sjö svæða skiptingu, líka
þær ódýrustu sem eru hörkugóðar
dýnur. Svæðaskiptar dýnur eru
með mýkra axlasvæði, stuðningi
við neðra bak og millistífar á
mjaðmasvæði svo að rassinn sígi
aðeins niður og veiti góðan bak-
stuðning,“ upplýsir Siggi.
Hann segir algengan misskiling
að Svefn og heilsa sé dýr fyrir
budduna.
„Það er af og frá. Við seljum
dýnur á mjög hagstæðu verði. Sem
dæmi erum við með hjónarúm
með botni og fótum á um hundrað
þúsund krónur og sjálfur gæti
ég vel hugsað mér að sofa á slíkri
dýnu,“ segir Siggi Matt sem býður
upp á tólf gerðir heilsudýna með
mismunandi stífleika og sumar
með íslenskum nöfnum.
„Já, því ekki að hafa íslensk nöfn
á íslenskri hönnun? Mér finnst það
tilvalið og viðskiptavinir kunna
vel að meta það,“ segir Siggi Matt.
Stærst í sölu rúma
Svefn og heilsa er með yfirburða
stöðu á íslenskum rúmmarkaði en
samkvæmt mælingum Gallup hafa
um 25 prósent þjóðarinnar keypt
sér rúm í Svefni og heilsu síðast-
liðin ár.
„Já, það er ljúf staðreynd,“ segir
Siggi. „Um fjórðungur þjóðarinnar
sefur værum nætursvefni í rúmum
frá okkur. Fólk gengur að gæðunum
vísum í Svefni og heilsu en við
hömrum alltaf á því í auglýsingum
að fólk geri gæða- og verðsaman-
burð áður en það kaupir sér nýtt
rúm. Við veljum aðeins dýnur með
viðurkenndri alþjóðlegri vottun
um að þær séu ekki með heilsuspill-
andi efnum. Þar förum við mest
eftir alþjóðlegri Oeko-Tex-vottun,
en þeir sem hafa
áhuga á að kynna
sér slíka vottun geta farið inn á
oeko-tex.com,“ greinir Siggi frá.
Niðurstöður rannsókna sýna æ
oftar mikilvægi góðs svefns fyrir
heilsufarið.
„Svefn er ein af grunnþörfum
mannsins og hefur mikil áhrif á
heilsu okkar og líðan. Það er tvennt
sem maðurinn er í og notar; rúm
og skór. Því skiptir höfuðmáli að
rúmið sé gott. Það er okkar heilagi
staður og sem betur fer hafa flestir
efni á að eignast slíkan stað, því
rúm eru ekki dýr í samanburði við
endingu og svo margt annað,“ segir
Siggi Matt.
Sjálf sofa þau hjónin á Body-
print-dýnum eftir hönnun Sigga,
hvort á sinni dýnunni í stillanlegu
rúmi.
„Nýlega tókum við inn hæginda-
stóla frá belgíska framleiðand-
anum Modulax, sem eru langbestu
stólar sem við höfum verið með,
fallegir, taka ekki mikið pláss og
hleðslan dugar í heilan mánuð. Það
er sú vara sem hefur komið mér
mest á óvart að undanförnu, þeir
eru alltaf uppseldir og við höfum
ekki undan að panta,“ segir Siggi.
Heimsmet Sigga stendur enn
Svefn og heilsa hefur frá upphafi
verið fjölskyldufyrirtæki og í dag
starfa þar tveir synir Elísabetar og
Sigga. Margir muna eftir heillandi
auglýsingum Svefns og heilsu þar
sem fjölskyldan flatmagaði saman
í breiðu hjónarúmi. Mörgum
fannst sem þeir þekktu hjónin
vegna auglýsinganna sem hittu í
mark og komu inn á hvert heimili.
„Það var skemmtileg hugmynd
og ég hef verið að hugsa um að
endurtaka leikinn, en fer að vísu
verða of gamall í auglýsingar,“ segir
Siggi Matt og skellir upp úr.
Sjálfur var Siggi afreksmaður í
íþróttum á árum áður.
„Ég var frægastur fyrir hástökk
án atrennu, á enn Íslandsmet og
annan besta árangur í heimi sem
stendur enn, 1,85 m hástökki. Svo
kastaði ég spjóti yfir 80 metra með
Einari Vilhjálmssyni og Sigurði
Einarssyni í Alabama,“ segir Siggi
sem er duglegur að rækta líkama
og sál, en bæði hjónin stunda
heilsurækt og passa upp á heilsu-
samlegt mataræði og góðan nætur-
svefn.
„Ég æfi í World Class með Bjössa,
en þar sé ég um að þjálfa hann því
ég er íþróttakennari og íþrótta-
fræðingur en Bjössi vélstjóri á bát,“
segir Siggi og hlær dátt.
Samrýmd fjölskylda
Hjónin hafa alla tíð verið einhuga
og samstíga, jafnt í einkalífinu sem
og verslunarrekstrinum.
„Þetta hefur verið skemmtilegur
tími og mér þykir alltaf jafn gaman
og gefandi að hitta fólk í búðinni
og geta hjálpað því að finna rúm
sem hentar best. Við verjum jú
þriðjungi ævinnar í rúminu og
heilsan er númer eitt. Því þarf að
vanda valið,“ segir Elísabet innan
um dýrindis rúm, sængur, sængur-
fatnað og allt sem viðkemur svefni
í Svefni og heilsu.
Börnin í auglýsingunum eru
uppkomin, tveir strákar og tvær
stelpur á aldrinum 21 til 34 ára.
„Við erum samrýmd fjölskylda.
Áhugamálin eru golf, ferðalög,
góður matur og samverustundir
með fjölskyldunni og vinum. Og
svo auðvitað búðin. Hún er einlægt
áhugamál okkar beggja.“ n
Svefn og heilsa er á Engjateig
19. Sími 581 2233. Sjá nánar á
svefnogheilsa.is
Hjónin sofa saman í
stillanlegu rúmi með
Bodyprint dýnum.
G Ó ÐUR S V E F N2 kynningarblað A L LT 14. janúar 2022 FÖSTUDAGUR