Fréttablaðið - 14.01.2022, Síða 16

Fréttablaðið - 14.01.2022, Síða 16
Þrátt fyrir að mann- kynið hafi reynt að komast að því frá örófi alda, veit enginn af hverju okkur dreymir. Sérfræðingar hafa ekki komist að niðurstöðu um af hverju okkur dreymir. Það er þó vitað að öll dreymir okkur eitthvað á hverri nóttu, hvort sem við munum það eða ekki. sandragudrun@frettabladid.is Draumar geta verið misjafnir, þeir eru stundum ánægjulegir, stundum skelfilegir, stundum kynæsandi og mjög oft furðu- legir. Þó ekki sé vitað með vissu hvað draumar okkar tákna hafa rannsóknir samt leitt í ljós ýmsar áhugaverðar staðreyndir um þá. Á heilsuvefnum Healthline.com hafa verið teknar saman nokkrar sann- reyndar staðreyndir um drauma. Hér eru nokkrar þeirra. 1. Skýrir draumar REM-svefn eða draumsvefn er svefnástand sem við upplifum með reglulegu millibili yfir nóttina. Meðan á þessu ástandi varir eru draumar okkar skýr- astir og líklegast að við munum þá. 2. Morgunninn er bestur Á morgnana dreymir okkur lengstu draumana. 3. Helgar eru eftirminnilegar Um helgar er líklegra að við getum sofið út og þá er líklegra að við munum draumana okkar því hver lota af draumsvefni er alltaf lengri en sú síðasta. 4. Lömunarástand Á meðan á draumsvefni stendur lamast flestir vöðvar líkamans til að hindra að við reynum að bregðast við draum- unum með hreyfingu. 5. Mynddraumar Okkur dreymir aðallega í myndum. Flestir draumar eru sjónrænir með lítið af hljóðum eða hreyfingum. 6. Endurteknir draumar Flest könnumst við við að dreyma sömu drauma aftur og aftur. Endurteknir draumar hjá börnum tengjast oftast ákveðnu þema. Þemun eru: n Átök við skrímsli eða dýr n Líkamsárásir n Að detta n Að vera elt 7. Skrýtið er eðlilegt Draumar okkar eru oft skrýtnir. Það er vegna þess að sá hluti heilans sem ber ábyrgð á að hlutir séu skiljanlegir er óvirkur þegar okkur dreymir. 8. Þekkt andlit Það er líklegast að okkur dreymi aðeins andlit sem við höfum þegar séð, í eigin per- sónu eða í sjónvarpi/kvikmynd. 9. Minna stress, betri draumar Það er líklegra að okkur dreymi ánægjulega drauma ef við upplifum litla streitu og erum ánægð í lífinu. 10. Blautir draumar sjaldgæfir Samkvæmt rannsóknum eru ekki nema um 4 prósent drauma okkar um kynlíf. 11. Stelling skiptir máli Það er líklegra að dreyma um kynlíf ef sofið er á maganum. 12. Konur dreymir frægt fólk Það er tvöfalt líklegra að kon- ur dreymi kynlífsdrauma um frægt fólk, samanborið við karlmenn. 13. Börn fá oftar martraðir Martraðir hjá börnum byrja oftast á aldrinum 3-6 ára og þeim fækkar við 10 ára aldur. 14. Martraðir á svipuðum tíma nætur Það er langalgengast að fá martraðir á síðasta þriðjungi næturinnar. 15. Svefnrofalömun varir stutt Svefnrofalömum er raunveru- legt ástand sem um 8 pró- sent fólks upplifa samkvæmt rannsóknum. Þá er fólk eins og á milli svefns og vöku, en með meðvitund en getur ekki hreyft sig líkt og í draum- svefni. Þetta er óhugnanlegt ástand fyrir þau sem upplifa það en varir sem betur fer mjög stutt. 16. Erfiðir jóladraumar Það er líklegra að dreyma sorg- lega drauma um látna ástvini í kringum hátíðir. 17. Máltíð eykur líkur á martröð Að borða rétt fyrir svefninn eykur líkur á því að fá martröð. Það er af því þá fer meltingin í gang og sendir skilaboð til heilans um að vera virkari. 18. Við sjáum öll í draumi Blint fólk sér myndir í svefni. 19. Draumar gleymast Fólk gleymir 95-98 prósentum drauma sinna. 20. Margir draumar Fólk eldra en 10 ára dreymir 4-6 drauma á nóttu. 21. Neikvæðir draumar algengir Það er algengara að dreyma neikvæða drauma en jákvæða. 22. Blótað upp úr svefni Það er mjög algengt að blóta upp úr svefni samkvæmt rann- sókn frá árinu 2017. 23. Enginn veit hvað draumar tákna Þrátt fyrir að mannkynið hafi reynt að komast að niður- stöðu um hvað draumar tákna frá örófi alda hafa rannsak- endur enn ekki komist að því af hverju okkur dreymir eða hvort draumar þjóni ein- hverjum tilgangi. n Nokkrar staðreyndir um drauma Það er fullkomlega eðlilegt að draumar okkar séu stórfurðulegir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Sleepy dýnurnar hafa farið sigurför um Evrópu enda byggja þær á hátækni sem tryggir þér og þínum góðan og gleðilegan nætursvefn. Sleepy dýnurnar koma til neyt- enda í handhægum umbúðum líkt og vinsælt er orðið á dýnumark- aðnum í dag. „Það sem sker Sleepy dýnurnar úr hjörð keppinauta er sú staðreynd að Sleepy er einn elsti dýnuframleiðandi í Evrópu. Þetta er 40 ára gamalt heilsudýnu- fyrirtæki sem byggir á allri þeirri þekkingu og reynslu sem hefur safnast á þessum árum. Á meðan hafa keppinautarnir verið að framleiða dýnur frá 2015, en það var einmitt þá sem framleiðendur fóru af stað með þróun á dýnum sem koma í kassa, eða „mattress in a box“. Munurinn í gæðum er því ótvíræður og augljós,“ segir Pétur Pétursson, umboðsaðili fyrir Sleepy® á Íslandi. Krúnudjásnið loksins á Íslandi „Við erum með umboðið fyrir Sleepy á Íslandi og hófum að selja krúnudjásnið þeirra, Sleepy® Original dýnuna, í janúar í fyrra. Það eru fimm ár síðan Sleepy hóf framleiðslu á þessum dýnum og í dag er þetta langvinsælasta varan þeirra í Evrópu. Dýnan hefur sigrað í neytendakönnunum sem besta dýna ársins í Evrópu. Neyt- endakannanir skoða þá nokkur atriði eins og öndunareiginleika, gæði í framleiðsluferli, hráefni og verð, til þess að ákvarða einkunn hverrar dýnu fyrir sig. Sleepy dýnurnar skora afar hátt í öllum þessum flokkum. Dýnan andar einstaklega vel og byggir á hátækni sem tryggir öndunar- eiginleika hennar. Dýnurnar koma frá Belgíu og eru framleiddar í Vestur-Evrópu þar sem strangt eftirlit er með vinnuaðstæðum og gæðum hráefna. Kolefnissporið er því einnig lágt í samanburði við það ef dýnurnar væru sem dæmi fram- leiddar utan Evrópu. Neytendur hafa líka verið himinlifandi yfir verðinu enda eru Sleepy dýnurnar á frábæru verði á sama tíma og þær búa yfir miklum gæðum. Þar að auki er hver dýna tvískipt hvað varðar stífleika, sem gefur notanda möguleika á að velja hvort hann vilji stífa eða miðlungs- stífa dýnu. Þessi einstaki eiginleiki breikkar til muna markaðshóp vörunnar sem sýnir sig aftur í enn betra verði. Sleepy hefur tekið neytenda- könnunum fagnandi og unnið markvisst að því að betrumbæta tæknina í takt við það sem neyt- endur vilja. Þá hefur fyrirtækið aflað sér upplýsinga frá þúsundum einstaklinga til þess að fram- leiða bestu dýnuna fyrir stærsta markaðshópinn. Það er því ekki að undra að fjöldi íþróttafólks og fólks sem er áberandi í samfélag- inu hefur hrósað Sleepy dýn- unum í hástert. Sleepy® Original dýnurnar eru til í öllum helstu stærðum á lager hjá okkur á Íslandi og það er enginn vandi að græja séróskir.“ Góðar viðtökur Pétur seldi fyrstu Sleepy® Original dýnuna í janúar 2021 og eftir nokkrar seldar dýnur fór boltinn að rúlla. „Við erum ung á markaðnum og búum ekki yfir jafnmiklu auglýsingafjármagni og margir keppinauta okkar. Við höfum því fyrst og fremst treyst á að gæði vörunnar berist orð af orði. Það hefur í raun verið lyginni líkast hversu vel okkur hefur verið tekið af íslensku neytendum enda hefur salan gengið gríðarlega vel síðan við hófum sölu og erum við virkilega þakklát fyrir þessar hlýju móttökur. Sleepy vörurnar hafa verið vinsælar á landsbyggðinni enda kunna landsbyggðarbúar vel að meta að við sendum Sleepy dýnuna heim að dyrum fólki að kostnaðarlausu, hvar sem er á landinu.“ Langur prófunartími Hægt er að koma við í sýningar- rýminu í verslun Vest að Ármúla 17 og prófa Sleepy® Original dýnuna. „Við gerum okkur grein fyrir að það getur verið ósanngjarnt að ætlast til að fólk taki svo stóra fjárhagslega ákvörðun á stuttum tíma og því bjóðum við upp á 120 nátta prófun án skuldbindingar fyrir alla kaupendur. Það þýðir að ef þú kaupir dýnu frá okkur, hefur þú tæpa fjóra mánuði til að prófa dýnuna og sofa á henni, áður en þú ákveður að halda henni eða skila gegn fullri endurgreiðslu. Ef þú ákveður að skila dýnunni spyrjum við eingöngu hvað hefði mátt vera betra. Við höfum gríðar- lega trú á þessari vöru enda hefur það sýnt sig að afar fáir hafa skilað dýnunni.“ Hitastillandi koddar fyrir alla aldurshópa „Við seljum einnig Original kodda og svo Hybrid frá Sleepy. Original koddarnir hafa verið vinsælir hjá okkur enda anda þeir vel. Kodd- inn inniheldur bakteríudrepandi og rakastjórnandi bambuskol og áklæðið sem umlykur koddann inniheldur ICE trefjar sem veita sérstaka kælitilfinningu. Sleepy® Hybrid koddarnir byggja hins vegar á einstöku hátækniefni frá NASA sem kallast Outlast. Efnið er hitastillandi sem þýðir að líkamshiti notanda fer aldrei yfir 37°C. Koddinn skiptist í innri og ytri kodda. Sá innri inni- heldur sérstakar svamprúllur sem hægt er að fjarlægja eftir þörfum. Þannig stillir þú þykktina á kodd- anum. Ytra lagið byggir svo á Out- last hitastillingartækninni.“ n Sleepy® fæst í verslun Vest að Ármúla 17. Nánari upplýsingar má nálgast á vest.is. Mæla öll með Sleepy Original heilsudýnunum Þau treysta öll Sleepy® fyrir mikilvægum svefni sínum. MYND/AÐSEND Pétur Pétursson er umboðsaðili fyrir Sleepy® á Íslandi og segir við- tökurnar hafa verið ótrúlega góðar. MYND/AÐSEND G Ó ÐUR S V E F N4 kynningarblað A L LT 14. janúar 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.