Fréttablaðið - 14.01.2022, Síða 19
Þeir sem nota kæfisvefnsvél
segja ómögulegt að sleppa
úr nóttu, því annars sé næsti
dagur ónýtur. Það er því
mikill kostur að ferðakæfi
svefnsvélar séu bæði öflugar
og handhægar og AirMini
vélina frá Stoð er auðvelt að
taka hvert sem er.
Ása Jóhannesdóttir, framkvæmda-
stjóri Stoðar, er hjúkrunarfræðing-
ur með sérþekkingu á svefni og Sara
Lind Sveinsdóttir er með BS-gráðu
í heilbrigðisverkfræði og þjónustar
fólk sem vill kaupa sér kæfisvefns-
vélina hjá Stoð. Þær geta því frætt
fólk um allt sem við kemur kæfi-
svefni og meðferðinni við honum.
Kannast þú við eftirfarandi?
Ertu þreytt(ur) á daginn og finn-
urðu fyrir einbeitingaleysi, minnis-
leysi eða óþolinmæði? Vaknar þú
með höfuðverk, munnþurrk eða
særindi í hálsi? Ertu jafnvel syfjuð/
syfjaður við akstur? Hefur þér verið
sagt að þú hrjótir eða sért óróleg(ur)
í svefni? Hefurðu bætt á þig auka-
kílóum? Ferðu á klósettið á nótt-
unni? Svitnar þú á nóttunni? Ef þú
svarar þessum spurningum játandi
gæti verið að þú sért með kæfisvefn.
Hvað er kæfisvefn?
Kæfisvefn er sjúkdómsástand
sem einkennist af endurteknum
öndunartruflunum í svefni og oft
fylgja hrotur með. Öndunarvegur-
inn lokast eða þrengist endurtekið
í svefni í 10 sekúndur eða lengur og
súrefnismettunin í blóðinu fellur
svo í kjölfarið.
„Við þetta rofnar svefninn, því
einstaklingurinn verður í raun að
vakna eitt augnablik til að ná and-
anum og ná súrefnismettuninni
upp aftur. Þetta ástand endurtekur
sig svo aftur og aftur yfir nóttina,“
útskýrir Ása.
Svefnleysið veldur skertum lífs-
gæðum og súrefnismettunarfallið
getur valdið alvarlegum fylgikvill-
um kæfisvefns eins og hjarta- og
æðasjúkdómum og háþrýstingi.
Aðrir þekktir fylgikvillar eru
ofþyngd, sykursýki týpa II og vél-
indabakflæði.
Hvaða áhrif hefur
kæfisvefn á lífsgæði?
Lífsgæði einstaklinga með
kæfisvefn eru verri vegna þess að
svefninn er svo truflaður. Ein-
staklingurinn fær ekki jafnmikinn
djúpsvefn og ekki jafnmikla hvíld
og heilbrigður einstaklingur.
„Kæfisvefnssjúklingar eru því
þreyttir, finna fyrir minni orku,
dotta á fundum og fyrirlestrum
og geta jafnvel dottað undir stýri,“
segir Ása. „Þessir einstaklingar eru
um leið oft með skerta athygli og
einbeitingu og finna fyrir minnis-
leysi.“
Hefur kæfisvefn
áhrif á matarlyst?
Sá sem lifir við skert svefngæði er
oft með aukna matarlyst því svefn-
leysið veldur brenglun á hormón-
um sem stjórna svengd. Þetta sýna
rannsóknir, auk þess sem maður
getur einfaldlega spurt sig hvað
þreyttur einstaklingur gerir.
„Fólk drekkur kaffi og nær sér
í orku úr mat, oft kolvetnaríkum
mat,“ segir Ása. „Þannig skapast
vítahringur orkuleysis, hreyfingar-
leysis og aukinnar matarlystar.
Einstaklingar sem fara á kæfi-
svefnsmeðferð finna fljótt hvernig
svefngæðin lagast með aukinni
orku á daginn og þá fara auka-
kílóin líka að hverfa.“
Kæfisvefn er líka áhættuþáttur
fyrir sykursýki týpu II því svefn-
leysi getur valdið skerðingu á
sykurþoli. Þetta er flókið samspil
kæfisvefns og sykursýki en offita
er stóri áhættuþáttur beggja kvilla.
Hvernig er kæfisvefn
meðhöndlaður?
Stór hluti þeirra sem greinast með
kæfisvefn er fólk sem er á besta
aldri og í fullri vinnu, ferðast og
stundar áhugamál sín af kappi.
Hjá Stoð er nú hægt að kaupa litla
og meðfærilega kæfisvefnsvél
sem hentar vel fyrir þá sem eru á
ferðinni og veitir sömu meðferð og
vélin frá spítalanum.
„Fyrst þarf að fá greiningu og
við ráðleggjum fólki að byrja á að
tala við sinn heimilislækni og fá
beiðni í svefnrannsókn. Í kjölfarið
fer það í rannsókn og sefur með
lítið svefngreiningartæki,“ útskýrir
Sara Lind. „Ef einstaklingur
greinist fær hann svo kæfisvefnsvél
til afnota í gegnum Landspítala og
Sjúkratryggingar Íslands.
En við hjá Stoð bjóðum líka upp
á þetta litla og meðfærilega tæki
sem stenst fyllilega samanburð
við stærri kæfisvefnsvélar og það
auðveldar lífið á ferðalögum. Í stað
þess að burðast með stóru vélina
erum við með litla ferðavél sem er
auðvelt að taka með í bústaðinn,
veiðina, golfferðirnar, fríið og
vinnuferðir bæði innan lands og
utan,“ segir Sara Lind.
AirMini ferðakæfisvefnsvélin
er mögnuð
„Ferðavélin frá ResMed heitir
AirMini og það magnaða við hana
er að þó að hún sé lítil er hún öflug,
frá sama framleiðanda og veitir
sambærilega meðferð og kæfi-
svefns vélin sem fólk notar heima,“
segir Sara Lind. „Vélin er líka mjög
einföld í notkun. Hún tengist
snjallsíma og þar er hægt að fylgjast
með framvindu meðferðar.“
Sara Lind segir það tímabært að
vera loksins komin með lausn fyrir
þá sem þjást af kæfisvefni og vilja
litla og handhæga svefnöndunarvél
til að ferðast með og segir að þeir
sem ferðast mikið vegna vinnu
sinnar eða sér til skemmtunar hafi
verið að fjárfesta í vélinni.
„Ég hef lært að þeir sem eru með
kæfisvefn og nota kæfisvefnsvél
taka ekki í mál að sofa eina nótt án
vélarinnar. Þeir finna strax mun á
sér og eru ómögulegir og úrvinda
ef þeir sleppa henni,“ segir hún.
„Því felst mikið frelsi í því að þurfa
ekki að taka með stærri vélina og
rakatækið sem er á náttborðinu,
heldur geta einfaldlega kippt litlu
ferðavélinni með í ferðatöskuna.“
Þjónustan hjá Stoð
Sara Lind þjónustar einstaklinga
sem hafa áhuga á kaupa ferða-
vélina hjá Stoð og það er hægt
að bóka þjónustutíma í ráðgjöf
fyrir kæfisvefnsvélar á heimasíðu
Stoðar, stod.is.
„Fólk þarf bara að muna að
koma með vélina sína og grímu í
tímann,“ segir hún.
Vélinni fylgir líka snjallforritið
AirMini by ResMed sem er hægt
að sækja í App Store og Play Store
áður en komið er í tímann.
„Ferðavélin tengist svo snjall-
forritinu sem er einfalt í notkun
og sérhannað til að fylgjast með
framvindu meðferðar, veita
yfirsýn og breyta stillingum. Þar
er einnig hægt að nálgast upp-
lýsingar mánuð aftur í tímann,“
útskýrir Sara Lind, en hún kennir
á vélina þegar komið er í þjónustu-
tíma og hann er innifalinn í verði
vélarinnar. ■
Tveggja ára ábyrgð er á AirMini
ferðakæfisvefnsvélinni. Ekki er
hægt að skila vélinni né aukahlut
um eftir að umbúðir hafa verið
opnaðar. Allar nánari upplýsingar
á stod.is.
Ómissandi allar nætur
Sara Lind
Sveinsdóttir og
Ása Jóhannes
dóttir segja að
AirMini ferða
kæfisvefnsvélin
sé frábær lausn
fyrir þá sem
þjást af kæfi
svefni og vilja
litla og hand
hæga svefn
öndunarvél til
að ferðast með.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
AirMini ferðakæfisvefnsvélin er
ótrúlega nett og meðfærileg.
Nett og þægileg græja
Rúnar Halldór Hermannsson
hefur notað AirMini ferðavél
ina síðan í september á síðasta
ári og er mjög ánægður með
hversu handhæg vélin er.
„Ég var greindur með
kæfisvefn fyrir meira en fimm
árum síðan og hafði áhuga á
að fá vél sem væri þægileg á
ferðalögum, en vélin sem ég
er með frá Landspítalanum er
mikið stærri en þessi nýja og
ég fór aldrei neitt með hana,“
segir hann. „Sú gamla tók allt
plássið á náttborðinu en þetta
er mikið nettari græja sem er
auðveldara að ferðast með. Ég
er búinn að fara með hana með
mér í styttri ferðir innanlands
sem og í utanlandsferðir til Þýskalands og Tenerife, þar sem ég er
núna. Það er mjög þægilegt að grípa hana með og hún er líka mun
einfaldari í notkun en sú gamla.
Snjallforritið sem fylgir vélinni leyfir mér líka að fylgjast með
gæðum svefnsins míns, sem er mjög gott,“ segir Rúnar.
„Þessi vél hefur staðist allar mínar væntingar og ég myndi mæla
með henni. Það er frábært hvað hún er lítil, nett og meðfærileg og
það er mjög einfalt að nota hana,“ segir Rúnar að lokum.
Rúnar Halldór Hermannsson er mjög
ánægður með AirMini ferðakæfi
svefnsvélina frá Stoð. MYND/AÐSEND
Skannaðu
kóðann og
fáðu nánari
upplýsingar
BETRI HVÍLD Í FRÍINU MEÐ AIRMINI
FERÐAKÆFISVEFNSVÉLINNI
Trönuhrauni 8 - 565 2885 | stod.is
ALLT kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 14. janúar 2022 G Ó ÐUR S V E F N