Fréttablaðið - 14.01.2022, Síða 20
reynsla af þeim,“ segir Smári.
Rúmfatalagerinn er með mikið
úrval af vinsælum rúmum fyrir
fermingarbörn. „Sleepwell hafa
verið afar vinsæl ásamt glæsi-
legri Luxury-dýnu sem hefur
slegið í gegn hjá okkur síðustu ár.
Luxury dýnan er byggð upp með
5 þægindasvæðum í gormum sem
gefur mjög góðan stuðning við bak
og mjaðmir, það er mýkra svæði
við axlir sem léttir á þrýsting þar.
Latex yfirdýna veitir frábæra mýkt
í rúmið,“ segir Smári og bendir á
að alltaf skuli nota dýnuhlíf. „Það
kemur í veg fyrir skemmdir á dýnu
og lengir líftíma hennar.“
Þegar fólk fær sér nýtt rúm leitar
það oft að rúmgafli og náttborðum
í stíl. Smári segir að Rúmfata lager-
inn bjóði mikið úrval af slíkri vöru,
auk þess hirslur til að geyma lök,
sængurfatnað og rúmteppi. „Við
erum mjög sterkir í rúmfötum með
gríðarlegt úrval í öllum stærðum
og frábær verð. Ég get vel mælt með
norsku sængurverunum frá Höie
sem standa alltaf fyrir sínu,“ segir
hann. n
Hægt er að skoða vöruúrvalið á
heimasíðunni rumfatalagerinn.is
sem jafnframt er vefverslun.
Sumar dýnur eru
sérstaklega hann-
aðar fyrir fólk af ákveð-
inni þyngd. Vertu því
viss um að þú sért að
skoða dýnur sem henta
þinni líkamsþyngd.
Rúmfatalagerinn er með
mjög breitt vöruúrval af
frábærum rúmum og hægt
að velja um ýmsar gerðir
af dýnum. Í sýningarsal er
hægt að skoða rúmin og fá
faglega ráðgjöf sérþjálfaðra
starfsmanna.
Smári Jón Hauksson, vörustjóri hjá
Rúmfatalagernum, segir að amer-
ískar dýnur séu langvinsælastar.
„Það er ekkert skrítið þar sem þær
eru á frábærum verðum og hafa
staðist allar væntingar og kröfur
sem viðskiptavinir okkar gera. Við
erum með mjög breitt vöruúrval í
rúmum og bjóðum upp á gorma-
dýnur, latexdýnur, memorydýnur,
svampdýnur og margt fleira. Stórir
sýningarsalir eru á Smáratorgi
og Bíldshöfða en þar getum við
sýnt nánast allar gerðir okkar í
rúmum og dýnum. Vörumerkin
eru þekkt og get ég nefnt Dunlo-
pillo, Temprakon og Höie sem fást
í mörgum stærðum,“ segir Smári
og bendir á að starfsfólkið sé sér-
þjálfað og hafi sótt námskeið um
allt sem varðar rúm og svefn.
„Við erum tilbúin til að taka á
móti viðskiptavinum og leiðbeina
þeim við val á réttu rúmi. Margir
eru óvissir og ég bendi þeim á að
leita til söluráðgjafa okkar. Þeir
spyrja ákveðinna spurninga til að
greina hvað getur hentað fyrir við-
komandi en svo eru líka viðskipta-
vinir sem eru búnir að gera heima-
vinnu sjálfir og vita einfaldlega
hvað þeir vilja þegar þeir koma í
verslunina. En aðalatriðið er að
koma og máta rúmin í sýningar-
sölum okkar,“ útskýrir hann.
Sumir vilja rafmagnsrúm og
Smári bendir á að þau hafi ákveðna
sérstöðu þar sem þau bjóði upp á
aukin þægindi. „Það er auðveldara
að komast fram úr rúminu þar sem
hægt er að lyfa upp baki sem er líka
þægilegt fyrir þá sem lesa í rúminu.
Einnig geta hrotur minnkað ef bak-
hlutanum er lyft upp smávegis sem
er sömuleiðis gott fyrir þá sem eru
með bakflæði. Þá er mjög gott að
geta lyft undir fæturna til að létta
á blóðþrýstingi í þreyttum fótum.
Einnig erum við með dönsku
Temprakon-rúmin sem eru með
þá sérstöðu að minnka hitasveiflur
yfir nóttina ásamt að fjarlægja allan
raka.
Rúmin eru 200 cm að lengd en
hægt er að sérpanta lengri rúm
fyrir þá sem vilja 210 cm. Rúmin
eru framleidd í Evrópu og Asíu.
Luxury, Prestige og Unique koma
meðal annars frá Asíu en við
höfum verið með þær dýnur í sölu
frá 2015 svo það er komin mjög góð
Rúm fyrir þá sem
gera kröfur
Smári Jón
Hauksson, vöru-
stjóri hjá Rúm-
fatalagernum,
segir að rúmin
standist allar
þær kröfur sem
fólk gerir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Stór sýningar-
salur er á Smára-
torgi þar sem
auðvelt er að
ganga um og
skoða úrvalið.
Flest eyðum við um sjö til
átta klukkustundum í rúm-
inu á hverjum sólarhring.
Og ef svo er raunin, þá er
allsendis ljóst að rúmdýnan
mun slitna á ákveðnum
tímapunkti.
jme@frettabladid.is
Raunhæft er að skipta dýnunni út á
tíu ára fresti eða svo. Taktu þó sér-
staklega eftir vísbendingum sem
líkaminn gefur frá sér. Ef þú finnur
fyrir verkjum þegar þú vaknar
getur það bent til þess að þú þurfir
að skipta dýnunni út fyrr. Og ef þú
hefur sofið einhvers staðar annars
staðar en heima hjá þér, eins og
heima hjá vini eða á hóteli, og þér
finnst þú sofa betur en í eigin rúmi,
þá uppgötvarðu kannski að þín
eigin rúmdýna uppfylli ekki þarfir
þínar.
Til athugunar við val á dýnu
Þegar kemur að því að velja nýja
dýnu eru engin rétt eða röng svör.
Þetta er allt mjög persónulegt og
það er úr nægu að velja.
Byrjaðu á því að þrengja niður
leitina og miða við líkamsgerð
þína. Sumar dýnur eru sérstaklega
hannaðar fyrir fólk af ákveðinni
þyngd. Vertu því viss um að þú sért
að skoða dýnur sem henta þinni
líkamsþyngd.
Taktu þinn tíma. Liggðu á dýn-
unni í lengri tíma en örfáar sek-
úndur. Íhugaðu að fara í verslunina
á tíma sem þú veist að það eru fáir
í búðinni. Þá eru minni líkur á því
að sjálfsmeðvitundin sé fyrir þér.
Ef þú deilir rúmi með maka og
þið getið ekki sammælst um stíf-
leika, eða ef makinn eða þú þjáist
af bakflæði og þarf að sofa með
smá halla, þá er ekki vitlaust að
skoða dýnur sem hægt er að stilla
hvora hliðina fyrir sig.
Ekki hika við að spyrja um
tryggingar og skilafrest. Það eru
líkur á því að þú finnir dýnu sem
virkar fullkomin í búðinni, en
þegar heim er komið uppfyllir hún
ekki þarfir þínar. Það er engin leið
að vita hvort rúmdýna henti þér
með því að prófa hana í búðinni,
því þú munt aldrei eyða jafnmikl-
um tíma á henni þar eins og heima
hjá þér. Sumar verslanir bjóða upp
á prufutíma í mánuð og ef þér líkar
varan ekki þá geturðu skipt henni
út gegn smá gjaldi.
Þægindi eru ómetanleg og dýr-
ustu dýnurnar eru ekki alltaf þær
bestu fyrir þig. Viljir þú ekki missa
svefn yfir verði rúmdýnunnar
er nauðsynlegt að taka til greina
hverju þú hefur efni á. Rúmdýnur
fást á breiðu verðbili og þær verða
alltaf fjárfesting.
Ákveddu því hversu miklum
peningum þú ert tilbúin/n að verja
í dýnuna. n
Góð dýna er gulli betri
Það er nauðsynlegt að gefa sér góðan tíma við val á rúmdýnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Betri svefn með Lín Design
Betri svefn með Lín Design
Betri svefn
með Lín Design
www.lindesign.is
Kíktu á bls. 4 í
Allt blaðinu!
sleepy.is - s: 620 7200 - Ármúli 17
8 kynningarblað A L LT 14. janúar 2022 FÖSTUDAGURG Ó ÐUR S V E F N