Fréttablaðið - 14.01.2022, Side 24
Vel heppnuð leiklist
getur nefnilega virkað
svolítið eins og læknis-
leikur fyrir fullorðna.
Sjö ævintýri um skömm er
leikrit eftir Tyrfing Tyrfings-
son sem frumsýnt verður á
Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu
í næsta mánuði í leikstjórn
Stefáns Jónssonar.
Tyrfingur býr í Amsterdam en var
hér á landi á dögunum og blaða-
maður náði tali af honum.
„Titill leikritsins lofar því að
fjallað sé um skömm, en eins og
allur skáldskapur svíkur það líka,“
segir Tyrfingur. „Verkið fjallar um
lögreglukonu sem er f link og næm
í starfi en þegar brotist er inn á
heimili hennar þá frýs hún og
getur ekki gripið til varna. Í kjöl-
farið hættir hún að sofa, verður
svo reið, hættuleg og of beldisfull
að hún ryðst inn á stofu geðlæknis
og krefur hann um sterkustu
lyfin, þau sem myndu svæfa hana
um leið. En geðlæknirinn, sem er
skrýtin skrúfa, vill vita ástæðuna
fyrir svefnleysinu og skýrir henni
frá kenningu sinni um að baki allri
geðveiki liggi um það bil sjö ævin-
týri um skömm. Í sameiningu byrja
þau að rekja sig í gegnum ævintýrin
í lífi hennar.“
Um tóninn í leikritinu segir Tyrf-
ingur: „Í leikritinu er bæði gleði og
leikur. Þetta er mikið leikhús, sem
er andstaðan við skömm. Kannski
er ein besta leiðin til að tala um
skömm að leika sér að henni.
Það er oft sagt að hægt sé að skila
skömminni en það er ekki hægt
fyrr en búið er að vingast við hana
og leika með hana eins og brúðu. Þá
er mögulega hægt að losna við hana
en þá langar mann kannski ekkert
endilega til að skila henni – maður
hefur eignast óþekkan vin. Vel
heppnuð leiklist getur nefnilega
virkað svolítið eins og læknisleikur
fyrir fullorðna.“
Óður til íslensks samfélags
Blaðamaður biður Tyrfing að nefna
dæmi um ævintýri sem fjallað er
um í leikritinu. „Ein sagan byggir
á ástarævintýrum ömmu minnar
sem var, eins og hún sagði sjálf,
kanamella í bílskúr í Flórída.
Skammarferðalagið hefst þar og
áhorfandinn kynnist lífi hennar.
Lúkasarmálið á Akureyri kemur
líka við sögu. Það er sem sagt farið
víða og leikhópurinn er í einu orði
sagt stórkostlegur með Stefán við
stjórnvölinn, ég hef verið aðdáandi
verka hans lengi.“
Tyrfingur segist ekki vera að
hæðast að samfélaginu í verkinu.
„Ég vil ekki segja að ég sé að hæð-
ast en ég er náttúrlega hrekkju-
Ég er náttúrlega hrekkjusvín úr Kópavogi
Í leikritinu er
bæði gleði og
leikur, segir
Tyrfingur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
inn, Veislan, Rambó 7 eftir Jón Atla
og Engispretturnar, ég varð til sem
höfundur á frábærum uppfærslum
í Þjóðleikhúsinu. Að einhverju leyti
finnst mér ég vera að gefa til baka
það sem ég þáði þaðan. Það er góð
tilfinning.“
Hroki vísindanna
Spurður hvernig Covid-tíminn hafi
verið fyrir hann sem leikskáld segir
Tyrfingur: „Covid hefur ekki kennt
mér neitt nýtt en það hefur speglað
ýmislegt eins og óþolinmæðina og
stjórnsemina í mér og hversu ég er
óttasleginn. Ég sé líka betur ofurtrú
okkar á tölum og tölfræði sem eru
eins og nýju testamentin, og síðan
hroka og trúarofstæki vísindanna
og hvernig við hugsum ennþá um
samfélagið eins og vél sem þarf að
laga en ekki sem lifandi veru. Að
ógleymdum þessum botnlausa
pempíugangi við dauðann. En það
er líka ágætis æfing að vera stopp-
aður af, því það er kannski martröð
hins karllæga egós að vera stöðvað-
ur og það finnst mér holl reynsla að
sú martröð rættist. Fyrir vikið gafst
mér meiri tími til að vinna verkið.“
Hann segir að Covid hafi orðið til
þess að verkum eftir hann sem sýna
átti í Amsterdam hafi verið aflýst.
Það er þó nokkur sárabót fyrir hann
að leikrit hans hafa verið gefin út á
bókum í Hollandi, Frakklandi og á
Ítalíu.
Í haust er von á fyrstu kvik-
myndinni sem Tyrfingur kemur að,
Villibráð, en hann skrifaði hand-
ritið í samráði við leikstjórann, Elsu
Maríu Jakobsdóttur. Zik Zak fram-
leiðir. „Þetta var ótrúlega skemmti-
legt verkefni. Það hefur stundum
verið talað um að í íslenskum kvik-
myndum sé þjösnast á persónum
af landsbyggðinni. Í Villibráð eru
það Reykvíkingar sem eru teknir af
lífi.“ n
svín úr Kópavogi og get ekki vanið
mig af því. Hvað get ég sagt, sko,
stundum finnst mér að á Íslandi
sé ekki stunduð sálarfræði heldur
sárafræði, þar sem við nuddum
saman sárunum á okkur og köllum
það nánd. Með þeim hætti gefum
við sárunum og skömminni of
mikið vald yfir okkur og leikurinn
kemst hvergi að. Ég get gengist við
þjáningu minni en ég verð samt að
setja henni mörk og muna að hún
er ávanabindandi. En verkið fjallar
að einhverju leyti um þetta, þótt
aðallega sé það óður til íslensks
samfélags og sögu þessara þriggja
kynslóða af konum: móður, dóttur,
ömmu.“
Leikritið er fyrsta verk Tyrfings
sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu en
hingað til hafa verk hans verið
sýnd í Borgarleikhúsinu. Spurður
hvort það skipti máli segir hann:
„Já, sýningar eins og Koddamaður-
tsh@frettabladid.is
Ljósmyndahátíð Íslands hófst í gær,
13. janúar, en um er að ræða alþjóð-
lega hátíð sem haldin er annað
hvert ár.
Markmið Ljósmyndahátíðar er
að vinna að framþróun ljósmynd-
unar sem listforms og verða fjöl-
margar sýningar haldnar í lista-
söfnum og galleríum víðs vegar um
höfuðborgarsvæðið, þar á meðal í
Listasafni Íslands, Ljósmyndasafni
Reykjavíkur, Gerðarsafni, Gallery
Port og BERG Contemporary.
Stjórnendur hátíðarinnar eru
Katr ín Elvarsdóttir og Pétur
Thomsen sem eru bæði starfandi
ljósmyndarar.
„Þetta er stærra heldur en þetta
hefur nokkurn tímann verið því
það eru þrettán sýningar sem er
verið að opna,“ segir Katrín en
bætir þó við að Covid-faraldurinn
hafi sett nokkuð stórt strik í reikn-
inginn og gert það að verkum að
fresta þurfti öllum viðburðum
hátíðarinnar fram í mars.
„Allir viðburðir sem venjulega
hafa verið í upphafi hátíðarinnar,
þeir verða ekki fyrr en í lok mars.
Við svona gerum þetta á öfugum
endanum en það er allt opnað
núna.“
Hátíðin verður ekki sett formlega
í ár vegna samkomutakmarkana en
sérstök viðburðahelgi verður hald-
in í lok mars með viðburðum á borð
við bókasýningu, ljósmyndarýni og
málþingi í Listasafni Íslands.
Aðspurð hvað standi upp úr á
hátíðinni segir Katrín það sæta
tíðindum hversu margir sam-
starfsaðilar eru en næstum öll
listasöfn höfuðborgarsvæðisins
taka þátt í hátíðinni með einum
eða öðrum hætti. Þá nefnir hún sér-
staklega sýninguna Sviðsett augna-
blik sem er sýningarstýrt af Vigdísi
Jónsdóttur og fer fram í Listasafni
Íslands.
„Sýningin í Listasafni Íslands er
mjög stór, það er sem sagt safneign-
arsýning, yfirlit yfir safneignina í
Listasafni Íslands. Þar er þá ljós-
myndamiðillinn tekinn og verið að
rannsaka hvað þau eiga,“ segir hún
og bætir við að sambærileg rann-
sókn á safnkosti listasafnsins hafi
ekki verið gerð áður. n
Stærri en nokkru sinni fyrr þrátt
fyrir samkomutakmarkanir
Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen, stjórnendur Ljósmyndahátíðar Ís-
lands sem er alþjóðleg hátíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
16 Menning 14. janúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 14. janúar 2022 FÖSTUDAGUR