Fréttablaðið - 14.01.2022, Page 24

Fréttablaðið - 14.01.2022, Page 24
Vel heppnuð leiklist getur nefnilega virkað svolítið eins og læknis- leikur fyrir fullorðna. Sjö ævintýri um skömm er leikrit eftir Tyrfing Tyrfings- son sem frumsýnt verður á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í næsta mánuði í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Tyrfingur býr í Amsterdam en var hér á landi á dögunum og blaða- maður náði tali af honum. „Titill leikritsins lofar því að fjallað sé um skömm, en eins og allur skáldskapur svíkur það líka,“ segir Tyrfingur. „Verkið fjallar um lögreglukonu sem er f link og næm í starfi en þegar brotist er inn á heimili hennar þá frýs hún og getur ekki gripið til varna. Í kjöl- farið hættir hún að sofa, verður svo reið, hættuleg og of beldisfull að hún ryðst inn á stofu geðlæknis og krefur hann um sterkustu lyfin, þau sem myndu svæfa hana um leið. En geðlæknirinn, sem er skrýtin skrúfa, vill vita ástæðuna fyrir svefnleysinu og skýrir henni frá kenningu sinni um að baki allri geðveiki liggi um það bil sjö ævin- týri um skömm. Í sameiningu byrja þau að rekja sig í gegnum ævintýrin í lífi hennar.“ Um tóninn í leikritinu segir Tyrf- ingur: „Í leikritinu er bæði gleði og leikur. Þetta er mikið leikhús, sem er andstaðan við skömm. Kannski er ein besta leiðin til að tala um skömm að leika sér að henni. Það er oft sagt að hægt sé að skila skömminni en það er ekki hægt fyrr en búið er að vingast við hana og leika með hana eins og brúðu. Þá er mögulega hægt að losna við hana en þá langar mann kannski ekkert endilega til að skila henni – maður hefur eignast óþekkan vin. Vel heppnuð leiklist getur nefnilega virkað svolítið eins og læknisleikur fyrir fullorðna.“ Óður til íslensks samfélags Blaðamaður biður Tyrfing að nefna dæmi um ævintýri sem fjallað er um í leikritinu. „Ein sagan byggir á ástarævintýrum ömmu minnar sem var, eins og hún sagði sjálf, kanamella í bílskúr í Flórída. Skammarferðalagið hefst þar og áhorfandinn kynnist lífi hennar. Lúkasarmálið á Akureyri kemur líka við sögu. Það er sem sagt farið víða og leikhópurinn er í einu orði sagt stórkostlegur með Stefán við stjórnvölinn, ég hef verið aðdáandi verka hans lengi.“ Tyrfingur segist ekki vera að hæðast að samfélaginu í verkinu. „Ég vil ekki segja að ég sé að hæð- ast en ég er náttúrlega hrekkju- Ég er náttúrlega hrekkjusvín úr Kópavogi Í leikritinu er bæði gleði og leikur, segir Tyrfingur. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is inn, Veislan, Rambó 7 eftir Jón Atla og Engispretturnar, ég varð til sem höfundur á frábærum uppfærslum í Þjóðleikhúsinu. Að einhverju leyti finnst mér ég vera að gefa til baka það sem ég þáði þaðan. Það er góð tilfinning.“ Hroki vísindanna Spurður hvernig Covid-tíminn hafi verið fyrir hann sem leikskáld segir Tyrfingur: „Covid hefur ekki kennt mér neitt nýtt en það hefur speglað ýmislegt eins og óþolinmæðina og stjórnsemina í mér og hversu ég er óttasleginn. Ég sé líka betur ofurtrú okkar á tölum og tölfræði sem eru eins og nýju testamentin, og síðan hroka og trúarofstæki vísindanna og hvernig við hugsum ennþá um samfélagið eins og vél sem þarf að laga en ekki sem lifandi veru. Að ógleymdum þessum botnlausa pempíugangi við dauðann. En það er líka ágætis æfing að vera stopp- aður af, því það er kannski martröð hins karllæga egós að vera stöðvað- ur og það finnst mér holl reynsla að sú martröð rættist. Fyrir vikið gafst mér meiri tími til að vinna verkið.“ Hann segir að Covid hafi orðið til þess að verkum eftir hann sem sýna átti í Amsterdam hafi verið aflýst. Það er þó nokkur sárabót fyrir hann að leikrit hans hafa verið gefin út á bókum í Hollandi, Frakklandi og á Ítalíu. Í haust er von á fyrstu kvik- myndinni sem Tyrfingur kemur að, Villibráð, en hann skrifaði hand- ritið í samráði við leikstjórann, Elsu Maríu Jakobsdóttur. Zik Zak fram- leiðir. „Þetta var ótrúlega skemmti- legt verkefni. Það hefur stundum verið talað um að í íslenskum kvik- myndum sé þjösnast á persónum af landsbyggðinni. Í Villibráð eru það Reykvíkingar sem eru teknir af lífi.“ n svín úr Kópavogi og get ekki vanið mig af því. Hvað get ég sagt, sko, stundum finnst mér að á Íslandi sé ekki stunduð sálarfræði heldur sárafræði, þar sem við nuddum saman sárunum á okkur og köllum það nánd. Með þeim hætti gefum við sárunum og skömminni of mikið vald yfir okkur og leikurinn kemst hvergi að. Ég get gengist við þjáningu minni en ég verð samt að setja henni mörk og muna að hún er ávanabindandi. En verkið fjallar að einhverju leyti um þetta, þótt aðallega sé það óður til íslensks samfélags og sögu þessara þriggja kynslóða af konum: móður, dóttur, ömmu.“ Leikritið er fyrsta verk Tyrfings sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu en hingað til hafa verk hans verið sýnd í Borgarleikhúsinu. Spurður hvort það skipti máli segir hann: „Já, sýningar eins og Koddamaður- tsh@frettabladid.is Ljósmyndahátíð Íslands hófst í gær, 13. janúar, en um er að ræða alþjóð- lega hátíð sem haldin er annað hvert ár. Markmið Ljósmyndahátíðar er að vinna að framþróun ljósmynd- unar sem listforms og verða fjöl- margar sýningar haldnar í lista- söfnum og galleríum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið, þar á meðal í Listasafni Íslands, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Gerðarsafni, Gallery Port og BERG Contemporary. Stjórnendur hátíðarinnar eru Katr ín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen sem eru bæði starfandi ljósmyndarar. „Þetta er stærra heldur en þetta hefur nokkurn tímann verið því það eru þrettán sýningar sem er verið að opna,“ segir Katrín en bætir þó við að Covid-faraldurinn hafi sett nokkuð stórt strik í reikn- inginn og gert það að verkum að fresta þurfti öllum viðburðum hátíðarinnar fram í mars. „Allir viðburðir sem venjulega hafa verið í upphafi hátíðarinnar, þeir verða ekki fyrr en í lok mars. Við svona gerum þetta á öfugum endanum en það er allt opnað núna.“ Hátíðin verður ekki sett formlega í ár vegna samkomutakmarkana en sérstök viðburðahelgi verður hald- in í lok mars með viðburðum á borð við bókasýningu, ljósmyndarýni og málþingi í Listasafni Íslands. Aðspurð hvað standi upp úr á hátíðinni segir Katrín það sæta tíðindum hversu margir sam- starfsaðilar eru en næstum öll listasöfn höfuðborgarsvæðisins taka þátt í hátíðinni með einum eða öðrum hætti. Þá nefnir hún sér- staklega sýninguna Sviðsett augna- blik sem er sýningarstýrt af Vigdísi Jónsdóttur og fer fram í Listasafni Íslands. „Sýningin í Listasafni Íslands er mjög stór, það er sem sagt safneign- arsýning, yfirlit yfir safneignina í Listasafni Íslands. Þar er þá ljós- myndamiðillinn tekinn og verið að rannsaka hvað þau eiga,“ segir hún og bætir við að sambærileg rann- sókn á safnkosti listasafnsins hafi ekki verið gerð áður. n Stærri en nokkru sinni fyrr þrátt fyrir samkomutakmarkanir Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen, stjórnendur Ljósmyndahátíðar Ís- lands sem er alþjóðleg hátíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 16 Menning 14. janúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 14. janúar 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.